Special Olympics

  29/09

Þrjátíu og tveir fatlaðir íþróttamenn verða fulltrúar Íslands á alþjóðaleikum Special Olympics 2007 sem verða settir í Shanghai í Kína 2. október nk. Auður Lilja Ámundadóttir, Elva Björg Gunnarsdóttir, Helgi Tómasson og Jóhann Fannar Kristjánsson, öll úr Gerplu, munu keppa í fimleikum og að sjálfsögðu óskum við þeim góðs gengis. Ásta Ísberg og Erlendur Kristjánsson þjálfarar fara með þeim á leikana.
Nánar hér.


myndband

  29/09

Skemmtilegt myndband, sjá hér.


Dómaranámskeið í hópfimleikum

  27/09

Dómaranámskeið í hópfimleikum verður haldið helgina 19. - 21. október. Um er að ræða sambandsdómarapróf (c-dómarar). Farið verður yfir landsreglur.
- föstudagur 19. október
o almennur hluti
- laugardagur 20. október
o dýna & tramp bóklegt og verklegt
o gólf bóklegt og verklegt
- sunnudagur 21. október
o verklegt
o próf
Nánari upplýsingar berast eftir að skráningu lýkur mánudaginn 12. október. Skráning fer fram í FELIX mótaskráningarkerfinu. Föstudaginn 19. október verður einnig kynningarfundur fyrir hópfimleikamót vetrarins. Hann hefst kl 20:30. Við hvetjum öll félög til þess að hafa samband með athugasemdir varðandi landsreglurnar en smávægilegar aðlaganir verða á reglunum og verða þær kynntar á þessum fundi. Okkur þætti vænt um að fá athugasemdirnar sendar fyrir 7.október á fsi@isisport.is .


Hádegisfundur ÍSÍ föstudaginn 28. september

  25/09

ÍSÍ boðar til hádegisfundar föstudaginn 28. september næstkomandi kl. 12.00-13.00 í sal E íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Anna Guðrún Steindórsdóttir mun kynna niðurstöður BS-lokaritgerðar sinnar frá KHÍ, íþróttabraut um íþróttafréttir í dagblöðum. Rannsókn Önnu er afar athyglisverð og marktækari en aðrar sem gerðar hafa verið á sama efni vegna þess að hún nær yfir heilt ár og þar með öll tímabil íþróttagreinanna. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. Opnað verður fyrir fyrirspurnir í lok fyrirlestursins. Ekki er ennþá ljóst hvort það næst að senda fyrirlesturinn út á netinu, ef svo verður þá mun ég setja uppl. um það á heimasíðu og senda í netpósti. Væntanlega verður fundurinn tekinn upp og mun sú upptaka auk glæranna verða fyrir hendi á heimasíðu ÍSÍ eftir fundinn.


Þrepamót Hamars 2007

Hamar / Sandra  24/09

Fimleikadeild Hamars heldur þrepamót Hamars laugardaginn 13. október í íþróttahúsin í Hveragerði. Mótið er hugsað sem undirbúningur fyrir Íslandsmótið í Almennum fimleikum sem verður haldið í lok október/byrjun nóvember. Keppt verður í 1. þrepi B, 1. þrepi og 2. þrepi. Mótið verður aldursskipt ef næg þátttaka fæst. Þeir sem eru fæddir ’99 og fyrr eru velkomnir. Ekki eru veitt verðlaun fyrir 9 ára og yngri né fyrir 1. þrep B, aðeins viðurkenningar. Seinasti skráningardagur er 3. október. Skráning og upplýsingar í síma 865-4448 eða í gegnum e-mail fimleikar@hamarsport.is Þátttökugjald er 1.300kr á keppanda og hvert lið þarf að tilkynna 2 dómara. Ef lið tilkynnir ekki inn dómara þarf að borga dómarakostnað. Þau lið sem koma utan af landi geta haft samband og við reynum að hjálpa við að útvega gistingu.
Með von um að sjá sem flesta,
Sandra Sigurðardóttir
Yfirþjálfari fimleikadeildar Hamars


