Frábær árangur Bjarka
- Norðurlandamót Drengja 13 – 16 ára –

31/10/06
JF

Norðurlandamót í áhaldafimleikum drengja 13 – 16 ára fór fram um helgina í Stokhólmi í Svíþjóð þar sem Bjarki Ásgeirsson varð í öðru sæti í fjölþrautarúrslitum og sigraði glæsilega í æfingum á bogahesti. Keppt var í fjölþraut einstaklinga, liðakeppni og úrslitum á einstökum áhöldum.
Íslenska landsliðið var skipað þeim Bjarka Ásgeirssyni, Brynjari W. Jochumssyni, Helga Steinssyni, Jóni Sigurði Gunnarssyni, Ólafi Garði Gunnarssyni og Tómasi Aron Guðmundssyni. Kepptu þeir Bjarki, Brynjar, Helgi og Ólafur á öllum áhöldum og Jón á bogahesti, hringjum og svifrá og Tómas á gólfi, stökki og tvíslá.
Keppni um sigur í fjölþraut stóð á milli Bjarka og Måns Steinberg frá Svíþjóð þar sem þeir skipuð sér í sérflokk á mótinu þar sem aðeins dagsformið skar úr um hvor stóð uppi sem sigurvegari sem að þessu sinni var Måns Steinberg með 91,25 stig og Bjarki í öðru sæti með 89,9 stig. Báðir kepptu þeir á HM í Ålaborg í Danmörku fyrr í mánuðinum sem sýnir vel sterka stöðu þeirra en þar hlaut Måns Steinberg 53,35 stig (fyrir æfingar á gólf, hringjum, stökk og svifrá) og Bjarki 75,725 stig (þar af 49,5 stig á sömu áhöldum og Måns Steinberg keppti á). Voru þeir tveir vel fyrir ofan aðra keppendur í stigum talið í fjölþraut og víst er að þeir munu láta að sér kveða þegar þeir hefja keppni í eldri flokk.
Liðakeppni var jöfn og spennandi en niðurstaðan var sú að lokum að Finnland stóð uppi sem sigurvegarar, Svíþjóð í öðru sæti, Noregur í þriðja sæti, Ísland í fjórða sæti og Danmörk í því fimmta.
Í úrslitum á einstökum áhöldum náði Bjarki þeim árangri að keppa til úrslita á öllum áhöldum þar sem hann sigraði glæsilega í æfingum á bogahesti. Auk þess varð hann í öðru sæti á gólfi, hringjum, stökki og tvíslá en ljóst að þreyta var farin að segja til sín í æfingum á svifrá þar sem hann vann ekki til verðlaun að þessu sinni. Brynjar Jochumsson komst í úrslit í æfingum á gólfi þar sem hann hafnaði í 7. sæti. Ólafur Gunnarsson komst inn sem varamaður í úrslit á stökki þar sem hann sýndi svo og sannaði að hann átti fullt erindi þar sem hann hafnaði í fjórða sæti.
Á mótinu kepptu 30 drengir á aldrinum 13 – 16 ára frá Norðurlöndum en mótið fer fram annað hvert ár og hélt Ísland mótið síðast 2002.


Landsbankamót Fylkis

25/10/06
Fimleikadeild Fylkis vill bjóða til byrjendamóts í hópfimleikum sunnudaginn 12. nóvember. Nánari tímasetning verður send út þegar nær dregur. Mótið verður haldið í Fylkishöllinni.
Keppt verður eftir byrjendareglum í hópfimleikum. Hægt er að óska eftir að fá þær sendar á tölvupósti. Í hverju liði eru 6-12 keppendur en hægt er að mæta með fleiri en eitt lið. Undanþága er veitt fyrir fleiri en 12 keppendur og sendist undanþágubeiðni þá inn með þátttökutilkynningu. Þjálfarar mæta með stökklista og dansblöð tilbúin á mótsstað. Hvert lið kemur með einn dómara. Ef lið getur ekki útvegað dómara munu mótshaldarar sjá um það en viðkomandi félag sér um kostnað sem því fylgir, 3000 krónur. Veitt verða verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti . Mótinu verður aldurskipt ef þátttaka verður mikil.
Mótagjald er 1.200.- kr á keppanda og greiðist á mótsstað eða inn á reikning 113-26-10817 kt: 571083-0359.
Þátttökutilkynningar + nöfn dómara berist fyrir fimmtudaginn 26. október á netfang alda.h@simnet.is. Upplýsingar eru í síma 659-1226 (Alda) eftir klukkan 17:00.
Kveðja Fimleikadeild Fylkis


Myndir af HM

24/10/06


Fimleikafélagið Björk
leitar að þjálfurum

Myndir af HM
Fimleikafélagið Björk leitar eftir fólki í eftirfarandi stöður:

• Dansþjálfarar fyrir öll getustig í hópfimleikum. Fimleikakunnátta er ekki nauðsynleg.

• Þjálfari fyrir byrjendur og yngri flokk hópfimleika

• Yfirþjálfari grunnhópa í áhaldafimleikum


Áhugasamir hafi samband við Helgu Svönu, yfirþjálfara hópfimleikadeildar helgasv@fbjork.is, GSM: 868-5344

 

Ný sending af

  fimleikaólum
Vorum að taka á móti nýrri sendingu af ReiSport fimleikaólum.
Nánari upplýsingar og pantanir í síma 555-7800 og í netfangið fimleikar@fimleikar.is

Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku
Hinir raunverulegu sigurvegarar !

