Dagskrá fimleikaþings

23/01/07

Þing Fimleikasambands Íslands verður haldið í Fjölbrautarskóla Suðurlands, Tryggvagötu 25, 800 Selfossi, laugardaginn 26. janúar 2008. Þingið verður sett kl. 10.00. Dagskrá þingsins samkvæmt lögum er eftirfarandi:
1. Þingsetning.
2. Kjör fundarstjóra og fundarritara.
3. Staðfest lögmæti fundarins.
4. Kosning kjörbréfanefndar - athugað kjörgengi fundarmanna.
5. Fundargerð síðasta þings.
6. Afhending viðurkenninga.
7. Ávörp gesta.
8. Kosning formanna starfsnefnda þingsins.
8. Kosning formanna starfsnefnda þingsins:
a) Tækninefnd kvenna
b) Tækninefnd karla
c) Tækninefnd í hópfimleikum
d) Tækninefnd í þolfimi.
e) Nefnd í almennum fimleikum
f) Fræðslunefnd
g) Laganefnd
h) Fjárhagsnefnd
i) Aðrar nefndir samkv. ákvörðun þings hverju sinni
9. Skýrsla stjórnar.
10. Reikningar sambandsins lagðir fram (með áliti skoðunarmanna). Kl.10:45 kaffihlé
11. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga sambandsins.
12. Reikningar bornir undir atkvæði.
13. Teknar fyrir tillögur sem lagðar hafa verið fyrir þingið ásamt almennum umræðum um þær:
1 Almennar tillögur
2 Lagabreytingatillögur
3 Fjárhagsáætlun
Gert er ráð fyrir að hlé verði gert á fundarstörfum kl.12:00. Þá mun þingfulltrúum gefast kostur á að skoða nýbyggingu fimleikahúss við Sunnulækjarskóla. Kl. 13:00 býður Bæjarstjórn Árborgar til hádegisverðar og nefndarstörf hefjist að honum loknum. Þingstörf hefjast að nýju kl. 15:30
14. Formenn þingnefnda gera grein fyrir störfum nefnda og atkvæði greidd um niðurstöður þeirra
15. Kosning stjórnar og varamanna.
16. Kosning skoðunarmanna reikninga.
17. Kosning í nefndir á vegum FSÍ.
18. Val fulltrúa á Íþróttaþing
19. Önnur mál.
20. Ávarp formanns. Þingslit áætluð kl. 18:30
.




[Til baka]

 













   
fimleikar.is - @ - umsjón: jón - hönnun: robbi -