Íþróttafélagið Gerpla

Almennt
Stjórn
Starfsmenn

Vorsýning Gerplu

JF
4/6/2006  

Vorsýning Íþróttafélagsins Gerplu fór fram nú undir lok maí. Fram fóru tvær sýningar fyrir troðfullu húsi félagsins að Versölum í Kópavogi. Fram komu allir hópar félagsins og sýndu foreldrum og öðrum gestum bort af starfssemi félagsins.
Voru ýmsar viðurkenningar veittar á sýningunni.
Kristján Erlendsson og Elísabet Baldvins voru heiðruð með Gullmerki Gerplu og gerð að heiðursfélögum Íþróttafélagsins Gerplu.


Kristján hefur verið formaður félagsins á undanförnum 11 árum en þar áður hafði hann setið í stjórn félagsins í 3 ár. Samhliða störfum Kristjáns vann Elísabet ötullega að málefnum félagsins í Frístund. Hefur hún leikið lykilhlutverk við skipulagningu ýmiskonar verkefna á vegum félagsins s.s. fjáraflanna o.fl. Samstarf þeirra hjóna hefur verið mikið á vettvangi Gerplu ásamt því að synir þeirra Dýri, Erlendur og Hlynur hafa allir verið áberandi í fimleikaiðkun með félaginu.
Meira hér.

Alþjóða Ólympíusamhjálpin styrkir Rúnar

3/6/2006

Rúnar Alexandersson undirritaði í vikunni samning við ÍSÍ í tilefni af styrk sem Alþjóða Ólympíuhreyfingin veitir 5 íslenskum íþróttamönnum til að auðvelda þeim að ná því takmarki að komast á Ólympíuleikana 2008 í Peking. Styrkupphæðin nemur $ 1.000.- á mánuði eða um 72.000.- ikr m.v. gengi í dag. Til viðbótar við styrkinn er hægt að sækja um viðbótarstyrk til Ólympíusamhjálparinnar til þess að standa straum af æfingabúðum og jafnvel mótum til þess að stykja Rúnar og hina íþróttamennina til að ná settu marki. Hingað til hafa styrkir Ólympíusamhjálparinnar dregist frá styrkjum Afrekssjóðs en nú er gert ráð fyrir að svo verði ekki heldur komi styrkurinn til viðbótar, þetta hefur þó ekki verið formlega samþykkt af ÍSÍ ennþá en forseti ÍSÍ, Ólafur Rafnsson, taldi mjög líklegt að svo yrði.


Íþróttamennirnir sem um ræðir eru:
Rúnar Alexandersson – fimleikar, Ásdís Hjálmsdóttir – frjálsíþróttir, Björn Þorleifsson – taekwondo, Jakob Jóhann Sveinsson - sund og Ragna Ingólfsdóttir – badminton.

Garpamót Gerplu 2006

 

2/4/06

Garpamót Gerplu 2006 fór fram um helgina en alls tóku um 400 iðkendur þátt á mótinu sem í held gekk nokkuð vel þrátt fyrir mikinn fjölda. Í 6. þrepi stúlkna vortu t.d. 21 lið sem tóku þátt en veitt voru verðlaun fyrir 1. - 6. sætið í liðakeppni en auk þess fengu allir keppendur viðurkenningar frá KB banka, Glitni og GK fimleikavörum en auk þess gaf Íþróttafélagið Gerpla öllum keppendum bol merktan keppninni sem getur verið gaman fyrir marga iðkendur sem voru að taka þátt í sínu fyrsta fimleikamóti. Hér birtum við úrsit úr keppni á Sunnudeginum. Stúlkur hér og strákar hér.


