|
|
|
Áhaldafimleikar:
|
Bjarki í
3. sæti fjölþrautarúrslitum og
Norðurlandameistari á bogahesti |
|
|
| Bjarki
Ásgeirsson, úr Ármanni, hafnaði í
3. sæti í fjölþrautarúrslitum
á Norðurlandamóti drengja sem fram fór
í Helsinki í Finnlandi um helgina en hann fékk
44,9 stig. Í úrslitum á einstökum
áhöldum varð hann Norðurlandameistari á
boghesti með 7.35 stig og í 3. sæti á
tvíslá með 7,35 stig og í 5. sæti
í hringjum með 6,95 stig. Bjarki hefur á undanförnum
tveimur árum sýnt miklar framfarir og þrátt
fyrir aðeins 14 ára aldur þá gefur hann
mun eldri keppendum ekkert eftir.
Í úrslitum á einstökum áhöldum
kepptu einnig þeir Þorsteinn Óli Eggertsson,
Ármanni sem hafnaði í 6. sæti á
bogahesti meða 6,5 stig og Ingvar Jochumsson í Gerplu
sem hafnaði í 7. sæti á tvíslá
með 6,2. |
Bjarki Ásgeirsson sigraði í
æfingum á bogahesti á Norðurlandamóti
drengja sem fram fór um helgina og hafnaði jafnframt
í 3. sæti í fjölþraut. Er þetta
mjög góður árangur hjá þessum
unga og efnilega fimleikamanni. |
| Íslenska
liðið varð í 5. og neðsta sæti
með 152,15 stig. Finnska liðið sigraði með
180,65 stig, Sænska liðið varð í öðru
sæti, það Norska í þriðja sæti
og Danska liðið var í fjórða sæti
með 159,6 stig. |
Hópfimleikar:
|
Stjarnan í
4. sæti úrslitum á
Evrópumóti í hópfimleikum |
|
|
| Hópur
Stjörnunnar í Garðabæ hafnaði í
4. sæti á Evrópumótinu í hópfimleikum
sem fór fram í Dornbirn í Austurríki.
Er þetta glæsilegur árangur og sá
besti sem hópur frá Íslandi hefur náð
á Evrópumóti í hópfimleikum.
Fengu stúlkurnar 23.40 stig en aðeins munaði
0,4 á 3. og 4. sæti því Gastrup frá
Danmörku hafnaði í 3. sæti með 24
stig. Team Asker frá Noregi sigradi glæsilega með
25.95 og í 2. sæti varð Stockholm Top Gymnastarna
með 25.45. Nánri upplýsingar á www.oeft.at
og www.teamgym04.com |
4. sætið á Evrópumótinu
er hingað til besti árangur Íslendinga hóp
í hópfimleikum |
| 
Þjálfararnir Kim Fischer og Dorte
hafa unnið frábærlega með stúlkunum
í Stjörnunni. Þau hafa áralanga reynslu
af þjálfun í hópfimleikum og miðað
við árangur þeirra má sjá að
þau eru topp þjálfarar.
|
Hópur
Stjörnunnar hefur verið ósigrandi á öllum
hópfimleikamótum hérlendis á annað
ár og skemmst er að minnast þess að þær
höfnuði í 2. sæti á Danska meistaramótinu
í apríl en hópurinn er núverandi
Íslands og Bikarmeistari. Þann tíma hafa
þjálfararnir Kim Fischer og Dorte stýrt
hópnum og er óhætt að segja að þau
hafi staðið sig frábærlega. Undir forystu
þjálfaranna hefur þessi krafmikli hópur
haft mikið aðdráttarafl á aðra nemendur
og hafa góðir nemendur frá öðrum
félögum sóst eftir því að
æfa undir þeirra stjórn. Ástæða
er til að óska stúlkunum og þjálfurum
þeirra til hamingju með þennan sögulega
árangur. |
Áhaldafimleikar:
|
Frábær
árangur: Sex gullverðlaun á Malarcup
Alþjóðlegt fimleikamót í Svíþjóð,
190 keppendur frá 10 þjóðum og 33 fimleikafélögum |
|
[24/10/2004] [JF] |
| Íslensku
keppendurnir stóðu sig frábærlega á
árlegu alþjóðlegu fimleikamóti
sem haldið er í Svíþjóð og
nefnist Malarcup. Íslandsmeistari í fjölþraut
kvenna, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr
Gerplu, sigraði miðflokki (junior) og hlaut hún
30,075 stig en hún sigraði einnig í úrslitum
á stökki (8,75) og slá (7,65). Er þetta
annað árið í röð sem hún
sigrar í fjölþraut á þessu móti
í sínum flokki (sjá hér)
en miðað við árangur hennar hingað til
er líklegt að hún muni skipa sér í
röð fremstu fimleikakvenna á Norðurlöndunum
á næstu árum. Fríða Rún
Einarsdóttur úr Gerplu sigraði einnig í
sínum aldursflokki (yngri / youth) með 29,55 stig
en hún sigraði einnig í úrslitum á
gólfæfingum. |
Fríða Rún Einarsdóttir
sigraði í fjölþrautarúrslitum og
í æfingum á gólf með 7,8 og varð
þriðja á slá með 7,4. Á myndinni
er hún í gólfæfingum á sl.
