Fyrsta skóflustungan að nýju Ármannshúsi
- verður stórglæsilegt fimleikahús -

29/11/05

Í dag (29. nóv.) tók borgarstjórinn í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, ásamt einum fulltúa frá Ármanni og einum frá Þrótti, fyrstu skóflustunguna að nýju Ármannshúsi. Húsið á að rísa austan við núverandi Félagshús Þróttar í Laugardalnum. Húsið verður 2900 m2 og allt hið glæsilegasta. Á efri hæðinni verður 1700 m2 fimleikasalur (með áhorfendasvæði) þar sem verða gryfjur, uppsett áhaldagólf og annað uppsett trompgólf og önnur áhöld fyrir fimleika.

Á neðri hæðinni verða þrír salir með áhorfendarými fyrir bardagaíþróttirnar (glímu, júdó og taikwondo). Milli núverandi Félagshúss Þróttar og íþrótasalanna í nýja Ármannshúsinu verður tengibygging á þrem hæðum þar sem verður inngangur, búningsaðstaða, skrifstofur o.fl.
Reykjavíkurborg hefur samið við ÍAV um að þeir sjái um byggingu nýja Ármannshússins í Laugardal. Áætlað er að hefja jarðvegsframkvæmdir fyrir áramót. Uppsláttur fyrir sökklum gæti þá hafist strax í janúar. Ef veturinn verður mildur þannig að hægt verður að steypa í janúar og febrúar er raunhæft að búast við því að nýja húsið verði tilbúið um mánaðarmótin ágúst/september á næsta ári. Ef hins vegar íslenski veturinn verður kaldari en verið hefur undanfarin ár þá gæti það dregist um einhverja mánuði að húsið yrði fullbúið, en þó ekki fram yfir áramótin 2006/7. ÍAV fær Ármannshúsið við Sóltún afhent þegar nýja Ármannshúsið í Laugardalnum er fullbúið. Starfsemi fimleikadeildar Ármanns sem nú er í Sóltúninu verður þar þangað til.
Í nýja húsinu fær fimleikadeild Ármanns sal sem er helmingi stærri salurinn í Sóltúninu.

Teikning nr. 2
Teikning nr. 3

Aðventumót Ármanns
27/11/05

Aðventumóti fimleikadeildar Ármanns fór fram núna um helgina. Alls voru rúmlega 240 stúlkur frá fimleikadeildum á Reykjavíkursvæðinu, frá Keflavík, Vestmannaeyjum og Akureyri skráðar til leiks. Keppt var í 4., 5. og 6. þrepi íslenska fimleikastigans. Mótið var aldursflokkaskipt. Einnig var keppendum skipt í flokka eftir árangri á mótum FSÍ. Á mótinu mátti sjá mörg glæsileg tilþrif og ljóst að fimleikar eiga bjarta framtíð á Íslandi ef þessar ungu stúlkur halda áfram að æfa sig af sama kappi og þær hafa augljóslega gert að undanförnu. Fimleikadeild Ármanns þakkar keppendum, þjálfurum og dómurum kærlega fyrir þátttökuna. Upplýsingar einnig hér.


HM í Ástralíu
23/11/05

Rúnar Alexandersson og Viktor Kristmannsson hafa lokið keppni í fjölþraut á HM í Ástralíu. Viktor hafnaði í 42. sæti með 47,174 stig þrátt fyrir tvenn föll í gólfæfingum og fall á bogahesti. Árangur hans á mótinu sýnir að hann á fullt erindi í að halda áfram undirbúningi sínum fyrir þátttöku á Olympíuleikunum 2008. Rúnar keppti á bogahesti en var með fall og fékk 8,6 stig.
Nánari upplýsingar um mótið má sjá á neðangreindum heimasíðum:
www.gymnastics.org.au/2005worlds
www.intlgymnast.com