Gerpamót Gerplu
- GARPAMÓT -
- Boðsmót -
10/1/06

Íþróttafélagið Gerpla mun halda boðsmót helgina 1. og 2. apríl n.k. þar sem keppt verður í íslenska fimleikastiganum bæði hjá piltum og stúlkum. Piltar keppa í aldursflokkum samkvæmt þátttökufjölda í 1. - 4. þrepi. Í 4. þrepi er keppt í flokki þeirra sem hafa keppt á FSÍ mótum og þeirra sem ekki hafa keppt á slíku móti. Aldurstakmark er 8 ára á árinu og eldri iðkendur. Keppni stúlkna í 3 - 6. þrepi samkvæmt þátttökufjölda og sama aldurstakmark og hjá piltum.
Nánari upplýsingar í síma 557-4925 eða með eimali : igerpla@simnet.is


 

Rúnar og Kristjana Sæunn
fimleikafólk ársins 2004

29/12/04

Stjórn Fimleikasambands Íslands hefur valið Rúnar Alexandersson og Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur, bæði úr Íþróttafélaginu Gerplu í Kópavogi, sem fimleikamann og fimleikakonu 2004. Við val á fimleikamanni og konu ársins er horft til árangurs á mótum hérlendis og erlendis. Þar hafa þau bæði verið glæsilegir fulltrúar fimleikafólks á Íslandi á undanförnum árum.
Rúnar er óumdeilanlega besti fimleikamaður Íslands frá upphafi.
Þrátt fyrir ungan aldur þá hefur Kristjana Sæunn skipað sér í raðir bestu fimleikakvenna á Norðurlöndum. Til marks um það má nefna glæsilegan árangur á sl. Norður-Evrópumóti þar sem hún sigraði í opnum flokki í æfingum á gólfi og stökki.
Árangur þeirra verður örugglega öðru fimleikafólki hvattning til enn frekari afreka hérlendis sem og erlendis.


Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu verðlaunanna á Grand Hótel í kvöld. Frá vinstri: Anna Möller, framkvæmdastjóri FSÍ, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Rúnar Alexandersson og Gunnar Einarsson, formaður FSÍ.

 

Garpamót Gerplu og GK piltar og stúlkur

6/1/05

Piltakeppni: Sunnudaginn 23. janúar Mæting kl 12:00 mót hefst kl 13:00 verður haldið Garpamót Gerplu og GK í húsnæði Gerplu við Skemmuveg 6.Nánara tímaplan síðar. Þátttakendur eru piltar fæddir 1997 og fyrr og verður einungis keppt í 4. þrepi íslenska fimleikastigans. Einungis piltar sem ekki hafa keppt á mótum FSÍ er heimil þátttaka.
Stúlknakeppni: Laugardaginn 22. janúar verður haldið Garpamót Gerplu og GK í húsnæði Gerplu við Skemmuveg 6. Mæting kl 14:00 mót hefst kl 15:00.Nánara tímaplan sent síðar. Þátttakendur eru stúlkur fæddir 1998 og fyrr og verður einungis keppt í 6. þrepi íslenska fimleikastigans.
Þátttökugjald er kr 1000 og þurfa öll lið sem senda keppendur einnig að senda dómara með liðinu. Verðlaun eru í boði Fim ehf sem selur GK vörur á Íslandi
Vinsamlegast tilkynnið fjölda þátttakenda, nöfn þeirra og nafn dómara fyrir 7. janúar á netfangið if.gerpla@simnet.is. Tímasetningar auglýstar þegar fjöldi þátttakenda er kunnur.

 

100% aukning í styrkjum Kópavogsbæjar
til foreldra og íþrótta- og tómstundafélaga

30/12/04

Kópavogsbær hefur tilkynnt um 100% aukningu á beinum fjárframlögum til foreldra og íþrótta- og tómstundafélaga í Kópavogi og nema því alls um 44 milljónum króna á komandi ári.
NIÐURGREIÐSLA ÆFINGAGJALDA
Gert er ráð fyrir að greiða 20 millj. aukaframlagi til niðurgreiðslu æfingagjalda. Foreldrar barna á aldrinum 6 - 12 ára verða styrktir með framlagi um allt að 10 þúsund krónum sem ranna til niðurgreiðslu á æfingagjöldum.
IÐKENDASTYRKIR
Framlag vegna iðkenda- og starfstyrkja til íþrótta- og æskulýðsfélaga í Kópavogi vegna iðkenda á aldrinum 6 - 20 ára hækka um 20%. Fyrir iðkendur á aldrinum 13 til 20 ára verður greiddur þrefaldur iðkendastyrkur sem er hækkun um 45%.
AFREKSSTYRKIR
Varið verður 8,2 millj. til afreksstyrkja á árinu 2005 sem er 12% hækkun framlags frá fyrra ári.

