Sif á leið á ungmennabúðir í tengslum við Ólympíuleikana

frétt á isisport.is
[31/03/2004]

Tilkynnt hefur verið um að Sif Pálsdóttir, úr Gróttu, hafi ásamt Arnari Má Þórissyni, spjótkastara úr FH, verið valin úr hópi 50 ungmenna til þess að taka þátt í ungmennabúðum (Olympic Youth Camp) í tengslum við Ólympíuleikana í Aþenu. Íslandsbanki-Sjóvá Almennar auglýsti eftir umsækjendum og sáu markaðsstjórar fyrirtækisins um að velja þau tvö.
Sif og Arnar Már verða því úti í Aþenu frá 11. til 26. ágúst og taka þátt í fjölmörgum viðburðum ásamt um 400 öðrum ungmennum allsstaðar að úr heiminu. Þau munu m.a. verða viðstödd opnunarhátíðina, fá að fylgjast með keppni í fjölmörgum íþróttum, fara í ferð til Olympíu og margt fleira.
Fimleikafólk óskar þeim báðum innilega til hamingju með þetta frábæra tækifæri og þá sérstaklega Sif.

Frá þessu var greint á www.isisport.is


Sif Pálsdóttir

Fyrsta HSK mót í fimleikum

[31/03/2004]

Næstkomandi föstudag, 2. apríl, verður fyrsta HSK mótið í fimleikum haldið í íþróttahúsinu á Selfossi. Fimleikadeild Umf. Selfoss heldur mótið að þessu sinni. Sextán lið, um 180 keppendur eru skráðir til keppni á mótið sem er tvískipt.
Fyrri hluti mótsins hefst klukkan 18:00. Keppt verður eftir byrjendareglum í tveimur aldursflokkum, 9-10 ára og 11 ára og eldri. Í flokki 9-10 ára keppa hópar frá Íþróttafélaginu Hamri, Umf. Hrunamanna og Umf. Selfoss.

Í flokki 11 ára og eldri keppa hópar frá Umf. Laugdæla, Umf. Þór, Hamri og Umf. Selfoss. Keppni lýkur með verðlaunaafhendingu klukkan 19:20.
Í síðari hluta mótsins verður keppt eftir reglum FSÍ í einum aldursflokki. Fimm hópar mæta til keppni, frá Hamri, Þór og Umf. Selfoss. Keppni hefst klukkan 20:05 og lýkur með verðlaunaafhendingu klukkan 21:15.
Fimleikar eru nú æfðir víðsvegar á HSK svæðinu og iðkendum fjölgar ár frá ári.. Fjölmennum í íþróttahúsið á Selfossi næstkomandi föstudagskvöld, kynnumst öflugu fimleikastarfi á sambandssvæðinu og hvetjum félögin.


Ný stjórn í fimleikadeildinni í Keflavík

[31/03/2004]

Nýlega var skipt um stjórn í fimleikadeildinni í Keflavík en eins og lesendur www.fimleikar.is hafa tekið eftir þá hefur starfið í deildinni vaxið nokkuð mikið að undanförnu. Stjórnina skipa nú E. Magdalena Sæmundsdóttir, formaður, Kolbrún Jóna Pétursdóttir, varaformaður, Jónína Steinunn Helgadóttir, gjaldkeri, Ágústa Ásgeirsdóttir, ritari. Í meðstjórn eru þær Eva Björk Sveinsdóttir, Sveinbjörg Sigurðardóttir, Herdís Halldórsdóttir. Nánari upplýsingar um stjórnina hér.
Óskum við þeim öllum góðs gengis í störfum sínum fyrir fimleikadeildina.


