Norður Evrópumót í fimleikum
30/9/05

Nú um helgina fer fra Norður Evrópumót í fimleikum en mótið er haldið í Belfast á Norður Írland.
Vonir eru bundar við árangur beggja liðanna á mótinu. Kvennaliðið er í góðu formi og sama má segja um karlaliðið en þetta er fyrsta mótið eftir undirbúningstímabil nú í sumar. Rúnar og Viktor eru að æfa fyrir Heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum sem haldið er í Ástralíu í nóvember og svo er þetta fysta mótið í langan tíma þar sem Dýri Kristjánsson er í liðinu. Hann er nú kominn heim eftir mörg ár í námi í Bandaríkjunum þar sem hann keppti með háskólaliði sínum. Á morgun laugardag er keppt í liðakeppni og fjölþraut og síðan eru úrslit á áhöldum á sunnudag.
Landslið Íslands skipa: Kvennalið: Fríða Einarsdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir allar úr Gerplu og Hera Jóhannesdóttir og Sif Pálsdóttir báðar úr Gróttu. Karlalið: Dýri Kristjánsson, Ingvar Jochumsson, Róbert Kristmannsson, Rúnar Alexandersson og Viktor Kristmannsson allir úr Gerplu.
Dómarar eru þau Heimir Jón Gunnarsson og Ásta Ísberg. Þjálfarar eru Vladimir Antonov og Mykola Vovk. Farastjóri er Ásdís Pétursdóttir.


Fimleikatæki til sölu
30/9/05

Í tilefni af flutningi Íþróttafélagsins Gerplu þá hefur félagið til sölu ýmiskonar fimleikatæki. Um er að ræða ýmiskonar dýnur og önnur fimleikatæki í áhalda- og í hópfimleikum. Þeir sem hafa áhuga geta fengið nánari upplýsingar hjá Hallveigu Andrésdóttur, framkvæmdastjóra félagsins, í síma 557-4925 eða 557-4923. Tölvupóstur er: if.gerpla@simnet.is


Catalonia Gym Festival
30/9/05

Upplýsingar fyrir Catalonia Gym Festival 2006. Greinilega spennandi fimleikahátíð sem haldin veður næsta sumar á skemmtilegum stað. Úr texta staðarhaldara:
The Argimtona’s International Gymnastics Festival and now the Catalonia Gym Festival is a meeting of different gymnastics teams from all around the world, with the only purpose of having fun with the other participants, with people from the towns and show the best gymnastics abilities in the different evening performances. There’s no competition, just a Festival to make gymnastics as much and as good as we can.


Íþróttafélagið Gerpla fær lykla af nýju Íþróttahúsi
- samstarfssamningur staðfestur -

24/9/05

Kópavogsbær og Íþróttafélagið Gerpla undirrituðu samstarfssamning um notkun, umsjón og þjónustu í íþróttahúsinu og félagsaðstöðu í Íþróttamiðstöðinni Versölum á laugardaginn 24. september.
Gunnar I. Birgisson, Bæjarstjóri, óskaði félaginu til hamingju með þessa glæsilegu aðstöðu og vakti athygli á að íþróttahúsið væri stærra en Laugardalshöllin var fyrir breytingu. Félagið ætti því að geta vaxið á næstu árum í frábærri aðstöðu. Kristján Erlendsson formaður Gerplu tók undir orð Gunnars og sagði að þetta væri stór dagur í sögu félagsins og þakkaði Kópavogsbæ fyrir að veita félaginu jafn mikinn stuðning og raun ber vitni með þeirri aðstöðu sem félagið er nú komið í.


Íþróttahús Gerplu í Versölum.
Íþróttamiðstöðin er með íþróttasal sem er 2205 fm. auk þess sem á efri hæt er salur upp á 165 fm. Þá er stórglæsileg inni og útisundlaug með tilheyrandi aðstöðu. Einnig er líkamsræktarstöð rekinn af Nautulis.


Una María Óskarsdóttir, formaður Íþrótta og tómstundaráðs, Hansína Björgvinsdóttir, formaður Bæjarráðs, Gunnar I. Birgisson, Bæjarstjóri, Kristján Erlendsson, formaður Gerplu, Jón Finnbogason, varaformaður Gerplu og Ingvar Árnason fyrrv. formaður Gerplu staðfesta samning um rekstur íþróttahússins að Versölum í Kópavogi. Una María og Ingvar votta undirritun aðila og Jón Júlíusson Íþróttafulltrúi Kópavogsbæjar fylgist með að allt fari rétt fram.


Gunnar I. Birgisson, Bæjarstjóri Kópavogs, óskar Gerplufólki til hamingju.


