Innihald móta í áhaldafimleikum kvenna
- TKV -

30 /10/05

Tækninefnd kvenna í áhaldafimleikum hefur sent frá sér tilkynningu um innihald móta í vetur. Þar kemur m.a. fram að keppt verður í óbreyttum stiga út keppnistímabilið en unnið verður að nýjum fimleikastiga eftir áramót. Þá er þess jafnframt getið að um áramótin mun FIG gefa út nýjar reglur og getur innihald móta þess vegna breyst eftir áramót (móta og keppnisrelgur munu verða uppfærðar). Sjá meðfylgjandi skjöl.


Aðventumót í hópfimleikum laugardaginn 3. des 2005
- Byrjendareglur -

 


26/10/05

Fimleikadeild Selfoss ætlar að halda byrjendamót í hópfimleikum laugardaginn 3.desember. Áætlað er að upphitun hefjist klukkan 10:00 um morguninn og keppni hefjist klukkan 11:00 Áætlað er að mótslok verði um klukkan 13:00. Keppt verður eftir byrjendareglum með þeirri breytingu að liðin mega gera eina umferð á hesti og eina á trampólíni. Yfirslag gildir þá jafnmikið og strekkt heljarstökk á trampólíni. Mótið verður aldursskipt ef næg þátttaka verður. Skráning nafnalista þarf að berast fyrir 23.nóvember á netfangið olgu@simnet.is. Stökklista skal koma með á mótsstað í 3 eintökum. Ef liðum vantar eyðublöð og/eða reglur er hægt að senda mér póst og ég sendi ykkur gögnin um hæl. Mótagjald eru krónur 10.000 á lið og skal þátttökulið tilkynna einn dómara. Keppt er á fiberglass stökkgólfi. Vonumst til að sjá sem flesta í jólaskapi.



Formannaráðsfundur FSÍ
- 29/10/2005 kl. 11:00 -

 


26/10/05

Formannaráðsfundur FSÍ haldinn í fundarsal ÍSÍ, laugardaginn 29. október 2005 kl. 11.00
Dagskrá:
Kl. 11.00 Fundur settur
“ 11.05 - 11.35 Gert grein fyrir störfum sambandsins:
“ 11.35 - 11.50 Dómaralaun
“ 11.50 - 12.30 Hvað er á döfinni hjá félögunum
“ 12.30 – 13.00 Hádegishressing
“ 13.00 - 13.45 Frá Tækninefndum
“ 13.45 - 14.00 Þing FSÍ
Tilnefnt í uppstillingarnefnd
“ 14.00 – 14.30 Önnur mál
“ 14.30 Fundarlok


Haustmót í áhaldafimleikum
- 5. og 6. nóvember 2005 -

23/10/05

Haustmót í áhaldafimleikum verður haldið helgina 5. og 6. nóvember n.k. en mótið er fyrsta mót keppnistímabilsins. Á undanförnum árum hefur mótið í mjög skemmtilegt. Í fyrra var keppt í eftirfarandi keppnisgreinum: 1. þrep kvenna, 1. þrep karlar, 5. þrep kvenna, Frjálsar karlar 16 ára og yngri, Frjálsar karlar 17 ára og eldri, Frjálsar kvenna eldri, Frjálsar kvenna yngri, 2. - 4. þrep karlar og 3. og 4. þrep kvenna

Mótið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni Björk og verður Björk framkvæmdaraðili mótsins.

Nánari upplýsingar um tímasetningar mótsins verað birtar síðar.


Haustmót í hópfimleikum
- 19. nóvember 2005 -

21/10/05

Haustmót í hópfimleikum verður haldið í Íþróttahúsi Seltjarnarness í umsjón Gróttu, laugardaginn 19. nóvember n.k.. Þátttökutilkynningar þurfa að berast skrifstofu FSÍ í síðasta lagi 5. nóvember. Mótagjöld kr. 14.000.- á lið eiga að greiðast um leið og tilkynningin er send inn á reikning nr.: 0313 26 003700 kt.: 540169 2849. Munið að tilgreina nöfn dómara á þátttökutilkynningunni.