Íslandsmóti í mars. |
| Íslandsmeistarinn
í fjölþraut karla, Viktor Kristmannsson úr
Gerplu, sigraði í úrslitum á æfingum
á tvíslá (8,4)
en
hann hefur í um 8 ár verið einn allra besti
fimleikamaður Norðurlandanna í æfingum
á tvíslá eða frá því
að hann sigraði sinn fyrsta Norðurlandameistaratitil
á tvíslá aðeins 12 ára gamall.
(úrslit hér).
Sjá www.malarcupen.net.
Stúlkurnar úr Gerplu höfnuðu í
3. sæti í liðakeppninni næstar á
eftir Ástralíu en Svíþjóð
sigraði.
Frá Íslandi komu keppendur frá Ármanni
og Gerplu. Gunnar Sigurðsson stóð sig best af
keppendum frá Ármanni og hafnaði hann í
10. sæti í miðflokki (junior) næstur
á undan Jónasi Valgeirssyni einnig úr Ármanni.
Í liðakeppni og úrslitum á einstökum
áhöldum var keppt í opnum flokki en í
fjölþraut var keppt í þremur flokkum
(yngri, mið og eldri). Því má segja
að fjögur gull í úrslitum á áhöldum
sé mjög góður árangur og tvö
gull í úrslitum í fjölþraut
sýnir einnig að staða Íslensku keppendanna
er mjög sterk á alþjóðlegan mælikvarða.
|
Hópfimleikar:
|
Stjarnan keppir
á Evrópumóti í hópfimleikum |
|
[20/10/2004] [AM] |
| Á
föstudaginn 22. okt. halda Íslandsmeistarar Stjörnunnar
í hópfimleikum til Dornbirn í Austurríki
þar sem taka þátt í Evrópumóti
í TeamGym en það heitir íþróttin
á ensku. Mótið er sett á sunnudagskvöld
en keppt er í undankeppni á mánudag 25.
Í kvennakeppninni keppa 18 lið 6 (auk gestgjafanna
ef þeirra lið er ekki á meðal 6 efstu )komast
í úrslit en keppt verður til úrslita
á þriðjudaginn 26.
Auk kvennaliða keppa karlar og blönduð lið
er þar eru jafnmargar konur og karlar.Lið Stjörnunnar
er nú í mjög góðu formi en keppnin
í Dornbirn verður feiki hörð. Danir urðu
Evrópumeistarar kvenna fyrir 2 árum og mun keppnin
verða mjög hörð þar sem dönsku
og sænsku liðin munu örugglega vera á
meðal þeirra efstu. Á góðum degi
á Stjarnan raunhæfa möguleika á að
komast í úrslit. |
Kynning:
|
Loftdýna |
|
[20/10/2004] |
| Þessa
loftdýnu má nota fyrir alla getuhópa, mismunandi
þyngd iðkenda og alla aldurshópa. Auðveldlega
má stilla loftdæluna til að stjórna
því hversu stíf loftdýnan er hverju
sinni en loftdælan er ný og betri útgáfa
sem er mun hljóðlátari en venjuleg loftdæla.
Hjóðið er einnig dregið enn frekar niður
með hljóðeinangruðum kassa. Loftdýnuna
er hægt að fá í mismunandi lengdum en
venjuleg stærð er 15 metrar að lengd, 3 metrar
að breidd og 45 cm hæð. Nánari upplýsingar
í fimleikar@fimleikar.is
og í síma 555-7800. Verð á dýnunni
er um kr. 725.000.- |
 |
| 
In this equipment there will be a great opportunity
to raise sponsormoney and put the advertisement on the sides
of the airtrack.
|
Airtrack:
This track can be used for every level, weight and age of gymnasts.
