|
|
|
| Fræðslunefnd
stendur fyrir námskeiðum í janúar,Sérgreinahluti
FSÍ 1C sem fellt var niður í haust verður
5.-6.janúar 2008; þeir sem voru skráðir
eru vinsamlega beðnir um að staðfesta mætingu.Sérgreinahluti
FSÍ 2A áður auglýst í haust en
nokkur sæti laus, verður 12.-13.janúar 2008. |
Haustmót
- hópfimleikar -
|
|
25/11/07 |
| Seinnihluti
Hausmót í hópfimleikum fór farm um
helgina á Selfossi. Alls tóku 24 lið þátt
með en þó ekki öll sem kepptu á öllum
áhöldum. Fimleikadeild UMF Selfoss sá um mótið
og m.a. bauð þátttakendum í sund þar
sem mótið það var tiltölulega langt
og biðin því nýtt í að þjappa
hópnum saman. Fimleikadeild Aftureldingar úr Mosfellsbæ
hlaut flest stig eða 19,8 stig og í öðru sæti
varð Gerpla P3 með 19,63 stig og Stjarnan í þriðja
sæti með 16,93 stig.
Úrslit, hér.
|
Myndir
af heimsókn frá Kína
|
|
25/11/07 |
|
Í framhaldi af umræðu um aðbúnað
og umgjörð um þá mikilvægu starfssemi
sem fer fram innan fræðslunefndar FSÍ veitti
Friðbjörn B. Möller, svæðisstjóri
ISS Ísland á Akureyri, FSÍ styrk sem fólst
í myndvarpa sem FSÍ getur notað við störf
fræðslunefndarinnar. Kristján Erlendsson formaður
FSÍ tók við styrknum og þakkaði fyrir
skjót og góð viðbrögð. Friðbjörn
er jafnframt formaður fimleikafélags Akureyrar og þekkir
því vel til starfa FSÍ. Ávallt er ánægjulegt
þegar fyrirtæki styrkja FSÍ með einum eða
öðrum hætti. Eru bestu þakkir færðar
til ÍSS Ísland í tilefni af þessu.
Þess má geta að ISS Ísland er leiðandi
fyrirtæki í fasteignaumsjón. Megin þjónustusvið
fyrirtækisins eru: Ræstingar, Veitingasvið, Skrifstofuaðstoð
og Fasteignaumsýsla. Þjónusta ISS er fjölbreytt
t.a.m hreingerningar, bónleysingar og bónanir,loftstokkahreinsun,
umsjón mötuneyta, aðsendur matur,símvarsla
og fl. Nú starfa um 800 manns hjá ISS Ísland
í Reykjavík og um 120 manns á Akureyri ásamt
á fjórða tug starfsmanna á austfjörðum
og öðrum stöðum á landsbyggðinni.
ISS leggur áherslu á að losa viðskiptavininn
við áreiti þannig að hann geti betur einbeitt
sér að sinni kjarnastarfsemi. |
 |
|
Skrifstofur ISS Ísland er að Ármúla 40,
108 Reykjavík og að Borgum Norðurslóð,
603 Akureyri. Saga ISS Ísland spannar um 30 ár.
Í upphafi hóf Ræstingarmiðstöðin
sf. starfsemi í september 1980, seinna varð hún
að ræstingardeild Securitas, svo var Ræsting ehf
stofnuð í október árið 1999. Í
janúar 2000 varð Ræsting ehf. að ISS Ísland
ehf. ISS
Ísland ehf. er sjálfstætt íslenskt
fyrirtæki að meirihluta í eigu ISS Danmörk
og á þann hátt er fyrirtækið hluti
af hinu alþjóðlega fyrirtæki ISS A/S.
|
Myndir
og úrslit Haustmóts
- áhaldafimleikar -
|
|
24/11/07 |
|
|
Sjá
nánar
Úrslit 5. þrep 9 ára kvk, hér.
Úrslit haustmót FSÍ laugardagur, hér.
Úrslit 5. þrep 10 ára kvk, hér.
Úrslit haustmót FSÍ sunnudagur, hér.
Myndir
hér |
 |
|
Fimleikadeild Umf. Selfoss og FSÍ minna á Haustmót
í Hópfimleikum I sem fer fram á Selfossi
um helgina 24. og 25. nóvember. Keppt er eftir Evrópureglum
og landsreglum í barna- og unglingaflokki.
15 lið hafa skráð þátttöku í
barnaflokki, 24 lið í unglingaflokki og 3 lið í
Evrópureglurnar. Þetta er því mjög
fjölmennt mót eða um 200 keppendur.
Mótið
er í umsjón Fimleikadeildar Umf. Selfoss en mótsstjóri
er Brynja Hjálmtýsdóttir (brynja@audur.is),
s. 858-6509.
