Míla og Fimleikasamband Íslands í samstarf:

Fréttatilkynning frá Mílu.
24/05 Skjal

Efla á íslenska landsliðið í áhaldafimleikum.
Míla ehf. hefur ákveðið að efla íslenska landsliðið í áhaldafimleikum. Skrifað var undir samning þess efnis milli Mílu og Fimleikasambandsins í Versölum, íþróttasal Íþróttafélagsins Gerplu, í dag að viðstöddum menntamálaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Samningurinn er til þriggja ára. Í ár er áhersla á stuðning við för íslenska landsliðsins á Heimsmeistaramót í áhaldafimleikum kvenna og karla. Mótið verður haldið í Stuttgart í Þýskalandi dagana 26. ágúst - 10. september næstkomandi. Þrír piltar og þrjár stúlkur voru valin til að taka þátt fyrir Ísland hönd.
Heimsmeistaramótið er úrtökumót fyrir Ólympíuleikana 2008 sem haldnir verða í Kína. Míla heitir aukaframlagi til íslensku keppendanna nái einhver þeirra að tryggja sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum.
Að sögn Kristjáns Erlendssonar, formanns Fimleikasambands Íslands, byggist val keppenda á frammistöðu þeirra á mótum, hér á landi og erlendis. „Íslensku keppendurnir hafa staðið sig frábærlega að undanförnu og er skemmst að minnast afreka þeirra á Smáþjóðaleikum, þar sem bæði kynin unnu gullverðlaun í liða keppni og Fríða Rún og Viktor gull í fjölþraut. Í heild tóku liðin með sér heim 7 gullverðlaun, 7 silfurverðlaun og 4 bronsverðlaun. “ segir Kristján.
Með samstarfinu við Fimleikasambandið styður Míla uppbyggingu afreksíþrótta á Íslandi enda er afreksfólk fyrirmynd annarra iðkenda. Samningurinn er einnig liður í þeirri stefnu fyrirtækisins að leggja jákvæðum og uppbyggilegum samfélagslegum málefnum lið.
„Fimleikar eru góður grunnur fyrir allar íþróttir og leggur grunn að góðum líffstíl. Við eigum hæfileikaríkt og metnaðarfullt afreksfólk í þessari íþróttagrein sem náð hefur frábærum árangri undanfarið á mótum erlendis. Afreksfólk okkar í fimleikum býr yfir krafti, beitir ögun, tækni og forystu og stefnir ótrautt að settu marki. Þessir grunnþættir birtast einnig í stefnumörkun Mílu og móta framtíð fyrirtækisins,” segir Eva Magnúsdóttir, forstöðumaður sölu og markaðar hjá Mílu.
Mila ehf, byggir á aldagamalli starfsemi fjarskiptanets Símans sem lagt hefur grunn að öllum fjarskiptum á Íslandi. Fyrirtækið var fyrr á þessu ári skilið frá annarri starfsemi Símans og er í eigu Skipta hf. Kjarnastarfsemi Mílu er að byggja upp og reka fullkomnasta fjarskiptanet á Íslandi og selja aðgengi að því til annarra fjarskiptafyrirtækja.
Frekari upplýsingar veita: Kristján Erlendsson, formaður Fimleikasambands Íslands og Eva Magnúsdóttir, forstöðumaður sölu- og markaðar Mílu.

Ítarefni um keppendur:
Fríða Rún Einarsdóttir (15 ára), hefur átt frábært fimleikaár. Á Norðurlandameistaramóti í apríl gerði hún sér lítið fyrir og sigraði í fjölþraut, auk þess sem hún varð Norðurlandameistari í öllum greinum á mótinu. Það hefur aldrei áður gerst að sama stúlkan hljóti alla Norðurlandameistaratitlana á einu og sama mótinu. Fríða sópaði einnig að sér verðlaunum á Smáþjóðaleikum, bæði í gulli og silfri. Á Ólympíuleikum æskunnar í Belgrad í sumar náði Fríða inn í úrslit í fjölþraut í 24.sæti, hækkaði sig um 6 sæti og endaði í 18.sæti. Til að sýna hversu mikið afrek það er, þarf kannski að taka fram að enginn annar keppandi frá Norðurlöndunum náði inn í úrslit. Með orðum hópstjórans:”...geislaði þessi fimleikastjarna af yfirvegun og ákveðni og var á meðal einstaka stúlkna sem náðu að sýna ekta gleði og ánægju í gólfæfingunum.”

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir (16 ára) er ein af okkar efnilegu fimleikakonum. Hún er margfaldur unglingameistari og Íslandsmeistari. Kristjana Sæunn var m.a. í verðlaunaliði Íslands á Smáþjóðaleikum þar sem hún stóð sig með miklum ágætum.

Margrét Hulda Karlsdóttir er Íslandsmeistari í fimleikum kvenna 2007. Hún er mikil keppniskona og hefur staðið sig með ágætum. Á Evrópumeistaramótinu hafnaði hún í 53.sæti. Slys á æfingu fyrir Smáþjóðaleikana hélt henni frá keppni þar.

Rúnar Alexandersson hefur einn Íslendinga keppt í fimleikum á Ólympíuleikum og náði besta árangri sínum í Aþenu 2004 þegar hann lenti í 7.sæti á bogahesti. Til fjölda ára hefur Rúnar átt öruggt sæti í landsliði Íslands, sem nú í sumar vann til gullverðlauna á Smáþjóðaleikum. Rúnar er 30 ára, æfir í Eistlandi undir leiðsögn rússnesks þjálfara og ætlar nú að reyna að ná lágmörkum á Ólympíuleikana 2008 í Kína.

Viktor Kristmannsson er einn af okkar bestu fimleikamönnum í fjölþraut. Hann keppti á Evrópumeistaramótinu í Amsterdam í apríl þar sem hann hafnaði í 47 sæti. Á Smáþjóðaleikunum stóð hann sig með afbrigðum vel og fór hann heim með 7 verðlaunapeninga, þ.m.t. gull með liðinu og gull í fjölþraut. Heimsmeistaramótið er eina tækifærið til að ná lágmörkum fyrir Ólympíuleika.

Róbert Kristmannsson er á hraðri uppleið og kemur fast á hæla Viktors, bróður síns. Vegna meiðsla keppti hann lítið fyrri hluta ársins en náði ágætum árangri á Evrópumeistaramótinu í Amsterdam.

Þjálfarar með keppendum verða
Guðmundur Þór Brynjólfsson og Vladimir Antonov.



[Til baka]

 













   
fimleikar.is - @ - umsjón: jón - hönnun: robbi -