The pump makes it possible to variate the hardness of the airtrack.
The engine is newdeveloped, and is very soundreducedet compaired
to ”normal” engine. The sound is more reduced because
it stands in a soundisolated box. The airtrack can be used in
a hall with a lot of gymnast. The airtack can be delivered in
diff. lenghts, normal size is 15 m. long, 3 m. wide and 45 cm
high. |
Kynning:
|
Lendingardýna |
|
[20/10/2004] |
| Eurogym
hefur mikla reynslu í hópfimleikum og þekkingu
í þróun og hönnun á góðum
dýnum fyrir bæði stökk á trampolíni
og á gólfi. Félagið hefur fullt sett
af lendingardýnum sem nýtist einnig á áhaldafimleikum.
Af sérstökum ástæðum þá
er nú til sölu lendingardýnan sem notuð
var á Norðurlandamótinu í hófimeikum
sem fór fram í apríl síðastliðnum.
Um er að ræða dýnu í fullri stærð
eða 6 metrar að lengd, 3 metrar að breidd og 30
cm að hæð. Fullt verð er um 465.000,- en selst
nú á aðeins 295.000,- auk flutningsgjalda
til landsins. Nánari upplýsingar
í fimleikar@fimleikar.is
og í síma 555-7800. |
 |
| 
|
Landing mat: Eurogym has a long
experience in Team gymnastics and their special needs for
good landing mats. We have a complete system of landing mats
for trampette – tumbling and also for artistic gymnastic
and trampoline.
For sale now on a specila price:
Big Euro Gym landing mat 300 x 600 x 30 cm only used for Nordic
Championships for Juniors 2004.
Is approved for Team Gym.
New price: 465.000 isk.
Price now: 295.000 isk ( + freight in Iceland)
|
 |
Áhaldafimleikar:
|
Tilkynnt um val
á NMD |
|
[18/10/2004] [JF] |
| 
úrslit hér
|
Tilkynnt hefur verið um
val á landsliði vegna Norðurlandamóts
drengja (13 - 16 ára) sem mun fara fram í Helsinki
í Finnlandi dagana 29. október – 1. nóvember
2004. Tekið var mið af úrtökumóti
sem haldið var í íþróttamiðstöðinni
Björk sunnudaginn 17. október 2004 og úrslitum
á mótum á vormisseri 2004.
Eftirtaldir piltar hafa verið valdir í liðið:
Bjarki Ásgeirsson – Ármanni,
Daði Snær Pálsson – Ármanni,
Ingvar Ágúst Jochumson - Gerplu, Ólafur
Garðar Gunnarsson - Gerplu, Sigurður Hrafn Pétursson
– Gerplu, Þorsteinn Óli Eggertsson –
Ármanni.
meira hér
|
Áhaldafimleikar:
|
Rúnar í
efsta stig hjá Afrekssjóði |
|
[13/10/2004] [JF] |
| 
|
Framkvæmastjóri
ÍSÍ samþykkti á fundi 8. október
sl. tillögur Afrekssjóðs ÍSÍ
um að Rúnari Alexanderssyni verði veittur A-styrkur
Afrekssjóðs fyrir okt. nóv. og des. 2004.
Stjórn Afrekssjóðs mun á næstu
fundum sínum taka ákvörðun um frekari
styrkveitingar vegna ársins 2005 og eins hvaða
einstaklingar muni fá langtímasamninga. Hér
er um mjög ánægjuleg tíðindi
að ræða fyrir Rúnar og er einnig vonandi
að hann njóti góðs af frábærri
frammistöðu sinni á Ólympíuleikunum
í Aþenu við ákvarðanir stjórnar
sjóðsins á næstu misserum.
|
Félagsmál:
|
Hágæða
tæki og góð þjónusta
Fræðsla og námskeið |
|
[13/10/2004] [JF] |
| 
|
EuroGym
Sport hefur í samstarfi við top fimleikafélög
í Danmöku og Svíþjóð þróað
eigin hágæða vörur en eitt af markmiðum
félagsins er að vinna að framþróun
í fimleikum. Eftir margra ára þróun
og reynslu getur félagið nú fært viðskiptavinum
sínum tæki í takt við nútíma
þarfir.
