Íslandsmót í þrepum
26/3/06
*


Thelma Rut Hermannsdóttir sigraði í 1. þrepi stúlkna.

Íslandsmót í Íslenska fimleikastiganum fór fram um helgina og mátti þar sjá þá keppendur sem náð hafa flestum stigum á mótum vetrarins í hverju þrepi fyrir sig. Kríndir voru meistarar í hverju þrepi en keppt var í opnum flokkum. Hjá piltum var keppt í 1., 2., 3. og 4. þrepi og hjá stúlkum var keppt í 1., 2., 3., 4. og 5. þrepi. Úrslit voru sem hér segir:

Efstar í 4. þrepi á Íslandsmótinu í þrepum urðu þær Aníta María Einarsdóttir, Gróttu, með 36,809 stig, Helga Kristín Einarsdóttir, Gróttu, með 35,463 stig og Norma Dögg Róbertsdóttir, Björk, með 35,121 stig.
Úrslit mótsins hér.

Piltar
1. þrep: Davíð Kristján Ólafsson, Gerpla, 53,5 stig.
2. þrep: Víðir Helgi Helgason, Ármann, 57,45 stig.
3. þrep: Andri Kristján Ívarsson, Gerpla, 56,2 stig.
4. þrep: Valgarð Reinhardsson, Gerpla, 56,85 stig.

Stúlkur
1. þrep: Thelma Rut Hermannsdóttir, Gerplu, 31,857 stig.
2. þrep: Sigrún Dís Tryggvadóttir, Fylkir, 34,871 stig.
3. þrep: Heiðdís Anna Ólafsdóttir, Björk, 37,104 stig.
4. þrep: Aníta María Einarsdóttir, Grótta, 36,809 stig.
5. þrep: Guðbjörg Loftsdóttir, Gerpla, 36,44 stig.

Íslandsmót í hópfimleikum
26/3/06
JF
*


Vinkonurnar Ása Inga, Sólveig og Þórunn ánægðar með uppskeru mótsins.

Nánari umfjöllun um mótið hér.

Íslandsmót í hópfimleikum fór fram um helgina. Mættu sjö lið til leiks og eins og við var að búast þá var mikil stemming á mótinu sem fór fram í Ásgarði í Garðabæ. Sigurvegarar mótsins var hópur P1 úr Gerplu. Í öðru sæti varð hópur Gróttu og í þriðja sæti varð hópur Fylkis.

Íslandsmeistarar P1 úr Gerplu ásamt þjálfurum. Þær sigruðu alla þá titla sem keppt var um á mótinu.
Úrslit. Föstudagur og Laugard.

Fimleikamyndir
22/3/06
JF
*


Thelma Rut Hermannsdóttir.
Ljósmyndari: Auður Sigbergsdóttir.

Myndir af fimleikafólki geta verið mjög skemmtilegar. Fimleikafólk hefur sjálfsagt tekið eftir því að á undanförnum árum hefur áhugi ljósmyndara aukist á fimleikamótum og er nú svo komið að ekki er óalgengt að þrír til fjórir ljósmyndarar með nokkuð fullkomnar myndavélar eru á helstu fimleikamótunum. Er það ánægjuleg þróun en engu að síður þróun sem ekki er óeðlileg þegar haft er í huga hversu flott myndefnið getur verið ef ljósmyndarinn hefur auga fyrir íþróttinni.
Hér til hliðar glæsileg ljósmynd sem Auður Sigbergsdóttir tók af Thelmu Rut Hermannsdóttir í keppni til úrslita Íslandsmótinu í áhaldafimleikum um síðustu helgi. Hún tók einnig fleiri myndir sem má nálgast hér ásamt ýmsum öðrum flottum myndum.


Viktor og Sif Íslandsmeistarar í fjölþraut
18/3/06
*


Sif Pálsdóttir í afstökki af tvíslá en segja má að æfingar hennar þar hafi tryggt henni Íslandsmeistaratitilinn2006. Sif vann einnig titilinn á árunum 2000, 2001, 2002 og 2003. Er þetta því hennar fimmti Íslandsmeistaratitill.

Hún varð einnig Íslandsmeistari á tvíslá og í gólfæfingum.