20/10/06
JF

Hér á Heimsmeistaramótinu hefur verið frábær stemming hjá mjög fjölmennum hóp Íslendinga sem fylgst hafa með mótinu. Allir eru sammála um að sérstakur "klapp-dans" sem strákarnir okkar sömdu (þ.e.a.s. stuðingshópurinn) hefur slegið í gegn hér á mótinu því hann er svona að orðið "tendið" í salnum. Davíð Ingason og fleiri félagar hans stóðu fyrir skipulagðri ferð á mótið og eiga þeir hrós skilið enda veittu þeir okkar keppendum öflugan stuðning og hvattningu sem við erum ekki alveg von á stórmótum erlendis. Einnig eru fleiri hópar sem tekið hafa sig saman og farið á mótið sem myndar skemmtilega samheldni meðal Íslendinga á mótinu. Er það vonandi að framhald verði á því að við fjölmennum á stórmót og hvetjum okkar keppendur ásamt því að njóta þess að fylgjast með öllu besta fimleikafólki í heiminum.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku

20/10/06
JF

Nýkrýndum heimsmeistara var fagnað gríðarlega eftir að ljóst varð að hún hafði hlotið flest stig og sigrað mótið. Það var greinilega mikil gleði þegar fjölskylda hennar fagnaði henni innilega eins og sjá má á myndinni til vinstri. Það var svo enginn annar en Bruno Grandi forseti Alþjóða Fimleikasambandsins sem var með þeim fyrstu til þess að knúsa nýjan heimsmeistara en hann kemur einnig frá Ítalíu.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku

20/10/06
JF

FERRARI Vanessa frá Ítalíu er heimsmeistari í fjölþraut kvenna í áhaldafimleikum (61,025 stig) og í öðru sæti varð BIEGER Jana frá Bandaríkjunum (60,750 stig) og í þriðja sæti varð IZBASA Sandra Raluca frá Rúmeníu (60,25 stig).
FERRARI Vanessa verður 16 ára 10. nóvember n.k. Hún hefur átt viðburðarríkt ár með Ítalska landsliðinu en auk þess að verða sigra í fjölþraut á heimsmeistaramótinu þá sigraði hún einnig í fjölþraut á Evrópumótinu í Volos á Grikklandi (60,925 stig) og sigraði með Ítalska landsliðinu í liðakeppni. Í úrslitum á einstökum áhöldum á Evrópumótinu hafnaði hún í 2. sæti í gólfæfingum með 15,45 stig og 2. sæti á tvíslá með 15,625 stig.
BIEGER Jana, verður 17 ára 12. nóvember n.k. Hún er dóttir Andreu Bieger og Wolfgang Heiden en móðir hennar keppti þríveigis fyrir Vestur Þýskaland á Ólympíleikum en að hennar sögn er móðir hennar sín fyrirmynd í lífinu. BIEGER er ekki óvön að sigra til verðlauna á stórmótum en hún hlaut 1. sæti á stökki (14,625 stig) á heimsbikarmóti (World Cup/Series) í Cuttbus á þessu ári ásamt því að lenda í 2. sæti á slá (14,875 stig) og 3. sæti á tvíslá (14,775 stig).


FERRARI Vanessa frá Ítalíu í gólfæfingum sem tryggðu henni heimsmeistaratitilinn en hún hlaut 15,5 stig fyrir þær sem var hæsta einkunn sem gefin var í fjölþrautarúrslitum fyrir gólfæfingar.

IZBASA Sandra Raluca varð 16 ára 18. júní sl. og hefur átt gott ár. Hún varð í öðru sæti á Evrópumótinu í Volos á Grikklandi (59,2 stig) næst á eftir FERRARI Vanessu en sigraði í gólfæfingum með 15,55 stig og á slá með 15,675 stig. Þá varð hún í 2. sæti í gólfæfingum með 14,95 stig á heimsbikarmóti (World Cup/Series) í Lyon á þessu ári ásamt því að lenda í 3. sæti á slá með 14,2 stig.

Berglind Pétursdóttir var B3 dómari á stökki í fjölþrautarúrslitum.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku

19/10/06
JF

YANG Wei frá Kína er heimsmeistari í fjölþraut karla í áhaldafimleikum (94,4 stig) og í öðru sæti varð TOMITA Hiroyki frá Japan (93,175 stig) og í þriðja sæti varð HAMBUECHEN Fabian frá Þýskalandi (92,975 stig).

Á blaðamannafundi sagði YANG Wei, nýkrýndur heimsmeistari, að hann væri búinn að bíða í mörg ár eftir þessu móti og hafi hann æft stöðugt með það í huga. Þrátt fyrir sigur á mótin þá sagði hann að hans lífsreynsla í aðdraganda mótsins á æfingum með félögum sínum hafi gefið honum meira heldur en sjálfur sigurinn í dag. Keppnin var mjög hörð og aðeins munaði 1,825 stigum á honum og TOMITA Hiroyuki fyrir æfingar á svifrá (síðasta áhaldið) og 2,25 stigum á honum og HAMBUECHEN Fabian. Á blaðamannfundi sagðist hann hafa fylgst vel með stigunum á mótinu og þar sem hans helstu keppendur gerðu æfingar sínar á undan honum á svifrá og fengið 15,45 (TOMITA) og 15,675 (HAMBUECHEN) vissi hann hvað hann þurfti að gera. Hann sagðist því hafa breytt æfingum sínum á svifrá til þess að auka líkur sínar á sigri. Örugg æfing sem færði honum aðeins 14,85 stig hafi verið meira hann þurfti til þess að skila honum heimsmeistaratitil.

