|
|
|
| |
Dýri í
toppformi
- sennilega aldrei verið betri -
|
|
30/11/04 |
Dýri
Kristjánsson úr Gerplu æfir og keppir í
Bandaríkjunum í ár eins og hann hefur gert
undanfarin ár þar sem hann er í námi
í viðskiptafræði. Nú fyrir stuttu
voru meðfylgjandi myndir teknar af honum í keppni á
tvíslá, bogahesti og svifrá. Glögglega
má sjá að hann er í mjög góðu
formi.
Bogahestur hér
Tvíslá hér
Svifrá hér |
Mikilvægt
er fyrir fimleikakennara og iðkendur að þekkja reglur
Íslenska fimleikastigans. Það getur einnig verið
áhugavert fyrir foreldra að kynna sér eftir
hverju er dæmt og hvaða gildi æfingarnar hafa.
Tækninefnd kvenna hefur birt opinberlega Íslandska
fimleikastigann og má nálgast hann hér.
Ýmsar reglur aðrar upplýsingar má finna
á www.fimleikar.is/fsi |
| Formannafundur
FSÍ sem fyrirhugaður var núna um mánaðarmótin
er frestað til laugardagins 15. janúar. Vinsamlega
takið daginn frá. Dagskrá verður send út
þegar nær dregur. |
| |
Aðventumót
Ármanns
- nauðsynlegt mót á haustinn
sem vel er staðið að -
|
|
28/11/04 |
| |
Hið
árlega Aðventumót Ármanns fór
fram nú um helgina. Á fimleikar.is var fyrst fjallað
um Aðventumótið árið 2002 (úrslit
2002 hér og 2003 hér),
og er óhætt að segja að þetta árlega
mót hafi vaxið mikið á undanförnum
árum. Mótið fór vel fram og er óhætt
að hrósa stjórnarfólki, þjálfurum
og öðrum sjálfboðaliðum hjá félaginu
sérstaklega fyrir að halda þessu móti
út. Greinilegt var að vandað hefur verið til
alls undirbúnings því mótið gekk
vel fyrir sig.
Úrslit mótsins hér.
Umfjöllun um mótið á www.armenningar.is |
|
Hér
að ofan má sjá Agnesi Davíðsdóttir
(7ára) úr Ármanni en þess má
geta að faðir hennar, Davíð Ingason, var margfaldur
Íslandsmeistari í fimleikum auk þess að
afi hennar, Ingi Sigurðsson
á einnig glæsilegan feril að baki. Það
verður spennandi að fylgjast með Agnesi á næstu
árum en það er ljóst að afi hennar
mun örugglega gera það en Ingi var mættur
eldsnemma á sunnudagsmorgun til að fylgjast með
henni á sínu fyrsta móti. |
|
|
Elsa
Jónsdóttir (7ára) úr Gerplu í
æfingum á slá. Margir iðkendur taka þátt
á sínu fyrsta fimleikamóti á félagamóti
eins og Aðventumóti Ármanns. Á það
við um Elsu en á myndinni er hún á sínu
fyrsta áhaldi í keppi í fimleikum en hún
var mjög ánægð með silfurverðlaun
sem hún fékk. Fyrir áhugasama þá
er Elsa dóttir Jóns Finnbogasonar sem heldur úti
heimasíðunni fimleikar.is og Lindu Bjarkar Logadóttur
en þau æfðu bæði fimleika í Gerplu
til margra ára. |
| |
Fjölmenn
og glæsileg jólasýning
hjá Stjörnunni
|
|
28/11/04 |

Eins og sjá má á þessari mynd þá
er einbeitingin alveg í hámarki enda spennandi að
fikra sig áfram á bekk sem er í nærri
tveggja metra hæð. |
Hin
árlega jólasýning Stjörnunnar fór
fram á laugardaginn og eins og venja er þá
var húsfyllir í Ásgarði og þurftu
margir að leggja bílum langt frá Íþróttahúsinu.