Sif Pálsdóttir (Gróttu), varð í dag Íslandsmeistari í fjölþraut í áhaldafimleikum kvenna. Frábærar æfingar hennar á tvíslá tryggðu henni sigur á mótinu. Í öðru sæti varð Íslandsmeistarinn frá því í fyrra, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir (Gerplu) og í þriðja sæti Fríða Rún Einarsdóttir (Gerplu).
Í karlaflokki sigraði Viktor Kristmannsson (Gerplu) líkt og á síðasta ári, eftir harða keppni við bróður sinn Róbert Kristmannsson (Gerplu). Fyrir síðasta áhaldið munaði aðeins 0,3 stigum á þeim bræðrum. Þrátt fyrir góð tilþrif af beggja hálfu á síðasta áhaldinu, svifránni, stóð Viktor uppi sem sigurvegari. Anton Heiðar Þórólfsson (Ármanni), varð síðan í 3. sæti. Rúnar Alexandersson (Gerplu), sem fyrir mótið var talinn sigurstranglegastur, átti slæman dag og endaði í 6. sæti. Segja má að hann hafi unnið það upp í úrslitum á einstökum áhöldum þar sem hann keppti til úrslita á þremur áhöldum og sigraði á þeim öllum.
Úrslit voru því sem hér segir í Fjölþraut kvenna:
1. Sif Pálsdóttir. Gerplu 53.399;
2. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Gerplu 52.401
3. Fríða Rún Einarsdóttir, Gerplu 52.067

Viktor Kristmannsson varð Íslandsmeistari í áhaldafimleikum í fjölþraut. Hann keppti ekki til úrslita í fjölþraut vegna meiðsla.


Rúnar Alexandersson í æfingum á tvíslá. Hann varð Íslandsmeistari í æfingum á bogahesti, tvíslá og hringjum.

Fjölþraut karla:
1. Viktor Kristmanns., Gerplu 80.400
2. Róbert Kristmanns., Gerplu 79.350
3. Anton H. Þórólfs., Ármanni 77.650
Úrslit kvenna á einstökum áhöldum:
Stökk:
1. Kristjana Sæunn Ólafsd, Gerplu 13.975
2. Fríða Rún Einarsd, Gerplu 12.825
3. Harpa Dögg Steindórsd, Gerplu, 12.6
Tvíslá:
1. Sif Pálsdóttir, Gróttu 13.400
2. Fríða Rún Einarsd, Gerplu 12.15
3. Kristjana Sæunn Ólafsd, Gerplu 11.75

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir í svifæfingu á tvíslá en hún átti góðan dag í fjölþraut þar sem hún varð Íslandsmeistari í æfingum á jafnvægisslá og stökki. Kristjana Sæunn varð Íslandsmeistari í Fjölþraut 2004 og 2005 en á síðustu misserum hefur hún unnið til fjölda verðlauna á erlendum mótum fyrir Íslands hönd. Það verður spennandi að fylgjast með henni á mótum sem eru framundan.

Jafnvægisslá:
1. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Gerplu 13.350
2. Sif Pálsdóttir, Gróttu, 13.200
3. Inga Rós Gunnarsdóttir, Gerplu 13.000
3. Fríða Rún Einarsdóttir, Gerplu 13.000
Gólf:
1. Sif Pálsdóttir, Gróttu 13.500
2. Fríða Rún Einarsdóttir, Gerplu 13.450
3. Krisjana Sæunn Ólafsdóttir, Gerplu 13.350
Úrslit karla:
Gólf:
1. Róbert Kristmannsson, Gerplu 13.45
2. - 3 Bjarki Ásgeirsson, Ármanni 13.15 og
Jónas Valgeirsson, Ármanni 13.15
Bogahestur:
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu 14.50
2. Bjarki Ásgeirsson, Ármanni 13.15
3. Róbert Kristmannsson, Gerplu 12.65

Hringir:
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu 13.450
2. Jónas Valgeirsson, Ármanni 12.800
3. Bjarki Ásgeirsson, Ármanni 11.800
Stökk:
1. Róbert Kristmannsson, Gerplu 15.325
2. Ingvar Ágúst Jochumsson, Gerplu 15.100
3. Jónas Valgeirsson, Ármanni 14.975
Tvíslá:
1. Rúnar Alexandersson, Gerplu 13.400
2. Bjarki Ásgeirsson, Ármanni, 13.050
3. Dýri Kristjánsson, Gerplu 12.700
Svifrá:
1. Róbert Kristmannsson, Gerplu, 13.000
2. Dýri Kristjónasson, Gerplu 12.750
3. Bjarki Ásgeirsson, Ármanni 11.800


Fríða Rún Einarsdóttir sýndi flott tilþrif í æfingum sínum á Íslandsmótinu sem skiluðu henni þriðja sæti í fjölþraut og verðlaunasæti í úrslitum á öllum áhöldum.