TOMITA Hiroyuki, fráfarandi heimsmeistari í fjölþraut, sagði eftir mótið að hann hafi gert allt sem hann gat til þess að verja titil sinn frá því í fyrra en allt kom fyrir ekki. Keppnin hafi verið hörð og niðurstaða lægi nú fyrir.


HAMBUECHEN Fabian, glaður á blaðamannafundi enda þriðja sætið í fjölþraut á heimsmeistaramóti hans besti árangur til þessa. Vonandi verður áframhald á þessu að hans sögn.

Óhætt er að segja að fyrir áhorfendur í höllinni hér Århus í Danmörku hafi HAMBUECHEN Fabian verið sigurvegari mótsins. Eini keppandinn frá Evrópu í efstu sætunum heillaði áhorfendur með sér með jákvæðri og líflegri framkomu allt frá byrjun mótsins. Sagði hann að allt hafi gengið upp hjá sér á mótinu. Hann hafi aldrei keyrt mót jafn vel og hann gerði í dag. Þetta væri í fyrsta skiptið sem hann kæmist á verðlaunapall á stórmóti sem væri mikill sigur fyrir sig. Þetta er besti dagur lífs míns sagði hinn ungi HAMBUECHEN Fabian frá Þýskalandi og brosti sínu breyðasta.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku

19/10/06
JF

Góðar heimasíður af HM:
Úrslit (online results) http://www.swisstiming.com/sports/gym/Index.htm
FIG: http://www.fig-gymnastics.com/cache/compo/13503-116-10001.html
Opinber heimasíða mótsins: http://www.vm2006gym.dk/


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku

19/10/06
JF


Stúlkurnar frá Ítalíu voru glæsilegar en þær eru núverandi Evrópumeistarar en engu að síður höfnuðu í 9. sæti og komustu ekki í úrslit í liðakeppni.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku
KÍNA SIGRAR Í LIÐAKEPPNI KARLA

19/10/06
JF

Í sjöunda skiptið sigraði Kína í liðakeppni karla á Heimsmeistaramóti (1983, 1994 - 1999, 2003 og 2006). Í hverju liði eru 6 keppendur en aðeins 3 keppa á hverju áhaldi og allir telja til stiga. Er í þessu keppnisformi mjög kostnaðarsamt að gera mistök og geta þau auðveldlega kostað liðið verðlaunasæti. Talið er að úrslit í liðakeppni sé góður mælikvarði á hvar bestu fimleikamennirnir eru ("Cream of the Cream").
Á mótinu byrjaði bæði Kína og Japan á gólfæfingum, Rússland og Rúmenía á bogahesti, Kanada og Þýskaland á hringjum en Sviss og Belarus á stökki.
Bæði Kína (ZOU Kai, 14,05 stig) og Japan (Hiroyki Tomita, 14,575) byrjuðu á mistökum og stigu m.a. útfyrir 12*12 stökksvæðið.
Á bogahesti fékk Rússland 45,35 stig þar sem Nikolay Krukov var hæstur með 15,6 stig en Rúmenía hlutu 44,7 stig þar sem Ilie Daniel Popescu fékk flest stig eða 15,575 stig.
Eftir því sem keppnin leið áfram kom í ljós að keppnin var á milli Kína og Rússa en eftir 5 áhöld voru stiginn þannig að Kína var með 233 stig og Rússland 231,275 stig. En eftir síðustu umferðina lá niðurstaðan fyrir að Kína sigraði í sjöunda sinn með 277,775 stig og Rússland í öðru sæti með 275,4 stig.


CHEN Yibing, FENG Jing, LIANG Fuliang, XIAO Qin, YANG Wei og ZOU Kai fagna hér sigri í liðakeppni á HM 2006.

Helstu einkunnir voru:
Xoao Quin (CHN) á bogahesti: 16,075
Chen Yibing (CHN) í hringjum: 16,5
Marian Dragulescu (ROM) stökk: 16,5
Ivan Ivankov (BLR): 15,875

Björn Magnús Tómasson var B3 dómari á stökki í úrslitum í liðakeppninni.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku
KÍNA SIGRAR Í LIÐAKEPPNI KVENNA

20/10/06
JF

Kína tryggði sér nauman sigur á Heimsmeistaramótinu í liðakeppni kvenna þegar stúlkurnar sigruðu Bandaríkin með aðeins 0,85 stigum. Kína hlaut samtals 182 stig en Bandaríkin 181,35 stig. Í þriðja sæti varð Rússland með 177,325 stig.
Óhætt er að segja að ítrekuð mistök stúlkanna frá Bandaríkjunum hafi kostað þær gullverðlaunin en yfirburðir sveitarinnar voru mjög miklir í undanúrslitum. Strax á fyrsta áhaldi og þeirra fyrsti keppandi (BIEGER Jana) byrjaði með falli á stökki. Því næst færðu þær sig yfir á tvíslá þar sem MEMMEL Chellsie átti einnig fall. Á slá voru einnig mistök þar sem naumlega var komist frá falli af slánni en svo enduðu stúlkurnar frá Bandaríkjunum á því að stíga út fyrir gólfflötinn í gólfæfingum. Kínversku stúlkurnar sem ekki höfðu átt jafn sterkan dag í undanúrslitum gerðu allar sínar æfingar á áfalla. Tryggði það þeim sigur á Heimsmeistaramótinu.


