|
|
|
| Kristjana
Sæunn Ólafsdóttir, Gerplu, sigrar á
alþjóðlegu móti |
|
[26/10/2003] |
|
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr
Gerplu varð í fyrsta sæti í fjölþraut
með 29,25 stig ásamt enskri stúlku í
stúlknaflokki (12 ára og yngri) á Malarcup
sem er alþjóðlegt fimleikamóti sem Sænska
fimleikasambandið stóð fyrir um helgina en mótið
hefur farið fram undanfarin 20 ár og nú kepptu
um 30 félagslið frá 9 löndum á mótinu.
Kristjana Sæunn gerði sér lítið fyrir
og sigraði í opnum flokki í úrslitum
á slá með 7,825 í einkunn og hafnaði
í 4. sæti í æfingum á Gólfi.
Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu
varð í öðru sæti í kvennaflokki
(16 ára og eldri) með 29,7 stig og í opnum flokki
í úrslitum hafnaði hún í 5. sæti
á Gólfi og 6. sæti á Tvíslá.
Karídas Harpa Davíðsdóttir hafnaði
í 5. sæti í stökki í úrslitum.
Viktor
Kristmannsson hafnaði í 5. sæti í fjölþraut
í karlaflokki (18 ára og eldri). Í úrslitum
hafnaði hann í 3. sæti í æfingum
á Bogahesti, 7. sæti Stökki og 5. sæti
á Tvíslá. Róbert Kristmannsson hafnaði
í 6. sæti í fjölþraut í
unglingaflokki (16 - 18 ára).
Frá Gerplu kepptu tvö lið karla og kvenna.
Hjá stúlkunum hafnaði A-liðið í
3. sæti af 15 liðum en B-liðið hafnaði í
9. sæti. Hjá strákunum hafnaði A-liðið
í 6. sæti en B-liðið í 13. sæti.
Nánari upplýsingar um mótið má
sjá hér: http//www.malarcupen.net |

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir í afstökki
á slá á Haustmóti FSÍ sem
fram fór um síðustu helgi. Þar sigraði
hún jafnframt í æfingum á slá
í yngri flokki með 7,725 í einkunn.

Inga Rós Gunnarsdóttir varð í 5. sæti
í æfingum á Gólfi en hér má
sjá hana í Gólfæfingum á Haustmóti
FSÍ þar sem hún hafnaði í 2.
sæti með 8,05 stig.
|
| Ungbarnasund
- frábær hreyfing |
|
[26/10/2003] |

Helga Margét
Ólafsdóttir
|
Mikilvægt
er að byrja snemma að þjálfa samhæfingu
og almennan hreyfiþroska hjá börnum. Á
undanförnum árum hefur ungbarnasund notið mikilla
vinsælda og ekki af ástæðulausu. Snorri
Magnússon er að vissu leyti brautryðjandi á
þessu sviði og hefur í fjölmörg ár
boðið upp á ungbarnasund í lítilli
sundlaug í Mosfellsbæ en þar eru aðstæður
mjög góðar til kennslu ungbarnasunds. Eins og
meðfylgjandi myndir bera með sér þá
hafa börnin mjög gaman af æfingunum og má
allt eins segja að þetta séu þeirra fyrstu
skref til að verða framtíðar fimleikamenn og
konur. |