Telja verður að ofangreint útspil Kópavogsbæjar sé sérstaklega ánægjulegt og kemur í beinu framhaldi af því að með opnun á íþróttahúsinu í Salahverfi, þar sem Gerpla verður með aðstöðu, þá lýkur uppbyggingu á íþróttamannvirkjum í Kópavogi fyrir um 5.000 milljónir á síðustu árum. Af þessu er ljóst að nú er stefnan tekin á að styrkja enn frekar innvið íþróttafélaganna og ber að fagna þessu framfaraspori.


Gunnar I Birgisson formaður Bæjarráðs Kópavogs gerði grein fyrir verulegri hækkun á framlagi til innra starfs íþrótta og tómstundafélaga.


Hópfimleikar:
Frumkvöðlar í hópfimleikum
[17/06/2004]


Efri röð frá vinstri: Helga Bára Bartels Jónsdóttir, Elín Hrönn Jónasdóttir, Sunna Guðný Pálmadóttir og Arna Þórey Þorsteinsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Heiða Steinunn, Auðir Inga Þorsteinsdóttir, Hildur Pála Gunnarsdóttir, Linda Björk Logadóttir og Guðný Guðlaugsdóttir.

Á skömmum tíma hafa hópfimleikar náð miklum vinsældum á Íslandi. Nú er svo komið að fjölsóttustu mótin í fimleikum í dag eru í hópfimleikum enda mikið fjör og gaman á mótunum.
En það eru ekki nema rúm tíu ár síðan keppni í hópfimleikum byrjaði. Þá var P1 hópur úr Gerplu mjög sigursæll en fékk þó harða keppni frá stúlkum úr Björk sem einnig náðu að sigra Íslandsmeistaratitil á fyrstu árum hópfimleika á Íslandi.

Á myndinni hér að ofan má sjá stúlkurnar úr P1 úr Gerplu fagna einum af mörgum Íslandsmeistaratitlum sínum en myndina var tekin fyrir rúmum tíu árum síðan. Margar af stúlkunum kenna nú fimleika í Gerplu og í Noregi. Þjálfari stúlknanna var Hrund Þorgeirsdóttir

Félagsstörf:
Rúnar Alexandersson heimsækir leikskóla í Kópavogi
[22/05/2004]

Rúnar Alexandersson úr Gerplu tók sér hlé frá æfingum fyrir Olympíuleikana nú í ágúst til þess að heimsækja börn á leikskólum í Kópavogi og kynna fyrir þeim sögu Olympíuleikanna og sýna þeim nokkrar vel valdar fimleikaæfingar. Rúnar er nú að fara að keppa í þriðja skiptið á Olympíuleikunum en þess má geta að enginn annar fimleikamaður frá Norðurlöndunum keppir Olympíuleikunum í sumar. Una María Óskarsdóttir, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs, tók þátt í þessu skemmtilega verkefni og hjálpaði hún Rúnari að lyfta börnunum í heljarstökk. Hún var mjög ánægð með þetta verkefni og telur mikilvægt að börnin fái að kynnast afreksfólki Kópavogsbæjar með jafn beinum hætti og Rúnar gerði að þessu sinni ásamt félögum sínum úr Gerplu.
Farið var í leikskólana Rjúpnahæð við Rjúpnasali, Fífusalir við Salaveg, Arnarsmára, Dal við Funalind og Smárahvammur við Lækjarsmára. Allir leikskólarnir liggja nærri nýju íþróttahúsi sem Íþróttafélagið Gerpla mun flytja í á næstu misserum. Jón Finnbogason, varaformaður Gerplu, fór ásamt Rúnari með þeim Dýra Kristjánssyni, Ingu Rós Gunnarsdóttur og Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur í heimsókn í leikskólana enda dugar ekker minna en hópur fremsta fimleikafólks á Íslandi þegar um 500 börn eru heimsótt og þeim sýndar ýmsar fimleikaæfingar.
Myndir af heimsókninni hér.


Una María Óskarsdóttir og Rúnar Alexandersson hjálpa ungri stúlku að gera heljarstökk. Myndin er tekin í leikskólanum Rjúpnahæð við Rjúpnasali í Kópavogi en það er fjölmennasti leikskólinn á landinu með um 120 nemendur. Leikskólarnir Rjúpnahæð og Fífusalir eru nýjustu leikskólar Kópavogsbæjar og er mjög góð íþróttaaðstaða í leikskólunum þar sem rimlar, kaðlar, dýnur o.fl. eru af bestu gerð.