Tanja í 2. sæti á slá og Rúnar 2. sæti á tvíslá

[28/03/2004]

Tanja B. Jónsdóttir úr Björk varð í 2. sæti í úrslitum á slá á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum sem nú fer fram í Svíþjóð. Tanja fékk 7,575 í einkunn. Í fyrsta sæti varð Weronica Wagner frá Svíþjóð en hún mun keppa á Ólympíuleikunum í sumar en hún fékk 8,875 í einkunn. Árangur Tönju er mjög góður en hún stóð sig mjög vel á Íslandsmótinu um síðustu helgi en þar varð hún Íslandsmeistari á tvíslá og stökki. Tanja fékk 7,05 fyrir æfingar sínar á tvíslá og hafnaði í 4. sæti og í úrslitum á stökki varð hún í 5. sæti með 8,375 stig.
Rúnar Alexandersson hafnaði í öðru sæti á tvíslá með 8,75 stig á eftir Sami Alto sem fékk 8,8 stig. Honum gekk ekki nægjanlega vel á bogahesti þar sem hann fékk 8,0 í einkunn. Gunnar Sigurðsson úr Ármanni keppti í úrslitum á stökki og varð í 6. sæti en hann varð íslandsmeirstari í stökki um síðustu helgi.
Sif Pálsdóttir varð í 5. sæti í úrslitum á gólfæfingum með 7,35 stig og Hera Jóhannesdóttir varð í 6. sæti með 7,325 stig en hún varð einnig í 6. sæti á slá með 6,575 stig. Inga Rós Gunnarsdóttir varð í 6. sæti í úrslitum á tvíslá með 6,75 stig.


Ísland í 3. sæti á Norðurlandamóti

[27/03/2004]

Íslenska stúlknalandsliðið í áhaldafimleikum varð í 3. sæti á Norðurlandamóti sem fram fór í Svíþjóð nú í dag. Er þetta í annað skipið sem okkur tekst að komast á verðlaunapall í liðakeppni á Norðurlandamóti í áhaldafimleikum. Á mótinu sigruðu stúlkurnar okkar bæði Svíþjóð og Danmörk sem verður að teljast sætur sigur. Í fyrsta sæti varð Finnland og í öðru sæti varð Noregur.
Rúnar Alexandersson hafnaði í öðru sæti samanlagt. Norðurlandameistari varð Sami Aaalto og í þriðja sæti varð Jani Tanskönnan, báðir frá Finnlandi.
Í landsliðinu eru þær Hera Jóhannesdóttir, Auður Jóna Guðmundsdóttir, Sif Pálsdóttir allar úr Gróttu og Tanja B. Jónsdóttir úr Björk og Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu.


Hera Jóhannesdóttir átti mjög góðan dag og varð efst af íslensku stúlkunum og hafnaði í 6. sæti á mótinu. Er það hennar besti árangur á alþjóðlegu móti hingað til.

Á morgun fara fram úrslit á einstökum áhöldum. Útlit er fyrir að okkar stúlkur muni fjölmenna þar því Tanja er í úrslitum á stökki, tvíslá og slá. Hera á slá, Inga Rós á tvíslá og Sif á gólfi. Gunnar Sigurðsson úr Ármanni keppir í úrslitum á stökki.
Hera Jóhannesdóttir varð efst af íslensku stúlkunum og hafnaði í 6. sæti, Inga Rós í 7. sæti og Sif í 8. sæti.
Landslið karla er skipað þeim Antoni H. Þórólfssyni, Jónasi Valgeirssyni og Gunnari Sigurðssyni öllum úr Ármanni og Viktori Kristmannssyni og Rúnari Alexanderssyni úr Gerplu.
Fyrsta skiptið sem íslenska stúlknalandsliðið fékk verðlaun á norðurlandamóti í samanlögðu var 1998 í Noregi en í landsliðinu voru þá Elva Rut Jónsdóttir, Jóhanna Sigmundsdóttir, Elín Gunnlaugsdóttir og Elísabet Birgisdóttir. Stúlkurnar sigruðu þá Danmörk og Finnland. Það var því ekki rétt eins og fyrst var greint frá að verðlaun í samanlögðu hefði nú í fyrsta skiptið komið í okkar hlut. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.
Nánari upplýsingar veita landsliðsþjálfari stúlkna, Ásdís Pétursdóttir í síma 896-5960, Guðmundur Þór Brynjólfsson 695-9288 og farastjórinn Örn Sigurðsson 693-9641.