Keppnisfyrirkomulag
er sem hér segir:
Laugardagur
24. nóvember Unglinga og Team gym junior
Fyrri hluti:
Liðin
sem taka þátt í þessum hluta eru: Selfoss
HM2 T3, Gerpla P3 lið 1, Afturelding, Fima A+B, Fjölnir
T1, Selfoss Rauður, Gerpla P4 lið 1, Selfoss Grænn,
Selfoss HL4, Þór, Selfoss HL3, Fjölnir T1A,
Fima A, Selfoss HL1 T4, Fima B, Selfoss Gulur.
10:00
- 10:20 Almenn upphitun
10:20 - 11:51 Upphitun á áhöldum
12:05 Innmars - keppni hefst
14:05 Mótslok fyrri hluta
Seinni
hluti:
Liðin
sem taka þátt í þessum hluta eru: Gerpla
P3 lið 2, Fima C, Björk I3-2, Stjarnan, Ármann
TG, Fima D, Björk I3, Gerpla P4 lið 2, Selfoss TG, Björk
I2, Gerpla TG, Ármann, Fima C+D
14:05
Almenn upphitun
14:25 - 15:49 Upphitun á áhöldum
16:00 Innmars - keppni hefst
17:50 Mótslok seinni hluta
18:05 Verðlaunaafhending báðir hlutar
Sunnudagur
25. nóvember - barnaflokkur
Þau
lið sem taka þátt í barnaflokki eru: Afturelding
A, Selfoss HL7, Selfoss HL2, Gerpla lið 1, Fjölnir T3,
Selfoss HL6, Selfoss HL5 gulur, Selfoss HL2-2, Selfoss HB11, Ármann,
Selfoss HL5 rauður, Gepla lið 2, Afturelding B, Stjarnan,
Selfoss HL7 mix, Selfoss HL2.
9:30
- 9:50 Almenn upphitun
9:50 - 11:09 Upphitun á áhöldum
11:20 Innmars - keppni hefst
13:30 Mótslok
13:40 Verðlaunaafhending
Við
bjóðum alla velkomna í íþróttahús
Vallaskóla á Selfossi um helgina til að fylgjast
með spennandi keppni í hópfimleikum um leið
og við óskum keppendum góðrar keppni og
áhorfendum góðrar skemmtunar. |
| 
|
Á
laugardaginn var fyrsta stigspróf GGG haldið en GGG
er fimleikahópur Gerplu fyrir eldri iðkendur. Stigsprófið
er hugsað sem mælistika fyrir iðkendur til að
meta stöðu sína á hverjum tíma.
Um 1/3 GGG-liða eða 40 iðkendur mættu og framkvæmdu
5 æfingar eins og prófið kveður á
um. |
 |
|
Hver æfing hefur einkunn og samanlögð einkunn gildir
til stigs. Einnig var framkvæmt hefðbundið liðleikapróf
sem flest fimleikafólk kannast við. Voru iðkendur
almennt ánægðir með frammistöðuna
og skemmtu sér svo saman um kvöldið í hátíðarsal
Gerplu. Þjálfarar hópsins kváðust
einnig vera ánægðir með daginn. Fólk
hafi undirbúið sig vel og að einbeitingin hafi
skinið úr hverju andliti.
|
Laugarvatnsmót – Hópfimleikar
|
|
14/11/07 |
| 1.árs
nemar í Íþróttafæði við
Kennaraháskóla Íslands boða til hópfimleikamóts
laugardaginn 26. janúar. Keppt verður í landsreglum
(barna- og unglingaflokki). Keppt verður á fibergólfi
og Pegasus hesti en vakin er athygli á því
að ekki verða dansrenningar á dansgólfi.
Öll aðstaða er til fyrirmyndar og er Laugarvatn sannkallaður
íþróttabær, þetta er tilvalið
fyrir félög til að koma hópnum saman og
gera eitthvað skemmtilegt. Á Laugarvatni er sundlaug,
verslun og sjoppa.
Boðið verður uppá gistingu í grunnskólanum
fyrir þá sem vilja og mun nóttin kosta 500
kr.
Mótsgjald er 1200 kr á keppanda. Hvert félag
á að skila inn einum dómara. Skráningafrestur
er til 10 janúar. Við viljum hvetja félögin
til að skrá liðin sín sem sem fyrst
Með Laugarvatnskveðju
f.h. 1.árs nema,
Anna Greta, Bára Óla, Arna Björg og Hólmfríður.