Stúlkurnar frá Kína fagna hér gullverðlaunum sínum. Þær eru: CHENG Fei, HE Ning, LI Ya, PANG Panpan, ZHANG Nan og ZHOU Zhuoru. Sveit Bandaríkjanna ber sig vel með silfurverðaun sín. Þær eru: BIEGER Jana, KELLEY Natasha, LIUKIN Anastasia, MEMMEL Chellsie, PRIESS Ashley og SACRAMONE Alicia.

Berglind Pétursdóttir var línudómari í gólfæfingum í úrslitum í liðakeppni.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku
Hin hliðin á HM

19/10/06
JF

Heimsmeistaramótið í áhaldafimleikum er stórvaxinn íþróttaviðburður. Þátttakendur koma frá 62 þjóðum og er heildarfjöldi íþróttamanna 544. Fjöldi þjálfara, dómara og annarra aðstoðamanna er 744.

Fjölmiðlafulltrúar eru 300 og er mótið sýnt í sjónvarpi í 35 til 40 löndum. Þess má geta að í keppnissalnum eru um 30 upptökuvélar fyrir sjónvarpsáhorfendur. Fram hefur komið að áætlaða var að um 10 milljón áhorfendur hefðu fylgst með úrslitum í liðakeppni karla og það aðeins í Japan en lið þeirra varð í þriðja sæti.

Umfangsmikill viðburður sem þessi fer ekki fram án sjálfboðaliða en fjöldi þeirra á mótinu er um 500 talsins.

Gistinætur á hótelum í Århus vegna viðburðarins eru 20.000 og er talið að máltíðir vegna þátttakenda, þjálfara, dómara og aðstoðarmanna sé um 35.000.


Það er ljóst að sjónvarpsútsendingar til 35 - 40 landa gerist ekki að sjálfum sér. Myndin er af snúrum úr tölvum í keppnissalnum.

Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku

19/10/06
JF


Margrét Hulda Karlsdóttir í gólfæfingum í undanúrslitum á HM en fyrir þær hlaut hún 12,1 stig.

Sif Pálsdóttir í gólfæfingum í undanúrslitum á HM en fyrir þær hlaut hún 12,525 stig.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku

17/10/06
JF

Stekt lið Kína komst næst því að ógna yfirburðum stúlknanna frá Banaríkjunum þegar þær enduðu í öðru sæti í undanúrslitum fyrir liðakeppni. Engu að síður er forystan örugg og næsta víst hverjir munum hampa heimsmeistaratitlinum í liðakeppni stúlkna. Ljóst er að það þarf mikið öryggi og þor í að framkvæma þær æfingar sem sjá má að meðfylgjandi myndum af stúlkum í Kínversku sveitinni.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku

17/10/06
JF

Þegar Íslensku stúlkurnar höfðu lokið keppni á HM fylgdust þær grant með stúlkunum frá USA enda eru þær í algjörum sérflokki á mótinu.

Segja má að stúlkurnar frá Bandaríkjunum séu komnar hingað til Danmerkur til þess að sækja 1. verðlaunin sín en svo geta aðrar þjóðir keppt um hin sætin því yfirburðir þeirra eru mjög miklir í undankeppni fyrir liðakeppnina sem fer fram síðar í vikunni.

Samtals hlutu stúlkurnar frá Bandaríkjunum 243,325 stig á meðan næsta þjóð á eftir þeim er með 234,8 en það er Rússland. Í þriðja sæti er svo Rumenía með 232,6 stig. Átta efstu þjóðirnar í undanúrslitum komast áfram í útslit í liðakeppni.

Frá vinstri: Ásdís Pétursdóttir (þjálfari), Hera Jóhannesdóttir, Sif Pálsdóttir, Margrét Hulda Karlsdóttir og Inga Rós Gunnarsdóttir fylgjast með Aliciu Sacramone í gólfæfingum en hún hlaut 15,55 stig fyrir æfingar sínar.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku

17/10/06
JF

Íslenska kvennalandsliðið í áhaldafimleikum hefur nú lokið keppni á HM en flest stig hlaut Sif Pálsdóttir (53,0) en hún fékk sjálf flest stig á stökki eða 13,775. Sif gerði allar æfingar sínar af miklu öryggi. Næst á eftir henni kom Margrét Hulda Karlsdóttir (48,9 stig) en hún hlaut flest stig fyrir æfingar á slá 13,275 en nýlega varð hún í 2. sæti á Norður Evrópumótinu í æfingum á Slá. Hera Jóhannesdóttir (47,90 stig) kom sterk til leiks en hún tók lítið þátt á mótum í fyrra vegna meiðsla en eftir góðan undirbúning í sumar þá skilaði hún æfingum sínum vel og sín flest stig halut hún á stökki eða 12,625. Inga Rós Gunnarsdóttir keppnu á tveimur áhöldum, tvíslá og slá, og hlaut hún samtals 23,1 stig en hún fótbrotnaði á Evrópumótinu nú í vor. Af þeirri ástæðu keppti hún ekki í æfingum á gólfi og stökki. Stúlkurnar keppnu því ekki á öllum áhöldum í liðakeppninni en hlutu samtals 172,9 stig og er einkunn þeirra því ekki að fullu samanburðarhæf við niðurstöður í liðakeppninni. En til gamans má nefna að ef einkunnir Ingu Rósar frá Íslandsmótinu sl. á gólfi og stökki (24,367 stig) yrði bætt við niðurstöðu stúlknanna fengju þær samtals 197,267 og færu þar með fram úr bæði Danmörku (185,9 stig) og Svíþjóð (196,775). Finnland á eftir að ljúka keppni.

