|
|
|
| Páskamót Bjarkanna
í hópfimleikum
fjölmennt og velheppnað mót |
|
| 23/3/05 |
Mánudaginn
21. mars fór fram páskamót Bjarkanna í
hópfimleikum. Alls mættu 18 lið frá
átta félögum. Auk Bjarkanna kepptu, Selfoss,
Hamar, Grótta, Fjölnir, UMFH, Þór Þorlákshöfn
og Ármann. 15 lið kepptu eftir byrjendareglum og
3 lið samkvæmt yngrireglum FSÍ. Mótið
tókst í alla staði mjög vel og gaman
að sjá hve margir komu og fylgdust með sínum
liðum. Það var Selfoss T4 sem hreppti fyrsta sætið
í byrjendaflokki með 23,1 stig og í öðru
sæti var lið Þórs frá Þorlákshöfn
með 23 stig og í 3. sæti var lið Hamars
með 22,9 stig. Í yngriflokknum var það
lið Gróttu T2 sem bar sigur úr býtum
með 22,2 stig og í öðru sæti var lið
Bjarkanna I2 með 18,6 stig og í þriðja
sæti var Selfoss T3 með 17,3 stig. Eins og margoft
hefur komið fram á fimleikar.is þá er
mikill vöxtur í hópfimleikum á Íslandi
og er þetta fjölmenna boðsmót enn ein
staðfestingin á því.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd
þá voru áhorfendabekkirnir troðfullir
og mikil stemming í salnum.
|
 |
| |
|
 |
| Hesthúsi breytt í
fimleikahús
sjáflboðaliðar leika lykilhlutverk |
|
| 21/3/05 |
Með
öflugu hugmyndaflugi og kraftmiklu sjálfboðaliðastarfi
er oft hægt að framkvæma ótrúlegustu
hluti. Það sannaðist þegar hesthúsi
að grunnfleti um 528 fm (33,5m * 16m) var breytt í
fyrsta flokks fimleikahús. Öflugt starf sjálfboðaliða
gerði þetta að veruleika en félagsmenn
lögðu fram um 1.300 klukkustundir í sjálfboðaliðastarfi.
Til að koma öllu fyrir með haganlegum hætti
var allt skipulagt mjög vel. Sjá meðfylgjandi
frétt sem birtist á gymmedia.com
Húsið er sérhannað fyrir áhaldafimleika
karla en áhugi á áhaldafimleikum karla
hefur aukist mikið í Sviss þar sem húsið
er vegna tilkomu góðs árangurs Andreas Schweizer
sem hafnaði í 24 sæti í fjölþraut
og 8 sæti í hringjum á Ólympíuleikunum.
Ef einhver á 600 fm hesthús til
sölu þá endilega látið okkur vita
!
|
 |
| Eftirmálar Ólympíuleikanna
|
|
| 21/3/05 |
Í
kjölfar mistaka sem áttu sér stað í
dómgæslu í fjölþrautarúrslitum
á Ólympíuleikunum þá hefur
FIG sent frá sér tilkynningu þar sem dómarar
eru settir í dómgæslubann í mismunandi
tíma og tilkynnt um að endurbætur eru nú
í skoðun á þeim dómgæslureglum
sem unnið hefur verið eftir.
|
| Íslandsmót í
hópfimleikum
|
|
|
| 19/3/05 |

Efri röð f.v.: Kim Fischer, Dorthe Jensen,
Sólveig Jónsdóttir og Björn Björnsson.
Mið röð f.v.: Hrefna Halldórsdóttir,
Auður Ólafsdóttir, Andrea Dan Árnadóttir,
Þórunn Arnardóttir, Hrefna Hákonardóttir,
Ása Inga Þorsteinsdóttir, Íris Svavarsdóttir.
Fremsta röð f.v.: Marín Þrastardóttir,
Ásdís Guðmundsdóttir, María
Kristbjörg Árnadóttir, Sigurbjörg Jódís
Ólafsdóttir, Brynhildur Hlín Eggertsdóttir
og Íris Mist Magnúsdóttir.
Hópur Stjönunnar hefur sigrað á öllum
mótum sem hann hefur tekið þátt hérlendis
á undanförnum tveimur keppnistímabilum.
|
Stjarnan
úr Garðabæ sigraði á Íslandsmótinu
í hópfimleikum sem fram fór í dag.
Eins og sagði um úrslit á Bikarmótinu
þá kom sigur stúlknanna eingum á óvart
sem fylgst hafa með hópfimleikum á undanförnum
misserum. Nokkur breyting hefur átt sér stað
á hópnum frá því í fyrra
en engu að síður hélt hópurinn uppteknum
hætti og hefur nú sigrað á öllum
mótum vetrarins. Auk þess að verða Íslandsmeistari
í samanlögðu þá var hópur
Stjörnunnar einnig Íslandsmeistarar í dans
og dýnustökki. |