Sjá mátti mikið af ungum krökkum og er
ljóst að mikil gróska er í starfi fimleikadeildarinnar
um þessar mundir. Að sögn Þóru Margrétar,
í stjórn fimleikadeildarinnar, þá hefur
átt sér stað mikil fjölgun í yngsta
aldurshópnum og á það bæði við
um stráka og stelpur. Tólf sýningaratriði
komu fram á sýningunni. |
 |
| |
Hamingjuóskir
til landsliðsstúlkna
|
|
27/11/04 |
| Eftir
frábæra frammistöðu á Norður-Evrópumótinu
þá var vel tekið á móti landsliðstúlkum
í Gróttu en landsliðið náði 2.
sæti á mótinu og Sif Pálsdóttir
hafnaði í 2. sæti í fjölþraut.
Stjórn Fimleikadeildar Gróttu óskar öllu
landsliðfólki til hamingju með frábæran
árangur á mótinu. |

Frá vinstri: Ásdís Pétursdóttir,
Sif Pálsdóttir, Harpa Snædís Hauksdóttir
og Hera Jóhannesdóttir. |
Áhaldafimleikar:
|
Fjölmennt
mót í almennum fimleikum
- 185 þátttakendur frá 15 félögum
-
|
|
|
| Íslandsmót
í almennum fimleikum í 1. þrep fór
fram í Íþróttahúsi Fylkis um
helgina. Mótið var fjölmennt en þátttakendur
voru um 185 á aldrinum 10 - 15 ára frá 15
félögum víðs vegar að af landinu. Í
10 ára flokki sigraði Elísa Svala Elvarsdóttir
úr FIMA, í öður sæti varð Lára
Kristín Petersen úr Aftureldingu og í þriðja
sæti varð Hjördís Ásta Guðmundsdóttir
úr Gerplu. Í 11 ára flokki sigraði Anna
Soffía Rósdal úr Gróttu, í
öðru sæti varð Halla Dröfn Jónsdóttir
úr Rán og í þriðja sæti varð
Heiðrún Sara Guðmundsdóttir úr FIMA.
Í 12 ára flokki sigraði Margrét Óska
Víðisdóttir úr FRA og í öðru
sæti varð Auður Elísabet Baldursdóttir
úr Gerplu og í þriðja sæti varð
Lára Ásgeirsdóttir úr Gerplu. Í
13 ára flokki sigraði Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir
úr FRA og í örðu sæti varð Hildur
Ýr Kristinsdóttir og í þriðja sæti
varð Hólmfríður Ármannsdóttir
frá Keflavík. |

Glaðar stúlkur á Íslandsmótinu í
almennum fimleikum brosa breitt á milli áhalda. |
Í
flokki 14 ára og eldri sigraði Fjóla Björk
Gunnarsdóttir frá FRA, í öðru sæti
varð Kolbrún Stefánsdóttir frá
Rán og í þriðja sæti varð Sunna
Siggeirsdóttir frá Fylki. Öll úrslit
sama hér.
Úrslit í 10 ára flokk hér.
Úrslit í 11 ára flokk hér.
Úrslit í 12 ára flokk hér.
Úrslit í 13ára og eldri flokk
hér. |
Áhaldafimleikar:
|
Norður-Evrópumót:
stúlkurnar í 2. sæti í liðakeppni
Sif í 2. sæti í fjölþraut og
Sæunn í 1. sæti á stökki og gólfi
|
|
Annað
sæti í liðakeppni er frábær árangur
hjá kvennalandsliðinu og er ljóst að Sif
Pálsdóttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir,
Inga Rós Gunnarsdóttir, Harpa Snædís
Hauksdóttir hafa mætt sterkar til leiks enda hafna
þrjár fyrstnefndu allra í efstu 7. sætunum
í fjölþraut. Sif var efst og hafnaði í
2. sæti í fjölþraut sem er frábær
árangur hjá henni. Kristjana Sæunn sigraði
í úrslitum í gólfæfingum og
stökki og kemur því heim með tvo Norður-Evrópumeistaratitla.
Viktor Kristmannson náði bestum árangir í
karlaflokki með því að hafna í 3.
sæti á bæði bogahesti og tvíslá.
Árangur stúlknanna er mjög eftirtektarverður
þar sem þær fara upp um tvö sæti
á milli móta en þær höfnuðu
í 4. sæti á sama móti í fyrra.