Róbert Kristmannsson átti gott mót en hann varð Íslandsmeistari á stökki, gólfi og svifrá auk þess sem að hökkva ansi nærri Íslandsmeistaratitli í fjölþraut þar sem hann átti í harðri keppni við eldri bróður sinn. Á undanförnu hefur Róbert sýnt mikið öryggi og styrk í æfingum sínum.

Bjari Ásgeirsson kom víða við í úrslitum á einstökum áhöldum enda sterkur fimleikamaður sem hefur á undanförnu látið sér mun eldri fimleikamenn vita að hann sé nú tilbúinn til þess að láta til sín taka af alvöru.

Úrslit kvenna hér. Úrslit karla hér. Mótaskrá á sunnudag hér.


Íslandsmótin framundan
16/3/06
*

Annasamur tími er framundan hjá fimleikafólki landsins. Íslandsmótið í áhaldafimleikum fer fram nú um helgina en helgina 24. - 26. mars verða bæði Íslandsmót i hópfimleikum og Íslandsmót íslenska fimleikastigans.
Íslandsmótið í áhaldafimleikum verður í umsjón Gerplu og fer mótið fram í Versölum í Kópavogi. Hefst mótið kl. 15:00 á laugardaginn 18. mars og verða krýndir Íslandsmeistarar í karla og kvenna í fjölþraut. Úrslit á einstökum áhöldum fara svo fram daginn eftir, sunnudaginn 19.mars, og hefst keppni þá kl. 14:00, en þá verða krýndir Íslandsmeistarar á hverju áhaldi fyrir sig.

Íslandsmótið í hópfimleikum fer síðan fram dagana 24. og 25. mars. Hefst mótið kl. 18:30 á föstudeginum en þá mæta 8 lið til leiks. Á föstudeginum eru krýndir Íslandsmeistarar á einstökum áhöldum. Þrjú efstu liðin mæta svo aftur til leiks daginn eftir og berjast um Íslandsmeistaratitilinn.

Íslandsmót í þrepum fer að lokum fram í Íþróttamiðstöðinni Björk sunnudaginn 26. mars. Þar keppa þeir einstaklingar sem hafa náð bestum árangri í hverju þrepi fyrir sig í vetur. Nánari upplýsingar um mótið koma þegar nær dregur.
Hér er listi yfir þær stúlkur sem hafa unnið sér inn rétt til keppni á meistaramótinu og hér er listi yfir þá stráka sem hafa unnið sér inn rétt til að keppa á meistaramótinu.


Silfur á hópfimleikamóti
16/3/06

Stúlkurnar í M-10 úr Fimleikadeild Aftureldingar, urðu í 2. sæti á hópfimleikamóti í Gróttu nú um helgina. Þær eru á aldrinum 7-9 ára og voru að keppa í flokki 11 ára og yngri. Frábær árangur hjá yngsta keppnisliði Aftureldingar.
Þjálfari stúlknanna er Sara Heimisdóttir.


Eftri röð: Kolbrún, Sigurbjörg, Anna, Brynja
Neðri röð: Sigríður Vala, Gréta, Klara, Harpa


Páskamót Bjarkanna í hópfimleikum
16/3/06
*

Miðvikudaginn 12. apríl verður Páskamót Bjarkanna í hópfimleikum haldið í annað sinn.  Í fyrra mættu 16 lið til keppni og tókst mótið frábærlega.  Við höfum því ákveðið að endurtaka leikinn og vonumst við til  að fá eins góðar undirtektir og í fyrra.  Keppt verður í byrjenda og yngriflokkum og stuðst við byrjendareglur og yngriflokkareglur FSÍ. Þetta er frábært tækifæri fyrir lið til að æfa sig að keppa og koma fram þar sem lítið er um mót á þessum tíma.