Sólveig Jónsdóttir hefur átt
mjög ánægjulegt keppnistímabil þar
sem hún hefur leikið eitt af lykilhlutverkum í
hóp Stjörnunnar bæði nú á
Íslandsmótinu og á Bikarmótinu. Í
apríl 2003 varð Sólveig fyrir bíl þar
sem ekið var á hana og hún klemmdist á
milli bifreiðarinnar og annarrar bifreiðar (sjá
hér). Um tíma var allt eins líklegt að
hún myndi missa aðra löppina að hluta. Betur
tókst til en útlit var í fyrstu og er því
mjög ánægjulegt fyrir hana og okkur öll
að sjá Sólveigu leika stjórt hlutverk
í sigri með vinkonum sínum úr Stjörnunni.
Þess má geta að Sólveig hefur verið
lengi að því hún varð Íslandsmeistari
í 4. þrepi árið 1992, þá
12 ára, en þá keppti hún fyrir Gerplu. |
Stúlkurnar
úr P1 í Gerplu náðu þó
að stöðva sigurgöngu Stjörnunnar með
því að verða Íslandsmeistarar á
Trampolíni.
Til úrslita um efstu þrjú sætin keppti
auk farmangreindra hópa stúlknahópur frá
Björk. Skemmst er að minnast þess að stúlkur
úr Björk urðu Íslandsmeistarar fyrir
tveimur árum (sjá hér)
og því verður gaman að sjá hvort
hér sé kominn hópur sem muni gera tilkall
til Íslandsmeistaratitils að ári liðnu
en Hlín Benediktsdóttir, einn af þjálfurum
hópsins nú, var í sigurhópnum
fyrir tveimur árum.
|

Íslandsmeistarar á Trampolíni,
hópurinn P1 frá Íþróttafélaginu
Gerplu í Kópavogi.
|

Sigurbjörg Ólafsdóttir, glæsileg
fimleikakona sem hefur verið í fremstu röð
fimleikafólks á Íslandi á annan
áratug.
|
Sex
hópar tóku þátt á Íslandsmótinu
að þessu sinni en aðeins fá þeir hópar
að keppa á mótinu sem fá leyfi til þess,
sjá hér.
Sigurbjörg Jódís Ólafsdóttir
fyrirliði Stjörnunnar hefur áður verið
í hópi þeirra bestu á Íslandi
í fimleikum. Til dæmis sigraði hún á
Seniormóti FSÍ í frjálsum æfingum
árið 1992, fjórða sæti á Íslandsmóti
1991 í frjálsum æfingum, sigraði í
3. þrepi á Meistaramót í Íslenska
fimleikastiguanum 1988. Sigurbjörg er því góð
fyrirmynd um að hópfimeikar hafa jákvæð
áhirf á þátttöku stúlkna
í fimleikum allt að þrítugsaldri en í
dag á hún eina dóttur. Þátttaka
stúlkna í fimleikakeppnum getur nú auðveldlega
verið óslitin í rúm 20 ár. |
| Íslandsmót í
áhaldafimleikum
|
|
|
| 20/3/05 |

Kristjana Sæunn, Íslandsmeistari
í fjölþraut og á stökki, slá
og gólfi. Hún hefur nú unnið tvö
ár í röð.
|
Keppt
er um tólf Íslandsmeistaratitla í áhaldafimleikum
á Íslandsmóti. Í ár hlutu Viktor
Kristmannsson og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
úr Gerplu í Kópavogi samtals 10 titla. Ekki
verður annað sagt um Íslandsmótið að
þessu |

Viktor, Íslandsmeistari í fjölþraut
og bogahesti, hringjum, tvíslá, svifrá og stökki
þar sem hann var jafn og Róbert bróðir sinni.
|
sinni en að þau tvö hafi því verið
með yfirburði.
Í úrslitum á áhöldum þá
sigraði Viktor Kristmannsson úr Gerplu í Kópavogi
á fimm áhöldum en þurfit þó
að deilda fyrsta sætinu á stökki með
bróður sínum og horfa á eftir gullinu
yfir til félaga síns Jónasar Valgeirssonar
úr Ármanni á gólfi. Viktor hafði
þó ákveðna yfirburði á Íslandsmótinu
og greinilegt að hann er í toppformi þrátt
fyrir að flensan hafi hrjáð hann á allra
síðustu dögum. Hann hefur verið við
æfingar með félaga sínum úr Gerplu
honum Rúnari Alexandersyni ásamt Lettneska landsliðinu
en hann fékk stuðning til þess frá Iðnskólanum
í Reykjavík og Íþróttafélaginu
Gerplu. Í stúlknaflokki sigraði Kristjanna
Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu í
Kópavogi á þremur áhöldum en
Sif Pálsdóttir úr Gróttu sigraði
á tvíslá.
|

