Aðalfundur Íþróttafélagsins Gerplu

13/05

Íþróttafélagið Gerpla hélt aðalfund félagsins 10. maí sl. Gert var grein fyrir helstu þáttum í starfssemi félagsins á liðnu ári ásamt hefbundnum aðalfundarstörfum. Allir stjórnarmenn gáfu kost á áframhaldandi setu í aðalstjórn félagsins auk þess sem fjölgað var um einn stjórnarmann.
Aðalstjórn skipa nú Jón Finnbogason, formaður, Jónas Jónmundsson, Guðmundur Halldórsson, Jochum M. Ulriksson, Karen Bjarnhéðinsdóttir Ólafur Kristjánsson auk þess sem Ásta Ísberg tók sæti í stjórn félagsins. Kosin var ný stjórn fimleikadeildar en hana skipa nú Arna Þorsteinsdóttir, Arnar Kristinsson, Ása Inga Þorsteinsdóttir, Baldur Jónsson, Björk Birgisdóttir, Dýri Kristjánsson, Helga Helgadóttir, Jóhanna Guðmundsdóttir, Kristín Björk Viðarsdóttir, María Ósk Steinþórsdóttir, Matthildur Baldursdóttir, Nína Berglind Sigurgeirsdóttir og Sunna Svanhvít Söebeck. Í framtíðarsjóð félagsins voru skipaðir þeir Kristján Erelndsson og Jón Finnbogason. Skoðunarmenn félagsins verða Margrét Steinarsdóttir og Ingvar Árnason.
Lögum félagsins var breytt og þá helst að reikningsár félagsins var breytt úr því að vera almanaksárið yfir í að vera frá 1. júní ár hvert til 31. maí ár hvert. Þá var hlutverki stjórnar fimleikadeildar breytt þar sem aðeins starfar ein deild hjá félaginu og því var verksvið aðalstjórnar aukið. Fimleikastjórn mun fá aukið hlutverk við framkvæmd ýmissa viðburða á vegum félagsins í nánu samstarfi við starfsmenn og aðalstjórn. Árskýrslu stjórnar og fundargerð aðalfundar er aðgengileg á starfsstöð félagsins að Versölum í Kópavogi.
Vorsýningar félagsins munu fram að Versölum föstudaginn 18. maí og laugardaginn 19. maí og verða þær fjórar að þessu sinni.



[Til baka]

 













   
fimleikar.is - @ - umsjón: jón - hönnun: robbi -