Keppni einstaklinga er ekki enn lokið. Fréttir um einstök sæti keppenda í fjölmiðlum eru því rangar.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku
13. – 21. október.

15/10/06
JF

Piltarnir hafa lokið keppni á HM með ágætum árangri. Viktor Kristmannsson varð efstur Íslensku keppendanna með 82,2 stig en hann kláraði allar sýnar æfingar með miklu öryggi. Greinilegt að hann er að komast í gott form. Miðað við núverandi stöðu í keppninni þá eru aðeins tveir keppendur frá Norðurlöndum með hærri stig en Viktor. Rúnar Alexandersson hlaut 80,075 stig og átti nokkrar ágætar æfingar s.s. í hringjum þar sem hann er með hæstu einkunn keppenda frá Norðurlöndunum, 14,350 stig, eins og staða keppninnar er núna. Róbert Kristmannsson og Bjarki Ásgeirsson tóku einnig þátt á öllum áhöldum. Róbert hlaut 76,425 stig og Bjarki 75,725 stig. Ingvar Jochumsson og Anton Heiðar Þórólfsson tóku báðir þátt í þremur greinum, þar sem Ingvar tók þátt í hringjum, stökki og tvíslá og Anton á gólfi, bogahesti og svifrá. Gerður þeir einnig sínar æfingar með miklum ágætum.

Undanúrslitu í liðakeppni og fjölþraut pilta er lokið. Tólf efstu liðin tryggðu sér þátttökurétt á HM í Stutgard að ári liðnu en þá verður keppt um þátttökurétt á OL í Peking 2008. Efsu 8 þjóðirnar keppa til úrslita í liðakeppni síðar í vikunni. Röð efstu liða var sem hér segir: China (372,25), Japan (367,75), Russia (365,4), Romania (364,325), Canada (361,975), Germany (361,075), Switzerland (359,2), Belarus (359,175). Næstu þjóðir þar á eftir, sem tryggt hafa sér þátttökurétt á HM á næsta ári: Spain (358,528), France (358,475) ...

Björn Magnús Tómasson var B1 dómari á svifrá í undanúrslitum.


Leikdagur í Gerplu
- dúndur fjör -

12/10/06
JF

Leikdagur í Gerplu verður haldinn í Gerplu, íþróttahúsinu í Versölum, sunnudaginn 15. október frá kl: 13 - 15. Allir eru velkomnir og er aðgangseyrir aðeins 800 kr. á barn.
Ýmsar þrautir verða í gangi, ásamt trampólíni og gryfju svo eitthvað sé nefnt.
Ágóði þessa dags rennur til meistarahóps Gerplu í hópfimleikum sem er á leið á Evrópumót þann 1-5 nóvember nk. Vonumst til að sjá sem flesta.


Hópfimleikamót
- allir að mæta -

12/10/06
JF

Föstudaginn 20. október mun fara fram hópfimleikamót þar sem fulltrúar Íslands á Evrópumótinu í Tékklandi, sem verað Grótta og Gerpla, munu keppa á móti hvort öðru og við keppendur frá Selfoss og Fylki. Mótið hefst kl. 19:00 í íþróttahúsi Gróttu á Seltjarnarnesi. Allir eru hvattir til þess að mæta og fylgjast með þessum sterku liðum leika listir sínar í fyrsta skiptið í vetur og í síðasta skiptið áður en Grótta og Gerpla taka þátt á Evrópumótinu um n.k. mánaðarmót.


Viðurkenningar í Gerplu

12/10/06
JF


Fremsta röð frá vinstri: Davíð Kristján Ólafsson, Brynjar Wilhelm Jochumsson, Sigrún Dís Tryggvadóttir, Fríða Rún Einarsdóttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Anna Líney Ívarsdóttir, Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Thelma Rut Hermannsdóttir.
Miðröð frá vinstri: Ólafur Garðar Gunnarsson, Viktor Orri Anderssen, Harpa Dögg Steindórsdóttir, Anna Guðný Sigurðardóttir, Karen Sif Viktorsdóttir, Sara Glóð Jónsdóttir.
Aftasta röð: Hlín Bjarnadóttir, Yinian Ye, Svetlana Makaritseva, Nadezda Tarvida og Irina Antonova. Á myndina vantar Gunnhildi Guðjónsdóttur, Guðmund Þór Brynjólfsson, Vladimir Antonov og Mikolay Vovk.