Thelma Aðalsteinsdóttir fær "gull" Olympiumerki frá Rúnari Alexanderssyni en öll börnin á leikskólunum fimm fengu viðurkenningu frá ÍSÍ enda stóðu þau sig mjög vel.


Eftirvæntingin var mikil og það þurfti að hafa góða stjórn á röðinni því börnin voru mjög spennt fyrir því að fá að spreyta sig á fimleikaæfingunum.

Rúnar Alexandersson from the gymnastic club Gerpla took a short break from the preparation for the Olympic games to visit children in the kindergarten schools in Kópavogur, the municipal were Gerpla is located, and introduce to them the history of the Olympic games and show them some gymnastic movements. Rúnar is now going to take part in the Olympic games for the third time in a row and is now the only gymnastic men from the Nordic regions that take part in the games. Una María Óskarsdóttir, chairman of the sports council in Kópavogur, took part in this project and helped Rúnar to assist the children to do backwards somersault. She was very satisfied with this project and in her opinion it is very important that the children in Kópavogur get the opportunity to get to know the best sportsmen and women in Kópavogur as the did now by meeting Rúnar and his friends from Gerpla.
The kindergarten schools that was visited were Rjúpnahæð, Fífusalir, Arnarsmári, Dalur and Smárahvammur. All the schools are situated very close to the new gymnastic house which Gerpla will soon start to use. Jón Finnbogason, vice chairman of the board of Gerpla, went to the schools with Rúnar, along with Dýra Kristjánssyni, Ingu Rós Gunnarsdóttur og Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur, but five of them are among the strongest gymnastics group in Iceland, and there which is very good when you visit 500 children and show them gymnastic movements. Pictures from the visit is here.


Félagsstörf:
Vorsýning Gerplu
[22/05/2004]


Einbeitingin er mikil enda mamma og pabbi að horfa á og ekkert má fara úrskeiðis. Mikill fjöldi ungra og efnilegra iðkenda í félaginu sýndu ýmiskonar æfingar á sýningunni og alveg ljóst að framtíðin er björt í fimleikum á Íslandi.

Vorsýning Gerplu fór fram á uppstigningardag. Sýningin var í tveimur hlutum og skipt í fyrri og seinnihelming. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum voru báðar sýningarnar fjölmennar og áhorfendur fylltu áhorfendabekki í báðum sýningunum enda iðkendur Gerplu nærri 700 talsins.
Myndir:
Fyrri sýning, fyrri hluti.
Fyrri sýning, seinni hluti.
Seinni sýning, fyrri hluti.
Seinni sýning, seinni hluti.

 


Dýri Kristjánsson ásamt Jóhanni Fannari Kristjánssyni en þeir stóðu sig báðir mjög vel á sýningunni.

Áhaldafimleikar kvenna :
Kristjana Sæunn fékk silfur á stökki á mjög sterku móti í Rússlandi
[18/05/2004]

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Íþróttafélaginu Gerplu fékk silfur í úrsltium á stökki á mjög sterku móti, 2004 Dityatin Cup, sem fram fór um síðustu helgi á móti í Rússlandi. Er þetta í fyrsta skiptið, svo vitað er, að stúlka frá Íslandi nær verðlaunapening á fimleikamóti í frjálsum æfingum sem fram fer í Rússlandi. Keppendur voru 87 frá 9 þjóðum og eins og sjá má á þeim einkunnum sem gefnar voru þá var um mjög sterkt mót að ræða. Kristjana Sæunn fékk samtals 32 stig sem er hennar besti árangur hingað til.
Inga Rós Gunnarsdóttir einnig úr Íþróttafélaginu Gerplu keppti jafnframt á mótinu en var ekki búinn að ná sér að fullu eftir meiðsli sem hún hlaut við undirbúning fyrir EM og keppti því ekki í gólfæfingum. Nánar um mótið hér

