| |
|
Frímúrarar
fjárfesta
- sama hugmyndafræði hjá
Fimleikasjóð Íslands -
|
|
24/06 |
Meðal stærstu eigendahópa
í kauphöllinni í Stokkhólmi
eru sænskir frímúrarar. Þeir
hafa stofnað fjölda fjárfestaingarsjóða
og rennur allur hagnaður af fjárfestingunum
til góðgerðarmála samkvæmt
frétt sænska viðskiptablaðsins Dagens
Industri. Heildarverðmæti þess fjár
sem sjóðirnir hafa úr að spila er
um 884 milljónir sænskra króna, jafngildi
um 8,4 milljarða íslenskra króna. Þar
af er um helmingur fjárfestinganna í sænskum
hlutabréfum.
Stærstu eignirnar í safninu eru hlutir í
nokkrum af öflgustu fyrirtækjum Svíþjóðar
og ber þar helst að nefna H&M, Volvo og
Nordea sem allt eru vel þekkt fyrirtæki. Vermæti
eignasafnsins hefur hækkað um 20%
það sem af er ári (þegar frétt
var birt í mbl) og segist fulltrúi frímúrara
í Svíþjóð ánægður
með þróunina, svo lengi sem ávöxtunin
standi undir skuldbindingum frímúrara sé
ekki hægt að kvarta.
Það má segja að til þessa hafi
verið litið þegar Fimleikasjóður
Íslands var stofnaður árið 1999.
Sjóðurinn hefur fjárfest í hlutabréfum
einstakra félaga, hlutabréfa- og skuldabréfasjóðum.
Hvað hlutabréf varðar, sem skráð
eru í Kauphöll Íslands, þá
hefur sjóðurinn í mörg ár
verið hluthafi Kaupþingi banka hf. og hluthafi
í Exista hf. frá skráningu á
markað en þau eru ein stærstu félög
landsins á sínu sviði. Frá áramótum
hefur verðmæti hlutabréfa í Exista
hf. hækkað um 49,78% og Kaupþings
banka hf. um 33,5%. Þrátt
fyrir að stærð Fimleikasjóðs
Íslands megi sín lítils m.v. sambærilega
sjóði í Svíþjóð
þá hefur ávöxtun sjóðsins
gengið mjög vel. Hugmyndafærðin er
sú sama og hjá frímúrurum
í Svíþjóð og því
ekki ólíklegt að sjóðurinn
verði enn öflugra afl í framtíðinni
hvað varðar styrkveitingar til fimleikahreyfingarinnar.
|
Fimleikasjóður Íslands
styrkir FSÍ um 280.000,-
|
|
08/05 |
Fimleikasjóður
Íslands hefur greitt Fimleikasambandi Íslands
kr. 280.000,- í styrk vegna Evrópumóts
í áhaldafimleikum. Styrkurinn er ætlað
að greiða kostnað vegna tveggja þjálfara
á mótið. Sjóðurinn hefur
styrkt FSÍ um kr. 380.000 á árinu
2007.
Fimleikasjóð Íslands er ætlað
að vera bakhjarl við afreksstefnu í fimleikum
á Íslandi. Frá stofnun hefur
sjóðurinn greitt út styrki að fjárhæð
kr. 1.420.000 sem fimleikafólk hefur notið
góðs af.
Fyrir hönd Fimleikasjóðs Íslands
Jón Finnbogason
|
Styrkþegar sjóðsins frá stofnun
|
|
12/04 |
Þeir sem hlotið hafa styrk frá Fimleikasjóð Íslands frá upphafi eru sem hér segir:
Félög og félagasamtök: Fimleikadeild Fylkis, Fimleikadeild Hattar á Egilsstöðum, Fimleikadeild Keflavíkur, Fimleikafélagið Rán Vestmannaeyjum, Fimleikaráð Akureyrar, Fimleikasamband Íslands, Íþróttafélagið Gerpla, Fimleikafélagið Björk og Fimleikadeild Stjörnunnar.