Myndir af fimleikaveislu frá síðustu helgi

[24/03/2004]

Á heimasíðunni Pixlar ljósmyndavefur má sjá um 820 myndir af Íslandsmóti í hópfimleikum og áhaldafimleikum. Það er ljósmyndaverslunin Pixlar stafræn framköllun á Suðurlandsbraut 52 (við hlið McDonalds) sem heldur úti ljósmyndavefnum og framkallar stafrænar myndir á lægra verði en almennt þekkist. Heimasíða verslunarinnar er http://www.pixlar.is og sími 588-3700.


SP-Fjármögnun aðalstyrktaraðili FSÍ

[23/03/2004]

Gunnar Einarsson formaður FSÍ og Thelma Harðardóttir frá SP-Fjármögnun hf.
Á Íslandsmótinu nú um helgina var gengið frá undirritun samnings við SP-Fjármögnun hf. þar sem staðfest var að félagið yrði aðalstyrktaraðili FSÍ í eitt ár. Felur þessi samningur í sér mikinn fjárhagslegan stuðning við starf FSÍ. SP-Fjármögnun hf. vill með þessu stuðla að þátttöku ungs fólks í íþróttastarfi og telur að fimleikaiðkun sé góður grunnur fyrir alla íþróttaiðkun. SP-Fjármögnun hf. er alhliða fjármögnunarfyrirtæki með mikil umsvif. Gunnar Einarsson formaður FSÍ er ánægður með að fá jafn sterkt fyrirtæki og SP-Fjármögnun hf. til þess að gerast aðalstyrktaraðili FSÍ.


Íslandsmeistararnir í fjölþraut, þau Viktor Kristmannsson og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, stilla sér upp með bikarana sem þau fengu fyrir sigur á Íslandsmótinu.


Fimleikar á Útvarpi Sögu, FM 99,4

[23/03/2004]

Miðvikudaginn 24. mars verður á Útvarpi Sögu umfjöllun um fimleika. Þar verður viðtal við Önnu Möller framkvæmdastjora FSÍ og Jón Finnbogason stjórnarmann FSÍ. Viðtalið fer fram kl. 13:20.


Úrslit á einstökum áhöldum á Íslandsmóti

[21/03/2004]


Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu varð Íslandsmeistari á gólfæfingum en á myndinni má sjá hana á Tvíslá. Í afstökki á tvíslá datt hún illa en sýndi einstaka keppnishörku með því að endurtaka að nýju afstökkið og endaði með glæsibrag.

Meira hér

Íslandsmeistararnir í fjölþraut, þau Viktor Kristmannsson og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir fengu harða keppni í úrslitum á einstökum áhöldum sem fram fór í dag.
Tanja B. Jónsdóttir úr Björk átti góðan dag og gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari á tveimur áhöldum af fjórum í stúlknaflokki með því að sigra á stökki og tvíslá. Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu varð Íslandsmeistari í gólfæfingum. Kristjana Sæunn varð Íslandsmeistari á slá en hún varð jafnframt Íslandsmeistari í fjölþraut.
Jónas Valgeirsson varð Íslandsmeistari á svifrá og félagi hans úr Ármanni, Gunnar Sigurðsson, varð Íslandsmeistari á stökki. Á hinum fjórum áhöldunum sigraði Viktor Kristmannsson en þurfti þó að deilda Íslandsmeistaratitlinum í gólfæfingum með litla bróður sínum, Róberti Kristmannssyni.
Úrslit karla hér & kvenna hér.