Davíð Óttarsson |
| Haustmót
í áhaldafimleikum |
|
|
Haustmót
Fimleikasambands Íslands fór fram um helgina en
um er að ræða fjölmennasta fimleikamót
sem fram fer fyrir áramót en keppnin fór
fram í fjórum hlutum í 10 keppnisflokkum.
Nánari umfjöllun hér.
Myndir á keppni á laugardegi hér.
Myndir á keppni á sunnudegi hér.
Úrslit: skylduæfinar karla hér,
skylduæfingar stúlkna hér
og hér,
frjálsar æfingar karla hér
og kvenna hér.
|
 |
| Gerpla
keppir á alþjóðlegu móti í
Svíþjóð |
|
Vetrarstarfsemi
Íþrótteafélagsins Gerplu Kópavogi
hófst nú í byrjun september og eru iðkendur
félagsins 620 talsins. Gerpla býður nú
upp á þjálfun í almennum fimleikum,
áhaldafimleikum, hópfimleikum og fimleikum fatlaðra
og starfa 33 þjálfarar hjá félaginu.
Sjá hér. |
| Náðu
þrepum á síðasta vetri |
[15/10/2003] |
Keppni
í þrepum íslenska fimleikastigans er stór
þáttur í starfi fimleikafélaganna.
Keppendur þurfa að ljúka hverju þrepi fyrir
sig áður en heimilt er að keppa í næsta
þrepi þar fyrir ofan. Því skiptir miklu
máli fyrir keppendur að ná tilsettum lágmörkum
í hverju þrepi fyrir sig. Nú er birtur listi
yfir alla þá sem náðu tilsettum lágmörkum
í fyrra. Sjá hér. |
| Eurogym,
Ungt fólk í Evrópu |
|
Fimleikadeild
Umf.Selfoss ætlar að halda byrjendamót í
hópfimleikum í tengslum við haustmót
í hópfimleikum laugardaginn 22.nóvember 2003.
Byrjendamótið er ætlað öllum þeim
hópum sem ekki hafa keppt á hópfimleikamótum
Fimleikasambands Íslands. Sjá hér. |
| Byrjendamót
Selfoss
í hópfimleikum 22. nóvember 2003 |
|
Fimleikadeild
Umf.Selfoss ætlar að halda byrjendamót í
hópfimleikum í tengslum við haustmót
í hópfimleikum laugardaginn 22.nóvember 2003.
Byrjendamótið er ætlað öllum þeim
hópum sem ekki hafa keppt á hópfimleikamótum
Fimleikasambands Íslands. Sjá hér. |
Helgina
18. og 19. október n.k. er Haustmót Fimleikasambands
Íslands í Bjarkarhúsinu. Keppt er í
áhaldafimeikum kvenna og karla bæði í
frjálsum æfingum (meistaraflokki) og í Íslenska
fimleikastiganum 1.-5. þrepi (keppnisflokkum). Þetta
er stæsta mót í áhaldafimeikum fyrir
áramót. Sjá hér. |
| Mótaskrá
fyrir veturinn er nú komin út. Sjá hér. |
| Rúnar
Alexandersson, úr Gerplu á HM 2003
|
|
[12/10/2003] |
| 
©
Jeffrey Alger
|
Nú
hafa birst myndir af öllum strákunum sem kepptu á
HM í ágúst sl. fyrir hönd Íslands.
Margar af myndunum eru mjög flottar og því er
ánægjulegt að geta birt þær hér
á www.fimleikar.is |
|
| Grétar
Sigþórsson , úr Ármann á HM
2003
|
|
[12/10/2003] |
| Íslandsmót
í almennur fimleikum 1. þrep á Egilsstöðum |
|
Íslandsmót í almennum fimleikum verður
að þessu sinni haldið á Egilsstöðum
þann 29. nóvember n.k. í umsjón Fimleikadeildar
Hattar. Í boði er gisting í Egilsstaðaskóla
í tvær nætur, morgunverður tvo morgna,
pizzaveisla á laugardagskvöld og kvöldvaka fyrir
kr. 2.500.- meira |
| 1
B námskeið á vegum fræðslunefndar.
8. - 9. nóv. |
|
Námskeið 1B verður haldið 8. - 9 nóv.
í Reykjavík og væntanlega 15. og 16. nóv.
á Akureyri. Námskeið 1C fellur niður. meira |
Miðvikudaginn
22. október n.k. mun verða haldið fyrsta þing
Fimleikadómarafélags Íslands (FDÍ).
Þingið verður sett stundvíslega klukkan 20:30
í sal 3 hjá kaffiteríu ÍSÍ
í Laugardal. meira |
| Dýri
Kristjánsson, úr Gerplu á HM 2003
|
|
[26/9/2003] |
Nú
er komið að ykkur öllum ! Já allir sem eru
að stunda fimleika geta sent inn texta, myndir, sögur,
æfingadagbók eða annað sem ykkur dettur í
hug og við birtum það undir sérstökum
dálk til vinstri hér á síðunni
sem verður helgaður iðkendum. Allir geta því
haft áhrif á það sem birtist hér
á síðunni ykkar. Sendið efni á fimleikar@fimleikar.is
|
| Þjálfaranámskeið
1a - almennur hluti |
[1/10/2003] |
Föstudaginn
10. október til 12. október fer fram í Íþróttamiðstöðinni
í Laugardal þjálfaranámskeið 1a
- almennur hluti. Að loknu þessu stigi á þjálfarinn
að geta skipulagt og stjórnað æfingatíma
hjá börnum og unglingum á byrjendastigi. Til
þess þarf hann að hafa grundvallarþekkingu
á líkamlegum og andlegum þroska barna og unglinga.
Hann þarf að þekkja starfsemi líkamans
auk helstu aðferða við kennslu. Vinnulag: Fyrirlestrar,
verkefnavinna og verkleg æfing. Umfang: 20 kennslust. Tími:
Föstudag 10. okt. kl. 18.00 - 22.00, laugardag 11. okt. kl.
09.00 - 16.00, sunnudag 12. okt. kl. 10.00 - 16.00. Skráning:
ÍSÍ, sími: 514-4000 eða netfang: andri@isisport.is
Skráningu þarf að vera lokið í síðasta
lagi miðvikudaginn 8. október. Verð: 12.000 kr.
og innifalið eru öll námsgögn.
|
|
|
|