Gengið var frá Skemmuvegi að Versölum í góðu veðri og undir trommuslætti. Mikil stemming myndaðist í göngunni eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

Myndir hér

Gerplufólk marseraði úr gamla húsinu að Skemmuvegi að Versölum. Fánar Gerplu voru bornir af fyrrum formönnum félagsins þeim Margréti Bjarnadóttur og Elsu Jónsdóttur. Margrét Guðmundsdóttir, fyrrv. stjórnarm. fimleikadeildar, og Ingvar Árnason fyrrv. formaður, varðveittu Gerpluandann í bikar sem var svo sleppt lausum í nýja húsinu. Þau komu öll að starfssemi félagsins með mjög öflugum hætti á árum áður og því var mjög viðeigandi að þau leiddu skrúðgönguna yfir í nýja framtíðaraðstöðu félagsins sem beðið hefur verið með mikilli eftirvæntingu í mörg ár.

Anna Möller framkvæmdastjóri Fimleikasambands Íslands flutti félaginu kveðju í tilefni af þessum miklu tímamótum í sögu félagsins og lýsti aðstöðunni í flokki þess besta sem boðið væri uppá. Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður Breiðabliks, óskaði félaginu til hamingju með daginn og nefndi að mikilvægt væri að íþróttafélögin í Kópavogi stæðu saman. Einnig tóku stúlkurnar í P1 til máls og þökkuðu fyrir þá gæsilegu aðstöðu sem félagið er nú komið í og veittu stjórn félagsins viðurkenningu.

Öllum félagsmönnum var boðið að prufa þau tæki sem sett hafa verið upp og var greinilegt að sjá að mikil tilhlökkun er hjá iðkendum félagsins að takast á við æfingar sínar í nýrri og stórbættri aðstöðu. Nokkur sýningaratriði fóru fram og einnig mátti sjá unga iðkendur skjótast í teygjum nánast upp í loft (10 metra !) en þær eru staðsettar við trampolínin. Allir fengu svo pulsur og með því og fóru ánægðir heim.

Starf fræðslunefndar FSÍ veturinn 2005 / 2006

15/9/05

Nú í vetur mun fræðslunefnd FSÍ standa fyrir þjálfaranámskeiðum og fræðslukvöldi:
Sérgreinahluti 1A – helgin 10.- 11. september
Sérgreinahluti 1A – helgin 29.- 30. október
Sérgreinahluti 1C – helgin 29. - 30. október
Sérgreinahluti 2B /Toppþjálfaranámskeið í áhaldafimleikum. 2006 NÝTT
Sérgreinahluti 1B – - 7. – 8. janúar 2005.
Sjá nánar hér:



Fimleikadeild Fylkis

11/9/05

Fimleikadeild Fylkis óskar eftir að ráða reyndan og metnaðarfullan þjálfara, vantar bæði fyrir hópfimleika og drengi. Ef þú kæri þjálfari sér þér fært um að bæta við þig þjálfun þá endilega hafðu samband í síma 659-1226 eða í gegnum tölvupóst alda.h@simnet.is Mjög góður starfsandi á milli þjálfara og stjórnar.
Með von um einhver viðbrögð, Alda Hanna Hauksdóttir, Framkvæmdarstjóri.

Mótaskrá

8/9/05

Mótaskrá FSÍ fyrir næstkomandi keppnistímabil er sem ég segir: sjá hér.


"Golden Age 2005"
8/9/05

Fimleikasamband stendur fyrir ferð á “Golden Age 2005” fimleikahátíð sem haldin er á Kanaríeyjum í nóvember.
Hátíðin er sú fyrsta sem haldin er á vegum Fimleikasambands Evrópu og er ætluð fólki 50 ára og eldri en í framtíðinni er ætlunin að hátíðin verði á fjögurra ára fresti.
Hátíðin er sýningarhátíð sem stendur í 6 daga og hver hópur kemur fram á tveimur sýningum. Einnig eru í boði mikill fjöldi námskeiða, kynninga og fyrirlestra.
Mikill áhug er hér fyrir landi fyrir þessari hátíð en skráðir þátttakendur eru tæplega 200 en flestir þátttakendur eru á aldrinum 60 - 80 + af Stór-Reykajvíkursvæðinu og úr Reykjanesbæ, fólk sem tekið hefur þátt í íþróttastarfi eldri borgara. Alls verða um 3000 þátttakendur víðs vegar að úr Evrópu og íslenski hópurinn verður væntanlega stærsti einstaki hópurinn fyrir utan Spánverja.
Þátttaka í Golden Age hátíðinni er skemmtilega nýjung við fimleikastarfið hér á landi. Þessi aldurshópur hefur ekki verið fjölmennur innan fimleikafélaganna en á næstunni mun hópur í Garðabæ gerast félagar í Stjörnunni og væri ánægulegt að þróunin yrði sú sama hjá fleiri félögum. Íþróttastarf eldri borgara hefur eflst mikið hin síðari ár og veitir þátttakan eldra fólki mikla gleði auk þess sem sem hreyfingin bætir, hressir og kætir.