Einstaklingar: Anna Líney Ívarsdóttir, Anton Heiðar Þórólfsson, Arna Hjartardóttir, Auður Agla Óladóttir, Auður Ólafsdóttir, Ása Inga Þorsteinsdóttir, Ásdís Dagmar Þorsteinsdóttir,Ásdís Guðmundsdóttir, Birta Benónýsdóttir, Bjarki Ásgeirsson, Björk Óðinsdóttir, Dýri Kristjánsson, Fríða Rún Einarsdóttir, Grétar K. Sigþórsson, Gunnar Sigurðsson, Harpa Hlíf Bárðardóttir, Harpa Snædís Hauksdóttir, Heiðdís Halldórsdóttir, Hera Jóhannesdóttir, Hildur Þórðardóttir, Hlín Bjarnadóttir, Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, Inam Rakel Yasin, Inga Rós Gunnarsdóttir, Ingvar Á. Jochumsson, Íris Mist Magnúsdóttir, Íris Svavarsdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir, Jónas Valgeirsson, Karítas Harpa Davíðsdóttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Lilja Erlendsdóttir, Linda Óskar Þorvaldsdóttur, Magdalena Rós Guðnadóttir, Margrét Hulda Karsdóttir, Marín Þrastardóttir, Nanna Yngvadóttir, Róbert Kristmannsson, Rúnar Alexanersson, Sara Rut Ágústsdóttir, Sara Sif Sveinsdóttir, Sif Pálsdóttir, Sigríður Harðardóttir, Sigurrós Jónsdóttir, Soffía Bergsdóttir, Sólveig Jónsdóttir, Tanja B. Jónsdóttir, Teitur Páll Reynisson, Thelma Rut Hermannsdóttir, Tinna Rut Traustadóttir, Viktor Kristmannsson, Vilborg Guðjónsdóttir og Þórunn Arnardóttir.
Nánar um félagatal.
|
Fimleikasjóður Íslands styrkir FSÍ um 100.000,-
|
|
04/04 |
Þann 30 mars sl. styrkti Fimleikasjóður Íslands Fimleikasamband Íslands vegna Norðurlandamóts unglinga í áhaldafimleikum um kr. 100.000,- Styrkurinn er ætlað að greiða kostnað vegna tveggja þjálfara á Norðurlandamótið.
Fimleikasjóð Íslands er ætlað að vera bakhjarl við afreksstefnu í fimleikum á Íslandi. Frá stofnun hefur sjóðurinn greitt út styrki að fjárhæð kr. 1.140.000 sem fimleikafólk hefur notið góðs af. Á undanförnum árum hafa nokkrir velunnarar fimleikahreyfingarinnar stutt Fimleikasjóð Íslands með fjárframlögum en sjóðurinn nýtur einnig ávöxtunar af eignum sínum sem eru í dag um 900.000.
Er þetta í fyrsta skiptið sem Fimleikasamband Íslands er styrkt með beinum hætti eins og nú hefur verið gert. Vel kann að vera að það verði gert í auknu mæli í framtíðinni.
Fyrir hönd Fimleikasjóðs Íslands
Jón Finnbogason
|
|
Úthlutað
kr. 420.000,- úr Fimleikasjóð
Íslands
- samtals hefur verið greitt kr. 1.040.000
úr sjóðnum -
|
|
29/04/2006 |
Að þessu sinni er kr. 420.000,-
úthlutað úr Fimleikasjóði Íslands.
Um er að ræða fimleikafólk sem stefnir
á keppnis eða æfingaferðir erlendis
eða til að stunda nám í fimleikakennslu.
Iðkendur fá kr. 10.000,- vegna hvers viðburðar.
Úthlutinin nú er töluvert hærri
en áður og stafar það einkum af mjög
góðri ávöxtun á eignum sjóðsins
á undanförnum misserum og auknum inngreiðslum
inn í sjóðinn. Sjóðurinn hefur
úthlutað til fimleikahreyfingarinnar samtals
kr. 1.040.000,- sem skiptist sem hér
segir: 2006 kr. 420.000,- 2004
kr. 200.000,- 2003 kr. 100.000,- 2002
kr. 180.000,- 2000 kr. 40.000,-
Auðvelt
er að gerast styrktaraðili sjóðsins.
Aðeins þarf að senda email á fimleikar@fimleikar.is
og þú leggur þitt af mörkum við
að styrkja fimleikafólkið í landinu.
Þeir sem hljóta styrk úr sjóðnum
að þessu sinni eru:
|

Thelma Rut Hermannsdóttir fær
að þessu sinni úthlutað í fyrsta
skiptið úr Fimleikasjóð íslands.
