Aðventumót, úrslit

Úrslit hér
[30/11/2003]

Úrslit Aðventumóts eru hér. Með því að velja á milli "sheeta" þá er farið á milli þrepa. Umfjöllun síðar.


Rúnar fingurbrotnar

[29/11/2003]

Nú um helgina stóð til að Rúnar Alexandersson tæki þátt á sterku fimleikamóti í Stuttgard í Þýskalandi en hann varð fyrir því óhappi á föstudaginn við æfingar á bogahesti að hann fingurbrotnaði. Að sögn Guðmundar Þórs Brynjólfssonar, yfirþjálfara í Gerplu, er ljóst að óhappið muni hafa þau áhrif að hann þurfi að taka sér nokkurra vikna hvíld frá keppni.


Íslandsmót í almennum fimleikum og Aðventumót

[29/11/2003]

Nú í dag fer fram Íslandsmót í almennum fimleikum á Egilsstöðum og hið árlega Aðventumót sem fimleikadeild Ármanns stendur fyrir. Aðventumótið fer fram í Ármannsheimilinu, Sóltúni. Á mótið eru skráðar 104 stúlkur sem munu keppa í 4. - 6. þrepi og koma frá 6 félögum, Ármanni, Fylki, Gróttu, Gerplu, Keflavík og Rán í Vestmanneyjum. Mótið byrjar um kl. 13:00 og lýkur um kl. 19:00.
Vonandi verða úrslit þessara mót sent sem fyrst á fimleikar@fimleikar.is auk fjölda mynda til að birta hér á síðunni.


Gymnova styrkir Rúnar á Olympíuleika

[Meira] [27/11/2003]

Gengið hefur verið frá samningi á milli Gymnova, FSÍ og Gerplu um styrk til Rúnars Alexanderssonar vegna undirbúnings hans fyrir Ólympíuleikana í Aþenu í ágúst á næsta ári.
Undirbúningur Rúnars fyrir Ólympíuleikana er samstarfsverkefni FSÍ og Gerplu en ljóst er að kostnaður verður mikill enda mun hann taka þátt í fjölda móta sem er nauðsynlegur liður í undirbúningi hans fyrir keppni á Ólympíuleikunum.
Rúnar tryggði sér öruggan keppnisrétt á HM í ágúst sl. þegar hann hafnaði í 32. sæti í fjölþraut og var annar varamaður í fjölþrautarúrslit.
[Meira]


Frá vinstri: Kristján Erlendsson, form. Gerplu, Skúli Björnsson f.h. Sportís umboðsaðila Gymnova á Íslandi og Gunnar Einarsson form. FSÍ.

69 ára kraftmikill fimleikameistari á Austurlandi

[24/11/2003]

Um helgina var haldið upp á 90 ára afmæli íþróttafélagsins Hugins Seyðisfirði. Á afmælishátíðinni var boðið upp á fjölbreytta dagskrá og sýndar ýmsar íþróttir. Senunni hefur sennilega verið stolið af Jóhanni Sveinbjörnssyni bæjargjaldkera, fallbyssukóngi og fimasta fimleikamanni Austurlands fyrr og síðar en hann sýndi gamla takta á gömlu fimleikaáhöldunum á Seyðisfirði. Áhöldin hafa verið í láni á Egilsstöðum í áraraðir en eru nýkomin aftur heim. Þess má geta að það var mikil heppni að áhöldin hafi verið í láni því að gamla áhaldahúsið á Seyðisfirði, þar sem tækin voru geymd, brann skömmu eftir þau voru lánuð. Á meðfylgjandi myndum má sjá að þrátt fyrir að Jóhann sé nú 69 ára er hann ansi kraftmikill og öruggt að hann hefur verið mikill fimleikamaður á sínum tíma. Lesendur www.fimleikar.is eru því stöðugt að sjá fleiri og fleiri dæmi um hvað stöðug ástundun fimleika getur gert mikið fyrir okkur, alla ævi.