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir from the Gymnastic club Gerpla got silver medal on vault on very strong competition, 2004 Dityatin Cup, which took place last weekend in former USSR. This is the first time, as is best known, that Icelandic girl gets a metal in artistic gymnastic competition in the former USSR. In the competition there was 87 gymnasts from 9 nations that participated and as you can see on the scores this was very strong competition. Kristjana Sæunn got total 32 points and that is her best score so far.
Inga Rós Gunnarsdóttir also from the Gymnastic club Gerpla participated as well in the competition but she hadn’t fully recovered from her injury which she got while she was preparing for the EU competition and there for she didn’t compete on floor exercise. More about the competition here


Kristjana Sæunn Ólafsdóttir (t.v) hafnaði í öðru sæti í úrslitum á stökki. Nadezhda Chikhiryova (miðja) sigraði og Anna Povolya var í þriðja sæti.

Innanfélagsmót Gerplu

myndir hér
[8/02/2004

Meðfylgjandi 692 myndir voru teknar á innanfélagsmóti Gerplu sem fram fór í dag.

Mótaröð hjá Dýra Kristjánsyni í USA

[27/01/2004]

Dýri Kristjánsson í Gerplu hefur haft mikið að gera að undanförnu en keppnistímabilið hjá Háskólaliðinu í Minnesoda er þó rétt að byrja. Keppir Dýri nú um hverja helgi. Eftir að hann fór aftur út eftir jólafrí þá hefur hann keppt á þremur mótum og um næstu tvær helgar mun hann taka þátt í tveimur mótum. Hann mun því taka þátt í fimm mótum á jafnmörgum vikum.

Fyrsta mótið sem hann tók þátt í á þessu ári var í Chicago þann 10. janúar þar sem Háskólinn í Minnesoda keppti við 5 önnur lið. Mótið gekk ágætlega fyrir liðið hans Dýra og gerði hann mjög góðar æfingar á tvíslánni (8,3) og golfi (8,2) þar sem hann t.d. "pinnaði" tvöfallt heljarstökk en mistókst aðeins á svifránni (7,5) þar sem hann greip ekki Kovax æfinguna.[Meira]


Gymnova styrkir Rúnar á Olympíuleika

[Meira] [27/11/2003]

Gengið hefur verið frá samningi á milli Gymnova, FSÍ og Gerplu um styrk til Rúnars Alexanderssonar vegna undirbúnings hans fyrir Ólympíuleikana í Aþenu í ágúst á næsta ári.
Undirbúningur Rúnars fyrir Ólympíuleikana er samstarfsverkefni FSÍ og Gerplu en ljóst er að kostnaður verður mikill enda mun hann taka þátt í fjölda móta sem er nauðsynlegur liður í undirbúningi hans fyrir keppni á Ólympíuleikunum.
Rúnar tryggði sér öruggan keppnisrétt á HM í ágúst sl. þegar hann hafnaði í 32. sæti í fjölþraut og var annar varamaður í fjölþrautarúrslit.
[Meira]


Frá vinstri: Kristján Erlendsson, form. Gerplu, Skúli Björnsson f.h. Sportís umboðsaðila Gymnova á Íslandi og Gunnar Einarsson form. FSÍ.

Dýri keppir í Minnisoda, flottur á svifrá

Nánar hér
[23/11/2003]
Dýri Kristjánsson úr Gerplu keppti um helgina með Háskólaliðinu í Minnesoda. Dýri keppti á tvíslá og svifrá fyrir liðið og fékk hann 8,4 á tvíslá með mjög góða seriu sem skilaði honum hæstu einkunn í liðinu á tvíslá ásamt skólafélaga hans Billy Callahan. Það var aftur á móti á svifrá sem hann toppaði með sína bestu æfingu hingað til sem gaf honum 8,55 stig og hafnaði í öðru sæti í sínu liði. Árangur hans er mjög góður og vonandi tryggir hann sér fast stæti í liðinu á komandi keppnum með þessum góða áragnri.