Frekari upplýsingar hér


Byrjendamót Þórs í hópfimleikum
16/3/06

Fimleikadeild Þórs Þorlákshöfn heldur byrjendamót í hópfimleikum þann 8. april nk og býður öllum liðum til þátttöku. Almenn upphitun hefst klukkan 09:30 og lengd móts fer eftir þátttöku. Keppt verður eftir byrjendareglum og hægt verður að velja um hvort keppt er á loftgólfi eða stökkgólfi.

Tekið er á móti skráningum á netfangið:  arh5@hi.is  fyrir 28. mars. Þátttökugjald er 10.000 kr á lið. Tilkynna þarf einn dómara með hverju liði um leið og skráð er.

f.h. fimleikadeildar Þórs
Arna Hjartardóttir 


Íslandsmótið um helgina - spennandi helgi framundan
Guðjón Guðmundsson spáir í úrslit
15/3/06
*

Þó svo Rúnar Alexandersson sé líklegur til að sigra, keppi hann í fjölþraut, þá er Viktor Kristmannsson núverandi íslandsmeistari orðinn nógu góður til að halda titlinum.

Hjá stelpunum mun keppnin standa á milli núverandi Íslandsmeistara, Kristjönu Sæunnar Ólafsdóttur og fyrrverandi Íslandsmeistara, Sifjar Pálsdóttur.

Óvæntir hlutir geta þó gerst og munu líklega gerast.

Íslandsmótið sem fram fer í Versölum í Kópavogi um næstu helgi er því líklegt til að verða skemmtilegt og spennandi hvet ég alla fimleikaáhugamenn til að mæta. Mótið hefst kl. 15:00 á laugardeginum en kl. 14:00 á sunnudeginum.

Meira!



Mílanómót

 

13/3/06
*

Á laugardaginn var hélt fimleikadeild Gróttu byrjendamót í áhaldafimleikum og hópfimleikum. Keppt var í 5. og 6. þrepi Íslenska fimleikastigans fyrir hádegi en byrjendareglum hópfimleika eftir hádegi.
Við bendum á að úrslit mótsins eru á heimasíðu Gróttu. Sjá hér.


Upplýsingar

 

13/3/06

Með því að velja "Mótaskrá og viðburðir!" á forsíðu (til vinstri) birtist tafla með ýmsum hagnýtum upplýsingum um mótin og aðra viðburði sem eru framundan og einnig úrslit og fl. um liðna viðburði.


Tilkynningar frá Tækninefnd í hópfimleikum

 

10/3/06
*

Tækninefnd í hópfimleikum hefur sent frá sér tilkynningu um hvaða lið hafa unnið sér rétt til þátttöku á Íslandsmótinu í hópfimleikum 2006 en þau eru: Björk H, Fylkir T1, Gerpla P1, Gerpla P2.1, Gerpla P2.2, Grótta, Selfoss 1 og Selfoss 2. Tækninefndin hefur einnig tilkynnt um val á liðum á Norðurlandamót unglinga í hópfimleikum sem haldið verður í Roskilde í Danmörku, 8. apríl n.k. en þau tvö lið sem um ræðir og hafa unnið sér inn keppnisrétt á Norðurlandamóti Juniora eru lið Fylkis 1 og Gerpla P2.1.


Gerpamót Gerplu
- GARPAMÓT -
- Boðsmót -
10/1/06
*

Íþróttafélagið Gerpla mun halda boðsmót helgina 1. og 2. apríl n.k. þar sem keppt verður í íslenska fimleikastiganum bæði hjá piltum og stúlkum. Piltar keppa í aldursflokkum samkvæmt þátttökufjölda í 1. - 4. þrepi. Í 4. þrepi er keppt í flokki þeirra sem hafa keppt á FSÍ mótum og þeirra sem ekki hafa keppt á slíku móti. Aldurstakmark er 8 ára á árinu og eldri iðkendur. Keppni stúlkna í 3 - 6. þrepi samkvæmt þátttökufjölda og sama aldurstakmark og hjá piltum.
Nánari upplýsingar í síma 557-4925 eða með eimali : igerpla@simnet.is