Dýri keppir í Minnisoda, flottur á svifrá

Nánar hér
[23/11/2003]
Dýri Kristjánsson úr Gerplu keppti um helgina með Háskólaliðinu í Minnesoda. Dýri keppti á tvíslá og svifrá fyrir liðið og fékk hann 8,4 á tvíslá með mjög góða seriu sem skilaði honum hæstu einkunn í liðinu á tvíslá ásamt skólafélaga hans Billy Callahan. Það var aftur á móti á svifrá sem hann toppaði með sína bestu æfingu hingað til sem gaf honum 8,55 stig og hafnaði í öðru sæti í sínu liði. Árangur hans er mjög góður og vonandi tryggir hann sér fast stæti í liðinu á komandi keppnum með þessum góða áragnri.

Haustmót FSÍ í hópfimleikum

Úrslit hér.
[23/11/2003]

Haustmót FSÍ í hópfimleikum fór fram um helgina á Selfossi. Keppt var í milli- og yngriflokk. Ekki kom á óvart að sterkt lið Gróttu M sigraði í milliflokk með 23,55 stig en hópurinn hefur tekið stöðugum framförum undanfarið eitt og hálft ár undir stjórn Láru Ragnarsdóttur en á það hefur áður verið bent hér á www.fimleikar.is að búast má við miklu af þessu liði í framtíðinni. Það er aftur á móti mjög ánægjulegt að sjá árangur keppenda frá Selfossi en hópurinn Selfoss T1 hafnaði í 2. sæti í milliflokk og Selfoss T2 sigraði í yngri flokk. Það er því gaman að sjá að uppbyggingarstarf sem farið hefur fram að undanförnu í fimleikadeildinni á Selfossi er að skila sér í þessum góða árangri. Óskum við deildinni til hamingju með það og þá sérstaklega yfirþjálfaranum Olgu Bjarnadóttur. Að öðru leyti þá er jafnframt gaman að sjá að félög utan Reykjavíkursvæðisins eru með 2/3 af verðlaunum þessa móts sem er mjög gott.


Myndir frá Norður - Evrópumótinu (aðsendar myndir)

[19/11/2003]


Erlendar heimsóknir í miklum vexti

[18/11/2003]

Að undanförnu hafa heimsóknir á www.fimleikar.is frá netnotendum utan Íslands vaxið verulega. Nú er svo komið að síðan er reglulega heimsótt frá um 70 löndum. Rúmlega 10% allra heimsókna koma nú frá netnotendum utan Íslands en heildarheimsóknir á árinu eru nú rúmlega 45.000. Það er því ljóst að myndir og umfjöllun á www.fimleikar.is fer mjög víða og er það mjög gaman fyrir iðkendur fimleika á Íslandi. Þau lönd sem heimsækja síðuna reglulega eru þessi:

.ar (Argentina)
.arpa (Old style Arpanet)
.at (Austria)
.au (Australia)
.be (Belgium)
.bg (Bulgaria)
.bm (Bermuda)
.br (Brazil)
.ca (Canada)
.cc (Cocos (Keeling) Islands)
.ch (Switzerland)
.cl (Chile)
.cn (China)
.com (Commercial)
.cr (Costa Rica)
.cx (Christmas Island)
.cy (Cyprus)
.cz (Czech Republic)
.de (Germany)
.dk (Denmark)
.do (Dominican Republic)
.edu (USA Educational)
.ee (Estonia)
.es (Spain)
.fi (Finland)
.fo (Faroe Islands)
.fr (France)
.gov (USA Government)
.gr (Greece)
.hk (Hong Kong)
.hr (Croatia)
.hu (Hungary)
.ie (Ireland)
.il (Israel)
.int (International)
.is (Iceland)
.it (Italy)
.jp (Japan)
.lt (Lithuania)
.lu (Luxembourg)
.lv (Latvia)
.mil (USA Military)
.mx (Mexico)
.my (Malaysia)
.net (Network)
.nl (Netherlands)
.no (Norway)
.nu (Niue)
.nz (New Zealand)
.org (Non-Pr. M. Org.)
.pe (Peru)
.ph (Philippines)
.pl (Poland)
.pt (Portugal)
.ro (Romania)
.ru (Russia)
.sa (Saudi Arabia)
.se (Sweden)
.sg (Singapore)
.si (Slovenia)
.sk (Slovakia)
.th (Thailand)
.to (Tonga)
.tr (Turkey)
.tw (Taiwan)
.ua (Ukraine)
.uk (United Kingdom)
.us (United States)
.yu (Yugoslavia)