Inga Rós Gunnarsdóttir íþróttakona Kópavogs

[11/01/2004]

Inga Rós Gunnarsdóttir, úr Gerplu, var valin íþróttakona Kópavogs við hátíðlega athöfn nú í dag (sunnudag). Inga Rós hefur verið í hópi fremstu fimleikastúlkna landsins um nokkurra ára bil. Nú fyrir skemmstu hafnaði hún í öðru sæti á opnu móti í Svíþjóð, Malarcup, stóð sig mjög vel með landsliðinu á HM í fimleikum í ágúst sl. og hafnaði í 6. sæti á Norður-Evrópumóti í nóvember sl. Hún er góð fyrirmynd fimleikafólks og óskum við henni innilega til hamingju með þann heiður sem val á íþróttakonu Kópavogs er.
Við sama tækifæri fengu Róbert Kristmannsson, Sara Sif Sveinsdóttir og Rúnar Alexandersson einnig viðurkenningu og óskum við þeim jafnframt til hamingju.


Inga Rós Gunnarsdóttir

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Gerplu, sigrar á alþjóðlegu móti

[26/10/2003]

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu varð í fyrsta sæti í fjölþraut með 29,25 stig ásamt enskri stúlku í stúlknaflokki (12 ára og yngri) á Malarcup sem er alþjóðlegt fimleikamóti sem Sænska fimleikasambandið stóð fyrir um helgina en mótið hefur farið fram undanfarin 20 ár og nú kepptu um 30 félagslið frá 9 löndum á mótinu. Kristjana Sæunn gerði sér lítið fyrir og sigraði í opnum flokki í úrslitum á slá með 7,825 í einkunn og hafnaði í 4. sæti í æfingum á Gólfi. Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu varð í öðru sæti í kvennaflokki (16 ára og eldri) með 29,7 stig og í opnum flokki í úrslitum hafnaði hún í 5. sæti á Gólfi og 6. sæti á Tvíslá. Karídas Harpa Davíðsdóttir hafnaði í 5. sæti í stökki í úrslitum. Viktor Kristmannsson hafnaði í 5. sæti í fjölþraut í karlaflokki (18 ára og eldri). Í úrslitum hafnaði hann í 3. sæti í æfingum á Bogahesti, 7. sæti Stökki og 5. sæti á Tvíslá. Róbert Kristmannsson hafnaði í 6. sæti í fjölþraut í unglingaflokki (16 - 18 ára).
Frá Gerplu kepptu tvö lið karla og kvenna. Hjá stúlkunum hafnaði A-liðið í 3. sæti af 15 liðum en B-liðið hafnaði í 9. sæti. Hjá strákunum hafnaði A-liðið í 6. sæti en B-liðið í 13. sæti.
Nánari upplýsingar um mótið má sjá hér: http//www.malarcupen.net


Kristjana Sæunn Ólafsdóttir í afstökki á slá á Haustmóti FSÍ sem fram fór um síðustu helgi. Þar sigraði hún jafnframt í æfingum á slá í yngri flokki með 7,725 í einkunn.


Inga Rós Gunnarsdóttir varð í 5. sæti í æfingum á Gólfi en hér má sjá hana í Gólfæfingum á Haustmóti FSÍ þar sem hún hafnaði í 2. sæti með 8,05 stig.


Gerpla keppir á alþjóðlegu móti í Svíþjóð 

[Meira][15/10/2003]
Vetrarstarfsemi Íþrótteafélagsins Gerplu Kópavogi hófst nú í byrjun september og eru iðkendur félagsins 620 talsins. Gerpla býður nú upp á þjálfun í almennum fimleikum, áhaldafimleikum, hópfimleikum og fimleikum fatlaðra og starfa 33 þjálfarar hjá félaginu. Sjá hér.

Heimsókn í Gerplu

[Meira][15/9/2003]

Mikið var að gerast inn í Gerplu þegar litið var inn á æfingu hjá félaginu í dag. Sjá fleiri myndir hér

Dýri og félagar hans í Minnesota á lokaspretti undirbúnings

[Meira][27/7/03][@]

Dýri Kristjánsson, Gerplu, æfir nú að kappi fyrir HM í ágúst í góðum félagsskap topp fimleikamanna sem stefna á hvert stórmótið á fætur öðru.
Dýri er að gera á bilinu 30 - 40 fullar æfingar á viku auk þess að keyra um 40 stökk. Því má segja að hann sé kominn á lokasprett undirbúningstímabilsins fyrir HM sem byrjar 16. ágúst n.k.
Það hefur verið Dýra mikil hvatning að æfa í góðum félagsskap topp fimleikamanna í Minnesota í Bandaríkjunum þar sem Dýri stundar nám í Hagfræði.
meira Fleiri myndir hér


Dýri Kristjánsson © Jeffrey Alger


Myndir af Vorsýningu Gerplu

[6/6/03][@]


Kristjana Sæunn Ólafsdóttir í lausu lofti

Með því að smella hér má sjá fleiri myndir af Vorsýningu Gerplu sem fór fram 1. júní sl.
Dýri Kristjánsson gerði tvöfallt heljarstökk yfir svifránna og greip aftur. Æfing sem aldrei áður hefur verið gerð á móti eða sýningu á Íslandi.

