|
|
|
Íslandsmót
í þrepum í áhaldafimleikum
|
|
25/3 |
Íslandsmót í þrepum
fór fram laugardaginn 24. mars í fimleikahöll
Bjarkanna í Hafnarfirði. Mótið var glæsilegt
og mátti sjá þá iðkendur sem
náð hafa flestum stigum á mótum vetrarins
í hverju þrepi fyrir sig gera æfingar sínar
með miklum tilþrifum enda Íslandsmeistaratitill
í hverju þrepi í húfi. Þegar
upp er staðið má segja að á þessu
síðasta móti vetrarins þar sem keppt
er eftir nýjum fimleikastiga þá er hægt
að segja að vel hafi til tekist. Mótin hafa
verið skemmtileg og fjölbreytt þar sem hvert
félag semur að hluta sínar æfingar
í hverju þrepi. Tíu Íslandsmeistarar
voru krýndir. Skipust þeir á félögin
þannig að Gerpla hlaut 4, Ármann hlaut 3,
Grótta hlaut 1, Björk hlaut 1 og FIMAK hlaut 1.
|
Margrét Hulda (Gerpla) og Viktor (Gerpla)
urðu Íslandsmeistarar 2007
Glæsilegt hjá þeim og við óskum
þeim til hamingju !!
Nánar fjallað um Íslandsmótið og fleiri
fimleikaviðburði sl vikur þegar búið er að
laga bilun í tölvubúnaði.
Bikarmót
í áhaldafimleikum
|
Úrslit
birt með fyrirvara |
4/3 |
Bikarmót
í áhaldafimleikum var haldið í Íþróttamiðstöðinni
við Engjaveg 7 í Laugardal (nýja Ármannshúsið),
3. – og 4. mars n.k. í umsjón fimleikadeildar
Gróttu. Keppnin
er í fjórum hlutum.
|
1.
hluti laugardag
Keppt er í 5. þrepi íslenska fimleikastigans.
2.
hluti laugardag
Keppt er í frjálsum æfingum og 1. þrepi
kvenna og karla.
|
3.
hluti sunnudag
Keppni í 2. og 3. þrepi stúlkna og 3. og
5. þrepi pilta
4.
hluti sunnudag
Keppni í 4. þrepi stúlkna og 2. og 4. þrepi
pilta |
Öll
almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is
er heimil án sérstaks samþykkis
Sjá hér.
Allar
myndir © www.fimleikar.is
H eimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni
að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.
|
|
|