Þjálfaranámskeið
- áminning -

 


21/10/05

En eru nokkur sæti laus á 1A og 1C námskeiðin sem haldin verða í Reykjavík 29. og 30. október n.k. Hægt er að senda skráningu til FSÍ til mánudags 24. október.
Email: fsi@isisport.is


Góður árangur á alþjóðlegu móti
- Kristjana Sæunn og Róbert sigra í fjölþraut -
- Piltarnir sigra í liðakeppni -
- Sæunn 2 gull og Viktor 2 gull í úrslitum á áhöldum -


16/10/05

Glæsilegur árangur hjá iðkendum Íþróttafélagsins Gerplu á alþjóðlegu móti sem fram fór í Svíþjóð um helgina. Sigraði Kristjana Sæunn Ólafsdóttir sinn aldursflokk annað árið í röð. Róbert Kristmannsson sigraði einnig sinn aldursflokk. Auk þess að ná góðum árangri í fjölþraut þá sigraði Kristjana Sæunn einnig í úrslitum á æfingum á slá og gólfi. Viktor Kristmannsson blandaði sér í toppbaráttuna í úrslitum á einstökum áhöldum með því að sigra í æfingar gólfi og tvíslá og tryggja sér 2. sætið á bogahesti og 3. sætið á svifrá. Það var ekki bara árangur einstakra keppenda sem vakti athygli því í liðakeppni þá gerðu piltarnir Ólafur Garðar Gunnarsson, Ingvar Jochumsson, Róbert Kristmannsson og Viktor Kristmannsson sér lítið fyrir og sigruðu með 130,5 stig (úrslit hér). Stúlkurnar, Ingar Rós Gunnarsdóttir, Harpa Dögg Steindórsdóttir, Margrét Hulda Karlsdóttir og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir voru einnig stutt frá sigri með 90,7 stig sem færði þeim 2. sætið næst á eftir STG Team sem sigraði með 95,45 stigum.
Efstir í hverjum flokk:
Junior

Róbert Kristmannsson sigraði í mið-flokki (junior) með 44,25 stig (úrslit hér)
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir sigraði í mið-flokk (junior) með 31,75 stig (úrslit hér) og er þetta annað árið í röð sem hún sigrar sinn flokk á þessu móti (sjá hér eldri frétt).
Senior
Viktor Kristmannsson var í 4. sæti í eldri flokk (senior) með 46,65 stig (úrslit hér).
Inga Rós Gunnarsdóttir varð í 4. sæti í eldri flokk (senior) með 29,0 stig (úrslit hér)
Youth
Brynjar Wilhelm Jochumson varð í 4. sæti í unglingaflokki (youth) með 35,75 stig (úrslit hér).
Thelma Rut Hermannsdóttir varð í 5. sæti í unglingaflokki (youth) með 28,225 stig (úrslit hér)
Úrslit á áhöldum.
Af verðlaunum á einstökum áhöldum þá voru þau sem hér segir: Viktor 1. á gólfi (jafn og Björn Slanvall) (úrslit hér), 2. á bogahesti (úrslit hér), 1. á tvíslá (úrslit hér) og 3. á svifrá (jafn og Mans Stenberg) (úrslit hér). Kristjana Sæunn 3. sæti á stökki (úrslit hér), 1. sæti á slá (úrslit hér) og 1. sæti í gólfæfingum og Margrét Hulda Karlsdóttir 3. sæti í gólfæfingum (jöfn Idu Jonsson SWE) (úrslit hér).


Vel heppnaðar æfingabúðir hjá Gróttu
- opinn fundur um afreksstefnu í Hollandi -
9/10/05

Í ágúst tók Fimleikadeild Gróttu á móti vinafélagi sínu í Hollandi og efnt var til sameiginlegra æfingabúða. Geng þær mjög vel og er greinilegt að samvinna sem þessi nýtist fimleikafólki til aukins árangurs. Ýmislegt hefur verið gert fyrir utan fimleikasalina, má nefna ferð í Bláa Lónið við mikla hrifningu belgísku gestanna og ferðalag um síðustu helgi þar sem Gnúpverjahreppur var heimsóttur. Hópurinn lagði af stað í rútu á laugardagsmorgni og var byrjað á að fara á hestbak í Steinsholti. Veðrið var eins og best verður á kosið og nestið snætt úti á túni á sveitabænum. Farið í sund í Þjósárdal og grillað og gist í skála sem heitir Hólaskógur.