Tanja B. Jónsdóttir úr Björk varð Íslandsmeistari í æfingum á Tvíslá og á Stökki.
Jónas Valgeirsson úr Ármanni varð Íslandsmeistari í æfingum á svifrá.
Meira hér

Viktor og Kristjana Sæunn úr Gerplu Íslandsmeistarar

[20/03/2004]


Viktor Kristmannsson úr Gerplu í æfingum á bogahest en hann fékk 9,1 stig fyrir þær en það er hans hæsta einkunn á bogahesti hingað til.

Úrslit í karlaflokki hér.

Úrslit í kvennaflokki hér.

Viktor Kristmannsson og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir bæði úr Íþróttafélaginu Gerplu í Kópavogi sigruðu í fjölþraut á Íslandsmótinu sem fram fór nú í dag. Er það í fyrst skiptið sem Gerpla eignast Íslandsmeistaratitla í bæði karla og kvennaflokki á sama árinu.
Í karlaflokki varð Jónas Valgeirsson í öðru sæti og Anton H. Þórólfsson í þriðja sæti en þeir eru báðir úr Ármanni. Úrslitin eru í samræmi við spá.
Í kvennaflokki varð Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu í öðru sæti og Sif Pálsdóttir úr Gróttu í þriðja sæti. Keppnin var mjög hörð í kvennaflokki og aðeins munaði 0,675 á fyrsta og þriðja sætinu en því hafði verið spáð að mjög lítið myndi bera á milli efstu keppenda í kvennaflokki.

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu í æfingum á slá.

Stjarnan Íslandsmeistarar í hópfimleikum 2004

[20/03/2004]

Í úrslitum á Íslandsmótinu í hópfimleikum sem fram fór í dag sigraði hópur Stjörnunnar. Í öðru sæti var Gerpla og í þriðja sæti Grótta. Úrslitin komu ekki á óvart og voru að öllu leyti í samræmi við spá sem gerð var um sennileg úrslit á mótinu.

Úrslitin má nálgast hér.


Stjarnar sigrar með yfirburðum á öllum áhöldum

[19/03/2004]

Í undanúrslitum á Íslandsmótinu í hópfimleikum sem fram fór í kvöld þá sigraði hópur Stjörnunnar með miklum yfirburðum. Stjarnan fékk 25,95 stig sem er líklega hæsta einkunn sem nokkur hópur hefur náð á móti í hópfimleikum á Íslandi og varð hópurinn Íslandsmeistari á öllum áhöldum, gólfi, dýnu og trampolíni. Í öðru sæti varð Gerpla P1 og í þriðja sæti varð Grótta. Hér er um að ræða undanúrslit. Ef niðurstöður keppninnar í kvöld gefa vísbendingu um hvernig keppnin um Íslandsmeistaratitilinn fer á morgun þá er líklegt að spáin sem sett var fram verði að veruleika, sjá spá hér.
Úrslit hér.


Myndir frá Heimsbikarmótinu í Lyon í Frakklandi

[17/03/2004]

Um síðustu helgi tók Rúnar Alexandersson þátt á Heimsbikarmótinu í Lyon á Frakklandi. Eins og greint hefur verið frá þá stóð hann sig mjög vel og hafnaði í 4. - 5. sæti í úrslitum á bogahesti. Í för með honum var Björn Magnús Tómasson og Guðmundur Þór Brynjólfsson. Björn var dómari á mótinu og Guðmundur sem þjálfari Rúnars.
Við þökkum kærlega fyrir þær myndir sem við birtum hér á síðunni en Björn tók þær á mótinu.

Myndir hér.