Nánari upplýsingar og skráning eru í
síma 695-2506 og á annagola@khi.is / annasporty@hotmail.com
|
| Tvö
mót fóru fram um helgina. Í áhaldafimleikum
fór fram Haustmót en í almennum fimleikum
fór fram Íslandsmót. Úrslit hafa ekki
verið send til fjölmiðla en verða þau birt
um leið og það hefur verið gert.
|
| Fimleikadeild
Ármanns býður ykkur að taka þátt
í Aðventumóti Ármanns sem haldið
verður laugardaginn 1. desember og sunnudaginn 2. desember
í nýja Ármannshúsinu í Laugardal.
Keppt verður í 6 þrepi, 5 þrepi og 4 þrepi
stúlkna. Drengir í 5. þrepi, 4. þrepi
og 3. þrepi.
Helsta
markmið mótsins er að sem flestir keppendur fái
verðlaunapeninga og að allir eigi glaðan dag í
góðum félagsskap. Keppninni verður skipt
í eftirfarandi flokka:
Stúlkur:
Flokkur “A” : 4. og 5. þrep: Þær
stúlkur sem hafa náð 50 stigum á FSÍ
móti í þessum gráðum.
Flokkur “B” : 4. og 5. þrep: Þær
stúlkur sem ekki hafa náð 50 stigum á
FSÍ móti í þessum gráðum.
Þessum keppendum verður skipt í aldursflokka.
Flokkur “C” : 6. þrep: Þessum keppendum
verður skipt í aldursflokka.
Piltar:
Flokkur “A” : 3. og 4. þrep: Þeir piltar
sem hafa náð 80 stigum á FSÍ móti
í þessum gráðum.
Flokkur “B” : 3. og 4. þrep: Þeir piltar
sem ekki hafa náð 80 stigum á FSÍ móti
í þessum gráðum. Þessum keppendum
verður skipt í aldursflokka.
Flokkur “C” : 5. þrep: Þessum keppendum
verður skipt í aldursflokka.
Stigafjöldi
í flokkana er gefinn út með fyrirvara vegna
breytinga á dómarareglum FSÍ frá því
í haust og endurskoðast eftir Haustmót 2007
í áhaldafimleikum.
Hægt er að tilkynna þátttöku í
síma: 580-5909 milli kl. 15:00 og 18:00 alla virka daga
eða með e-mail: fimleikar@simnet.is . Þátttökutilkynningar
skulu berast í síðasta lagi 17. nóvember.
Í tilkynningu þarf að koma fram nafn keppanda,
aldur og í hvaða gráðu og flokki viðkomandi
keppir í. Hvert félag þarf að útvega
einn dómara fyrir hverja 5 keppendur til þess að
dæma á mótinu og þarf fjöldi dómara
að koma fram í tilkynningu. Mótsgjald
er kr. 1200,- á hvern keppanda og skal staðgreiðast
í Ármannshúsinu fyrir keppni. Skipulag mótsins
verður gefið út 22. nóvember.
Bestu kveðjur
Fimleikadeild Ármanns
|
| Alþjóðlegt
hópfimleikamót haldið í Laugardalnum
18.- 20. janúar. Nú
í janúar verða haldnir í 20. skipti Reykjavík
International leikarnir. Á undanförnum árum
hefur þátttaka í sundi og frjálsum
íþróttum verið mjög góð
og hafa nokkrir af bestu íþróttamönnum
heims heiðrað okkur með nærveru sinni. Nú
er ætlunin að stækka leikana og bæta mun
fleiri íþróttagreinum við. Keppt verður
að þessu sinni, auk sunds og frjálsra íþrótta,
í hópfimleikum, dansi, íshokký, badminton,
júdó, skautum og skylmingum. Öll keppni mun
eiga sér stað í laugardalnum. Opnunarhátíð
verður haldin í byrjun hátíðarinnar,
sunddiskótek verður fyrir keppendur og svo verður
hátíðinni slitið með lokahátíð.
Með þessu vonumst við eftir því að
keppendur yfirgefi hátíðina með góðum
minningum. Keppnin
í hópfimleikum mun eiga sér stað laugardaginn
19. janúar. Skipt verður í tvo hluta og verður
keppt sem hér segir:
Fyrri hluti: keppni eftir landsreglum í öllum flokkum
Seinni
hluti: keppt eftir Team Gym reglum í öllum flokkum
Æfingaraðstaða
verður í íþróttamiðstöð
Ármanns frá föstudegi til laugardags. Kvöldæfing
fyrir Team Gym lið verður í laugardalshöll
á föstudagskvöldið. Nánari
upplýsingar og skráning er hjá fimleikadeild
Ármanns í símum 580-5909 og 893-8989. Einnig
er hægt að senda tölvupóst á fimleikar@simnet.is
|
Íslandsmót í almennum
fimleika
|
|
04/11/07 |
|
Umfjöllun um Íslandsmót í almennum fimleikum
var í kvöldfréttum RÚV sunnudaginn 4.
nóvember 2007. Sjá
frétt hér. |
|
|
|