Haustmót FSÍ í hópfimleikum á Selfossi

[18/11/2003]

Fyrsta hópfimleikamót Fimleikasambands Íslands, á þessum vetri, verður haldið á Selfossi laugardaginn 22. nóvember næstkomandi í íþróttahúsinu við Sólvelli. Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss heldur mótið að þessu sinni. Von er á 15 liðum til keppni, frá Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði, Keflavík, Hveragerði og Vestmannaeyjum. Frá Fimleikadeild Umf. Selfoss keppa tvö lið, hópur T 1 sem keppir í flokki 13-18 ára og hópur T 2 sem keppir í flokki 10-14 ára. Keppendur á mótinu verða um 180. [Meira]


Keppendur á Unglingamóti FSÍ í hópfimleikum.

Sennilega flottustu myndirnar sem við höfum birt

[17/11/2003]

Enn berast okkur á www.fimleikar.is myndir af Malarcup sem fram fór í svíþjóð fyrir stuttu. Sennilega er nú um að ræða flottustu myndir sem okkur hefur verið sent til birtinigar á síðunni. Erum við öll mjög þakklát fyrir það og vonumst til þess að myndatökumaðurinn Karl Bartels haldi áfram að senda okkur jafn flottar myndir í framtíðinni. Takk fyrir og njótið vel.
Myndaseria nr. 1 hér.
Myndaseria nr. 2 hér.

Myndaseria nr. 2 hér.

Viktor Kristmannson í lausu lofti.

Norður-Evrópumótið í áhaldafimleikum

[16/11/2003]

Nú um helgina fór Norður Evrópumót í fimleikum fram í borginni Perth í Skotlandi. Rúnar Alexandersson varð í 5. sæti í fjölþraut í gær laugardag með 49.15 stig og keppti í dag til úrslita á bogahesti, hringjum og á tvíslá. Hann sigraði í æfingum á bogahest með 8.80 stig og í æfingum á tvíslá mð 9.10 og varð í 2. sæti í hringjum með 9.05. Sigur á bogahesti og tvíslá er gott veganesti fyrir hann en nú fer í hönd undirbúningur hans fyrir Olympíuleikana á næsta ári.
Kvennaliðið varð í 4. sæti samanlagt í liðakeppni og þykir það nokkuð góður árangur þar sem segja má að liðið hafi ekki verið fullskipað þar sem Sif Pálsdóttir tók ekki þátt en hún er Íslandsmeistari í áhaldafimleikum öll síðastliðin fjögur ár. Af stúlkunum varð Inga Rós Gunnarsdóttir hæst stúlknanna í fjölþraut þar sem hún varð í 6. sæti með 30,65 stig. Hún keppt til úrslita á gólfi þar sem hún varð í 7. sæti og á slá þar sem hún varð í 4. sæti. Harpa Snædís Hauksdóttir og Tanja B. Jónsdóttir kepptu til úrslita á tvíslá. Tanja varð í 6. sæti með 7.275 stig og Harpa Snædís í 8. sæti með 6.975.

Heimasíðu Norður-Evópumótsins má sjá hér: http://www.scottishgymnastics.com


Mikið af verkefnum hjá fimleikalandsliðinu

[Meira][12/11/2003]

Nú um helgina fer fram í Skotlandi (Perth) Norður-Evrópumót í áhaldafimleikum. Á mótinu keppir fullt lið í kvennaflokki og tveir í karlaflokki. Norður-Evrópumótið er fyrsta stóra verkefni landsliðsins eftir Heimsmeistaramótið sem fram fór í Californiu í ágúst en þar stóðu okkar keppendur sig mjög vel en Rúnar Alexandersson tryggði sér þar keppnisrétt á Olympíuleikunum í Aþenu. Eftir áramót mun landsliðið taka þátt á Norðurlandamóti sem fram fer í Svíþjóð og svo Evrópumót en það er síðasta stórmótið í fimleikum fyrir Olympíuleika.
Ellert B. Schram forseti ÍSÍ kom við á landsliðsæfingu og fylgdist með lokaundirbúningi landsliðsins fyrir Norður-Evrópumótið og ræddi við fimleikafólk um stöðu íþróttarinnar.