Guðmundur Þór Brynjólfsson og Rúnar Alexandersson

Spá um úrslit á Íslandsmótum í fimleikum

 
[16/03/2004]JF

Sett hefur verið fram spá um úrslit á Íslandsmótinu sem fram fer um næstu helgi. Hún er þó frábrugðin sambærilegri spá frá því í fyrra. meira hér


Gerpla sigrar á Unglingameistaramóti Myndir af mótinu hér.
[14/03/2004]JF

Hópur Íþróttafélagsins Gerplu sigraði á Unglingameistaramóti í Hópfimleikum sem fram fór í Íþróttahúsi Seljaskóla í dag. Í öðru sæti varð hópur Bjarkar úr Hafnarfirði og í þriðja sæti varð hópur Gróttu.
Mótið fór fram í tveimur hlutum. Í fyrrihluta kepptu yngri keppendur en í síðari hluta fór svo fram keppni í svokölluðum miðhóp. Hópar frá Gerplu sigruðu í báðum hlutum mótsins. Úrslit mótsins hér


Rúnar gerir enn betur í úrslitum: 4 - 5. sæti  
[14/03/2004]JF

Rúnar Alexandersson bætti sig enn frekar í úrslitum og hafnaði í 4. - 5. sæti með 9,637 en hann varð jafn Frakkanum Eric Casimir sem einnig fékk 9,637 stig. Í fyrsta sæti varð Marius Urzica en hann er tvöfalldur Olympíumeistari í æfingum á Bogahest. Mótið fór fram í íþróttahöll í Lyon í Frakklandi í dag að viðstöddum um fimm þúsund áhorfendum sem fylltu höllina en mótið var einnig í beinni útsendingu í sjónvarpi. Úrslit á bogahesti má sjá hér.


Rúnar í 6. sæti í undanúrslitum á bogahesti á Heimsbikarmóti  
[13/03/2004]JF

Rúnar Alexandersson sannaði enn einu sinni að hann er í hópi allra bestu fimleikamanna í heiminum í dag í æfingum á bogahesti. Hann hafnaði í 6. sæti í undanúrslitum á heimsbikarmóti í Lyon í Frakklandi í dag. Eins og venja er á heimsbikarmótum þá kepptu þar allt besta fimleikfólk í heiminum. Rúnar fékk 9,575 í einkunn fyrir æfingar sínar og var hann dæmdur út frá 10.0
Þess má geta að Paul Hamm sem sigraði á HM í fyrra hafnaði í 25. sæti með einkunnina 8.65 en hann féll af bogahestinum í sínum æfingum.
Á morgun fer fram úrslit á áhöldum og mun Rúnar keppa á bogahest og verður mótið í beinni útsendingu í sjónvarpinu í Frakklandi. Úrslitin frá því í dag hér. Heimasíða mótsins hér.


Rúnar Alexandersson

Unglingamót í hópfimleikum  
[13/03/2004]

Unglingamót í hópfimleikum veður haldið í Íþróttahúsi Seljaskóla á sunnudaginn 14. mars n.k. Alls keppa 14 lið á mótinu en því er tvískipt.
Fyrri hluti hefst kl. 10.10 þar keppa yngri lið þ.e. 10 - 14 ára
Seinni hluti hefst kl. 13.30 og þar keppa mið lið þ.e. 13 - 18 ára. Úr hópi þessara liða verða valin lið til keppni á Norðurlandamótinu í hópfimleikum sem haldið verður í Reykjavík 23. - 25. apríl n.k.


Dýri sterkur á alþjóðlegan mælikvarða á tvíslá  
[8/03/2004]JF

Dýri Kristjánsson hefur sýnt það nú í vetur að æfingar hans á tvíslá eru mjög frambærilegar á alþjóðlegan mælikvarða. Á hverju mótinu af fætur öðru fær hann um 8,5 - 8,6 á tvíslá. Nú um helgina keppti hann fyrir Háskólalið Minnesota við sterkt lið Háskólans í Nebraska en á styrkleikalista er Nebraska skólinn í 8. sæti en Háskólaliðið í Minnesota í 11. sæti (sjá styrkleikalista hér). Engu að síður sigraði Minnesota (sjá hér). Dýri fékk 8,65 á tvíslá og 8,35 á svifrá.

Óhætt er að segja að Dýri sé að koma sér á blað því á styrkleikalistanum í USA er hann nú í 59. sæti á tvíslá og 69. sæti á svifrá.

