Þrjátíu og tveir
fatlaðir íþróttamenn verða
fulltrúar Íslands á alþjóðaleikum
Special Olympics 2007 sem verða settir í Shanghai
í Kína 2. október nk. Auður Lilja
Ámundadóttir, Elva Björg Gunnarsdóttir,
Helgi Tómasson og Jóhann Fannar Kristjánsson,
öll úr Gerplu, munu keppa í fimleikum
og að sjálfsögðu óskum við
þeim góðs gengis. Ásta Ísberg
og Erlendur Kristjánsson þjálfarar
fara með þeim á leikana.
Á blaðamannafundi sem haldinn var til að
kynna þátttöku íslenska hópsins
kom fram að íslensku keppendurnir keppa í
8 greinum, boccia, borðtennis, fimleikum, frjálsum
íþróttum, golfi, keilu, lyftingum
og sundi. Íþróttasamband Fatlaðra
er umsjónaraðili Special Olympics á
Íslandi. Forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, situr í stjórn Special
Olympics og verður viðstaddur leikana. Forseti
ávarpaði fundinn frá Búkarest,
þar sem hann er í opinberi heimsókn.
Hann sagði m.a. að alþjóðaleikar
Special Olympics í Kína væru mannréttindaviðburður.
Hann sagði einnig að hann hefði átt
fund með Timothy Kennedy Shriver, þar sem rætt
hefði verið hvernig íslensk fyrirtæki
hefðu komið veglega að verkefninu og hvernig
alþjóðahreyfingin gæti nýtt
slíkt samstarf fyrirtækja á alþjóðavettvangi.
Actavis, Exista og Glitnir eru aðalstyrktaraðilar
vegna þátttöku Íslands á
leikunum og var samningur um stuðning fyrirtækjanna
undirritaður á fundinum. Styrkurinn nemur alls
tólf milljónum króna.
Special Olympica International eru samtök sem stofnum
voru af Kennedy fjölskyldunni árið 1968.
Samtökin hafa vakið heimsathygli vegna markvissrar
markaðssetningar og samstarfs við sérfræðina
á öllum sviðum. Þroskaheftir og
seinfærir einstaklingar sem oft eru settir til hliðar
í samfélögum þjóðanna,
eru miðpunktur leika á vegum samtakanna. Umgjörð
og skipulag er eins og um ólympíuleika sé
að ræða en keppni er á jafnréttisgrundvelli
og allir verða sigurvegarar. Allir eiga því
jafna möguleika á að vera valdir á
þessa leika á meðan aðeins þeir
allra bestu komast á Paralympics í Peking
árið 2008.