Árangur keppendanna sem kepptu í úrslitum:
Sif Pálsdóttir varð í þriðja
sæti á slá með 7,40, fjóðra
sæti á gólfi með 7,475 og sjöunda
á tvíslá með 6,7 stig. Kristjana Sæunn
var einnig í öðru sæti á slá
með 7,6 stig og í sjötta sæti á tvíslá
með 7,05 stig. Harpa Snædís Haudsóttir
var í sjöunda sæti á stökki með
7,95 stig. Gunnar Sigurðsson var í sjötta sæti
á stökki með 8,0 stig. Róbert Kristmannsson
hafnaði í sjöunda sæti á bogahesti
með 7,75 stig í einkunn.
Tveir keppendur fóru á mótið en gátu
ekki keppt, annars vegar hún Hera Jóhannesdóttir
vegna veikinda og hins vegar Jónas Valgeirsson vegna meiðsla
í upphafi móts. Rúnar Alexandersson keppti
ekki á mótinu.
( sjá
úrslit laugardagsins hér). Sjá umfjöllun
um mótið í fyrra hér.
Heimasíða mótsins er hér.
Sjá einnig umfjöllun um mótið á
www.armenningar.is
og www.gerpla.is |
Félagsmál:
|
Stofnfundur
Fimleikafélags Akureyrar
|
|
|
Stofnfundur
Fimleikafélags Akureyrar var haldinn miðvikudaginn
17. nóv. s.l. í Félagsmiðstöð
Glerárskóla.
Það var sameiginleg ákvörðun Íþróttabandalags
Akureyrar og Fimleikaráðs Akureyrar að stofna
yrði sérstakt félag sem kæmi í
stað Fimleikaráðs Akureyrar sem hefur starfað
frá 1977.
Stofnfundurinn var fjölmennur. Fundarstjóri var
Sigfús Helgason og stýrði hann fundinum af
mikilli röggsemi, ritari var kjörinn Þórhildur
Þorhallsdóttir
Í upphafi rakti Fríða Pétursdóttir
formaður Fimleikaráðsins undirbúning að
stofnun félagsins en stjórn FRA ásamt Sigfús
Helgasyni vann að undirbúningi breytinganna m.a.
að því að útbúa lög
hins nýja félags. meira
hér
|
Frá stofnfundi Fimleikafélags Akureyrar |
Áhaldafimleikar:
|
|
Fréttatilkynning |
|
N-Evrópumót í fimleikum
fer fram í Nakskov í Danmörku 19. - 21. nóvember.
Ísland sendir tvö sterk lið á mótið.
Í kvennaliðinu eru: Harpa Snædís Hauksdóttir,
Hera Jóhannesdóttir og Sif Pálsdóttir
frá Gróttu, Inga Rós Gunnarsdóttir
og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir frá
Gerplu. Í karlaliðinu eru Anton Heiðar Þórólfsson,
Jónas Valgeirsson og Gunnar Sigurðsson frá
Ármanni og bræðurnir Róbert og Viktor
Kristmannssynir frá Gerplu. Þjálfarar verða
Ásdís B. Pétursdóttir, Vladimir
Antonov og Björn M. Tómasson og auk þeirra
fara Svetlana Makarycheva og Guðmundur Þór
Brynjólfsson sem dómarar. Á mótinu
keppa auk þeirra lið frá Svíþjóð,
Noregi, Danmörk, Færeyjum, Finnlandi, Skotlandi og
N-Írlandi og Írlandi.
|
Frá vinstri: Sif Pálsdóttir,
Ingá Rús Gunnarsdóttir, Vladimir Antonov,
Harpa Snædís Hauksdóttir, Kristjana Sæunn
Ólafsdóttir, Ásdís Pétursdóttir
og Hera Jóhannesdóttir. |
Félagsstörf:
|
Íslandsmót
í almennum fimleikum
|
|
|
Á laugardaginn 20. nóvember verður
haldið Íslandsmót í almennum fimleikum
1. þrep í Íþróttahúsi
Fylkis v/Fylkisveg í Árbæ. Þetta er
mót fyrir byrjendur í keppni í almennum
fimleikum. Keppendur er alls 185 á aldrinum 10 - 15 ára
frá 15 félögum víðs vegar að
af landinu. Fyrri hluti mótsins hefst kl. 09.25 en þar
eru keppendur 10 og 11 ára. Seinni hlutinn hefst kl.