Afturelding vann 17 verðlaunapeninga á Íslandsmóti

 

9/3/06

Fimleikadeild Aftureldingar tók heim 17 verðlaunapeninga af Íslandsmóti í 2.-6. þrepi stúlkna og 1.-3. þrepi drengja sem haldið var í Garðabæ á dögunum. Sjö keppendur frá Aftureldingu kepptu á mótinu og komu þau hlaðin gulli, silfri og bronsi. Þeir sem unnu til verðlauna á Íslandsmóti áskildu sér rétt til þess að keppa á meistaramóti í fimleikum sem haldið var sömu helgi. Þetta er í fyrsta sinn sem Afturelding á keppnislið á meistaramóti í fimleikum.
Arnar Logi Lútersson og Kjartan Elvar Baldvinsson eru fyrstu drengirnir sem keppa fyrir hönd Aftureldingar en þeir unnu báðir til verðlauna á Íslandsmótinu og náðu einnig báðir inn á meistaramótið. Arnar Logi var með hæstu einkunn á meistaramóti í almennum fimleikum 2006 og er því Íslandsmeistari í 1 þrepi drengja,
Afturelding keppti í fjórum þrepum í ár og náði inn á meistaramót í öllum þrepunum og er það frábær árangur þar sem aðeins 10 keppendur komast inn í hverju þrepi. Þess má geta að samkeppnin er hörð og fjöldi keppenda keppa í hverju þrepi.
Telma Þrastardóttir var með aðra hæstu einkunn á mótinu. Einnig keppti Lára Kristín Pedersen í 3 ja þrepi en hún varð íslandsmeistari á meistaramóti í fyrra í 1. þrepi stúlkna. Lára ákvað að hoppa yfir eitt þrep og var hún því með yngstu keppendum í þriðja þrepi en hafnaði með glæsibrag í 4. sæti og var önnur inn á meistaramótið. Brynja Ragnarsdóttir náði einnig inn á meistaramótið í 2. þrepi, var sú fimmta inn af 10 keppendum og stóð sig með prýði.


Myndir

8/3/06
*

Ljósmyndarinn Vignir Grétar Stefánsson tók mikið af flottum myndum af Bikarmótinu sem fram fór um síðustu helgi. Njótið vel.


Unglingamót í hópfimleikum 2006

5/3/06
*

Unglingamót í hópfimleikum 2006 fór fram um helgina. Í yngri aldursflokki sigraði Björk í Hafnarfirði með 20,2 stig og í miðaldursflokki sigraði hópur Gerplu P2.1 með 23,7 stig. Á mótinu keppti hópur samsettur af bæði stúlkum og piltum en er það í fyrsta skiptið sem slík þátttaka á sér stað á hópfimleikamóti á vegum FSÍ.



Bikarmót í áhaldafimleikum 2006

5/3/06
*

Bikarmót í áhaldafimleikum fór fram nú um helgina. Stúlkurnar kepptu í 6 flokkum þar sem 27 hópar mættu til leiks, auk þess sem 6 hópar kepptu sem gestir. Piltarnir kepptu í 5 flokkum þar sem 11 hópar mættu til leiks. Helstu úrslit voru þau að Íþróttafélagið Gerpla sigraði í 9 flokkum af 11 flokkum þar af í öllum keppnisflokkum karla. Grótta sigraði í 2. og 4. þrepi stúlkna. Það er ljóst að Bikarmótið er eitt fjölmennasta fimleikamót ársins með að þessu sinni samtals 37 hópa í karla og kvennaflokki. Framkvæmdaraðili mótsins var Ármann og eiga forystumenn félagsins hrós skilið fyrir umgjörð og framkvæmd mótsins.
Úrslit Bikarmótsins í áhaldafimleikum 2006 eru hér. Keppt var í eftirfarandi flokkum og urðu útslit sem hér segir.

Stúlkur:
Frjálsar æfingar: Gerpla; 150,918 stig.
1. þrep: Gerpla; 99,168 stig.
2. þrep: Grótta; 94,502 stig.
3. þrep: Gerpla; 133,77 stig.
4. þrep: Grótta; 143,726 stig.
5. þrep: Gerpla; 145,072 stig.

