Fjölleikaflokkur Wuhan hefur náð verulegum
árangri í framþróun hefðbundinna
kínverskra fjölleikaatriða, snúnings-
og jafnvægislista sem og þjálfunar
dýra. Flokkurinn hefur lagt áherslu á
að fullkomna samruna listar og tækni og leitast
við að sameina þokka og áræði.
Sýningar flokksins hafa bæði til að
bera fegurð og tign, eru jafnframt þol- og aflraunir
sem bera vott um mannlega visku, lofsyngja lífið
og hafa mikið listrænt gildi. Flokkurinn leggur
áherslu á að bæta sífellt
leikni sína og viðhalda mýkt, sveigjanleika
og léttleika. Áhersla er jafnt á
smáatriði í flutningi hvers einstaklings
sem og að samhæfing hópsins túlki
mikilfenglega heildarmynd. Leitast er við að viðhalda
þjóðlegum og alþýðlegum
einkennum jafnframt sem leitast er við að sýna
margslungin nútímaleg stílbrigði.
Að gleðja hjartað, hugann og augað –
og gefa áhorfandanum jafnframt stórfenglega,
þægilega og jafnvel dulræna listræna
reynslu.
Fjölleikaflokkur Wuhan hefur
lengi vel lagt áherslu á að sýna
um Kína þvert og endilangt, sem og í
Hong Kong, Macau og á Taívan, en einnig
margoft sýnt í öðrum Asíulöndum,
Afríku, Evrópu, Ástralíu og
Suður- og Norður-Ameríku. Alls hefur flokkurinn
heimsótt meira en 140 lönd við góðar
undirtektir.
Fjölleikaflokkurinn hóf
feril sinn með frægum listamönnum eins
og Xia Juhua og seinna Wu Weimin, Zhou Deping og fleiri.
Í dag koma fram með flokknum Chen Linlong,
Luo Wenjjie, Xie Hong og fleiri ungir listamenn sem hafa
hlotið fjölmörg gull-, silfur- og bronsverðlaun
innanlands og utan og halda uppi heiðri flokksins.
Flokkurinn heldur áfram að sýna listir
sýnar af eldmóði fyrir áhorfendur
jafnt heima í Kína og um víða
veröld.
Sýningar:
Fimmtudaginn 4. október
kl. 20
Laugardaginn 6. október kl. 16
Sunnudaginn 7. október kl. 16
Miðasala hjá Gerplu
í íþróttamiðstöðinni
Versölum alla virka daga kl. 15-20 og í síma
557 4925.
Verð: 1.000 kr. (fullorðnir)
500 kr. (börn 4-12 ára)
ókeypis (börn yngri en 4 ára)
Kópavogi, 13. september
2007