|
|
|
Danmörk vs Rússland
- "Stars of Tumbling" -
|
Tekur
smá tíma í niðurhali en þess
virði að bíða |
16/10/07
|
|
Hér má sjá frábært myndband
með nokkrum flottustu dýnu- og trampolínstökkvurum
heims í dag. Myndbandið má kalla "Denmark
vs Russia, Stars of Tumbling, Stavropol 2007" Njótið
vel með skemmtilegri tónlis í undirspili.
Eitthvað fyrir alla. |
Snemma beygist krókurinn !
|
|
15/10/07
|
|
Mynd
|
Það
varð snemma ljósta að Ashley Priess myndi ná
langt í fimleikum ef hún héldi áfram
á sömu braut en hún byrjaði tveggja ára
að æfa fimleika. Á meðfylgjandi myndbandi
(sjá
hér) má sjá hvaða tökum hún
hafði náð á íþróttinni
aðeins fimm ára gömul. Síðan þá
hefur mikið gerst og hún náð langt í
íþróttinni eins og sjá má á
þessari heimasíðu hér: http://www.gym-nerd.com/priess/
Sjá einnig ýmislegt: http://www.gym-nerd.com/ |
Mynd |
Norður
Evrópumót í áhaldafimleikum:
Thelma silfur á slá og
brons á gólfi, Rúnar brons í hringjum
og Viktor brons í gólfæfingum
|
|
8/10/07
JF |
| Frammistaða
íslensku keppendanna á Norður Evrópumóti
sem fram fór í Skotlandi nú um helgina
skilaði þeim fernum verðlaunum í úrslitum
á áhöldum. Thelma Rut Hermannsdóttir
hlaut silfur fyrir æfingar sínar á slá
og brons fyrir gólfæfingar. Rúnar Alexandersson
hlaut brons á hringjum og Viktor Kristmannsson hlaut
brons í gólfæfingum. Thelma Rut keppti til
úrslita á öllum áhöldum nema
tvíslá. Viktor var í úrslitum á
gólf, tvíslá og svifrá. Róbert
Kristmannsson var í úrslitum á stökk
og svifrá. Rúnar Alexandersson var í úrslitum
á bogahesti, hringjum og tvíslá.
Í fjölþraut og liðakeppni voru helstu
úrslit þessi.
|
| Liðakeppni
kvenna:
1.Noregur 147,35
2.Wails 147,1
3.Skotland 146,450
6. Ísland 138,975
Liðakeppni karla:
1. Skotland
5.Ísland
|
Fjölþraut
kvenna
1.
2.
3.
6. Thelma Rut |
Fjölþraut
karla
1.
2.
3.
10. Viktor Kristmannsson 78,95
11. Róbert Kristmannsson 78,0
|
| Nánari
upplýsingar síðar. |
| Norður
Evrópumótið er nokkuð umfangsmikill íþróttaviðburður
með þátttakendum frá 11 löndum
og með miklum fjölda þátttakenda, þjálfurum
og dómurum frá eftirfarandi þjóðum:
Finland, Svíþjóð, Danmörk, Noregur,
Skotland, Írland, Norður Írland, Færeyjar,
Isle of Man, Íslandi og Wales. Norður Evrópumótið
fer fram árlega en eins og fram hefur komið þá
fór mótið að þessu sinni fram í
Skotlandi en á næsta ári mun það
fara fram hér á Íslandi.
|
Starf fræðslunefndar FSÍ
veturinn 2007 - 2008
|
|
|
05/10 |
Lágmörk Íslenska fimleikastigans
|
|
|
05/10 |
Fjölmennur
hópur á Norður-Evrópumóti
- Dublin á Írlandi -
|
|
|
05/10 |
Nú um helgina fer fram Norður-Evrópumótið
í áhaldafimleikum 2007 en að þessu
sinni er það haldið í Dublin á
Írlandi. Þangað fer til keppnin 15 manna
hópur frá Íslandi. Keppendur á
mótinu eru sem hér segir: Rúnar Alexandersson,
Róbert Kristmannsson, Viktor Kristmannsson, Ólafur
Örn Gunnarsson og Ingvar Ágúst Jochumsson.
Til vara: Brynjar Wilhelm Jochumsson og Jón Sigurður
Gunnarsson.
Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Sigrún
Dís Tryggvadóttir, Thelma Rut Hermannsdóttir,
Harpa Dögg Steindórsdóttir og Þórdís
Helga Kjartansdóttir. Dómari í ferðinni
er Sandra Dögg Árnadóttir og Anton Heiðar
Þórólfsson og þjálfarar
Berglindi Pétursdóttur og Heimir Jón
Gunnarsson.
|
Frábær
árangur hjá Hlín
- fyrsta parið með 3. stigs gráðu
frá FIG -
|
|
|
05/10 |
Hlín Bjarnadóttir, þjálfari
í Gerplu, alþjóðlegur dómari
og tækninefndarkona, var að ljúka FIG þjálfaranámskeið
í vikunni en það fór að þessu
sinni fram í Þýskalandi. Um var að
ræða 10 daga námskeið í 3. stigi
FIG þjálfaragráðunnar (FIG Coaching
Brevet) þar sem þétt dagskrá meðal
fremstu þjálfara Evrópu. Enn og aftur
stóð Hlín sig sérstaklega vel á
þessum vetvangi og gerði sér lítið
fyrir og náði 92 stigum sem skilaði henni
annarri hæstu einkunn á náskeiðinu.
Með henni í för var Guðmundur Þór
Brynjólfsson og sonur þeirra Bjarni Freyr.
Var tekið sérstaklega fram við afhendingu
gráðunnar, að Hlín og Guðmundur
væru fyrsta parið sem FIG hefði útskrifað
af 3. stigs námskeiðinu en Guðmundur lauk
þessu námskeiði fyrir nokkru. Frábær
árangur hjá Hlín sem við óskum
henni til hamingju með.
|
Fimleikastiginn í áhaldafimleikum
kvenna
|
Hlín
/ Hrund |
Hlín
/ Hrund |
05/10 |
Þann 29, maí sl. hélt
tækninefnd kvenna í áhaldafimleikum
opin fund um íslenska fimleikagstigann sem var endurgerður
árið 2006 og keppt var í nú á
vorönn á þrepamóti, bikarmóti
og á Íslandsmóti í þrepum
FSÍ. Þau aðildarfélög sem æfa
og keppa í fimleikastiganum hafa flest fylgst vel
með þróun á þessum keppnisþrepum
og hafa margar góðar ábendingar komið
fram sérstaklega sumar og haust 2006 sem tekið
var tillit til í keppnisæfingum og dómarabók.
Nánar hér.
|
Loftfimleikasýningar
í Gerplu
- uppselt á allar sýningar -
- 2.800 sæti -
|
Fimmtudagur
4/10 kl. 20:00 = uppselt
Föstudagur 5/10 kl. 18:00 = uppselt
Laugardagur 6/10 kl. 16:00 = uppselt
Sunnudagur 7/10 kl. 16:00 = uppselt |
Viðtal
á mbl.is |
04/10 |
Loftfimleikasýningar
í Gerplu
- viðbótarstúka og ný sýning
-
- örfá sæti laus -
|
Fimmtudagur
4/10 kl. 20:00 = uppselt
Föstudagur 5/10 kl. 18:00 = örfá sæti
laus
Laugardagur 6/10 kl. 16:00 = uppselt
Sunnudagur 7/10 kl. 16:00 = uppselt |
|
03/10 |
Eins og búist var við þá
varð uppselt á allar þrjár sýningar
Kínverska loftfimleikaflokksins sem skipulagðar
voru, með 600 miðum á hverja sýningu,
alls 1.800. Vegna gríðarlega mikils áhuga
þá var brugðið á það
ráð að bæta við einni stúku
í Versali með um 100 sætum á allar
þrjár sýningarnar sem og að bæta
við sýningu á föstudaginn, því
með um 700 sætum. Alls var því bætt
við 1.000 sætum. Ljóst er að þessi
viðbót dugar skammt því þegar
hafði myndast biðlisti upp á um 350 miða.
Auk þess fór strax helmingur allra þeirra
miða sem urðu til með með nýrri sýningu
á föstudaginn. Þeir sem vilja ekki missa
af þessu einstaka tækifæri eiga nú
kost á nokkrum miðum á sýningu
á föstudaginn. Miðasala
fer fram hjá Íþróttafélaginu
Gerplu í Versölum og opnar kl. 15:00 og einnig
er tekið við pöntunum í síma
557 4925.
|
Nú þegar er orðið
uppselt á sýningu Loftfimleikahópsins
á laugardaginn n.k. Lítið er eftir af
miðum á fimmtudag og sunnudag. Þeir sem
ætla að sjá sýningarnar og hafa
enn ekki tryggt sér miða eru hvattir til þess
að gera það sem fyrst. Unnið er að
því að athuga hvort að það
sé hægt að leigja viðbótarstúku
til þess að bæta við um 150 sætum
á hverja sýningu en óvíst er
hvort að það takist.
Fyrsta æfinga var hjá hópnum í
dag (þriðjudag) og er óhætt að
segja að við munum fá að sjá glæsileg
sýningaratriði. Góða skemmtun.
|
|
|
|