HM í fimleikum á RÚV

30/11/06
JF

HM í fimleikum sem fram fór í Danmörku í nóvember verður sýnt á RÚV á laugardaginn 2. desember kl. 12:30 til 16:00.
Guðmundur Þór Brynjólfsson og Berglind Pétursdóttur annast kynningu.
Eins og meðfylgjandi myndbönd sýna þá var mótið allt hið glæsilegasta og þær æfingar sem þar voru framkvæmdar hreint út sagt stórkostlegar. Það verður því án nokkurs vafa mjög spennandi fyrir alla sanna fimleikaunnendur að fylgjast með sýningu RÚV frá mótinu.

Mót í almennum fimleikum

23/11/06
JF


Hér má sjá úrslit úr móti sem var haldið af fimleikadeild Gróttu í Almennum fimleikum í 3. - 6. þrep þann 25.nóvember 2006.

3. þrep Almenna fimleikastigans
4. og 5. þrep Almenna fimleikastigans
3. og 4. þrep Almenna fimleikastigans

Myndband af fimleikaæfingu

25/11/06
JF

Myndband af nokkrum krökkum að leika sér á fimleikaæfingu hjá Íþróttafélaginu Gerplu.

Greinilega mjög gaman hjá þeim öllum.

Unga stúlkna sem sést hér á myndinni er geinilega í mikilli hæð. Ætli hún snerti loftið !


Mótaskrá FSÍ 2006 - 2007

23/11/06
JF

Fyrir liggur mótaskrá FSÍ fyrir veturinn 2006 - 2007. Sjá hér.


Haustmót

19/11/06
OB

Fyrsta mót Fimleikasambands Íslands í hópfimleikum á þessu keppnistímabili fór fram á Selfossi laugardaginn 18.nóvember 2006. Mikill fjöldi keppenda var á mótinu eða alls sjö lið sem kepptu eftir Evrópureglum og tuttugu og þrjú lið sem kepptu eftir nýjum landsreglum FSÍ. Hápunktur mótsins var sýningaratriði Gerplustúlkna sem lentu í 2.sæti á Evrópumeistaramótinu í Tékklandi nú fyrir skemmstu en þær sýndu glæsilegar æfingar, áhorfendum til mikillar skemmtunar.

Úrslit í Team-gym
Senior kvk
Selfoss T1 með 21,95 stig
Junior kvk
Fylkir með 21,35 stig
Senior Mix
Stjarnan/Björk keppti á tveimur áhöldum 13,95 stig.

Landsreglur
Barnaflokkur
Selfoss sigraði öll áhöld
Unglingaflokkur
Gerpla P4 sigraði á gólfi, Selfoss T4a sigraði á dýnu og Ármann 1 sigraði á trampólíni.
Táningaflokkur
Selfoss T1b sigraði á gólfi og á dýnu, Björk 2 sigraði á trampólíni.
Fullorðinsflokkur
Þar keppti einungis eitt lið en það var lið Keflavíkur og var því sigurvegari á öllum áhöldum.

Heimsóknir yfir 300 þúsund

19/11/06
JF

Fjöldi heimsókna á fimleikar.is er nú kominn yfir 300 þúsund. Á sama tíma og ykkur er þakkað fyrir að heimsækja síðuna reglulega þá vekjum við athygli á því að ykkur er öllum velkomið að senda til okkar fréttir og myndir um það sem er að gerast í fimleikunum um allt land.


Fimleikar og Fréttablaðið

Grein birt í Morgunblaðinu þann 13/11/2006
18/11/06
HMM

Þegar ég opnaði Fréttablaðið í morgun var þar enn ein greinin um fimleikafélagið Björk og meintar ásakanir um ofbeldi þjálfara þar. Ertu ekki að grínast, hugsaði ég, hvað endist þetta lengi? Ekki svo að skilja að mér finnist þetta léttvægar ásakanir, ofbeldi af þessu tagi er gríðarlega alvarlegt. Hins vegar finnst mér hegðun fjölmiðla með ólíkindum. Ég það er sagt að engar fréttir séu góðar fréttir og góðar fréttir engar fréttir en fyrr má nú vera. Sérstaklega finnst mér Fréttablaðið hafa brugðist í þessu. Reynum nú að koma þessu sundurlausa hjali mínu í samhengi.
Meira