Sif Pálsdóttir varð Íslandsmeistari
á tvíslá. Hún veitti Kristjönu
Sæunni harða keppni í fjölþraut en
hún fékk 7,975 fyrir æfingar sínar
á stökki í fjölþraut en 8,325 í
úrslitum. Í fjölþraut skildi 0,25 á
milli þeirra. Sem dæmi um hve jöfn keppnin var
á milli þeirra þá má segja að
ef Sif hefði haft sunnudagseinkunn sína á stökki
á laugardag þá hefði hún unnið
í fjölþraut með 0,1 stigi eða 32,725
stigum. En svona eru fimleikar. |
| Íslandsmót í
áhaldafimleikum
|
|
| 19/3/05 |
Þau
Viktor Kristmannsson og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir,
bæði úr Gerplu í Kópavogi tryggðu
sér því Íslandsmeistaratitilinn í
fjölþraut. Er þetta annað árið
í röð sem Íþróttafélagið
Gerpla í Kópavogi á Íslandsmeistara
bæði í karla og kvennaflokki.
Eftir harða keppni í stúlknaflokki sigraði
Kristjana Sæunn (32,625) annað árið í
röð en að þessu sinni veitti Sif Pálsdóttir
úr Gróttu (32,375) henni harða keppni en í
fyrra var það Inga Rós Gunnarsdóttir
(30,675) sem lék það hlutverk. Næst á
eftir Sif varð Harpa Snædís Hauksdóttir
úr Gróttu (31,05). Áhofendur og keppendur
eru því farnir að venjast því
að úrslit á Íslandsmóti í
áhaldafimleikum kvenna ráðist aðeins á
brot úr stigi. Efstu sex stúlkurnar í fjölþraut
fengu allar á bilinu 30,6 til 32,625 stig en þær
Kristjana og Sif skáru sig þó að vissu
leyti úr. Keppnin var jöfn eins og spáð
hafði verið og má allt eins búast við
því að á næsta ári muni
til dæmis Fríða Rún Einarsdóttir
úr Gerplu (30,75) eða Hera Jóhannesdóttir
úr Gróttu (30,6) blanda sér í toppslaginn
með framangreindum stúlkum.
|

Íslandsmeistarar 2005.
Vikrot Kristmannsson og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir. |

Gunnar Sigurðsson glæsilegur í
æfingum í hringjum en hann hafnaði í þriðja
sæti í fjölþraut og í þriðja
sæti í æfingum á hringum í úrslitum. |
Í
karlaflokki sigraði Viktor Kristmannsson úr Gerplu
(47,75) eins og að framan greinir en næst á eftir
honum komu félagar hans úr Ármanni þeir
Anton Heiðar Þórólfsson (43,8) og Gunnar
Sigurðsson (42,05). Búist var við að Viktor
sigraði á þessu móti og kom því
niðurstaðan í karlaflokki engum á óvart
en þó var búist við að bróðir
hans, Róbert Kristmannson úr Gerplu (41,6) myndi
blanda sér í topp þrjú sætin
en mistök hans á Svifrá í fjölþraut
kostnuðu hann að öllum líkindum bronsverðlaun
en hann fékk 5,3 stig á svifrá en á
Bikarmótinu fékk 6,55 stig. Viktor er ekki óvanur
að vera í sérflokki en sem dæmi má
nefna að árið 1994 sigraði hann í 4.
þrepi á Unglingamóti FSÍ í 10
- 12 ára aldursflokki með 56,7 stig en næsti
keppandi í öðru sæti var þá
með 46,6 stig.
|