Á undanförnum vikum hafa iðkendur úr Íþróttafélaginu Gerplu staðið sig mjög vel á mótum erlendis. Af þeirri ástæðu var iðkendum og þjálfurum þeirra ásamt dómurum á vegum félagsins veittar viðurkenningar fyrir góðan árangur og vel unnin störf fyrir félagið með þátttöku á Norður Evrópumót í áhaldafimleikum og alþjóðlegu móti sem fram fór í Svíþjóð (Malarcup).


Þátttakendur Gerplu á Norður Evrópumótinu sem fram fór í
Sandnes í Noregi.
Fremri röð frá vinstri: Thelma Rut Hermannsdóttir, Harpa Dögg Steindórsdóttir.
Miðröð frá vinstri: Fríða Rún Einarsdóttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Margrét Hulda Karlsdóttir, Mikolay Vovk og Ingvar Jochumsson.
Aftari röð frá vinstri: Jón Finnbogason formaður Gerplu, Berglind Pétursdóttir, Svetlana Makaritseva, Róbert Kristmannsson, Vladimir Antonov, Viktor Kristmannsson og Guðmundur Þór Brynjólfsson.

Eins og nánar má lesa um á síðunni þá var árangur á þessum mótum afar góður og var full ástæða til að staldra við og veita viðurkenningar. Iðkendur félagsins á Malarcup fengu viðurkenningarskjöld með þeirra nafni áletruðu og þjálfara og dómarar fengur rós. Allir þátttakendur, þjálfarar og dómarar félagsins á Norður Evrópumótinu fengu rós ásamt því að iðkendum var veitt viðurkenning fyrir að fullskipa landslið Íslands í karla og kvennaflokki á mótinu.


Heimsmeistaramót í Århus í Danmörku
13. – 21. október.

11/10/06
AM / JF

Um næstu helgi hefst Heimsmeistaramót í áhaldafimleikum sem fram fer í Århus í Danmörku. Að þessu sinni taka 10 fimleikamenn og konur þátt í mótinu. Er það í annað sinn sem svo stór hópur tekur þátt í Heimsmeistaramóti í fimleikum en fyrir utan Ólympíuleika er óhætt að þátttaka á Heimsmeistaramóti sé mesta afrek hvers fimleikamanns. Næsta Heimsmeistaramót verður 2007 og verður það úrtökumót fyrir Ólympíuleikana í Peking 2008.
Spennandi verður að sjá hvernig okkar fulltrúm vegnar en þau hafa öll lagt gríðarlega miklar æfingar á sig til þess að taka þátt í mótinu.
Skemmst er að minnast einstaks afreks Sifjar Pálsdóttur frá því á Norðurlandameistaramótinu í vor þar sem hún stóð uppi sem sigurvegari mótsins.
Nánar hér.


Fremri röð frá vinstri: Margrét Hulda Karlsdóttir, Sif Pálsdóttir, Hera Jóhannesdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Rúna Alexandersson, Bjaki Ásgeirsson, Ingvar Jochumsson, Viktor Kristmannsson, Róbert Kristmannsson og Anton Heiðar Þrólfsson.


Góður árangur á alþjóðlegu móti

Liðakeppni:
Stúlkurnar úr Gerplu 1. sæti
Piltarnir úr Ármann 2. sæti
Piltarnir úr Gerplu 3. sæti

10/10/06



Fjölþraut:
Kristjana Sæunn 1. sæti
Fríða Rún 2. sæti
Bjarki 2. sæti
Úrslit á áhöldum:
Bjarki 1 brons ;
Fríða 1 gull og 2 silfur;
Sæunn 1 gull 1 silfur og 1 brons;
Thelma 1 silfur

 

 

JF

Glæsilegur árangur hjá iðkendum Íþróttafélagsins Gerplu á alþjóðlegu móti sem fram fór í Svíþjóð um helgina þar sem Kristjana Sæunn Ólafsdóttir sigraði sinn aldursflokk þriðja árið í röð. Auk þess að ná góðum árangri í fjölþraut þá sigraði Kristjana Sæunn einnig í úrslitum á æfingum á stökki, 2. sæti í gólfæfingum og 3. sæti á slá. Fríða Rún Einarsdóttir sigraði í úrslitum á gólfæfingum og varð í 2. sæti á slá og stökki. Thelma Rut Hermannsdóttir varð í 2. sæti á tvíslá. Það var ekki bara árangur einstakra keppenda sem vakti athygli því í liðakeppni þá gerðu stúlkurnar Harpa Dögg Steindórsdóttir, Thelma Rut Hermannsdóttir, Fríða Rún Einarsdóttir og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir sér lítið fyrir og sigruðu með 150,05 stig (úrslit hér).
Helstu úrslit hjá piltunum urðu þau að lið Ármanns 1 varð í 2. sæti með 212,9 stig og lið Gerplu 1 varð í 3. sæti með 208,5 stig. Í fjölþraut varð Bjarki Ásgeirsson í 2. sæti og á einstökum áhöldum varð Bjarki í 3. sæti í æfngum í hringjum. Gaman var fyrir Davíð Kristján Ólafsson að komast í úrslit á áhöldum á sínu fyrsta móti erlendis.

Liðakeppni stúlkna, úrslit hér:
Gerpla 1 varð í 1. sæti með 150,05 stig.
Gerpla 2 varð í 6. sæti með 131,8 stig.
Gerpla 3 varð í 8. sæti með 128,9 stig.