Piltar:
Frjálsar æfingar: Gerpla; 311,05 stig.
1. þrep: Gerpla; 237,25 stig.
2. þrep: Gerpla; 269,75 stig.
3. þrep: Gerpla; 274,05 stig.
4. þrep: Gerpla; 281,8 stig.


Glæsileg tilþrif hjá Vilborgu Eddu Kristjánsdóttur úr Fjölni í æfingum á tvíslá en hún hlaut 9,2 stig fyrir æfingarnar en það var hæsta einkunn sem gefin var á tvíslá í 5. þrepi en Arna Ýr Jónsdóttir úr Gerplu hlaut einnig 9,2 stig. Þjálfari Vilborgar er Guðrún Sveinbjörnsdóttir en hún hefur til margra ára verið ein af fremstu þjálfurum Íslands í 5. og 4. þrepi stúlkna. Fjölnir hafnaði í 3. sæti í 5. þrepi en alls tóku 9 hópar þátt í keppni í 5. þrepi.


Sara Sif Sveinsdóttir í lausu loft !!!. Eftir nýlegar breytingar á Laugardalshöllinni þá hefur aðstaða til myndartöku skánað mikið. Skiptir þar mestu um að lýsing hefur verið bætt sem og veggir gerðir einlitir og svalir settar upp.

Róbert Kristmannsson varð stigahæstur í frjálsum æfingum karla en hann hlaut 79,6 stig en bróðir hans Viktor hlaut 79,3 stig. Það verður því spennandi að sjá hvort að Róbert takist að ná Íslandsmeistaratitlinum af bróður sínum á Íslandsmótinu eftir tvær vikur. Yrði það hans fyrsti Íslandsmeistaratitill í frjálsum æfingum. Róbert hefur verið duglegur við æfingar á undanförnu og einnig við að aðstoða við ýmis önnur tilfallandi sjálfboðaliðastörf í fimleikunum svo sem dómgæslu og fleira eins og algengt er að þeir iðkendur gera sem komnir eru hvað lengst í fimleikunum.

Unglingamót í hópfimleikum 2006

 

3/3/06
*

Á morgun þ.e. laugardaginn 4. mars fer fram í íþróttahúsinu á Selfossi Unglingamót í hópfimleikum 2006.
Mótið hefst kl. 13:45 og eru áætluð mótslok kl. 18:30.
Mótinu er skipt í tvennt. Til kl. 14:50 keppa yngri lið en þar eru 6 lið þátttakendur. Seinni hlutinn hefst síðan kl. 16:30 en þar taka þátt 8 lið í hópi eldri keppenda.
Mótaskipulag hér!


Bikarmót FSÍ í áhaldafimleikum 2006

 

2/3/06
*

Bikarmót FSÍ í áhaldafimleikum 2006 verður haldið næstu helgi þ.e. þann 4. -5 mars í Laugardalshöll.
I. hluti mótsins er fyrir hádegi á laugardag þar sem keppt er í 4. þrepi stúlkna. Keppni hefst kl. 10.00. Áætluð mótslok kl. 12.15 – krýndir verða Bikarmeistara í 4. þrepi.
II. hluti mótsins er eftir hádegi á laugardag. Keppt í frjálsum æfingum karla og kvenna og í 3. þrepi kvenna. Keppni hefst kl. 14.00. Áætluð mótslok kl. 16.20. Krýndir verðar Bikarmeistarar karla og kvenna og Bikarmeistarar í 3. þrepi kvenna.
III hlut mótsins fyrir hádegi á sunnudag þar er keppt í 5. þrepi stúlkna og 4. þrepi pilta. Keppni hefst kl. 9.00. Áætluð mótslok kl. 12.15. Krýndir verða Bikarmeistarar í 4. þrepi pilta og 5. þrepi stúlkna.
IV hluti mótsins er eftir hádegi á sunnudag þar er keppt í 1. 2. og 3. þrepi pilta og 1. og 2. þrepi stúlkna. Keppni hefst kl. 14.00. Áætluð mótslok kl. 16.20
Krýndir verða Bikarmeistarar í 1. 2. og 3. þrepi pilta og 1. og 2. þrepi stúlkna.
Mótaskipulag hér!



Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is
er heimil án sérstaks samþykkis
Sjá hér
.

Allar myndir © www.fimleikar.is
H eimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.

Fimleikar ehf.