Margrét Hulda Karlsdóttir með tignarlega
byrjun á slá en gaman var að fylgjast með
henni á móti og varð hún í þriðja
sæti í gólfæfingum. Hún hefur átt
við nokkur meiðsl að stíða og því
enn ánægjulegra að sjá árangur hennar
nú. |
Nefna má
sérstaklega að fyrirkomulag dómgæslu
í piltakeppni var til fyrirmyndar þar sem frádráttardómarar
sátu hver á sínum stað og áttu
þar af leiðandi enga möguleika á því
að fylgjast með og eða ræða saman um einstakar
útfærslur hjá keppendum (B-dómarar).
Dómarar sem taka útgangseinkunn saman sátu
svo hlið við hlið (A-dómarar). Er þetta
fyrirkomulag að erlendri fyrirmynd og mætti einnig
sjá þetta fyrirkomulag í stúlknakeppninni.
Framkvæmdaraðili mótsins var Ármann
og tókst það í alla staði mjög
vel. Miklum fjölda sjálfboðaliða sem lögði
sitt af mörkum er þakkað fyrir sitt framlag ásamt
því að dómurum er einnig þökkuð
þeirra störf. Án allra þessara sjálfboðaliða
verða fimleikamót illframkvæmanleg vegna kostnaðar
enda stendur og fellur íþróttahreyfingin
á starfi sjálfboðaliða.
|
Fimleikafélagið
Björk vill bjóða ykkur að taka þátt
í móti sem haldið er til heiðurs Mínervu
Jónsdóttur sem var ein af stofnendum FIMLEIKAFÉLAGSINS
BJÖRK. Mótið verður haldið í
Íþróttamiðstöðinni Björk
sunnudaginn 17. APRÍL. Keppt er í liðakeppni
í 5. og 6. þrepi íslenska fimleikastigans.
Það eru sex í hverju liði og fimm efstu
telja til stiga á hverju áhaldi. meira
hér.
|
| Spá um úrslit á
Íslandsmótum í fimleikum
|
|
|
Undanfarin
tvö ár hefur verið sett fram spá um úrslit
á Íslandsmótum í hópfimleikum
og áhaldafimleikum. Bæði árin voru úrslit
mótanna í samræmi við þá
spá sem sett hafði verið fram. Spá
2003 í hópfimleikum hér.
Því var spáð að Björk myndi
vinna og varð niðurstaða mótsins í
samræmi við þá spá. Spá
2003 í áhaldafimleikum karla hér
og kvenna hér. Því
var spáð að Viktor Kristmannsson og Sif Pálsdóttir
yrðu Íslandsmeistarar. Niðurstaða mótsins
var í samræmi við þá spá.
Sjá úrslit hér
í hópfimleikum og áhaldafimleikum hér.
Spá 2004 í hópfimleikum
og áhaldafimleikum hér.
Því var spáð að Íslandsmeistarar
í hópfimleikum kvenna yrðu stúlknahópurinn
úr Stjörnunni í Garðabæ og varð
niðurstaðan í samræmi við þá
spá. Þá var því spáð
að Íslandsmeistari í karlaflokki yrði
Viktor Kristmannsson úr Íþróttafélaginu
Gerplu og varð niðurstaðan í samræmi
við þá spá. Í kvennaflokki var
sagt að keppnin yrði mjög hörð og úrslitin
myndu sennilega ráðast á mjög litlum
mun. Svo varð raunin því Kristjana Sæunn
Ólafsdóttir fékk 31,75 stig og Inga Rós
Gunnarsdóttir fékk 31,475 stig. Sjá úrslit
hér í hópfimleikum
og áhaldafimleikum hér.
Undanfarin tvö ár hefur spá undirritaðs
því verið hárrétt. meira
