Bronsverðlaun á ÓL 1996 og kennir nú í Keflavík

[Meira][28/9/2003]
Ionela Loaies og unnusti hennar Robert Bentia bæði frá Rúmeníu kenna nú í fimleikadeild Keflavíkur. Ionela keppti með Rúmenska landsliðinu á Ólympíuleikunum í Atlanta 1996 og hafnaði í 3. sæti í liðakeppni. Fimleikadeild Keflavíkur er því með verðlaunahafa á Ólympíuleikum í fimleikum við kennslu og er það eina fimeikafélagið á Íslandi sem getur státað af því. Fimleikadeildin hefur einnig fengið viðurkenningu frá ÍSÍ sem "betra félag betri deild" vegna handbókar sem fjallar um starf deildarinnar á mjög greinargóðan hátt. Nánar um deildina og Ionelu og Robert hér.

Ionela Loaies, bronsverðlaunahafi á Ólympíuleikum í fimleikum 1996.

Flottar myndir

[28/9/2003]

Þessi heimasíða er með flottum myndum. Sjá hér.


Heimsók hjá Fimleikadeild Keflavíkur

[28/9/2003]

Fimleikadeild Keflavíkur er í mikilli sókn um þessar mundir og má greinilega sjá það á meðfylgjandi myndum. Fleiri myndir hér.

Gunnar Sigurðsson, úr Ármanni, á HM 2003

[26/9/2003]


© Jeffrey Alger
Fleiri myndir hér
.

Jónas Valgeirsson, úr Ármanni, á HM 2003

[25/9/2003]


© Jeffrey Alger
Fleiri myndir hér
.

Fimleikar heima í stofu!

[25/9/2003]

Fyrir þá sem vilja æfa fimleika heima í stofu ! þá er tilvalið að skoða þessa heimasíðu:
http://www.housegymnastics.com


Anton Þórólfsson, úr Ármanni, á HM 2003

[24/9/2003]

HM í fimleikum fór fram í ágúst síðastliðinn. Á mótinu keppti landslið karla og kvenna. Öðrum ljósmyndurum en þeir sem voru á vegum FIG var óheimilt að taka myndir inn í keppnishöllinni. Gengið var svo langt í að fylgja ljósmyndabanni eftir að fólk var leitt út úr höllinni ef kom í ljós að það væri að taka myndir. Við á www.fimleikar.is erum því mjög ánægð að fá tækifæri til þess að birta hér á síðunni myndir sem ljósmyndarinn Jeffrey Alger tók á mótinu af íslensku keppendunum en hann er með heimasíðuna http://www.vault-and-rings.com/. Á næstu dögum munum við því birta myndir af strákunum sem kepptu fyrir hönd Íslands á mótinu.


© Jeffrey Alger
Fleiri myndir hér
.

Heimsókn í Björk

[22/9/2003]

Mikið fjör var í Björk þegar komið var í heimsókn á æfingu og voru allir mjög spenntir að láta taka myndir. Með því að smella hér má sjá um 70 myndir.

Bréf frá tækninefnd í hópfimleikum

[22/9/2003]

Tækninefnd í hópfimleikum hefur sent frá sér bréf. Með því að smella hér má sjá bréfið í fullri lengd.
Skjalið hefur verið leiðrétt og er hér rétt útgáfa.


Fundargerðir stjórnar FSÍ

[18/9/2003]

Vakin er athygli á því að á heimasíðu FSÍ er hægt að fylgjast með fundum stjórnar FSÍ með því að skoða fundargerðir hennar. Með lestri þeirra má auðveldlega fylgjast með því sem er efst á baugi hjá sambandinu hverju sinni. Tækninefndir FSÍ hafa ekki sent fundargerðir sínar til birtingar á vefnum en það væri til bóta ef svo yrði gert. Þannig gæti allt fimleikaáhugafólk fylgst með því sem fram fer innan nefndanna. Eykur það gagnsæji og trúverðuleika. Sjá fundargerði FSÍ hér (einnig með því að velja FSÍ hér efst uppi til hægri á síðunni en þá má sjá sér valmöguleika um fundargerðir fyrir miðju vinstra megin)


Flottasta fimleikaæfing í heimi !