Stúlkurnar í Gróttu tilbúnar á hestbak. En farið var í sameiginlega ferð með gestum þeirra frá Hollandi.

Daginn eftir var ekið til baka um Flúðir, Gullfoss og Geysi þar sem Strokkur gerði mikla lukku, Laugarvatn, Lyngdalsheiði og Þingvellir í rigningu og súld en það kom ekki að sök. Einnig má nefna að á mánudagskvöldið 15.ágúst hélt Gerrit opið námskeið í húsakynnum ÍSÍ, þar sem öllu áhugafólki um fimleika fékk tækifæri til þess að hlýða á hans aðferðarfæði. Hann fór meðal annars yfir þá aðferðarfræði sem beitt er við uppbyggingu afreksfólks í Belgíu sem og stuðning foreldra og aðstandandana afreksfólks. Hópurinn fór svo aftur til Hollands snemma á föstudagsmorgun þann 19. ágúst. Verkefnið var spennandi og skemmtileg tilbreyting að "flytja þekkinguna inn" en hingað til hafa fimleikafélög farið í æfingabúðir erlendis. Nú þegar aðstaðan á Íslandi er orðin jafn góð og raun ber vitni þá kann að vera að heimsóknir sem þessar verði tíðari. Margir lögðu hönd á plóginn og aðeins þess vegna varð þetta verkefni að veruleika og tókst sem skildi.



Fimleikadeild Aftureldingar heldur mót
í almenna fimleikastiganum
9/10/05

Fimleikadeild Aftureldingar – Mosfellsbæ mun halda mót í Almenna Fimleikastiganum sunnudaginn 13. nóvember. Mótið er fyrir iðkendur sem ekki hafa keppt í þrepinu á íslandsmóti. Keppt verður í 2 þrepi, 1. þrepi og 1. þrepi B. Drög að dagskrá má sjá hér fyrir neðan.
Mótið er hugsað sem æfing fyrir íslandsmótið í vor og verða engin verðlaun veitt heldur fá allir keppendur viðurkenningu. Þjálfarar geta þó fengið sendar einkunnir keppenda á tölvupósti eftir mótið ef þeir óska þess.
Eftir mótið verður pizzaveisla fyrir keppendur og þjálfara og væri gaman ef einhver félög kæmu með skemmtiatriði. A.T.H boðið verður uppá gistingu laugardagsnóttina fyrir þá sem koma utan af landi. Mótagjald er 1000 krónur á mann og er pizzaveislan innifalin í því. Gisting er 500 krónur á mann. Hvert félag þarf að koma með einn dómara. Þátttökutilkynningar berist með e-maili á annasporty@hotmail.com eða í síma: 695-2506 í síðasta lagi 30. október. (tilgreina þarf c.a. fjölda keppenda í hverju þrepi, nöfn þjálfara og dómara).
Nafnalistar og fæðingarár keppenda berist í síðasta lagi 6. nóvember. Ath! Danstónlist verður að vera á geisladisk. (diskurinn verður að vera sem minnst rispaður því græjurnar hafna rispuðum diskum). (Ekki er nauðsynlegt að keppendur keppi á öllum áhöldum). Drög að dagskrá: 10:00 mæting; 10:10 almenn upphitun;
10:30 áhaldaupphitun; 11:00 keppni hefst 15:00; áætluð mótslok 15:20 og pizzaveisla 16:30/17 haldið heim.
Fyrir hönd Fimleikadeildar Aftureldingar,
Anna Greta Ólafsdóttir.
Sími: 695-2506
Netfang: annasporty@hotmail.com



Allar myndir © www.fimleikar.is
Heimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.

Fimleikar ehf.