hér
|
| Fimleikaveisla í Laugardalshöll |
|
15/3/05 |
Um næstu
helgi 18. – 20. mars n.k. verður sannkölluð
Fimleikaveisla haldin í Laugardalshöll en þá
eru haldin Íslandsmót bæði í
hópfimleikum og áhaldafimleikum.
Íslandsmót í hópfimleikum
Föstudaginn 18. mars kl. 18.30 – 20.10 er
Íslandsmót í hópfimleikum. Þar
keppa þau 7 lið sem náð hafa 21 stigi á
mótum vetrarins.
Í lok mótsins á föstudag eru krýndir
Íslandsmeistarar á einstökum áhöldum:
Á gólfi, á dýnu og á trampólíni.
Efstu 3 liðin komast áfram í úrslit
á laugardag 19. mars og stendur keppnin kl. 11.00 –
12.00 og verða þar krýndir Íslandsmeistarar
í hópfimleikum 2005.
Íslandsmót í áhaldafimleikum
Laugardaginn 19. mars kl. 15.00 - 17.40 er keppni í fjölþraut
í áhaldafimleikum. Þar keppir allt okkar
besta fimleikafólk sem er við æfingar hér
á landi. Í lok keppni verða krýndir
Íslandsmeistarar í áhaldafimleikum karla
og kvenna þ.e. sá einstaklingur sem hlýtur
hæsta samanlagða einkunn á öllum áhöldum.
Í karlaflokki er keppt á 6 áhöldum
og í kvennakeppninni á 4. áhöldum.
Sunnudaginn 20. mars kl. 14.00- 16.20 hefst síðan
keppni á einstökum áhöldum. Þar
keppa þeir 6 einstaklingar karla og kvenna sem hlutu hæstu
einkunnir á hverju áhaldi á laugardegi.
Krýndir eru Íslandsmeistarar á hverju áhaldi
fyrir sig.
|
| Stjarnan og Gerpla á Norðurlandamót |
|
14/3/05 |
Tækninefnd
í hópfimleikum hefur sent frá sér
eftirfarandi tilkynningu:
"Reykjavík
9. mars 2005
Varðandi
Norðurlandamót í hópfimleikum 2005
Tækninefnd í hópfimleikum hefur valið
þau 2 lið sem munu keppa fyrir Íslands hönd
á Norðurlandamótinu í hópfimleikum
sem fer fram í Laugardalshöll 9.apríl n.k.
Það eru lið Stjörnunnar eldri og lið
Gerplu P1 eldri.
Tækninefnd óskar liðunum til hamingju með
þátttökuréttin og óskum þeim
góðs gengis á mótinu.
THF"
|
| Íslandsmót
í skylduæfingum fór fram um helgina. Keppt
var í 9 flokkum, 5 hjá stúlkum og 4 hjá
piltum. Keppt var til Íslandsmeistaratitils í hverjum
flokk. Keppendur frá Íþróttafélaginu
Gerplu sigruðu í 6 flokkum en keppendur frá
Gróttu, Ármann og Björk sigruðu hver í
einum flokk. Athyglisvert er að nú fellur Íslandsmeistaratitill
í piltaflokki ekki í skaut Gerplu eða Ármanns
sem hafa nánast setið
|
Íslandsmeistarar
í þrepum
 |
| |
einir að öllum Íslandsmeisturum í karlafimleikum
í áratugi. Kristján A. Viðarsson kemur
stekur inn í 4. þrepið og sigrar Íslandsmeistaratitil
í piltaflokki fyrir sitt félag, Björk. Að
sögn Þrastar Hrafnssonar, þjálfara hans,
eru nú 5 piltaflokkar hjá Björk en skemmst
er að minnast þess að þeir náðu
2. sæti á Bikarmóti FSÍ um síðustu
helgi í 4. þrepi. Þröstur telur að
það hafi mikið að segja hvers góð
|