Gaman er að bera saman einkunnir í fjölþraut á Heimsbikarmótinu í Cottbus nú um helgina við einkunn Dýra á tvíslá. Sá samanburður sýnir að æfingar Dýra eru mjög frambærilegar í alþjóðlegu samhengi (sjá einkunnir á Cottbus hér). Miðað við þennan árangur væri gaman ef Dýri gæti tekið þátt á n.k. Norðurlandamóti sem fram fer í Svíþjóð eftir um 3 vikur.


Dýri Kristjánsson © Jeffrey Alger

Bikarmót FSÍ Laugardagur myndir hér og Sunnudagur myndir hér
[6/03/2004]JF

Ingunn Ósk Erlendsdóttir úr Gróttu en hún fékk flest stig allra keppenda í 5. þrepi eða samtals 37.151 auk þess að hennar lið varð Bikarmeistari í 5. þrepi. Þess má geta að hún sigraði einnig í sínum flokk á Þrepamóti FSÍ nú fyrir tveim vikum síðan. Greinilega efnileg stúlka sem vert er að fylgjast með í framtíðinni.
Bikarmót FSÍ fór fram um helgina. Keppni fór fram í 9. flokkum. Íþóttafélagið Gerpla varð Bikarmeistari í 6 flokkum, Grótta í einum, Ármann einum og Fylkir í einum en það er í fyrsta skiptið sem Fylkir verður Bikarmeistari í áhaldafimleikum. Meira

Fríða Rún Einarsdóttir, Gerplu, keppti í 1. þrepi og fékk samtals 35.425 stig og varð efst í sigurliði Gerplu í 1. þrepi. Fríða Rún keppti í frjálsum æfingum á Þorramóti FSÍ um síðustu helgi og fékk þá 29.125 stig. Líklega mun Fríða Rún verða áberandi í framvarðasveit íslenskra fimleikastúlkna á næstu árum.

Rúnar keppir á heimsbikarmótaröðinni   [6/03/2004] JF / GÞB
Nú fyrir helgi tók Rúnar Alexandersson úr Íþróttafélaginu Gerplu þátt í einu af sterkasta fimleikamóti ársins fyrir Ólympíuleikana í ágúst en það er mót í heimsbikarmótaröðinni. Mótið fór fram í þýskalandi og tóku keppendur þátt frá 48 þjóðum.
Rúnar hafnaði í 8. - 9. sæti á bogahesti í fjölþrautarkeppni en hann fékk 9,5 í einkunn. Keppnin var mjög hörð en efsti maður á bogahesti fékk 9.65 stig. Rúnar var dæmdur út frá 10.0 en Stephen McCain frá USA fékk einnig 9.5 í einkunn en var dæmdur út frá 9.9 og því komst hann áfram í úrslit en ekki Rúnar (sjá einkunnir á bogahesti hér).
Heimasíða mótsins er hér.

Rúnar Alexandersson á bogahesti á bikarmótinu um síðustu helgi.

Hallar á kvenfólkið?
Greinin birtist í Morgunblaðinu 27. mars sl. / GE
[2/03/2004]
Þegar ég var ungur maður og lífið var handbolti hlotnaðist mér stundum sá heiður að fá umfjöllun á síðum dagblaðanna vegna þátttöku í sigri eða ósigri liðs míns. Umfjöllunin hafði hvetjandi áhrif til að gera enn betur næst. Ég man það líka frá þessum árum hvað mér fannst umfjöllun um aðrar íþróttagreinar koma mér lítið við, skildi ekki hvers vegna, þá sjaldan það var gert, væri verið að skrifa um t.d. fimleika sem væru fyrst og fremst fyrir stelpur. Minn heimur þá var handbolti og ég sjálfur. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan. Vonandi hefur undirritaður þroskast eitthvað í þá átt að sjá íþróttaiðkun í víðara samhengi.. Meira

Gunnar Einarsson, formaður FSÍ, vill fá meiri umfjöllun um fimleika.


Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.

Fimleikar ehf.