Fimleikar ehf. er samstarfsaðili EuroGym á Íslandi
en félagið hefur á að skipa starfsmönnum
með þekkingu í almennum fimleikum og hópfimleikum
ásamt tækjum fyrir hópfimleika.
Auk þess getur félagið staðið fyrir
námskeiðum og kynningum fyrir þjálfara
eða nemendur hjá fimleikafélögum (workshops).
Kim Fischer og Dorte hjá Fimleikum ehf. hafa áratuga
reynslu í kennslu og námskeiðahaldi, skipulagningu
fyrir almenna fimleika og hópfimleika og veita þau
þessa þjónustu. Nánari upplýsingar
með tölvupósti á fimleikar@fimleikar.is |
| Eurogym
Sport are developing there produkts together with the topgymnasticclubs
in Denmark and Sweden. Eurogym Sport is working for gymnastic
development. With a lot of years of experience with developement
with gymnastic and equipmenttypes, we are able to supply our
customers with equipment that is updated for their demands here
and now.
Fimleikar ehf. has together with Eurogym Sport a unique knowledge
in general gymnastics and Team Gym equipment and we offer a
range of equipment specially designed to their needs.We can
also offer education of coaches and do workshops for your club.
|
Félagsmál:
|
Ógleymanleg
ferð |
myndir
|
[10/10/2004] [JF] |
| 
|
Sif
Pálsdóttir úr Gróttu, fór
í ungmennabúðir í tengslum við
Ólympíuleikana í Aþenu (Olympic
Youth Camp) sem fór fram í ágúst
sl. Um 400 ungmenni frá 200 löndum tóku
þátt í verkefninu. Að sögn Sifjar
þá voru 8 í hverju herbergi og var þeim
skipt upp í hópa þar sem ýmis verkefni
voru unnin. Einnig var farið í ýmsar ferðir.
Ólympíuþorpið heimsótt þar
sem hún hitti hluta af íslensku
|
Sif Pálsdóttir upp á Acropolis
hæðinni. Upp á hæðinni er svæði
sem er um 300 x 150 að flatarmáli í um 156metra
hæð frá svæðinu í kring um
hæðina. |
| Sif
Pálsdóttir stendur hér við innganginn
inn á keppnisvöllinn í Olympiu þar
sem leikarnir fóru fram fyrir mörgum öldum.
Í Olympiu er m.a. Ólympiuakademían með
aðsetur.
Fleiri
myndir hér |
þátttakendunum.
Í ungmennabúðunum fengu þátttakendur
fræðslu um Ólympíuleikana
og fóru einnig að horfa á ýmsa viðburði
Ólympíuleikanna. Sif horfði á keppni
í fimleikum, körfubolta, handbolta og siglingu.
Að hennar sögn var þetta skemmtilegur tími
sem hún á aldrei eftir að gleyma. |
| Félagsmál: |
Nýtt íþróttahús
í Garðabæ bætir
aðstöðu fimleikadeildar Stjörnunnar |
[10/10/2004]
[JF] |
| Nú
um helgina var opnað nýtt íþróttahús
í Garðabæ sem stendur við hlið Hofstaðaskóla
og Fjölbrautaskólans í Garðabæ.
Húsið er mun stærra en Íþróttahúsið
í Ásgarði og verður nýja íþróttahúsið
notað til kennslu fyrir skólana, bæði í
leikfimi og sundi. Utan skólatíma verður húsið
notað fyrir handbolta og korfubolta en engu að síður
mun tilkoma þessa nýja og glæsilega íþróttahúss
hafa mikil áhrif á starf fimleikadeildar Stjörnunnar.
Að sögn Þóru Margrétar, en hún
er í stjórn fimleikadeildarinnar, hefur tilkoma
hússins það í för með sér
að fimleikadeildin fær mun fleiri tíma til
afnota en áður. Nú getur öll starfssemi
deildarinnar farið fram á einum stað en eldri
hóparnir hafa verið að leigja aðstöðu
utan Garðabæjar. Þóra Margrét
telur mikilvægt að yngri iðkendur geti fylgst
með eldri stúlkum félagsins en þær
eru þeim miklar fyrirmyndir. Á næstu árum
er líklegt að aðstaða fimleikadeildarinnar
muni batna enn frekar þar sem fyrirhugað er að
byggja þriðja íþróttahúsið
í Garðabænum við Sjálandsskóla
og er gert ráð fyrir því að það
opni 2007. Það eru því spennandi tímar
framundan hjá fimleikadeild Stjörnunnar og er vonandi
að þessi mikla breyting á íþróttaaðstöðu
í Garðabæ verði lyftistöng fyrir fimleikadeild
Stjörnunnar sagði Þór Margrét að
lokum. |
Hópfimleikar:
|
Fjör á
"workshop" í hópfimleikum |
myndir
|
[10/10/2004] [JF] |
| 
Stúlkurnar þurftu að hvíla
á milli æfinga en hópnum var skipt upp í
nokkra hópa og allir keyrðu á fullum krafti
á milli stuttra hvílda.