Kristján A. Viðarsson, tryggir Björk
Íslandsmeistaratitil í piltaflokki. |
aðstaða
er nú kominn upp í Hafnarfirði og það
sé núna að skila sér í verðlaunasætum
eins og sjá má. Hann telur líklegt að
strákarnir í Björk muni láta taka eftir
sér á næstu árum. Einu sinni áður
hefur Björk unnið Íslandsmeistaratitil í
piltaflokki og var það einnig í 4. þrepi
en það var Ingjaldur Ben Erlendsson sem vann það
afrek fyrir um 6 til 8 árum síðan. Framkvæmd
mótsins var í höndum Fimleikadeildar Stjörnunnar
sem leysti verkefnið vel úr hendi og er rétt
að þakka öllum þeim mikla fjölda sjálfboðaliða
sem komu að mótshaldinu fyrir þeirra ómetanleg
framlag. Án sjálfboðaliða verða engin
mót haldin. Fimleikar.is telur að Stjarnan hafi innan
sinna raða sérstaklega skemmtilegan kynnir, Eysteinn
Haraldsson, sem verður að þakka fyrir að gera
mótið skemmtilegt og líflegt.
Einnig má finna umfjöllun um mótið inn
á: www.armenningar.is/fimleikar/
og www.gerpla.is |
| Íslenski fimleikastiginn
hjá piltum |
|
9/3/05 |
Í
skylduæfingum pilta er keppt í Íslenska fimleikastiganum.
Skiptist hann í 5., 4., 3., 2. og 1. þrep. Hér
má sjá þær reglur sem gilda um keppni
í stiganum eins og þær eru nú.
Almennar reglur hér.
5. þrep hér.
4. þrep hér.
3. þrep hér.
2. þrep hér
og 1. þrep hér.
|
| Yfirþjálfari á
Egilsstaði |
|
9/3/05 |
| Staða
yfirþjálfara er laus hjá fimleikadeild Hattar
á Egilsstöðum frá og með hausti 2005.
Fimleikadeild Hattar er vel tækjum búin og eru iðkendur
um 150 talsins. Deildin er með almenna fimleika og hópfimleika.
Staðan felur í sér þjálfun, skipulagningu
/ halda utan um þjálfara og iðkendur.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma
471-3170 eða 861-1791
|
| Harpa Snædís Íþróttamaður
Seltjarnarness 2004 |
|
9/3/05 |
| Harpa
Snædís Hauksdóttir hefur æft fimleika
með fimleikadeild Gróttu frá því
hún var 6 ára. Hún æfir núna
með meistarahóp félagsins sem hafa orðið
bikarmeistarar í liðakeppni FSÍ 2003 og 2004.
Þá hefur Harpa hlotið mörg verðlaun
fyrir Gróttu í einstaklingskeppnum. Hún hefur
verið í landsliði FSÍ undanfarin fimm ár
og tekið þátt í mörgum mótum
erlendis fyrir Íslands hönd og meðal annars nú
síðast í nóvember þegar kvennalandsliðið
varð í öðru sæti í liðakeppni
á Norður - evrópumótinu sem fram fór
í Danmörku.
|
 |
| Keppendur á Íslandsmóti
í hópfimleikum |
|
9/3/05 |
| Eftirtalin
lið hafa unnið sér þátttökurétt
á Íslandsmóti í hópfimleikum
sem haldið verður í Laugardalshöll, föstudaginn
18. mars og laugardaginn 19. mars. Liðin eru vinsamlega beðin
að staðfesta þátttöku í síðasta
lagi föstudaginn 11. mars.Liðin eru í þeirri
keppnisröð sem dregin hefur verið: 1. Fylkir 2. Selfoss
T1 3. Stjarnan E 4. Gerpla E 5. Grótta 6. Björk H
7. Selfoss T2
Dagskrá verður send út næstu daga. En
gera má ráð fyrir að almenn upphitun hefjist
kl. 17.00 á föstudag.
|
| Myndir frá Bikarmóti
FSÍ |
|
9/3/05 |
Vegna
tilkynningar um Íslandsmót í þrepum þá
er rétt að rifja upp bréf sem Tækninefnd
kvenna setti saman í haust varðandi mót vetrarins
en hefur ekki birst áður á www.fimleikar.is
Sjá hér
um skylduæfingar og hér
um frjálsar æfingar. |
| Íslandsmót
í þrepum 2005 |
|
7/3/05 |
Tilkynning
frá Tækninefnd Kvenna
|
|
Tilkynning
frá Tækninefnd Karla |
| Eftirtaldar
stúlkur hafa unnið sér inn rétt til þátttöku
á íslandsmóti í þrepum 2005.
Skoðuð voru úrslit frá Haustmóti,
Gymnova þrepamóti og Bikarmóti og teknar hæstu
einkunnir þessara móta. Mótið fer fram
í fimleikahúsi Bjarkanna í Hafnafirði
laugardaginn 12. mars. Þjálfarar eru beðnir um
að láta vita í síðasta lagi miðvikudaginn
9.mars ef einhverjar af stúlkunum keppa ekki. Nöfn
dómara þurfa einnig að berast ekki síðar
en 9.mars.
5.þrep (lægsta skor 35,3)
Helga Kristín Einarsdóttir Grótta
Rakel Tómasdóttir Gerpla
Unnur Andrea Sævarsdóttir Björk
Hafdís Davíðsdóttir FA |
|
1.þrep
Hlynur Kristjánsson Gerpla 54,30
Magnús Heimir Jónasson Gerpla 54,90
Helgi Steinsson Gerpla 53,15
Brynjar Wilhelm Jochumson Gerpla 49,00
Þórarinn Reynir Valgeirsson Gerpla 46,25
2.Þrep
Davíð Kristján Ólafsson Gerpla 58,00
Hávar Helgi Helgason Ármann 57,90
Tómas Helgi Tómasson Gerpla 57,50
Jón Sigurður Gunnarsson Ármann 57,40
Tómas Aron Guðmundsson Ármann 57,15
Viktor Orri Andersen Gerpla 56,90
Sindri Steinn Davíðsson Ármann 56,45
Atli Jasonarson Ármann 56,45
Haraldur Sveinn Karlsson Gerpla 54,85 Til vara |
Á síðari keppnisdegi Bikarmóts FSÍ
í áhaldafimleikum var keppt í 5. og 3.
þrepi stúlkna og 4., 3. og 2. þrepi pilta.
Íþróttafélagið Gerpla í
Kópavogi sigraði í 5. þrepi stúlkna
og 4. og 3. þrepi pilta en Grótta á Seltjarnarnesi
sigraði í 3. þrepi stúlkna og Ármann
sigraði í 2. þrepi pilta.
Niðurstöður af báðum keppnisdögum
eru því eins og fram kemur á meðfylgjandi
mynd að Íþróttafélagið Gerpla
sigraði í 9 keppnisflokkum, Ármann í
einum og Grótta í einum.
|
Bikarmeistarar
2005
 |