[18/9/2003]

Myndband þar sem fimleikamaður sést gera tvöfallt heljarstökk yfir svifrá með einni og hálfri skrúfu ! já þetta er ekkert grín ... þið getið séð þessa æfingu hér (ath. þetta er stórt skjal eða 3mb).
http://www.transvideo.com/ra/andrade.mpg


Heimsókn í Gerplu

[Meira][15/9/2003]

Mikið var að gerast inn í Gerplu þegar litið var inn á æfingu hjá félaginu í dag. Sjá fleiri myndir hér

Heimsókn í Ármann og Gróttu

[Meira][12/9/2003]

Hauststarf fimleikafélaganna er nú allt að komast á fullt. www.fimleikar.is kom við á æfingu hjá krökkum í Ármanni og Gróttu og tók nokkarar myndir. Á næstunni verða teknar myndir af starfi flestra fimleikadeilda á höfuðborgarsvæðinu. Meira

Starf fræðslunefndar FSÍ haust 2003

[Meira][10/9/2003]

Nú í haust mun fræðslunefnd FSÍ standa fyrir þjálfaranámskeiðum og fræðslukvöldi. Meðfylgjandi áætlun er metnaðarfull og hvetjum við alla til að kynna sér það sem verður í boði. Meira


Uppselt

[3/9/03]

Því miður eru uppselt á skemmtikvöldið. Tekið við nöfnum á biðlista ef forföll verða. Unnið er að því að fjölga sætum og taka inn fólk af biðlistum.


Skemmtikvöld, HM á risaskjá og okkar þátttakendur segja sína sögu

[1/9/03]

Á nýafstöðnu HM í fimleikum keppti bæði glæsilegt drengja og stúlknlið frá Íslandi og stóðu þau sig mjög vel. Í tilefni af þátttöku þeirra á mótinu mun www.fimleikar.is standa fyrir skemmtikvöldi þar sem okkar þátttakendur munu segja frá lífsreynslu sinni af mótinu, sjónvarpsupptaka af HM 2003 á risaskjá og sýnt verður brot úr myndbandi um sögu þátttakenda á ÓL ´84 þar sem Mary Lou Retton sigraði svo eftirminnilega í fjölþraut kvenna í fimleikum. Jákvæð framkoma hennar og afburðar árangur skilaði henni bæði virðingu áhorfenda, keppenda og að lokum fimm verðlaunum á mótinu og 10 árum síðar titlinum vinsælasti íþróttamaðurinn í Bandaríkjunum. Auk þess sem nokkrir af þátttakendum okkar á mótinu mun mæta þá verða einnig nokkrir aðrir fulltrúar frá FSÍ og fimleikafélögunum.
Skemmtikvöldið fer fram næsta fimmtudag 4. september klukkan 19:00 til 21:00 að Ármúla 13, 4. hæð, í húsnæði Kaupþings Búnaðarbanka.
Sérstök athygli er vakin á því að því miður eru aðeins sæti fyrir um 50 gesti. Allir fá tækifæri til að taka þátt í fyrsta skemmtikvöldi vetrarins með því að senda tölvupóst á fimleikar@fimleikar.is Hér gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær og eru tvö sæti fyrir hvern aðila (taka þarf fram nafn þess sem sendir tölvupóstinn og nafn þess sem viðkomandi ætlar að taka með sér). Þeir sem eru fyrstir munu fá sendan tölvupóst frá undirrituðum um hvort þeir voru nægjanlega snöggir og þar af leiðandi verður boðið að koma og taka þátt í skemmtikvöldinu.

Sjáumst hress
Jón Finnbogason



Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.