Kristín Sæunn Ólafsdóttir, Hera Jóhannesdóttir, Harpa Snædís Hauksdóttir, Tanja B. Jónsdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir og Ellert B. Schram forseti ÍSÍ.

Aðsendar myndir - Svona myndasirpu þarf að fá úr öllum ferðum.

Myndir hér [13/11/2003]


Keppendur úr Gerplu á Malarcup


Viktor Kristmannsson, Íslandsmeistari í áhaldafimleikum að slappa af.

Æskuvinkonurnar Dóra Sif Óskarsdóttir og Hlín Bjarnadóttir á góðri stundi í dómarabúningnum

Flottar myndir

[12/11/2003]


Björk Óðinsdóttir


Harpa Snædís Hauksdóttir

Hera Jóhannesdóttir

Fimleikamaðurinn Kristján Ársælsson sigrar 4. árið í röð

[Meira][9/11/2003]


Fimleikamaðurinn Kristján Ársælsson sigraði í 4. árið í röð

Kristján Ársælsson hefur verið ósigrandi í Fitness keppnum hérlendis undanfarin ár og það þrátt fyrir mjög harðnandi samkeppni. Kristján er 38 ára og sigraði nú um helgina 4. árið í röð á Galaxy Fitness mótinu sem fór fram í Smáralind. Setti hann nýtt íslandsmet í upphífingum og dýfum með því að gera 54 upphífur og 81 dýfu eða 135 æfingar samtals og sló hann sitt fyrra met sem var 123 æfingar. (myndir frá 2002)
Nánari upplýsingar hér.

Félög utan höfuðborgarinnar áberandi á námskeiði fræðslunefndar [10/11/2003]

Fræðslunefnd FSÍ hélt námskeið um helgina sem leið. Þátttakendur voru 18 en athygli vakti að 3/4 komu frá félögum utan höfuðborgarsvæðisins. Innan skamms verður annað námskeið sem fer fram á Akureyri og er enn möguleiki að skrá sig á námskeiðið. Þeir sem hafa áhuga á að sækja sitja námskeiðið er bent á að hafa samband við Önnu Möller hjá FSÍ sem fyrst.


Kraftstökk og yfirslag

kennsluhornið
Myndir hér
JF [Meira][9/11/2003]

Kraftstökk er erfið æfing. Hér á eftir verður farið í nokkra þætti sem gott er að hafa í huga við framkvæmd æfingarinnar. Segja má að kraftstökk sé grundvallaræfing í fimleikum en hún er bæði nýtt í æfingum á gólfi og í stökki og jafnvel á slá. Ekki má þó gleyma því að undirstöðuæfing fyrir kraftstökk er handstaða. Nemandi sem ekki getur gert handstöðu rétt getur ómögulega gert kraftstökk.

Nánari upplýsingar hér.


Fimleikadeild Fjölnis Gravarvogi

Myndir hér
[5/11/2003]


Mikið fjör var hjá krökkunum í Fjölni þegar komið var í heimsókn.

Myndir frá Malarcup

Myndir hér
[3/11/2003]

Hér með sjá nokkrar flottar myndir sem teknar voru á fimleikamótinu sem sagt er frá hér að neðan.
Síðastliðnar tvær vikur hefur verið erfitt að uppfæra heimasíðuna af tæknilegum ástæðum sem nú hefur verið bætt úr.
Fimleikafólk er hvatt til að senda myndir og eða efni til að birta á síðunni.



Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Gerplu, sigrar á alþjóðlegu móti

[26/10/2003]


Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.