13.55 og þar eru keppendur 12 ára og eldri.
|
Félagsstörf:
|
Viktor Kristmannsson
fær 60.000,- úthlutað
úr
Fimleikasjóð
Íslands
|
|
|
Viktor Kristmannsson fær úthlutað
kr. 60.000,- úr Fimleikasjóði Íslands.
Hann er núverandi Íslandsmeistari í áhaldafimleikum
karla og hefur verið í hópi bestu fimleikamanna
Íslands til margra ára. Óskað var eftir
umsóknum þann 1. nóvember sl. en að
þessu sinni barst sjóðnum aðeins ein umsókn.
Í tilefni af mjög góðri ávöxtun
á eignum sjóðsins var ákveðið
að auka úthlutun en ávöxtun hefur verið
um 33% það sem af er árinu.
Á árinu 2004 hefur sjóðurinn því
úthlutað kr. 200.000,- og er það tvöföldun
frá því í fyrra.
Árið 2003 var úthlutað styrkjum að
fjárhæð kr. 100.000,-
Árið 2002 var úthlutað styrkjum að
fjárhæð kr. 180.000,-
Árið 2000 var úthlutað styrkjum að
fjárhæð kr. 40.000,-
Samtals hefur því verið úthlutað
styrkjum að fjárhæð kr. 520.000,-
Fyrir hönd sjóðsins
Jón Finnbogason
|
Viktor Kristmannsson hefur verið einn af fremstu
fimleikamönnum Íslands í mörg ár.
|
Áhöld:
|
HSG tekur í notkun
nýja gryfju
- frábærir notkunarmöguleikar -
|
|
|
Þróun áhalda og annarra
tækja sem notuð eru í fimleikum hefur verið
mikil á undanförnum árum. Nýjar tegundir
af gryfjum hafa rutt sér til rúms og víða
komið algjörlega í stað gömlu svampgryfjanna
eða annarra gryfja sem eru óhreyfanlegar. Á
meðfylgjandi myndbandi má sjá mjög skýrum
hætti hvernig stákarnir í fimleikafélaginu
HSG í danmörku nota gryfjuna sem var verið að
setja upp hjá þeim. Sjá
myndband hér. Strákarnir gera ótrúlega
flott stökk sem allir hafa gaman af því að
skoða. Sjá heimasíðu félagsins
http://www.hsg.dk
Nánari upplýsingar í fimleikar@fimleikar.is
|
Félagsmál:
|
Til
þjálfara í áhaldafimleikum kvenna
|
Meira
hér
|
|
| Fimleikafélagið
Björk vill bjóða ykkur að taka þátt
í móti sem haldið er til heiðurs Mínervu
Jónsdóttur sem var ein af stofnendum Fimleikafélagsins
Björk. Mótið verður haldið í Íþróttamiðstöðinni
Björk sunnudaginn 17. APRÍL. Keppt er í liðakeppni
í 5. og 6. þrepi íslenska fimleikastigans.
Það eru sex í hverju liði og fimm efstu telja
til stiga á hverju áhaldi. Hvert félag má
senda fleiri en eitt lið og merkja þau sem lið A,
B, C o.s.frv. Senda á einn dómara með hverju
liði. Ef lið sendir ekki dómara verður það
að greiða 2000 krónur í dómarakostnað.
Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu liðin
í hvoru þrepi fyrir sig. Gefin verður sérstök
viðurkenning fyrir prúðasta liðið, í
því felst góð hegðun, umgengni, hvatning
til liðsmanna og snyrtimennska.Meira
|
| Haustmót
í hópfimleikum fór fram í Ásgarði
í Garðabæ á laugardaginn. Þátttakendur
voru í 18 liðum í þremur aldursflokkum
og skipust þau þannig niður að í yngir
flokk voru 7 lið, í mið flokk voru 8 lið og
í eldri voru 3 lið. Helstu niðurstöður
eru þær að í mið og eldri hóp
sigraði Gerpla og í yngri hóp sigraði Selfoss.
Sjá úrslit hér.
Mótið í fyrra hér.
Ánægjulegt er að sjá stöðuga
fjölgun í hópfimleikum en í fyrra tóku
15 lið þátt en nú eru þau 18. Er
það fjölgun upp á um 30 til 40 iðkendur.