Vorsýning Gerplu

[1/6/03][@]

Vorsýning Gerplu fór fram í troðfullri Laugardalshöll nú í dag. Allir iðkendur félagsins komu fram á sýningunni sem var hin glæsilegasta og mátti greinilega sjá að áhorfendur sem fylltu öll sæti hallarinnar kunnu vel að meta það sem fyrir augu bar. Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum komu fram á sýningunni iðkendur sem voru að taka þátt í sinni fyrstu sýningu og allt upp í þrautþjálfað keppnisfólk. Fleiri myndir munu verða settar á netið á næstu dögum. Myndir hér.


Rúnar Alexandersson í glæsilegum æfingum á vorsýningu Gerplu.

Dýra gekk vel á stærsta móti vetrarins

[Meira] [1/4/03]

Dýri Kristjánsson Gerplu var að keppa á einu stærsta háskólamóti keppnistímabilsins, BIG 10 Championships, sem er mót þar sem 6 háskolalið koma saman og keppa hvert við annað. Þetta er mjög sterkt mót sem allir bíða í ofvæni eftir allt tímabilið.
Með umfjölluninni má sjá mikið af myndum af Dýra.
Meira

Dýri keppti um síðustu helgi

[27/3/03]

Betra er seint en aldrei ! en Dýri Kristjánsson keppti um síðustu helgi og fékk 7,95 stig á bogahest, 8,15 stig á tvíslá og 7,75 stig á svifrá. Hér má sjá nánar um mótið.


Dýri nær góðum árangri, m.a. 8,55 á tvíslá
[4/3/2003 JF]

Dýri Kristjánsson Gerplu keppti fyrir Minnesota Háskóla viđ Oklahoma Háskóla á laugardaginn (1.3) og gekk mótið mjög vel að hans sögn. Dýri keppti á ţremur áhöldum. Fyrir ćfingar á bogahest fékk hann 7,55 stig samanborið við 8,2 stig á síðasta móti (15.2). Á tvíslá fékk hann 8,55 stig samanborið við 8,05 stig á síðasta móti og er þetta besti árangur Dýra á tvíslá hingað til og var hann dæmdur út frá upphafseinkunninni 9,0. A Bikarmóti FSÍ um síðustu helgi fékk Rúnar 9,2 stig á tvíslá en næstu menn á eftir honum voru Viktor og Jónas en þeir fengu 7,15 stig. Þess má geta að Rúnar keppti til úrslita á HM sl. á tvíslá og því er samanburður við hann erfiður. Á svifrá fékk Dýri svo 8,05 sem er sama einkunn og á síðasta móti.
Til samanburðar við nýafstaðið Bikarmót FSÍ í frjálsum æfingum karla, en dæmt var eftir sömu reglum og á mótinu sem Dýri var að keppa á, þá fékk lið Gerplu 169,75 stig samtals og sigraði lið Ármanns sem fékk 165,6 stig. Lið Minnesota Háskóla sem Dýri keppir með fékk 213,95 stig á mótinu. Þrátt fyrir það tapaði liðið fyrir Oklahoma Háskóla sem fékk 220,075 stig.
Framundan eru mót um hverja helgi hjá Minnesota Háskólaliðinu. Næsta sunnudag verður keppt við Háskólan í Ohio á heimavelli, síðan verður keppt við Háskólana í Chicago, Nebraska, Ohio og að lokum í Philadelphiu. Það er því ljóst að Dýra gefst stórkostlegt tækifæri til þess stunda nám og æfingar við fimleika með miklum ævintýrum. Við óskum honum öll góðs gengis.
Hér má sjá heimasíđu Dýra og nánari upplýsingar um mótiđ.

 

















   
fimleikar.is - @ - umsjón: jón - hönnun: robbi -