Í
dag fór fram hópfimleikasýning þar
sem þátttakendur Íslands á fyrirhuguðu
Evrópumóti sýndu okkur hvernig þau
standa núna rétt fyrir mótið. Óhætt
er að segja að þátttakendurnir þurfa
ekki að kvíða framkomu sinni á Evrópumótinu.
Fimleikafólkið hefur greinilega nýtt tíman
vel í sumar. Mikill munur á ykkur núna
m.v. hvernig veturinn endaði í fyrra. Ég
verð að segja að þær framfarir sem
þið hafið nú tekið, og sannað
með framkomu ykkar í dag, að þær
munu skila ykkur góðum árangri á
Evrópumótinu. Um það er ég
viss.
Við mættum öll fjölskyldan á mótið,
þ.e.a.s. við Linda og dætur okkar Elsa, Laufey
og María ásamt honum Andra litla. Skemmtum við
okkur öll mjög vel (veit ekki með Andra
þar sem hann tjáir sig lítið (eins
árs!)). Ég verð að segja að mest
um vert er að þarna fór fram góð
skemmtun. Ótrúlegt hvað við eigum orðið
mikið af snjöllum iðkendum sem virkilega geta
gert flotta fimleika. Áður fyrr var kannski einn
og einn sem gerði "flotta" æfingu. Nú
er það ekki þannig. Í dag sáum
við breiðan hóp iðkenda sem sýndu
okkur fallega fimleika. Í miðri umræðu
um erfiðleika og þunga stöðu í Íslensku
efnahagslífi og öllu samfélaginu þá
er eitt víst. Íþróttafólkið
okkar verður ekki tekið frá okkur. Þeirra
geta vex og vex. Er ég fullviss um að þeir
fimleikar sem við sáum í dag munu örugglega
skila okkur verðlaunum á Evrópumótinu
sem verður í Gent í Belgíu 25. -
26. október n.k. Hugsanlega ekki bara í einum
flokk heldur bæði í kvennaflokki og blönduðum
flokki pilta og stúlkna (mix).
Nokkur orð til liðanna:
Ármann-Grótta, Grámann:
Þið sýnduð flotta fimleika. Flott stökk.
Þið hafið náð tökum á
dansinum frá því í vor. Hann er
orðinn virkilega flottur, mikil tjáning, flottar
hreyfingar og línur. Ykkar fyrsta áhald, trampolínið,
var flott. Erfið stökk og flott úrfærsla.
Þið áttuð nokkur föll í lendingum
sem þarf að taka í burtu. Frammistaða
ykkar lofar mjög góðu.
Gerpla: Þið áttuð gott
mót að því að mér fannst.
Sýnduð ykkar sterku hlið. Gaman að sjá
heila umferð í dýnustökkum með
tvöfölldu með beinum líkama. Gladdi augað.
Huga að röðum í dansinum. Laga aðeins
trampolínið yfir hest (voruð svolítið
nálægt hestinum og jú snertuð hann
líka aðeins). Lítið eitt hér
og þar en efst í huga að þetta er nánast
komið. Klára smáatriðin og taka svo
mótið úti.
Selfoss: Ég verð að hrósa
ykkur fyrir dansinn ykkar. Hann er ofðinn mjög flottur.
Línur flottar og voru þið mjög samtaka
út allan dansinn að því er mér
fannst. Huga þarf að lendingum og stíl í
dýnustökki og trampolíni. Verð að
taka fram að stúlkan sem stökk síðast
á tampolíni og dýnustökkum átti
mjög góðan dag að því er
mér fannst. Þið eruð á góðri
leið.
Stjarnan: Mér þykir þið
hafa tekið út mikinn þroska í sumar
sem lið. Komuð fram sem sterkur hópur. Ekki
verður komist hjá því að hrósa
ykkur fyrir að sýna okkur erfiðustu æfingar
sem sést hafa á íslensku fimleikamóti
í hópfimleikum, þ.e.a.s. þrefallt
heljarstökk með hálfri skrúfu og pinna
það eins og sagt er. Ekki heldur gleyma að við
sáum líka tvöfallt heljar með tvöfalldri
skrúfu, pinnað!. Annars breiður hópur
stökkvara á réttri leið. Þarf
að laga aðeins lendingar og stíl í nokkrum
æfingum. Flott hjá ykkur.
Að mínu mati er niðurstaðan því
þessi: Góð skemmtun. Þið voruð
öll flott. Eins og einn góður sagði við
mig: Rest is just details!
Jón Finnbogason
Sendið mér comment ef einhver eru
á: fimleikar@fimleikar.is
eða 696-1855.