Styrkur er greiddur út þegar viðkomandi
viðburður hefur farið fram.
|
Anna
Líney Ívarsdóttir Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Arna Hjartardóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Ása Inga Þorsteinsdóttir Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Ásdís Dagmar Þorsteinsdóttir
Gerpla Evrópumót í hópfimleikum
Ásdís Guðmundsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Auður Agla Óladóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Auður Ólafsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Birta Benónýsdóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Björk Óðinsdóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Fríða Rún Einarsdóttir, Gerpla
Evrópumót í áhaldafimleikum
Harpa Hlíf Bárðardóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Harpa Snædís Hauksdóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Heiðdís Halldórsdóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Hildur Þórðardóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir,
Gerpla Evrópumót í hópfimleikum
Inam Rakel Yasin, Gerpla Evrópumót í
hópfimleikum
Inga Rós Gunnarsdóttir, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Ingvar Á. Jochumsson, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Íris Mist Magnúsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Íris Svavarsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
.Jóhanna Gunnarsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
|
Jónas Valgeirsson,
Ármann HM í áhaldafimleikum 2006
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Gerpla
Evrópumót í áhaldafimleikum
Linda Óskar Þorvaldsdóttur, Umf. Selfoss
V/ náms erlendis v/ fimleika
Magdalena Rós Guðnadóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Margrét Hulda Karlsdóttir, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Marín Þrastardóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Nanna Yngvadóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Róbert Kristmannsson, Gerpla Evrópumót
í áhaldafimleikum
Sara Rut Ágústsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Sara Sif Sveinsdóttir, Gerpla Æfingabúðir
í USA 2006
Sif Pálsdóttir, Grótta Evrópumót
í áhalda- og hópfimleikum
Sigríður Harðardóttir, Grótta
Evrópumót í hópfimleikum
Sigurrós Jónsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Soffía Bergsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Sólveig Jónsdóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Thelma Rut Hermannsdóttir, Gerpla Æfingabúðir
í USA 2006
Þórunn Arnardóttir, Gerpla Evrópumót
í hópfimleikum
Tinna Rut Traustadóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
Viktor Kristmannsson, Gerpla HM í áhaldafimleikum
2006
Vilborg Guðjónsdóttir, Grótta Evrópumót
í hópfimleikum
|
| Góð
ávöxtun hjá Fimleikasjóð Íslands
- 18% árið 2004 og 33% árið 2005 - |
|
6/1/06 |
Ávöxtun
á eignum Fimleikasjóðs Íslands
á undanförnum tveimur árum hefur skilað
57% hækkun sem skiptist þannig að allt árið
2004 var ávöxtun sjóðsins 18% og
allt árið 2005 var ávöxtun sjóðsins
33%. Eru þetta ánægjuleg tíðindi
fyrir fimleikafólk því það
nýtur góðs af sjóðnum en heildareignir
hans eru í dag rúmlega 700 þúsund.
Sjóðurinn hefur í dag styrkt fimleikahreyfinguna
fyrir um 500 þúsund. Innan skamms verður
auglýst eftir umsóknum í sjóðinn.
Auðvelt er að gerast aðilar að sjóðnum.
Nánari upplýsingar í fimleikar@fimleikar.is
|
Gengisþróun
2004 og 2005 |
Félagsstörf:
|
Viktor Kristmannsson
fær 60.000,- úthlutað
úr
Fimleikasjóð
Íslands
|
|
|
Viktor Kristmannsson fær úthlutað
kr. 60.000,- úr Fimleikasjóði Íslands.
Hann er núverandi Íslandsmeistari í
áhaldafimleikum karla og hefur verið í
hópi bestu fimleikamanna Íslands til margra
ára. Óskað var eftir umsóknum þann
1. nóvember sl. en að þessu sinni barst
sjóðnum aðeins ein umsókn. Í
tilefni af mjög góðri ávöxtun
á eignum sjóðsins var ákveðið
að auka úthlutun en ávöxtun hefur
verið um 33% það sem af er árinu.
Á árinu 2004 hefur sjóðurinn því
úthlutað kr. 200.000,- og er það tvöföldun
frá því í fyrra.
Árið 2003 var úthlutað styrkjum að
fjárhæð kr. 100.000,-
Árið 2002 var úthlutað styrkjum að
fjárhæð kr. 180.000,-
Árið 2000 var úthlutað styrkjum að
fjárhæð kr. 40.000,-
Samtals hefur því verið úthlutað
styrkjum að fjárhæð kr. 520.000,-
Fyrir hönd sjóðsins
Jón Finnbogason
|
Viktor Kristmannsson hefur verið einn af
fremstu fimleikamönnum Íslands í mörg
ár. |
Félagsmál:
Frábær
ávöxtun hjá Fimleikasjóði Íslands;
33,17% á ársgrunni |
[16/09/2004]
|
| Ávöxtun
á eignum Fimleikasjóðs Íslands hefur
verið mjög góð sem af er ári eða
33,17% á ársgrundvelli. Fimleikasjóður
Íslands hefur styrkt fimleikahreyfinguna um kr. 460.000,-
frá stofnun sjóðsins árið 1999.