Fríða Rún hlýtur styrk úr Afrekskvennasjóðs

FSÍ / Hrund  24/09

Úthlutað hefur verið úr Afrekskvennasjóði Glitnis og ÍSÍ. Sjóðurinn hefur það að markmiði að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri. Að þessu sinni fengu 3 ungar stúlkur 500 þúsund króna styrk hver, en eftirtektarvert þótti ungur aldur styrkþega.
Okkar fimleikadrottning Fríða Rún Einarsdóttir úr Gerplu hlaut styrk til að standa straum af þáttöku sinni á erlendum mótum á næsta keppnisári. Þetta á hefur verið mjög svo strembið keppnisár fyrir Fríðu Rún enda hefur hún keppt á fjölmörgum mótum. Fyrir utan okkar mót hér heima á Íslandi keppti hún á Norðurlandamóti unglinga, Smáþjóðaleikum, Ólympíuleikum æskunnar og nú síðast á Heimasmeistaramótinu. Fimleikasambandið sendir Fríðu Rún, foreldrum, félagi hennar og þjálfurum hamingjuóskir. Aðrir styrkþegar eru: Helga Margrét Þorsteinsdóttir, frjálsíþróttakona úr USVH og Sara Björk Gunnarsdóttir, knattspyrnukona úr Haukum. Alls bárust 52 umsóknir í Afrekskvennasjóðinn að þessu sinni og nam heildarfjárhæð verkefna sem sótt var um styrk vegna um 100 milljónum króna. Næsta úthlutun úr sjóðnum verður í febrúar 2008.


Loftfimleikasýningar

  13/09

Loftfimleikasýningar Fjölleikaflokks Wuhan sem haldnar verða í íþróttamiðstöðinni Versölum verða án efa mikið sjónarspil fyrir alla fjölskylduna en yfirlýst markmið loftfimleikafólksins er að gleðja jafnt hjartað, hugann og augað. Sýningarnar verða þrjár talsins; fimmtudagskvöldið 4. október kl. 20, laugardaginn 6. október kl. 16 og sunnudaginn 7. október kl. 16 og fara þær allar fram í aðstöðu Íþróttafélagsins Gerplu að Versölum í Kópavogi. Miðasala hefst í dag, fimmtudaginn 13. október, kl. 15 hjá Íþróttafélaginu Gerplu í Versölum. Opið er alla virka daga kl. 15-20 og einnig er tekið við pöntunum í síma 557 4925.

Fjölleikaflokkur Wuhan er atvinnufjölleikahópur sem var stofnaður stuttu eftir stofnun alþýðulýðveldisins. Á þeim 50 árum sem síðan eru liðin hefur flokkurinn með stuðningi stjórnvalda og óþreytandi dugnaði og ástundun skapað sér nafn bæði í Kína og á alþjóðlegum vettvangi sem flokkur með sérstakan stíl, áræði og leikni.
Nánar sjá hér.


Myndbönd

  09/09

Viðtal við landslið Kína á CNN birt á YouTube, hér.
Önnur skemmtileg myndbönd, hér.


FIMLEIKASÝNING

  06/09

Takið frá tíma þann 4. október kl. 20:00, 6. október kl. 16:00 eða 7. október kl. 16:00. Stórkostlegur fimleikaviðburður sem enginn á að láta framhjá sér fara. Nánari upplýsingar síðar.


OL

 JF 04/09

Heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum hefur fyrir flesta keppendur snúist um það hvort þeir vinni sér inn keppnisrétt á Ólympíuleikunum 2008 eða ekki, þrátt fyrir að í sumum tilvikum gangi keppendur að því vísu þegar um sterkustu þjóðirnar er að ræða.
Íslensku keppendurnir hafa öll staðið sig mjög vel á mótinu. Þau mættu til leiks í góðu formi og tilbúinn fyrir þessa miklu og erfiðu áskorun sem þátttaka á HM er. Full ástæða er til þess að senda þeim öllum hamingjuóskir.

Mismunandi reglur gilda milli íþróttagreina varðandi hvernig keppendur tryggja sér rétt til þátttöku á OL. Með því að smella á myndirnar hér að ofan má sjá þær reglur sem farið er eftir.
Þrátt fyrir að ekki sé með öllu útséð með það hvernig öllum sætum verður úthlutað þá er engu að síður óhætt er að segja að vonir okkar keppenda um sæti á OL eru litlar og grundvallast eingöngu á úthlutuðum sætum frá FIG (Slot 95 - 97 og slot 98).
Það er samt áhugavert að velta því fyrir sér hvort að þær reglur sem unnið er eftir í fimleikum grundvallist á sama réttlæti eða sanngirni og í öðrum íþróttagreinum. Almennt geta íþróttamenn og konur gert fleiri en eina atlögu að því hvort þeim takist að komast á OL. Í fimleikum er það ekki svo. Aðeins eitt tækifæri. Ef ekki tekst vel upp og eða ef keppandi getur af einhverjum ástæðum ekki tekið þátt vegna veikinda eða ekki keppt á fullum styrk vegna meiðsla þá hefur það engin áhrif. Aðeins gildir frammistaða á HM ári fyrir OL. Hér skal ekki lagt á það endanlegt mat hvort að þessi regla sé byggð á réttlæti eða sanngirni. Aðeins er vakin athygli á þessari staðreynd sem og því að Alþjóðlega Ólympíunefndin hefur krafist þess að FIG taki þessa reglu til endurskoðunar eins og sjá má á heimasíðu HM. Þar segir:

For the 2012 Olympic Games in London, the FIG will be required to create a second qualifying event as requested by the IOC, in order to provide a second opportunity for athletes who, for reasons such as injury, were unable to participate in the only qualifying competition. This second opportunity is one of the issues up for debate by the FIG Executive, who will deliver its conclusions to the Council, the entity with the authority to approve changes to the Technical Regulations.

Sjá grein hér: Second qualifying event.

HM

  04/09

Rúnar Alexandersson og Viktor Kristmannsson hafa lokið keppni á HM. Rúnar 83,575 stig og hafnaði í 80. sæti. Viktor hlaut hlaut 81 stig og hafnaði í 108. sæti.
Fyrir þá báða voru æfingar á bogahesti þeim erfiðar, Viktor fékk 2 föll og Rúnar eitt, sem var þeirra næst síðast áhald. En þeir kláruðu svo með æfingum í hringjum sem þeir gerðu með miklum ágætum þar sem Rúnar var m.a. einum heilum hærri en á Smáþjóðaleikum. Viktor hefur verið á mikilli siglingu á undanförnu sem má m.a. sjá á því að hann hefur hækkað sig stöðugt frá því í vor þegar hann keppti í Amsterdam á EM og hlaut 78,9 stig samtals. Á Smáþjóðaleikunum í júní hlaut hann 80,75 stig og núna á HM halut hann 81 stig.

Mótið hefur verið mjög spennandi en ítarleg umfjöllun um mótið má finna á heimasíðunni http://www.turn-wm.de


HM

  03/09

Heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum fer nú fram í Þýskalandi. Þar keppa fjórir keppendur frá Íslandi. Fríða Rún Einarsdóttir og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir hafa nú þegar lokið keppni. Fríða Rún hlaut 51,55 stig og Kristjana Sæunn hlaut 48,175 stig og urðu þær í 90. og 127 sæti af 214 keppendum alls. Rúnar Alexandersson og Viktor Kristmannsson munu keppa á morgun (þriðjudag). Ítarlegar upplýsingar eru um mótið á heimasíðunni http://www.turn-wm.de

Fyrsta keppnis áhaldið hjá stúlkunum var slá. Eitthvað óöryggi sást en það var kláraði með sæmd. Kristjana var með nýja gólfæfingu. Þá átti Kristjana Sæunn gott stökk en steig á línu. Samanlögð einkun Kristjönu Sæunnar var örlítið undir því sem hún fékk á Íslandsmóti (48,550). Stefnan var auðvitað að ná a.m.k. sömu einkunn og á Smáþjóðaleikum 50.800, sem hefði hækkað hana um 30 sæti.
Fríða var með góða gólfæfingu þó ekki fengi hún sömu einkunn og hún hefur náð á mótum undanfarið enda dómgæsla ströng á HM. Tvísláin er erfiðasta áhaldið og sést það á einkunum stúlknanna. Fríða Rún fékk 53,900 í Mónakó á Smáþjóðaleikum og þau stig eru það sem hún nær á góðum degi og hefðu dugað til að setja hana meðal 60 efstu.
Báðar eru stúlkurnar mjög ungar að aldri. Lágmarksaldur til að taka þátt í Heimsmeistaramóti er 16 ára, en veitt er undanþága árið fyrir Ólympíuleika til að 16 ára stúlkur geti öðlast keppnisrétt á Ólympíuleikum. Kristjana er 16 ára og Fríða Rún er á undanþágu, einungis 15 ára. Því má segja að þetta mót sé þeim mjög dýrmæt reynsla sem vonandi nýtist vel á komandi mótum.





Allar myndir © www.fimleikar.is
Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is er heimil án sérstaks samþykkis. Sjá hér.

Fimleikar ehf.