Liðakeppni karla, úrslit hér:
Ármann 1 varð í 2. sæti með 212,9 stig og lið Gerpla 1 varð í 3. sæti 208,5 stig.
Ármann 2 varð í 7. sæti með 194,75 stig.
(Tvö efstu liðin kepptu ekki í liðakeppni (landslið))

Einstaklingskeppni:

Eldri flokkur (8 keppendur), úrslit hér
Gunnhildur Guðjónsdóttir 5. sæti með 35,3 stig.
Mið-flokkur (37 keppendur), úrslit hér.
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir 1. sæti með 51,65 stig.
Fríða Rún Einarsdóttir 2. sæti með 49,7 stig.
Thelma Rut Hermannsdóttir 4. sæti með 48,25 stig.
Anna Líney Ívarsdóttir 9. sæti með 46,8 stig.
Harpa Dögg Steindórsdóttir 10. sæti með 45,85 stig.
Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir 18. sæti með 42,8 stig.
Sigrún Dís Trygvvadóttir 20. sæti með 42,2 stig.
Anna Guðný Sigurðardóttir 22. sæti með 41,65 stig.
Karen Sif Viktorsdóttir 23. sæti með 41,1 stig.
Unglingaflokki (20 keppendur)
, úrslit hér.
Sara Glóð Jónsdóttir 5. sæti með 44,4 stig.

Eldri flokkur (14 keppendur), úrslit hér.
Bjarki Ásgeirsson 2. sæti með 78,2 stig.
Ólafur Garðar Gunnarsson 5. sæti með 66,2 stig.
Unglingaflokkur (26 keppendur), úrslit hér
Brynjar Wilhelm Jochumsson 6. sæti með 72,5 stig.
Sindri Steinn Davíðsson 9. sæti með 66,85 stig.
Tómas Aron Guðmundsson 10. sæti með 66,3 stig.
Jón Sigurður Gunnarsson 12. sæti með 66,1 stig.
Atli Jasonarson 14. sæti með 65,15 stig.
Hávar Helgi Helgason 15. sæti með 64,65 stig.
Vikor Orri Andersen 26. sæti með 40,7 stig.
Drengir (24 keppendur)
, úrslit hér.
Davíð Kristján Ólafsson 7-8. sæti með 69,4 stig.
Víðir Helgi Helgason 13. sæti með 64,95 stig.

Úrslit stúlkna:
Stökk, úrslit hér:
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir í 1. sæti með 13,8 stig.
Fríða Rún Einarsdóttir í 2. sæti með 13,575 stig.
Slá, úrslit hér:
Fríða Rún Einarsdóttir í 2. sæti með 13,35 stig.
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir í 3. sæti með 13,050 stig.
Tvíslá, úrslit hér:
Thelma Rut Hermannsdóttir í 2. sæti með 11,30 stig.
Anna Líney Ívarsdóttir í 4. sæti með 10,450 stig. Sjá úrslit hér.
Gólfæfingar, úrslit hér:
Fríða Rún Einarsdóttir í 1. sæti með 13,5 stig.
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir í 2. sæti með 13,20 stig.

Úrslit karla:
Gólfæfingar, úrslit hér:
Bjarki Ásgeirsson í 6. sæti með 11,9 stig.
Bogahestur, úrslit hér:
Bjarki Ásgeirsson í 4. sæti með 11,45 stig.
Hringir, úrslit hér:
Bjarki Ásgeirsson í 3. sæti með 12,7 stig.
Stökk, úrslit hér:
Bjarki Ásgeirsson í 5. sæti með 13,175 stig. Davíð Kristján Ólafsson í 6. sæti með 11,875 stig.

Hverjir tóku þátt:
Lið Gerplu 1 var skipað þeim: Hörpu Dögg Steindórsdóttur, Thelmu Rut Hermannsdóttur, Fríðu Rún Einarsdóttur og Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur. Lið Gerplu 2 var skipað þeim: Sigrúnu Dís Tryggvadóttur, Dóru Sigurbjörgu Guðmundsdóttur og Önnu Líney Ívarsdóttur. Lið Gerplu 3 var skipað þeim Söru Glóð Jónsdóttur, Önnu Guðnýju Sigurðardóttur, Gunnhildi Guðjónsdóttur og Karen Sif Viktorsdóttur. Sjá úrslit í liðakeppni hér.
Lið Ármanns 1 var skipað þeim: Bjarka Ásgeirssyni, Tómasi Aron Guðmundssyni, Sindra Stein Davíðssyni og Jóni Sigurði Gunnarssyni. Lið Gerplu 1 var skipað þeim: Viktori Orra Anderssen, Davíð Krisjáni Ólafssyni, Brynjari Wilhelm Jochumssyni og Ólafi Garðari Gunnarssyni. Lið 2 Ármanns var skipað þeim: Atla Jasonarsyni, Víði Hlega Helgasyni og Hávar Helga Helgasyni.
Þjálfara og dómarar í ferðinni voru þau Björn Magnús Tómasson, Guðmundur Þór Brynjólfsson, Hlín Bjarnadóttir, Irina Antonova, Vladimir Antonov, Nadezda Tarvida, Mikolay Vovk og Yinian Ye.

http://www.malarcupen.net/

Fréttin er enn í vinnslu og enn vantar staðfestingu á einstökum úrslitum.