Reglur sjóðsins eru þannig að aðeins
er heimilt að greiða út helming inngreiddra
framlaga og alla ávöxtun af fjármuna sjóðsins.
Því er ánægjulegt að svo vel
takist til við ávöxtun á eignum sjóðsins
því það kemur alfarið fram í
auknum styrkjum til fimleikahreyfingarinnar. Eignir sjóðsins
eru nú um 360.000,- en ákveðið var að
breyta fjárfestingum sjóðsins í upphafi
árs og er fjárfest í ýmsum verðbréfasjóðum
og hlutabréfum fyrirtækja í Kauphöll
Íslands.
Auðvelt er að gerast styrktaraðili sjóðsins.
Aðeins þarf að senda email á fimleikar@fimleikar.is
eða slá á þráðinn til Jóns
Finnbogasonar í síma 856-7469 og þú
leggur þitt af mörkum við að styrkja fimleikafólkið
í landinu. |
Félagsstörf:
Fimleikasjóður Íslands
úthlutar kr. 140.000,- |
[12/06/2004]
|
Að þessu sinni er úthlutað
styrkjum til 15 einstaklinga í áhaldafimleikum
og Íslands og bikarmeistara í hópfimleikum.
Allar umsóknir voru samþykktar.
Vonandi verður hægt að styrkja fremsta fimleikafólk
landsins með myndarlegri hætti í framtíðinni
en gert er að þessu sinni.
Samtals hefur Fimleikasjóður Íslands úthlutað
styrkjum að fjárhæð kr. 460.000,- Ástæða
er til að þakka þeim sem greitt hafa til
Fimleikasjóðs Íslands undanfarin ár
og er ljóst að okkar fimleikafólk kann
ykkur bestu þakkir, sjá
hér félagatal og yfirlit yfir styrkþeka.
Til að gerast styrktaraðili sjóðsins
sendið email á fimleikar@fimleikar.is
|
|
Fyrir hönd sjóðsins
Jón Finnbogason
|
Félagsstörf:
Fimleikasjóður Íslands
mun úthluta a.m.k. kr. 100.000,- |
[4/06/2004]
|
Óskað er eftir umsóknum
um styrki úr Fimleikasjóði Íslands.
Að þessu sinni er stefnt að því
að úthluta hið minnsta kr. 100.000,- Að
þessu sinni verða styrkir veittir í málaflokkinn
styrkir til fremsta fimleikafólks landsins í
samræmi við reglur sjóðsins. Úthlutun
mun fara fram 18. júní og skal skila umsóknum
í síðasta lagi þann 11. júní.
Senda skal stuttar og hnitmiðaðar umsóknir
í netfangið fimleikar@fimleikar.is
Fyrir hönd Fimleikasjóðs Íslands
Jón Finnbogason
|
| Fimleikadeild
Umf. Selfoss styrkir Fimleikasjóð Íslands
|
[30/01/04] |
| Fimleikasjóður
Íslands hefur fengið góðan liðstyrk
frá Fimleikadeild Umf. Selfoss en stjórn deildarinna
ákvað nýlega að ganga til liðs við
sjóðinn og styrkja hann árlega með myndarlegum
hætti. Er þetta mjög ánægjuleg
viðbót við þann fjölda félagsmanna
sem styrkja sjóðinn með reglubundnum hætti.
Eftir því hefur verið tekið að Fimleikadeild
Umf. Selfoss hefur vaxið mjög á undanförnum
árum og er því ánægjulegt
að sjá að stjórnendur deildarinnar vilja
leggja sitt að mörkum við að styrkja uppbyggingarstarf
og afreksfólk innan fimleikahreyfingarinnar en það
er markmið sjóðsins.
|
| Fjölgun
félaga í Fimleikasjóð Íslands |
[25/5/03] |
|
Undanfarnar
vikur hefur verið nokkur fjölgun félaga í
Fimleikasjóðs Íslands. Nú eru virkir
félagar að nálgast 40 talsins. Er það
mikil lyftistöng fyrir fimleikafólk í landinu.