Tilkynning frá Fimleikadeild Ármanns

14/11/06
AB

Vegna Aðventumóts Ármanns 2006
Fimleikadeild Ármanns þykir leitt að tilkynna að fella verður niður hið árlega Aðventumót Ármanns sem halda átti dagana 25. og 26. nóvember komandi.
Fimleikastigi FSÍ sem keppa átti í er því miður ekki tilbúinn til notkunnar en samkvæmt upplýsingum frá tækninefnd kvenna er vinna við hann samkvæmt áætlun.
Fimleikadeild Ármanns vill jafnframt þakka tækninefnd kvenna fyrir óeigingjörn störf sín í þágu fimleikahreyfingarinnar og sýnir starfsemi nefndarinnar fullan skilning og traust varðandi þá vinnu sem fyrirliggur við gerð fimleikastigans.
Fimleikadeild Ármanns biðst velvirðingar á afboðun Aðventumótsins í ár en óskar um leið keppendum, þjálfurum og dómurum farsældar á komandi keppnistímabili.
Fimleikadeild Ármanns
Axel Bragason yfirþjálfari


Myndbönd frá HM

7/11/06
JF


Við erum á réttri leið

7/11/06
JF

Besti árangur í hópfimleikum hingað til
Árangur á Evrópumótinu í hópfimleikum er besti árangur sem Ísland hefur náð hingað til í hópfimleikum þar sem keppt er í dýnustökki, trampolíni og dansi með fimleikaæfingum. Fyrir mótið var markmið að komast í 6 liða úrslit þrátt fyrir að vissulega hafi verðlaunasæti ávallt verið haft í huga eftir góðan árangur Stjörnunnar á síðasta móti þar sem stúlkurnar urðu í 4. sæti. Niðurstaðan að verða í 2. sæti er stórsigur. Sýnir þessi árangur m.a. að fimleikar á Íslandi er stundaðir af mikilli fagmennsku þar sem öllu því besta er til tjaldað. Þjálfarar hópsins eru fagmenn á sínum sviðum og stúlkurnar taka íþróttinni alvarlega. Aðstaðan sem hópurinn æfir við að Versölum í Kópavogi er á heimsmælikvarða.


Hörð samkeppni
Sjá nánar hér


Frá fræðslunefnd

7/11/06
GÞB

Fræðslunefnd vill minna á áður auglýst námskeið 2A sem fram fer helgina 11 – 12 nóvember næstkomandi. Enn eru örfá sæti laus á námskeiðinu og er áhugasömum bent á að hafa samband við skrifstofu FSÍ í netfangið fsi@isisport.is eða í síma 514 4060 fyrir föstudag.
Í bóklegum hluta er kennsluefni þrekþjálfun í fimleikum, teygjuæfingar, stökk á bretti og skrúfur. Í verklegum hluta verður farið í framhaldsæfingar á trampólíni, dýnu, stökki og á rá.
Kennarar á námskeiðinu verða: Christian Vilpola, Guðmundur Þór Brynjólfsson og Hlín Bjarnadóttir


Bjarka óskað til hamingju

7/11/06
AM/ JF

Í gær mánudag fóru Kristján Erlendsson formaður FSÍ og Anna R. Möller framkvæmdastjóri FSÍ í heimsókn í Íþróttahús Ármanns þar sem Bjarka Ásgeirssyni og þjálfara hans Birni M. Tómassyni voru afhent blóm í tilefni af glæsilegum árangri Bjarka á Norðurlandamóti drengja 13 - 18 ára sem fram fór í Stokkhólmi nýlega.

Eins og áður hefur komið fram náði Bjarki glæsilegum árangri á mótinu en hann varð í 2. sæti í fjölþraut, í úrslitum á áhöldum varð hann í 1. sæti á bogahesti, í 2. sæti á gólfi, hringjum, stökki og tvíslá.


Forseti ÍSÍ sendir hamingjuóskir

5/11/06
JF

Ólafur Rafnsson, Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), hefur sent Fimleikasambandi Íslands og Íþróttafélaginu Gerplu hamingjuóskir með árangur stúlknanna í hópfimleikum sem tryggðu sér annað sæti á Evrópumóti nú um helgina sem er sannarlega frábær árangur að mati Forseta Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.