www.eurosport.com


Björk, Gerpla og Selfoss sigra á
Haustmóti í hópfimleikum 2005

22/11/05

Á Haustmóti FSÍ í hópfimleikum var keppt í þremur aldursflokkum. Í yngri flokk sigraði Selfoss, í mið flokk sigraði Gerpla og í eldri flokk sigraði Björk. Yfir tvöhundruð iðkendur frá 9 fimleikafélögum tóku þátt á mótinu sem er fyrsta hópfimleikamót vetrarins. Mótið lofar góðu um hvernig keppnistímabilið mun verða og er ljóst að í verður það spennandi í öllum aldurshópum. Er það mjög ánægjulegt og má því segja að uppbyggingarstarf undanfarinna ára í hópfimleikum sé nú að skila sér í mörgum mjög frambærilegum keppnishópum. Norðurlandamót Juniora fer fram nú í vor, en elsti aldurshópurinn er að vinna að því að öðlast þátttökurétt á Evrópumóti í sem fer fram næsta haust í Tékklandi. Verður spennandi að sjá hvaða félög muni öðlast keppnisrétt á mótunum.
Úrslit mótsins má sjá hér.



Hugleiðingar um Hópfimleika
Hugleiðingar frá
Marin Þrastardóttur
22/11/05

Kæru fimleikafélgara
Það er augljóst að það er mikil gróska í fimleikaheiminum á Íslandi. Eftir fyrsta trompmót vetrarins má sjá að keppni í bæði mið og eldri hópum verður jöfn og spennandi á þessu tímabili. Um helgina sýndu mörg lið og einstaklingar frábæra takta og fannst mér afar skemmtilegt að sjá fullt af nýjum andlitum í liðunum. Það var líka gaman að sjá hversu margar efnilegar stelpur eru að koma upp í öllum flokkum og vil ég þar sérstaklega nefna ungt og efnilegt lið Gróttu sem kom gríðarlega sterkt til leiks. Augljóst að þetta lið á eftir að láta mikið af sér kveða í framtíðinni. Eins og allir vita sem viðstaddir voru urðu þau leiðinlegu mistök við verðlaunaafhendingu að vitlaust lið var tilkynnt sem sigurvegari. Lið Gróttu var kallað fram á pallinn og afhent gullverðlaun sem síðan voru svo tekin af þeim og okkur í Björk afhent þau eftir mótslok. Það ömurlegt að þurfa að horfa upp á svona hluti gerast. Maður kemst ekki hjá því að hugsa hvað þetta hefði verið leiðinlegt ef ég hefði lent í sömu sporum. Ég vona innilega að þetta hafi ekki haft slæm áhrif enda hlakka ég mikið til að sjá meira frá þessu liði í vetur. Verður gaman að hafa harða keppni eftir yfirburðarsigra liðs Stjörnunnar síðustu tvö keppnistímabil. Þetta hleypir meiri spennu í mótin og setur meiri pressu á liðin að standa sig. Það ýtir einnig undir þróun og framfarir sem eru svo sannarlega nauðsynlegar til að halda sportinu gangandi. Semsagt spennandi vetur framundan í trompheiminum.
Meira hér.



Af gefnu tilefni
22/11/05

www.fimleikar.is hefur ekki verið uppfærð síðan á fimmtudaginn í síðustu viku þar sem "sjálfboðaliðinn" sem heldur síðunni úti hefur verið erlendis í fríi. Þann 17.11 var sett inn tilkynning um að síðan yrði næst uppfærð þann 22.11 (þ.e.a.s. þegar "sjálfboðaliðinn" kæmi úr fríi). Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa ollið. Hingað til sem hér eftir er tekið fagnandi á móti allri aðstoð við að uppfæra síðuna.


Fréttir frá FIG
17/11/05



Fréttir frá FIG
12/11/05


Haustmót í hópfimleikum 2005
12/11/05

Skipulag mótsins má sjá hér.