Líkt og í nágrannalöndum okkar þá
er mikill vöxtur í fjölda iðkenda sem stunda
hópfimleika og má búast við því
að sú þróun haldi áfram á
næstu árum. |
|
Hópfimleikar:
|
Val á NM
seniora í hópfimleikum |
|
|
| Tækninefnd
í hópfimleikum hefur sent út tilkynningu
til þjálfara og aðstandenda eldri liða í
hópfimleikum keppnisárið 2004 – 2005.
Þar gerir nefndin grein fyrir því að við
val á NM seniora næsta vor
verður litið til til eftirfarandi þátta:
• Horft verður til mótanna
fram að bikarmóti 4.mars 2005.
• Ætlunin er að hafa 2 – 3 samæfingar
þar sem THF horfir á og metur.
• THF mun heimsækja félögin og fylgjast
með hvað á sér stað á æfingum.
Það eru því ekki
nein lágmörk til að komast á NM seniora
heldur heildarárangur í keppni og á æfingum
fram til 4. mars 2005.
|
Almennt:
|
fjórfölld
skrúfa eða hvað ..... |
|
|
| Settir
hafa verið inn nýjir linkar inn á linkasíðuna
(hér) en þar má
m.a. finna link inn á síðuna www.powertumbling.net/video.php
en þar er að finna myndband af fimleikamanni gera á
sýningu a.m.k. fjórfallda skrúfu eða
hvað .... teljið sjálf því ég
get ekki talið þetta almennilega. Sjá hér. |
Áhaldafimleikar:
|
Gerpla sigursælast
á Haustmóti
með 20 gullverðlaun af 35
|
Úrslit
hér |
|
| Fyrsta
FSÍ mót vetrarins fór fram um helgina. Keppt
var í frjálsum æfingum og skylduæfingum.
Íþróttafélagið Gerpla í
Kópavogi var sigursælast í skylduæfingum
en keppt var í 15 flokkum og sigruðu iðkendur frá
Gerplu í 11 flokkum. Iðkendur frá Björk
siguðu í 2 flokkum og iðkendur frá Ármanni
og Keflavík sigruðu í einum flokki hvort félag
(keppt var í 6 flokkum hjá piltum og 9 flokkum hjá
stúlkum). Í frjálsum æfingum voru veitt
verðlaun fyrir fyrstu sætin á hverju áhaldi
í yngir og eldri flokk pilta og stúlkna eða
samtals 20 gullverðlaun. Aftur voru iðkendur frá
Íþróttafélaginu Gerplu sigursælastir
í frjálsum æfingum með sigri á
9 áhöldum en Grótta sigraði á 6
áhöldum og Ármann á 5 áhöldum.
Gerpa var því sigursælast á mótin
með 20 gullverðlaun af 35.
Í meðfylgjandi skjali má sjá úrslit
í öllum flokkum Haustmótsins ásamt því
að bera saman við Haustmót 2003 og 2002. Sjá
hér.
Myndir frá mótinu: Frjálsar
æfingar hér, skylduæfingar
fyrri hluti hér og skyldu
æfingar seinni hlut hér. |
Áhaldafimleikar:
|
Fjölmennt
Haustmót
- lofar góðu fyrir veturinn - |
Myndir
hér |
|
Áhaldafimleikar:
|
Rakel gerir langkipp
í fyrsta skiptið á Haustmóti |
Myndir
hér |
|
| 
Einbeiting í upphaf erfiðrar æfingar
sem tókst fullkomlega í fyrsta skiptið.
|
Rakel
Tómasdóttir úr Gerplu gerði langkipp
í fyrsta skiptið á Haustmótinu sem fram
fór um helgina. Allir fimleikamenn þekkja hversu
erfiðlega getur verið að ná þessum áfanga.
Sólveig Jónsdóttir þjálfari
Rakelar tók því vel á móti henni
á þessari gleðistund eins og sjá má
á meðfylgjandi mynd. Óskum við henni til
hamingju með þannan áfanga.