Fleiri
myndir hér
|
Nú um hlegina fór
fram "workshop" í hópfimleikum þar
sem þau Kim og Dorthe, Jesper og Line fóru yfir
ýmsa þætti í trampolín- og
dýnustökkum. Vel tóks til og er þetta
framtak hjá þeim kærkomið
tækifæri fyrir iðkendur frá mörgum
félögum til að hittast og æfa saman.
|
|
| Um
markt minnti þetta framtak á landsliðsæfingar
sem voru algengar fyrir mögum árum í áhaldafimleikum.
Vonandi verður framhald á svona æfingum í
framtíðinni. |
Áhaldafimleikar:
Myndir frá
Ólympíuleikunum |
|
[9/10/2004]
|
| 
Rúnar á Akrapolis-hæðinni
í Aþenu í Grikklandi
|
Eins
og við öll vitum þá stóð Rúnar
Alexandersson sig frábærlega á Ólympíuleikunum
í Aþenu. Hér fáum við nú
að sjá einstakt safn mynda sem Guðmundur Þór
Brynjólfsson þjálfari hans tók á
leikunum.
Fleiri myndir hér
|
Berglind Pétursdóttir, Guðmundur
Þór Brynjólfsson og Björn Magnús
Tómasson fyrir utan keppnishöllina þar sem
setning ÓL 2004 fór fram. |
Félagsstarf:
Gerpla fær
EuroGym stökkbraut |
|
[9/10/2004]
|
| 
Kim hjá Fimleikum ehf. sýnir Heimi
Jóni bestu handtökin við að setja brautina
upp en hún er mjög létt í allri meðferð.
Fleiri
myndir hér |
Íþróttafélagið
Gerpla hefur fengið nýja EuroGym Fiberglas-stökkbraut
frá Fimleikum ehf. en félagið er umboðsaðili
EuroGym sport ap. á Íslandi. Tilkoma stökkbrautarinnar
á eftir að hafa mjög jákvæð
áhrif á hópfimleika hjá Gerplu að
sögn Ásu Ingu Þorsteinsdóttur þjálfari
í hópfimleikum hjá félaginu en hún
telur að slíkt hafi gerst hjá öðrum
félögum sem hafa nú þegar fengið
EuroGym stökkbraut sem þessa. Að undanförnu
hafa átt sér stað miklar breytingar á
þeim tækjum sem notuð eru í hópfimleikum
og telur Ása að það muni skila sér
í öflugra starfi hjá fimleikafélögunum
en hún er sjálf á leiðinni á
Evrópumót í hópfimleikum sem fram
fer í Austurríki eftir þrjár vikur.
|
Mikið fjör var hjá krökkunum
í Gerplu þegar nýja stökkbrautin var
sett upp í fyrsta skiptið. Strákunum þykir
þó reyndar alltaf gaman að fá ný
tæki og mátti sjá þá spá
mikið í hvernig brautin er sett saman eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum |
Félagsmál:
Fimleikadagur
í Garðabæ |
[15/09/2004]
|
| Laugardaginn
9.okt. verður haldið æfingamót í
Ásgarði Garðabæ, til undirbúnings
fyrir Evrópumótið í hópfimleikum.
Af því tilefni koma tveir danskir þjálfara
til landsins, þau Jesper Birk Pedersen og Line Pedersen.
Nú býðst okkur það
frábæra tækifæri á að tileinka
okkur aukna kunnáttu, því eftir æfingamótið
ætla þau Kim og Dorthe, Jesper og Line að halda
“workshop”, og þeim til aðstoðar verða
stelpurnar í Stjörnuliðinu.