Gunnar Birgisson formaður bæjarráðs Kópavogs
afhendir stúlkunum í Gerplu í Kópavogi
bikarinn í fyrsta skiptið í fjöldamörg
ár. Kópavogsbær hefur sutt mjög vel
við bakið á íþróttastarfssemi
í bænum á undanförnum árum með
byggingu íþróttamannvirkja en nú
rétt fyrir áramót var tilkynnt um ennfrekari
stuðning við íþróttafélögin
með fjárhagslegum stuðningi við foreldra
barna sem stunda íþróttir í bænum,
sjá frétt hér.
|
Eftir
því sem næst verður komist þá
hefur ekkert fimleikafélag náð að vinna
jafn marga bikara á Bikarmóti FSÍ síðan
byrjað var að keppa eftir núverandi fyrirkomulagi.
En í þeim tilvikum sem félagið sigraði
ekki þá hafnaði félagið í öðru
sæti og sama má segja um Bikarmótið í
hópfimleikum sem fram fór á föstudaginn
þar sem Gerpla varð í örðu sæti.
Staða Gerplu er því feiknar strek um þessar
mundir. |

Mikið af flottum myndum af mótinu má
sjá hér.
Fleiri síðar. |
Bikarmót FSÍ
Gerpla sigrar í öllum keppnisflokkum á fyrsta
degi |
|
| 5/3/05 |
Í
dag fór fram fyrri hluti Bikarmóts Fimleikasambands
Íslands í áhaldafimleikum. Þátttakendur
á mótinu eru um 230 talsins, þar á
meðal var flest af besta fimleikafólki landsins.
Í frjálsri gráðu, erfiðustu æfingunum,
sigruðu lið frá Gerplu í bæði
karla og kvennaflokki. Þrjú efstu liðin í
karlaflokki voru Gerpla 171,9 í fyrsta sæti, Ármann,
A-lið 163,7 í öðru sæt og Ármann,
B-lið 102,1 í þriðja sæti. Þrjú
efstu liðin í kvennaflokki voru Gerpla 95,4 í
fyrsta sæti og Grótta 94,2 í öðru
sæti. Einnig var keppt um titilinn Bikarmeistari í
þrepum.Efstu lið urðu sem hér segir:
|

Bikarmeistar úr Gerplu |
1. þrep pilta. Bikarmeistari varð lið frá
Gerplu með 257,8 stig.
1. þrep stúlkna. Bikarmeistari varð lið
frá Gerplu með 68,6 stig.
2. þrep stúlkna. Bikarmeistari varð lið
frá Gerplu með 95,3 stig.
4. þrep stúlkna. Bikarmeistari varð lið
frá Gerplu með 142,2 stig.
|
|
Bikarmeistarar 10 ár í röð í frjálsum
æfingum karla |
|
| 5/3/05 |
Íþróttafélagið
Gerpla í Kópavogi hefur sigrað á Bikarmóti
FSÍ í frjálsum æfingum karla í
10 ár í röð. Sigurganga félagsins
er óslitin frá Bikarmóti FSÍ árið
1996. Samkvæmt upplýsingum. Að þessu
sinni var hópurinn skipaður þeim Róbert
Kristmannssyni, Erlendi Kristjánssyni, Viktor Kristmannsyni,
Dýra Kristjánssyni, Ingvari Á. Jochumsyni
og Ólafi G. Gunnarssyni. Gerpla sigraði fyrst á
bikarmóti 1991 en í liðinu þá
voru Guðmundur Þór Brynjólfson, Jón
Finnbogason, Þröstur Hrafnsson, Jón Trausti
Sæmundsson, Mario Szonn og Heimir Jón Gunnarsson.
Úr þessum hóp voru fjórir enn við
störf á Bikarmótinu 2005 þar sem Heimir,
Þröstur og Guðmundur voru dómarar en Jón
var mótsstjóri. Svona hátt hlutfall af
bikarliði Gerplu 1991 í sjálfboðaliðastarfi
er mjög jákvæð þróun því
ekki má gleyma því að sjálfboðaliðastarf
er máttarstólpi íþróttahreyfingarinnar.
|