Aðventumót Ármanns 2005
9/11/05

Fimleikadeild Ármanns býður til Aðventumóts laugardaginn 26.nóvember eftir hádegi og sunnudaginn 27.nóvember í Ármannsheimilinu Sóltúni 16, Reykjavík. Keppt verður í 6. þrepi, 5. þrepi og 4 þrepi.
Keppninni verður skipt í eftirfarandi flokka:
“A” 4. og 5. þrep: Þær sem eru búnar að ná 30 stigum á FSÍ móti
“B” 4. og 5. þrep: þær sem eru ekki búnar að ná 30 stigum á FSÍ móti.
“C” 6. þrep
Skipt verður í aldursflokka.
Veitt verða sérstök verðlaun fyrir 1-3 sæti, en að auki fá allir þátttakendur verðlaunapeninga.
Þátttökutilkynningar skulu berast í síðasta lagi 18. nóvember í síma: 820 28 51 eða netfang: izland@hn.is
Mótsgjald er 1000 kr á hvern keppanda og skal staðgreiðast í Ármannsheimilinu fyrir keppni. Hvert félag þarf að útvega einn dómara fyrir hverja 5 keppendur till þess að dæma á mótinu.
Skipulag mótsins verður sent 21.nóvember.
Demény Zoltán


Umfjöllun um Aðventumót Ármanns:

2004


2003


2002


Haustmót 2005
- Gutti skrifar um frjálsar æfingar karla -
Hugleiðingar frá
Guðjóni Guðmundssyni

8/11/05
Það var gaman að fylgjast með strákunum í frjálsum æfingum á Haustmótinu liðna helgi og greinilegt að ýmsir góðir hlutir eru í gangi. Það vantaði þó flestar ‘kanónurnar’ í bransanum ef svo má segja en þátttakendur voru 8, þar af aðeins einn frá Ármanni, hinir úr Gerplu.
Lesa meira




Gerpla sigursælast á Haustmóti
með 20 gullverðlaun af 30

6 /11/05
Fyrsta FSÍ mót vetrarins fór fram um helgina. Keppt var í frjálsum æfingum og skylduæfingum. Íþróttafélagið Gerpla í Kópavogi var sigursælast í skylduæfingum en keppt var í 16 flokkum og sigruðu iðkendur frá Gerplu í 7 flokkum. Iðkendur frá Ármann, Björk, Grótta og Keflavík siguðu í 2 flokkum hvert félag og iðkendur frá Fylki sigruðu í einum flokki (keppt var í 4 flokkum hjá piltum og 12 flokkum hjá stúlkum). Í frjálsum æfingum voru veitt verðlaun fyrir fyrstu sætin á hverju áhaldi í yngir og eldri flokk stúlkna og einum flokk pilta eða samtals 14 gullverðlaun. Aftur voru iðkendur frá Íþróttafélaginu Gerplu sigursælastir í frjálsum æfingum með sigri á 13 áhöldum en Ármann sigraði á 1 áhaldi. Gerpa var því sigursælast á mótin með 20 gullverðlaun af 30.

Í meðfylgjandi skjali má sjá úrslit í öllum flokkum Haustmótsins, sjá hér.
Myndir frá mótinu má sjá hér.

Umfjöllun um Haustmót 2004
Umfjöllun um Haustmót 2003


Kristjana Sæunn Ólafsdóttir í æfingum á slá en hún sigraði í á öllum áhöldum í sínum flokki. Ný æfing á stökki færði henni 9 í einkunn sem er líklega ein hæsta einkunn sem gefin hefur verið á FSÍ móti í frjálsum æfingum á stökki m.v. núverandi reglur.

Efstu iðkendur í hverju þrepi:
2. þrep karla
3. þrep pilta 10 - 12 ára
4. þrep pilta 9 - 10 ára
4. þrep 11 ára og eldri
1. þrep stúlkna
2. þrep stúlkna 10 - 12 ára
2. þrep stúlkna 13 ára og eldri
3. þrepstúlkna 9 - 10 ára
3. þrep stúlkna 11 - 12 ára
3. þrep stúlkna 13 ára og eldri
4. þrep stúlkna 9 - 10 ára
4. þrep stúlkna 11 - 12 ára
4. þrep stúlkna 13 ára og eldri
5. þrep stúlkna 9 ára
5. þrep stúlkna 10 ára
5. þrep stúlkna 11 ára og eldri