Jesper hefur verið í fremstu
röð hópfimleikamanna undanfarin ár, æfði
til að mynda með Hulby Slagelse, sem hefur verið
besta lið Evrópu í mörg ár. Hann
er einnig afburða snjall og eftirsóttur þjálfari,
var landsliðsþjálfari dönsku hópfimleikaliðanna
2000-2003. Line er feiknar góður dansari og hefur
til margra ára unnið við þjálfun
á fimleikadansi. Árin 1994-1995 voru þau
bæði í Verdensholdet, það er því
ljóst að hér eru á ferðinni snillingar
í faginu.
FSÍ í samstarfi við
Stjörununa vill hér með gefa öllum (stelpum
og strákum) 12 ára og eldri tækifæri
á að njóta leiðsagnar frá þessum
fagmönnum. Þjálfurum er að sjálfsögðu
boðið að koma og fylgjast með. Námskeiðið
verður aldurs- og getuskipt, það verða þrír
hópar, dans, dýna (fibertrack og loftdýna)
og trampólín.
Meira
í skjali hér
|
Félagsmál:
Eru fimleikafélög
á Íslandi of lítil eða of stór
í Danmörku? |
[6/10/2004]
[jf]
|
| Við
rekstur fimleikafélaga spila fjölmargir þættir
saman til þess að vel takist til. Þrátt
fyrir að oft geti verið gott að vera í litlu
félagi þá skiptir einnig miklu máli
að fimleikafélög nái vissri stærð
til þess að geta veitt þá þjónustu
sem er ætlast til að þau geri. Tækjabúnaður
og aðstaða til fimleikaiðkunar er hlutfallslega
dýrari en þekkist í ýmsum öðrum
íþróttagreinum. Því skiptir
miklu máli að ná sem mestri nýtingu
út úr þeirri aðstöðu sem félögin
koma sér upp. Dönum hefur tekist nokkuð vel
til í þessum efnum en sem dæmi má
nefna að í sveitarfélaginu Holstebro eru fimleikafélögin
Holstebro Gymnastikforening með um 1.800 iðkendur og
Vestjysk Gymnastik með um 700 iðkendur en samtals er
íbúar um 40.000 í Holstebro. Það
eru því 2.500 iðkendur í báðum
þessum félögum eða 6,25% af íbúum
bæjarins. Einnig eru dæmi um félög með
um 1.100 iðkendur í 15.000 íbúa sveitarfélögum
(6,66% af íbúum bæjarins). Það
er því ekki óalgengt að um 6 - 7% af
íbúum sveitarfélaga stundi líkamsrækt
hjá fimleikafélögum í Danmörku.
Gerpla í Kópavogi og Björk í Hafnarfirði
eru fjölmennustu fimleikafélögin á Íslandi.
Í samanburði við framangreind félög
í Danmörku þá ættu um 1.650 iðkendur
að stunda fimleika í Gerplu og um 1.450 í
Björk þar sem íbúar í Kópavogi
eru um 26.000 og um 22.000 í Hafnarfirði. Bæði
félögin eru aftur á móti með samtals
um 1.400 iðkendur þegar sambærileg félög
í Danmörku væri með um 3.100 iðkendur.
Með hliðsjón af hagkvæmni stærðarinnar
þá getur verið eftirsóknarvert fyrir
fimleikafélög á Íslandi að stækka
enn frekar og það á jafnvel við um fjölmennustu
fimleikafélögin á Íslandi sem virðast
vera of lítil miðað við nágranna okkar
í Danmörku. |
FSÍ
/ ÍSÍ:
Almennur hluti
1a |
[6/10/2004]
[jf]
|
| Helgina
15. - 17. október verður Þjálfari 1a
- almennur hluti haldinn í Íþróttamiðstöðinni
í Laugardal og á Siglufirði. Lágmarksaldur
þátttakenda er 16 ár. Námskeiðið
er undanfari annarra námskeiða sem síðar
verður boðið uppá og þannig fyrsta
námskeiðið í samræmdu kerfi íþróttahreyfingarinnar.
Námskeiðið er 20 kennslustundir, að meginhluta
bóklegt, og er ætlað leiðbeinendum barna
í íþróttum. Nemandi sem lýkur
þessu námskeiði ásamt því
að ljúka sérgreinahluta þjáfarastigs
1a hlýtur réttindi sem aðstoðarmaður
eða leiðbeinandi hjá íþróttaskóla
eða yngstu flokkum.
Verð á námskeiðið er kr. 12.000 Skráningar
þurfa að berast á netfangið namskeid@isisport.is
eða í síma 514-4000 í síðasta
lagi miðvikudaginn 13. október. |
|
|
|
|