Afreksfólk í fimleikum hefur farið í
nokkrar keppnisferðir í vetur, t.d. heimsmeistara-
og Norðurlandamót. Stefnan er nú tekin á
Ólympíuleika æskunnar og Heimsmeistaramót
sem fram fer í ágúst. Stefnt er að
því að senda út lið í keppni
pilta og þrjár stúlkur á HM. Þeir
sem stefna á þessi mót eru að vinna
í ýmsum fjáröflunum enda um mjög
fjárfrekar keppnir að ræða.
Það er vonandi að fimleikaáhugafólk
nýti þann möguleika sem er fyrir hendi að
gerast félagar í Fimleikasjóð Íslands
en hann hefur það markmið að styrkja fimleikafólk
sem sækir um styrki í samræmi við reglur
sjóðsins. |
| Fimleikasjóður
Íslands úthlutar kr. 110.000 |
[12/4/03] |
| Fimleikasjóður
Íslands veitti í dag fimleikafólki styrki.
Að þessu sinni var aðeins samþykktir styrkir
til afreksfólks og ákveðið að bíða
með frekari styrki til uppbyggingarstarfs. Úthlutað
var kr. 110.000. Stjórn sjóðsins þakkar
öllum styrktaraðilum sjóðsins fyrir framlög
þeirra og vonast til að fleiri sjái sér
fært að taka þátt í að styrkja
fimleikafólk til keppnisferða og uppbyggingastarfs
innan fimleikahreyfingarinnar. Upplýsingar um sjóðinn
má finna á þessari heimasíðu.
| Styrkþegar |
Styrkur |
|
| HM
hópur í Björk |
Björk |
kr.
30.000 |
| Sif
Pálsdóttir |
Grótta |
kr.
10.000 |
| Hera
Jóhannesdóttir |
Grótta |
kr.
10.000 |
| Harpa
Snædís Hauksdóttir |
Grótta |
kr.
10.000 |
| Elín
Andrésdóttir |
Grótta |
kr.
10.000 |
| Rúnar
Alexandersson |
Gerpla |
kr.
10.000 |
| Dýri
Kristjánsson |
Gerpla |
kr.
10.000 |
| Grétar
K. Sigþórsson |
Ármann |
kr.
10.000 |
| Anton
Heiðar Þórólfsson |
Ármann |
kr.
10.000 |
Samtals |
|
kr.
110.000 |
|
Hera Jóhannesdóttir
fékk styrk úr sjóðnum í fyrsta
skiptið. Með öflugu samstarfi frá fimleikaáhugafólki
mun hún og annað efnilegt fimleikafólk njóta
góðs af því í framtíðinni. |
| Fimleikasjóður
Íslands óskar eftir umsóknum um styrki
|
|
| Fimleikasjóður
Íslands óskar eftir því að
sjóðnum verði sendar umsóknir um styrkveitingu.
Til stendur að úthluta kr. 50.000,-
í tveimur styrkjum. Sjóðurinn hefur verið
starfræktur síðan 1999 og er nokkrir fimleikaáhugamenn
og konur sem styrkja sjóðinn mánaðarlega
með fjárframlögum (sjá félagatal).
Nú þegar hafa sex einstaklingar og sex fimleikafélög
um land allt fengið styrki úr sjóðnum
(sjá lista yfir styrkþega).
Umsóknir skal senda með tölvupóst á
fimleikar@fimleikar.is
í síðasta lagi 7. apríl n.k. Á
heimasíðu sjóðsins má sjá
úthlutunarreglur sjóðsins. Allir geta gerst
félagar í sjóðnum og hjálpað
til við að styðja við bakið á okkar
frábæra fimleikafólki (hér
má skrá sig í sjóðinn). Frekari
upplýsingar veitir undirritaður og Guðmundur
Þór Brynjólfsson.
Fyrir hönd Fimleikasjóðs Íslands
Jón Finnbogason |
|
Fimleikasjóður
Íslands
Sjóðurinn
var stofnaður 1999 og er sjálfstæður
félagsskapur. Starfssemi sjóðsins hefur
verið óbreytt frá upphafi sem felst í
því að taka á móti skuldfærslum
af VISA og EURO kortum félagsmanna og styrkja í
samræmi við reglur sjóðsins.
Nánari
upplýsingar um sjóðinn má finna á
meðfylgjandi kynningu (tekur smá tíma að
ná í hana). Kynning.
Jón
Finnbogason
|
|
|
|