Norður Evrópumót í áhaldafimleikum:
Glæsileg frammistaða stúlknanna í úrslitum
Kristjana Sæunn Norður Evrópumeistari á stökki og 2. sæti á gólfi
Margrét Hulda 2. sæti á slá
Fríða Rún 3. sæti á gólfi

1/10/06
JF

Glæsileg frammistaða stúlknanna á Norður Evrópumóti í Sandnes í Noregi hefur skilað þeim fjórum sætum á verðlaunapalli í úrslitum á þessu sterka fimleikamóti. Hæst ber öruggur sigur Kristjönu Sæunnar í stökki þar sem hún tryggði sér Norður Evrópumeistaratitil með 14,0 stig fyrir sitt fyrra stökk og 13,7 stig fyrir seinna stökkið. Kristjana Sæunn lét einnig að sér kveða í gólfæfingum þar sem hún hafnaði í 2. sæti með 13,6 stig. Margrét Hulda Karlsdóttir sýndi það og sannaði að æfingar hennar á slá eru stórglæsilegar þegar hún hafnaði í 2. sæti í úrslitum á slá. Fríða Rún Einarsdóttir hafnaði í 3. sæti í gólfæfingum með 13,2 stig en til gamans smá geta þess að hún hefur aukið erfiðleikagildi æfinga sinna á gólfi með t.d. nýrri stökkseríu með tvöfölldu heljarstökki. Einnig keppti Thelma Rut Hermannsdóttir í úrslitum á tvíslá og hlaut hún 10,65 stig í 7. sætið.
Viktor Kristmannsson kepti til úrslita á tvíslá og hlaut 13,5 stig í 4. sætið.
Hér má sjá nánar um úrslit á mótinu.
Í fjölþraut og liðakeppni voru helstu úrslit þessi.

Liðakeppni kvenna:
1.Finland 153.70
2.Svíþjóð 153.40
3.Noregur 152,30
4. Skotland 150,90
5. Ísland 150,05

Liðakeppni karla:
1.Finnland
2.Danmørk
3.Svíþjóð

Fjölþraut kvenna
1. Veronica Wagner SWE 53,60
2. Charlotte Buer NOR 53,25
3. Annika Urvikko FIN 52,35

6. K. Sæunn 51,05
8. Frida Run 50,20
14.Thelma Rut 45,10
31. Harpa 24,30 (2 áhöld)
33. Margret Hulda 23,50 (2 áhöld)
Fjölþraut karla
1. Sami Aalto FIN 83,90
2. Jani Tanskanen FIN 82,35
3. Helge Vammen DEN 81,50

11. Viktor Kristmannsson 75,40
12. Róbert Kristmannsson 73,50
19. Ingvar Jochumsson 67,80
23. Rúnar Alexanderson 59,35 (5 áhöld, -stökk)

Á Norður Evrópumótinu í áhaldafimleikum voru eftirtaldir fulltrúar Íslands. Landslið kvenna var skipað þeim Fríðu Rún Einarsdóttur, Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur, Hörpu Dögg Steindórsdóttur, Margréti Huldu Karlsdóttur og Thelmu Rut Hermannsdóttur. Landslið karla var skipað þeim Ingvari Jochumssyni, Róberti Kristmannssyni, Rúnari Alexanderssyni, Viktori Kristmannssyni, öllum úr Íþróttafélaginu Gerplu í Kópavogi. Þjálfara hópsins voru þau Svetlana Makaritseva, Vladimir Antonov og Mikolay Vovk. Dómarar voru þau Berglind Pétursdóttir, Dóra Óskarsdóttir, Björn M. Tómasson og Guðmundur Þór Brynjólfsson.

Norður Evrópumótið er nokkuð umfangsmikill íþróttaviðburður með þátttakendum frá 11 löndum og samtals um 190 þátttakendum, þjálfurum og dómurum frá eftirfarandi þjóðum: Finland, Svíþjóð, Danmörk, Noregur, Skotland, Írland, Norður Írland, Færeyjar, Isle og Man, Íslandi og Wales. Norður Evrópumótið fer fram árlega en eins og fram hefur komið þá fór mótið að þessu sinni fram í Noregi en síðast fór það þar fram árið 1996.


Special Olympics

1/10/06
AM

Íþróttasamband Fatlaðra sendir 25 keppendur á Evrópuleika Special Olympics sem fram fara í Róm 30. september til 6. október 2006. Ísland sendir keppendur í boccia, frjálsum íþróttum, sundi, keilu og fimleikum. Leikarnir eru fyrir aldurshópinn 12 til 21 árs n.k. ungmennaleikar og þetta er í fyrsta skipti sem slíkir leikar eru haldnir.
Keppendur í fimleikum koma frá Gerplu og þau eru:
Elva Björk Gunnarsd
Auður Lilja Ámundad
Heiðrún Gunnarsd
Kristín Hrefna Halldórs
Helgi Magnússon
Aðalþjálfari þeirra er Ásta Ísberg og aðstoðarþjálfari er Erlendur Kristjánsson.
Það er frábært fyrir okkar fimleikafólk að fá tækifæri til þátttöku í þessu móti og óskar FSÍ þeim öllum góðs gengis og vonar að fleiri muni fá slík tækifæri í framtíðinni.





Allar myndir © www.fimleikar.is
Heimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.

Fimleikar ehf.