Bikarmeistar Gerplu 2005 ásamt Guðmundi
Þór (t.v.) og Jóni Finnbogasyni (t.h.) en
þeir voru í hópnum sem vann bikarinn í
fyrsta skiptið fyrir Gerplu árið 1991. |
Í
frjálsum æfingum kvenna sigraði Gerpla nú
bikarinn í fyrsta skiptið í hátt í
annan áratug en síðustu sigurvegarar í
kennaflokki hafa verið sem hér segir: Björk
sigraði 1995, 1996, 1997, 1998 og 1999, Ármann sigraði
2000, 2001 og 2002, Grótta sigraði 2003 og 2004 en
nú í ár sigraði Gerpla.
|
|
Skylduæfingar pilta |
|
| 5/3/05 |
Tækninefnd
Karla hjá FSÍ hefur tekið saman myndband um
skylduæfingar Íslenska fimleikastigans. Er hér
um að ræða 16 mínótna myndband sem
sýnir æfingar á hverju áhaldi fyrir
sig í öllum þrepum. Skjalið er um 211mb.
Niðurhal getur því tekið nokkra stund.
Telja verður að hér sé stigið mjög
jákvætt skref og ætti að vera til að
auka þekkingu á þeim æfingum sem keppt
er eftir á flestum mótum FSÍ. Gott framtak
hjá Tækninefnd karla.
|
|
Stjarnan Bikarmeistarar í
hópfimleikum |
|
| 4/3/05 |
Engum
kom á óvart að Stjarnan í Garðabæ
sigraði örugglega á Bikarmóti FSÍ
í hópfimleikum sem fram fór nú í
kvöld. Alls tóku 11 lið þátt í
mótinu og komu þau frá 9 félögum.
Í öðru sæti varð lið Gerplu í
Kópavogi með 23.25 stig og í þriðja
sæti varð Björk úr Hafnarfirði með
22.35 stig. Þetta er mesti fjöldi sem tekið hefur
þátt í Bikarmóti. Nú voru
m.a lið frá Rán í Vestmannaeyjum og
frá Fimleikafélagi Akureyrar og sýnir það
vel hina miklu aukningu sem er í greininni. Önnur
lið sem tóku þátt í mótinu
og ekki hafa verið nefnd voru: Gerpla eldri og mið,
Fylkir, Björk, Hamar, Stjarnan mið, Grótta,
Gerpla mið og Selfoss.
|

Stúlkurnar úr Stjörnunni. |
Innan
skamms mun Norðurlandamót í hópfimleikum
fara fram í laugardalshöllinni. Telja verður
að þegar tekið er mið af úrslitum síðustu
móta þá sé ljóst að verulegar
líkur séu fyrir því að fyrir
Íslands hönd muni hópur Stjörnunnar
og Gerplu taka þátt á Norðurlandamótinu.
Hin norðurlöndin, t.d. Svíþjóð
og Danmörk hafa nú þegar valið hverjir
keppa fyrir þeirra hönd en enn liggur ekki fyrir
hverjir munu keppa fyrir hönd Íslands. Þess
er að vænta á næstu dögum.
|
|
Bikarmeistarahelgi framundan |
|
| 1/3/05 |
Um
næstu helgi mun fara fram Bikarmót í hópfimleikum
og áhaldafimleikum. Óhætt er að segja
að helgin verður umsvifamesta keppnishlegi FSÍ
á þessu keppnistímabili og ættu allir
að finna eitthvað við sitt hæfi enda mun allt
besta fimleikafólk landsins taka þátt á
þessum mótum, bæði í hópfimleikum
og áhaldafimleikum.
Á föstudagskvöld 4. mars kl.
19.10 hefst Bikarmót í hópfimleikum
í Íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi.
Áætluð mótslok eru kl. 21.00. Á
mótinu keppa alls 11 lið. Þeirra á meðal
eru sterkustu liðin í greininni, þ.e. þau
lið sem eru að keppast um að verða valin til
keppni á Norðurlandamótinu í hópfimleikum
sem haldið verður í Höllinni 9. apríl.
Laugardag og sunnudag 5. og
6. mars er Bikarmót í áhaldafimleikum
í Laugardalshöll.
Kl. 10.00 á laugardag
hefst keppni í 4. þrepi stúlkna þar
sem keppa 7 lið. Þrepin hjá stúlkum
eru fimm og þær byrja að keppa í 5. þrepi
og fjögur hjá strákunum og þeir byrja
að keppa í 4. þrepi.
Kl. 14.00 hefst svo keppni okkar besta fólks
í áhaldafimleikum. Keppt verður í frjálsum
æfingum kvenna og 1. og 2. þrepi og frjálsum
æfingum karla og 1. og 2. þrepi. Í frjálsum
æfingum karla keppa lið Ármanns og Gerplu.
Á sunnudagi kl. 09.00
hefst svo keppni í 5. þrepi stúlkna og og
4. þrepi pilta þeim hluta lýkur um kl. 12.15
og kl. 14.00 hefst keppni í 3. þrepi
stúlkna og 2. og 3. þrepi pilta.
|
|
|
|