Fyrir unga keppendur er ávallt gott að hafa í
huga að ef hver og einn gerir sitt besta þá er
það mesti sigurinn. Sigur getur falist í því
að ná árangri sem viðkomandi hefur stefnt
að og er þá stundum gott að miða við
tilteknar æfingar. Óska verður öllum þátttakendum
á Haustmótin til hamingju þeirra árangur. |

Þjálfari Rakelar fagnar innilega með
henni. |
| 
Á myndinni hér að ofan má
sjá Brynjar Wilhelm Jochumson í senn glæsilegan
og virðulegan í æfingum sínum í
hringjum á Haustmótinu.
|
Fyrri
keppnishluti Haustmóts í áhaldafimleikum
fór fram í dag. Á mótinu mátti
sjá flest af okkar besta fimleikafólki. Tekið
var eftir því hvað líkamlegur styrkur
keppendanna hefur aukist mikið frá því
í vor og máttu sjá marga fimleikamenn og
konur gera æfingar sýnir af mun meira öryggi
nú en í vor þrátt fyrir að keppnistímabilið
sé í raun rétt að hefjast.
Úrslit hafa ekki enn verið send á fimleikar@fimleikar.is
og því er ekki unnt að birta þau hér
eða fjalla um einstök úrslit. Í heild sinni
þá gekk mótið ekki hratt fyrir sig en
verra var þó að frá því að
piltar luku keppni og þar til verðlauna afhending hófst
þá leið rúmur klukkutími en um
40 mínótur frá því að stúlkurnar
luku keppni. Á dauðum tíma sem þessum
má nánast koma fyrir heilum handboltaleik. Er þetta
ekki til þess fallið að fólk nenni að
mæta á fimleikamót þegar tafir sem þessar
eiga sér stað. Vonandi mun þetta ekki endurtaka
sig í vetur. |

Á meðfylgjandi myndasafni má sjá
ýmsar glæsilegar myndir af keppendum á fyrri
hluta Haustmótsins.
Myndir
hér.
|
| Stjórn
Fimleikaráðs Akureyrar hefur ákveðið
að breyta FRA í félag. Fyrir þá
sem ekki þekkja til þá er Fimleikaráð
sérráð innan ÍBA og er í eiginlegum
skilningi ekki félag. Þ.e. ekki eru haldnir aðalfundir,
engin lög eru til og ekki fara fram stjórnarkosningar.
Það hefur verið á ábyrgð ÍBA
að fimleikar séu starfræktir en reyndin er sú
að þeir foreldrar sem eru í stjórn hafa
um margra ára skeið alfarið borið ábyrgð
á starfinu. Nú í vetur eru um 380 iðkendur
hjá FRA og er Fimleikaráð orðið með
stærstu félögum í bænum og því
tímabært að stíga þetta skref.
Í desember næst komandi verður ÍBA 60
ára og því finnst stjórn FRA vel við
hæfi að síðasta sérráðið
yfirgefi foreldrahúsin. Miðvikudaginn 17. nóv
munum við halda stofnfund Fimleikafélags Akureyrar
í félagsmiðstöð Glerárskóla
kl. 20. Ekki mun fara fram stjórnarkjör á stofnfundinum
heldur mun núverandi stjórn Fimleikaráðs
sitja fram að fyrsta aðalfundi.