Umf. Selfoss
8/9/05

Nú er vetrarstarf Fimleikadeildar Umf. Selfoss að hefjast aftur eftir sumarfrí. Alls hafa 215 iðkendur skráð sig til æfinga sem hófust 5. september. Iðkendur eru frá fimm ára til tvítugs í 14 hópum, þar af eru tveir strákahópar.
Iðkendur deildarinnar náðu framúrskarandi árangri í hópfimleikum og almennum fimleikum síðastliðið vor og er það von okkar að komandi starfsár verði jafn gefandi fyrir iðkendur deildarinnar. Hópur T-2 undirbýr einnig þátttöku í einni stærstu fimleikahátíð Evrópu „Eurogym“ sem haldin verður í Belgíu í júlí á næsta ári.
Íþróttaskóli:
Næstkomandi laugardag 10. september hefst íþróttaskóli fimleikadeildarinnar að nýju. Umsjón með íþróttaskólanum hafa Ásdís Björg Ingvarsdóttir og Guðrún Hrafnhildur Klemenzdóttir íþróttakennarar og með þeim er síðan hópur aðstoðarþjálfara. Íþróttaskólinn er 10 vikna námskeið fyrir tveggja til fjögurra ára börn, f. 2001-2003. Skólinn verður tvískiptur eftir aldri, börn f. 2001 og jan.-júní 2002 verða á laugardögum kl.10-10:50 en börn fædd júlí-des. 2002 og börn fædd 2003 verða á laugardögum kl. 11-11:50. Skráning í íþróttaskólann verður fimmtudaginn 8. september í Tíbrá kl. 17-19,30 (s. 482-2477) og í íþróttahúsinu Sólvöllum laugardaginn 10. september kl. 9-11 (ekki í síma). Námskeiðið kostar 5.000 kr sem staðgreiðist við skráningu. Mjög góð þátttaka hefur verið í íþróttaskólanum undanfarin ár og börn og foreldrar verið sérlega ánægð með þetta starf.
Fimleikafatnaður:
Á síðasta ári var félagsbolur fimleikadeilarinnar endurnýjaður og hefur hann hlotið góðar viðtökur. Nú hefur einnig verið hannaður fatnaður á stráka, bolur og stuttbuxur auk þess sem boðið verður upp á hjólabuxur í stíl við fimleikaboli stúlknanna. Þeim sem vantar fimleikafatnað (fimleikaboli, hjólabuxur eða strákagalla), fyrir æfingar vetrarins geta komið í íþróttahúsið Sólvöllum laugardaginn 10. september kl. 9-12 og mátað og pantað. Allur fimleikafatnaður er seldur á kostnaðarverði, hægt er að staðgreiða við pöntun eða greiða með visa eða euro .

Með von um að góðan fimleikavetur,
stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss


"Eurogym 2005"
8/9/05

UEG - Fimleikasamband Evrópu heldur í 5. sinn fimleikahátíðina Eurogym, sem er nokkurskonar" Gymnastrada" fyrir þátttakendur frá 12 - 20 ára. Eurogym verður haldin í Ghent í Belgíu dagana 8. – 14. júlí 2006. Eurogym er bæði fyrir sýnendur, þjálfara, stjórnendur félaga og allt áhugafólk um fimleika. Á Eurogym 2006 verða sýningar og námskeið eru haldin í fjölda greina innan fimleikanna og er því góður möguleikar fyrir fimleikaþjálfara að kynna sér nýjungar í þjálfun. Vinnuhópar eru fyrir alla á morgnana og á lokahátíð taka allir þátttakendur þátt í sýningu. Gala sýning er eitt kvöldið og boðið er upp á ferðir og kynningar á landi og þjóð. Margir góðir fyrirlestrar verða haldnir og eru þeir fyrir þjálfara leiðtoga og stjórnendur. Þátttaka á Eurogym er frábært tækifæri fyrir allt ungt fimleikafólk á öllum getustigum. Tilkynna verður þátttöku fyrir 1. nóvember 2005 til Fimleikasambands Íslands og um leið að greiða staðfestingargjald kr. 3.500. Þáttökugjald eru kr:15.000.- innifalið er: gisting í skólum, fullt fæði, þáttaka í öllu sem mótið hefur uppá að bjóða, frítt í stræto og lestir og inn á allar sýningar. Eftirstöðvar þátttökugjalds kr. 11.500 þarf að greiða fyrir 15. mars. Flogið verður til Amsterdam og þaðan tekin rúta til Ghent, áætlaður heildarkostnaður á þessa hátíð er kr: 60 - 65.000 . Hægt er að óska eftir sérstökum kynningarfundum varðandi hátíðina, hjá Birnu í sími 8917545. Allar upplýsingar er að fá á hjá Fimleikasambandi Íslands í síma 5144060 eða á netfanginu: fsi@isisport.is og hjá Birnu Björns í síma 8917545 og á vefsíðu mótsins www.eurogym2006.com.