Forseti ÍSÍ ræðir um sterka stöðu fimleika
-
Heimsókn í Gerplu

5/11/06
JF

Ólafur Rafnsson, Forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) ásamt Kristjáni Erlendssyni formanni Fimleikasambands Íslands var boðið í opinbera heimsókn í Íþróttafélagið Gerplu í Kópavogi þann 26. október.
Var Ólafi Rafnssyni kynnt starfssemi Gerplu. Við sama tækifæri tók hann þátt í því að afhenda viðurkenningar til fulltrúa félagsins á Heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum í
Århus í Danmörku og þátttakendum félagsins á Special Olympics sem fram fór í byrjun október. Ávarpaði Ólafur iðkendur og ræddi svo við nokkra þeirra í salnum.
Staða fimleika á Íslandi var svo rædd á fundi þar sem Ólafur Rafnsson sagðist verða var við sterka stöðu greinarinnar auk þess sem hann hrósaði m.a. sérstaklega FSÍ fyrir öflugt fræðslustarf sem hann kvað vera eitt það öflugasta sem þekktist innan íþróttahreyfingarinnar. Fjölmörg önnur mál voru rædd á góðum fundi sem stjórn félagsins og þjálfarar voru ánægðir með.


Ólafur Rafnsson, Forseti Íþróta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) ávarpaði iðkendur félagsins á þessum ágæta fimmtudegi 26. okt en í salnum á þeim tíma voru um 240 iðkendur. Tók hann þátt í að veita viðurkenningar ásamt því að ræða við ýmsa iðkendur og einnig sérstakan gest félagsins á þessum degi sem var Guillermo Alvarez landsliðsmaður USA í áhaldsfimleikum og John Roethlisberger talsmaður landsliðsins og fulltrú USA á þrennum Ólympíuleikum.

Að fundi loknum var Ólafi Rafnssyni svo boðið að fylgjast með æfingamóti þar sem keppendur félagsins á Evrópumótinu í hópfimleikum sýndu honum æfingar sínar. Sömu æfingar og hafa nú tryggt þeim silfurverðlaun á Evrópumótinu sem fram fór um helgina.


Gerpla í 2. sæti í úrslitum
-
Evrópumót í hópfimleikum

4/11/06
JF

Stúlkurnar úr Íþróttafélaginu Gerplu í Kópavogi höfnuðu í 2. sæti í úrslitum á Evrópumótinu í hópfimleikum sem var að ljúka rétt í þessu. Um er að ræða glæsilegan árangur sem ekki á sér hliðstæðu í sögu fimleika á Íslandi.


Stúlkurnar á síðustu æfingunni fyrir mótið.

Eins og Björn Björnsson einn af þjálfurum stúlknanna sagði eftir undanúrslitin að þá hafi hér fyrst og fremst verið um að ræða sigur liðsheildarinnar. Mikil gleði ríkir nú hjá stúlkunum.

Í fyrsta sæti varð Stockholm Top Gymnastics (SWE) með 26,15 stig. Gerpla í öðru sæti með 25,25 stig og Slagelse GF (DEN) með 25,1 stig.

Í samtali við Kim Fischer, rétt í þann mund sem verðlaunaafhending var að byrja, sagði hann að hann væri að rifna úr stolti yfir frammistöðu stúlknanna enda væri árangur þeirra hreint út sagt ótrúlegur. Sérstaklega þegar haft væri í huga að á íslandi stunda um 7.000 iðkendur fimleika en á þessu móti væru stúlkurnar að keppa á móti þjóðum þar sem iðkendafjöldi væri margfallt margfallt hærri en á Íslandi. Enginn hefði trúað þessu fyrir mótið en niðurstaðan liggur fyrir sagði Kim rétt í þessu þegar silfurverðlaunin eru sett um hálsin á stúlkunum. Verðlaun sem þær munu allar varðveita vel og lengi.