Á fundinum munum við einnig kynna vetrarstarfið
og framtíðarsýn félagsins. Eru foreldrar
hvattir til að mæta því að tómstundastarf
barnanna okkar skiptir okkur öll máli. Það
eru spennandi tímar framundan þar sem FRA og Akureyrarbær
hafa gert með sér samning um uppbyggingu á aðstöðu
fyrir fimleika í bænum. Í
stjórn Fimleikaráðs Akureyrar sitja nú:
Fríða Pétursdóttir, formaður, Nanna
Árný Jónsdóttir, gjaldkeri, Berglind
Tulinius, Rannveig Kristinsdóttir, Sólveig Sigurgeirsdóttir,
Valgerður Vilhelmsdóttir og Þórhildur
Þórhallsdóttir. |
Áhaldafimleikar:
|
Keppendur á
Norður-Evrópumóti |
|
[2/11/2004]
|
| Tækninefnd
kvenna hefur valið eftirtaldar stúlkur í Landslið
Íslands í fimleikum fyrir Norður Evrópumót
sem haldið er í Naskov í Danmörku 19. -
21. nóvember n.k. Að þessu sinni var valinn 5
manna landsliðshópur. Valið var eftir úrtökumóti
sem haldið var í Bjarkarheimilinu 17. október
s.l. Athygli skal vakin á því að TKV áskilur
sér rétt til breytinga og setja inn varamenn ef
þörf krefur eftir Haustmót. Ef breyting verður
á liði verður varamaður valinn með tilliti
til þeirra áhalda sem liðið þarfnast
en ekki endilega heildarstiga í fjölþraut. Stúlkurnar
eru Harpa Snædís Hauksdóttir, Gróttu,
Hera Jóhannesdóttir, Gróttu, Inga Rós
Gunnarsdóttir, Gerplu, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir,
Gerplu og Sif Pálsdóttir, Gróttu. Varamenn
eru þær: Fanney Hauksdóttir, Gróttu,
Fríða Rún Einarsdóttir, Gerplu og Margrét
Hulda Karlsdóttir, Gerplu. Þjálfari er Ásdís
B. Pétursdóttir. Fyrir liggur að valið hefur
verið í landslið karla á sama mót
og það skipað Antoni H. Þórólfssyni,
Ármanni, Gunnari Sigurðssyni, Ármanni, Jónasi
Valgeirssyni, Ármanni, Róberti Kristmannssyni, Gerplu
og Viktori Kristmannssyni, Gerplu. Þjálfar er Björn
M. Tómasson og dómari er Heimir J. Gunnarsson. |
Félagsmál:
|
Mótaskrá
FSÍ |
|
[2/11/2004]
|
| Mótaskrá
FSÍ má nálgast hér. |
Hópfimleikar:
|
Björk heldur
nýtt
mót í hópfimleikum |
|
[1/11/2004]
|
| Fimleikafélagið
Björk hefur ákveðið að setja upp nýtt
mót sem hefur fengið nafnið Fjarðar-Fjör.
Þetta er fyrst og fremst hugsað sem undirbúningsmót
fyri þá sem eru að byrja að keppa eftir FSÍ
reglum. Fimleikafélagið Björk býður
ykkur að taka þátt í Fjarðar-Fjöri
sem haldið verður í Íþróttamiðstöðinni
Björk föstudaginn 26. nóvember n.k kl.19:00.
Reglur: Mótið er ætlað fyrir yngri- og miðhópa
í Hópfimleikum. Keppt verður á einstökum
áhöldum, þ.e.a.s. einungis verður gefið
fyrir einstök áhöld í hvorum aldursflokki
fyrir sig, 1-2-3 sæti (fer samt eftir þátttöku).
Keppt verður á Gólfi, á 12x12 gólfi
(áhalda gólfi). Dýnu (fiber class). Trampólíni.
Þessi keppni er tilvalin fyrir þá sem ekki
eru með öll áhöldin tilbúin hjá
sér og lið sem eru að stíga sín fyrstu
skref í F.S.Í. reglunum. Koma þarf með
1 dómara á hóp. Ef þið hafið
ekki tök á því þarf að greiða
2500 kr Senda þarf inn þátttökutilkynningu
og keppnisblöð 2 vikum (föstudaginn 12. nóvember)
fyrir mót á hlin@fjarhitun.is eða senda á
Hlín Benediktsdóttir, Þrsastarási 14,
221 Hfj. Mótagjald kr 10.000 Mótagjald greiðist
inná reikning 1101-26-9384 kt. 060581-4019 eða við
komu á mótsstað. Vonumst til að sjá
sem flesta og eiga saman skemmtilega kvöldstund.
Fimleikveðja F. Björk Hlín Benediktsdóttir. |
Félagsmál:
|
Óskað
er eftir umsóknum um styrk úr
Fimleikasjóð Íslands |
|
|
| Fimleikasjóður
Íslands óskar eftur umsóknum um styrk úr
sjóðnum. Umsóknir skulu sendar með tölvupósti
á fimleikar@fimleikar.is
eða bréflega að Skjólsölum 16, 201
Kópavogur. Umsóknarfrestur er til og með 13.
nóvember 2004. |
| Aðventumót,
úrslit |
|
[30/11/2003] |
Úrslit
Aðventumóts eru hér.
Með því að velja á milli "sheeta"
þá er farið á milli þrepa. Umfjöllun
síðar.
|
|
|
|