Ármann
Gerpla
Björk
Gerpla
Gerpla
Grótta
Fylkir
Ármann
Gerpla
Björk
Grótta
Keflavík
Keflavík
Gerpla
Gerpla
Gerpla

Víðir Helgi Helgason
Andri Ívarsson
Kristófer Óskarsson
Hafþór Eggertsson
Thelma Rut Hermannsdóttir
Ingunn Ósk Erlendsdóttir
Sigrún Dís Tryggvadóttir
Ingunn Haraldsdóttir
Linda Björk Arnadóttir
Heiðdís Anna Lúðvíksdóttir
Helga Kristín Einarsdóttir
Eva Rós Guðmundsdóttir
Berglind B. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg Loftsdóttir
Kristbjörg Eva Hreinsdóttir
Andrea Valdimarsdóttir

55,950
55,250
57,900
56,700
35,035
32,049
30,984
28,100
33,300
35,000
36,280
34,400
33,850
35,700
33,800
33,700



Efstir á hverju áhaldi
Frjálsar æfingar
Róbert Kristmannsson
Gunnar Sigurðsson
Frjálsar (eldri)
Margrét Hulda Karlsd.
Frjálsar (yngri)
Kristjana S. Ólafsd.

Félag

Gerpla
Áramnn

Gerpla

Gerpla
Piltar
Gólf
7,66

Stökk
7,667

9

Bogi
7,6

Tvíslá
6,684

7,667

Hringir
7,05

Slá
7,123

7,8

Stökk

8,4
Gólf
7,567

8,5

Tvíslá
7,2


Svifrá
6,4


Yfir 200 þúsund heimsóknir inn á fimleikar.is
- vefmæling http://www.webstats4u.com -



5 /11/05
Heimasíðan www.fimleikar.is hefur fest sig í sessi meðal fimleikafólks. Síðan vefmælingar hófust hefur síðan fengið yfir 200 þúsund heimsóknir en á hverjum degi eru þær nú um 250, sjá nánar hér (21/12/02 - 4/11/05).
Mikil samkeppni ríkir á milli íþróttagreina um athygli fjölmiðla. Umfjöllun um fimleika í fjölmiðlum er ekki í neinu samræmi við vinsældir íþróttarinnar. Sú staðreynd hvetur okkur aðeins áfram til að gera enn betur í að koma íþróttinni á framfæri og er það markmið aðstandenda www.fimleikar.is Síðan 17. júní 2002 hafa fréttir um fimleika verið birtar á síðunni fyrir þá sem hafa áhuga á greininni.
Tilkynningar og fréttir sem ætlaðar eru fimleikafólki komast vel til skila birtast þær á síðunni. Eru gestir síðunnar og allt fimleikafólk hvatt til að senda tölvupóst á fimleikar@fimleikar.is til að koma upplýsingum á framfæri. Allar ábendingar eru vel þegnar og takk fyrir góðar viðtökur.

Fimleikasýning í íþróttahúsinu Smáranum í Kópavogi
- FSÍ -



2/11/05
Á laugardaginn kl. 14.00 verður Fimleikasýning í Íþróttahúsinu Smáranum í Kópavog þar sem Kanaríeyjafarar Fimleikasambandsins munu hafa prufusýningu. Þann 18. nóvember n.k. halda 190 “Heldri borgarar” áleiðis til Kanaríeyja þar sem þeir munu taka þátt í “Golden Age 50+ 2005” en þetta er fyrsta hátíð sinnar tegundar haldin á vegum Fimleikasambands Evrópu. Þetta er alveg ótrúlega hresst fólk á aldringum 60+ – 80+ frá Reykjavík, Garðabæ, Kópavogi og úr Reykjanesbæ. Fólk sem æfir núna baki brotnu til þess að vera með sem best sýningaratriðin.
Við hjá FSÍ vonumst auðvitað til að þetta muni skila sér í mun öflugra íþróttastarfi hjá þessum hóp þegar hann kemur til baka enda er mikið af alls konar námskeiðum og kynningum sem fólkið getur tekið þátt í úti.



Allar myndir © www.fimleikar.is
Heimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.