Stúlkurnar sem skipa hóp Gerplu eru þær: Auður Ólafsdóttir, Ásdís Dagmar Þorsteinsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Gury Andersson, Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir, Inam Rakel Yasin, Íris Mist Magnúsdóttir, Íris Svavarsdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir, Kolbrún Sveinsdóttir, Magdalena Rós Guðnadóttir, Rut Valgeirsdóttir, Sara Rut Ágústsdóttir, Soffía Bergsdóttir, Sólveig Jónsdóttir, Svava Björg Örlygsdóttir og Þórunn Arnardóttir.

Þjálfarar Gerplu eru þau Ása Inga Þorsteinsdóttir, Björn Björnsson, Dorthe Camilla Jensen, Kim Per Hauberg Fischer og Michel Christensen en þau eru öll stödd í Ostrava í Tékklandi með hópnum.

Heimasíða Evrópumótsins er: http://www.teamgym06.cz
Úrslit hér: http://eng.teamgym06.cz/downloads/results/womens/

Við vinnslu á frétt um mótið þá eru eftirtaldir aðila staddir á mótinu með símann opinn:
Björn Björnsson (þjálfari): 856-7132
Anna Möller (framkvæmdastjóri FSÍ): 898-8168
Auður Inga Þorsteinsdóttir (dómari): 861-8990


Gerpla í 2. sæti í undanúrslitum
-
Evrópumót í hópfimleikum

3/11/06
JF

Undanúrslit á Evrópumótinu í hópfimleikum fór fram í Ostrava í Tékklandi núna þar sem stúlknasveit Gerplu hafnaði í 2. sæti af 22 liðum og tryggði sér þar með rétt til þátttöku í úrslitum sem fram fer á morgun (laugardaginn 4. nóvember) þar sem keppt verður um Evrópumeistaratitil í hópfimleikum.
Sterkt lið Stockholm Top Gymnastics frá Svíþjóð varð efst með 25,6 stig en þessi hópur hefur borið höfuð og herðar yfir önnur lið í hópfimleikum kvenna á undanförnu. Gerpla var með 25,5 stig og annað lið frá LIMG Svíþjóð varð í þriðja sæti með 24,6. Stúlknasveit Gróttu varð í 8. sæti.
Segja má að lið Gerplu og Stockholm Top Gymnastics hafi verið í ákveðnum sérflokki á mótinu en að ssögn Björns Björnssonar, eins af þjálfurum hópsins frá Gerplu, hafi hér verið um að ræða ótvíræðan sigur liðsheildarinnar en mikil og góð stemming er í hópnum. Að baki sé langur undirbúningur. Hópurinn hefur sýnt stöðugar framfarir á undanförnu þar sem stúlkurnar hafa bætt sig jafnt og þétt. Að hans sögn er ætlunin að hápunktinum verði náð á morgun og eru allir í hópnum mjög spenntir og tilbúnir fyrir morgundaginn. Nú er bara að sjá hvort að hópnum takist að landa Evrópumeistaratitli í hópfimleikum.
Mikill heiður var fyrir Auði Ingu Þorsteinsdóttur að gegna stöðu yfirdómara í keppni karla á mótinu. Auður sagði að áhugavert væri að fylgjast með dómgæslu því sú óvanalega staða kom upp að enginn dómari frá Norðurlöndunum var dregin út til að dæma æfingar í dansi sem gæti haft einhver áhrif þar sem dansarnir eru mjög mismunandi á milli landa og það sérstaklega hinn norrænni blær sem ekki allir eru jafn hrifnir af.


Evrópumót í hópfimleikum
- Gerpla og Gróttu taka þátt –

2/11/06
AM
Evrópumót í hópfimleikum er haldið í Ostrava í Tékklandi núna 2. - 5. nóvember.
Lið Gerplu og Gróttu munu taka þátt í mótinu. Þrír dómarar dæma á mótinu er það eru þær: Auður Inga Þorsteinsdóttir, Gyða Kristmannsdóttir og Sigríður Ósk Harðardóttir.
Keppnin hefst föstudaginn 3. nóvember með forkeppni en síðan keppt til úrslita á laugardag en 6 lið komast í úrslit í hverjum flokki. Keppt er í kvenna, karla og blönduðum liðum. Ljóst er að keppnin verður hörð og spennandi.



Allar myndir © www.fimleikar.is
Heimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.