Eurogym 2006
Gymnaestrada 2007
8/9/05

Ákveðið er að boða til kynningar- og umræðufundar miðvikudaginn 14. september kl. 20.00 í fundarsal á 3. hæð hjá ÍSÍ (við hlið gömlu Kaffiteríunnar) þar sem til umræðu verður þátttaka í fimleikahátíðunum Eurogym sem verður haldin í Ghent í Belgíu 8. – 14 júlí 2006 og Gymnaeströdu sem haldin verður í Dornbirn í Austurríki sömu daga en næsta ár á eftir þ.e. 8. – 14. júlí 2007.
Eurogym
Eurogym er fyrir 12-20 ára. Á hátíðinni taka hóparnir þátt í sýningum og einnig eru í boði námskeið ýmisskonar fyrir iðkendur, þjálfara og fararstjóra þar sem ýmislegt áhugavert er í boði. Þátttökugjaldið á Eurogym er € 165.- en innifalið er gisting í skóla og fullt fæði, aðgangur að öllum atburðum hátíðarinnar og frír aðgangur í almenningsamgögutæki.
Tilkynna þar þátttöku og greiða staðfestingargjald fyrir 1. nóvember n.k.
Þátttaka á Eurogym er frábært tækifæri fyrir allt ungt fimleikafólk á öllum getustigum.
Gymnaestrada
Gymnaestrada er fyrir alla fimleiðaiðkendur 15 ára og eldri. Fimleikafólk frá öllum heimshornum koma þar saman og sýna allar gerðir fimleika. Að þessu sinni mun Ísland ekki taka þátt í FIG Gala en við munum taka þátt í Norræna kvöldin sem er samsýning allra Norðurlandanna.
Þátttökugjaldið er samtals € 300..- þ.e. 180 € þátttökugjald sem er aðgangur að öllum dagsýningum og afnot af almenningsamgöngutækjum og 120.- € sem er gisting í skóla með morgunverði. Gera má ráð fyrir að heildarkostnaður þ.e. ferðir og þátttökugjöld og utanyfir galli verði á bilinu 85 – 95.000.-. en því til viðbótar er kostnaður við sýningarfatnað.
Þau félög sem hyggjast taka þátt í Gymnaeströdu þurfa að láta vita fyrir 20. janúar en senda þarf upplýsingar um væntanlegan fjölda hópa í lok janúar 2006. Ljóst er að undirbúningur þarf að hefjast strax í vetur vegna Norræna kvöldins einnig þess vegna er mikilvægt að vita hvaða félög stefna að þátttöku. Það vita allir sem farið hafa á Gymnaeströdu hvað það er mikil upplifun!! Við hvetjum ykkur til að koma á fundinn og vinsamlega látið vita um þátttöku í síðasta lagi þriðjudaginn 13. september.
Með kveðju
FSÍ
Anna R. Möller


Þjálfaranámskeið FSÍ
Sérgreinahluti 1A

8/9/05

Helgina 10. og 11. september nk. mun fræðslunefnd FSÍ halda námskeiðið sérgreinahluti 1A sem ætlað er þeim sem eru að hefja þjálfaramenntun sína í fimleikum. Námskeiðið er hluti af þjálfaramenntunarkerfi FSÍ og ÍSÍ og er 20 kennslustundir bæði bóklegir og verklegir hlutar. Námskeiðið verður haldið á Reykjavíkursvæðinu og áætlaður fjöldi þátttakenda er 25 manns. Námskeiðsgjald er kr. 10.000.- Skráning fer fram á skrifstofu FSÍ í Laugardal, netfang fsi@isisport.is og sími 514-4060. Óskað er eftir skráningum fyrir 7. september. FSÍ hvetur áhugasama um þátttöku á námsskeiðinu og sérstaklega þá sem eru að hefja fimleikakennslu. Fræðslunefnd auglýsir heildardagskrá vetrarins nú um helgina.
Fræðslunefnd FSÍ



Allar myndir © www.fimleikar.is
Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is er heimil án sérstaks samþykkis. Sjá hér.

Fimleikar ehf.