|
|
|
| Fimleikasjóður
Íslands óskar eftir umsóknum um styrki |
|
|
Fimleikasjóður
Íslands óskar eftir því að sjóðnum
verði sendar umsóknir um styrkveitingu. Til stendur
að úthluta kr. 50.000,- í tveimur
styrkjum. Sjóðurinn hefur verið starfræktur
síðan 1999 og er nokkrir fimleikaáhugamenn og
konur sem styrkja sjóðinn mánaðarlega með
fjárframlögum (sjá félagatal).
Nú þegar hafa sex einstaklingar og sex fimleikafélög
um land allt fengið styrki úr sjóðnum (sjá
lista yfir styrkþega).
Umsóknir skal senda með tölvupóst á
fimleikar@fimleikar.is
í síðasta lagi 7. apríl n.k. Á
heimasíðu sjóðsins má sjá
úthlutunarreglur sjóðsins. Allir geta gerst
félagar í sjóðnum og hjálpað
til við að styðja við bakið á okkar
frábæra fimleikafólki (hér
má skrá sig í sjóðinn). Frekari
upplýsingar veitir undirritaður og Guðmundur
Þór Brynjólfsson.
Fyrir hönd Fimleikasjóðs Íslands
Jón Finnbogason |
| Unglinga-
og eldriflokkamót
FSÍ |
[25/3/03] |
| Unglinga-
og eldriflokkamót verður haldið í Íþróttamiðstöðinni
Björk, laugardaginn 12. apríl n.k. í umsjón
Fimleikafélagins Bjarkar. Meira. |
| Krakkamót
2003, Björk |
[25/3/03] |
| Sunnudaginn
6.apríl næastkomandi mun HM hópur Fimleikafélagsins
Björk standa fyrir Krakkamóti í íþróttamiðstöð
Bjarkanna. Meira. |
| Byrjendamót
Gerplu í hópfimleikum |
[25/3/03] |
| Laugardaginn
29. mars næastkomandi mun fara fram Byrjendamót Gerplu
í hópfimleikum í Íþróttahúsi
Gerplu.
Meira. |
| Sif
og Viktor Íslandsmeistarar í áhaldafimleikum |
|
| Sif
Pálsdóttir Gróttu og Viktor Kristmannsson
Gerplu sigruðu á Íslandsmóti í
áhaldafimleikum sem fram fór í Laugardalshöllinni
nú í dag (laugardag 22/3). Þar með tryggði
Sif sér sinn fjórða Íslandsmeistaratitil
á jafn mögum árum en Viktor vann nú
í annað skiptið Íslandsmeistaratitil en
hann sigraði fyrst fyrir tveimur árum en Viktor hélt
einnig við áralangri sigurgöngu Gerplu á
Íslandsmóti í áhaldafimleikum karla.
Meira
|
|
| Björk
Íslandsmeistarar í hópfimleikum |
|
| Nú
rétt í þessu var að ljúka Íslandsmóti
í hópfimleikum og sigraði Björk úr
Hafnarfirði með 50,6 stigum og í öðru
sæti hafnaði Stjarnan eldri úr Garðabæ
með 50,3 stig og í þriðja sæti varð
Gerpla P1 úr Kópavogi með 48,85 stig.
Meira
|
|
| Heimsbikarmót
í Þýskalandi - Rúnar í línu
við væntingar |
|
| Nú
um helgina fer fram heimsbikarmót í þýskalandi
(27th Tournament of Masters). Rúnar Alexandersson úr
Gerplu er meðal keppenda. Undanúrslit fóru
fram í gær (21/3) og fékk Rúnar 8.725
stig fyrir æfingar á bogahesti sem er í
línu við þann árangur sem hann hefur
sýnt að undanförnu en meðaltal hans á
bogahesti úr síðustu sex mótum er 8,75
sig. Fyrir æfingar í hringjum fékk hann
8,362 og 8,825 fyrir æfingar á tvíslá.
Meira |
|
| Stjarnan
eldri, Björk og Gerpla P1 í úrslit á
Íslandsmóti |
|
| Íslandsmóti
í hópfimleikum byrjaði með undanúrslitakeppni
í kvöld. Auk þess var keppt um Íslandsmeistaratitil
á einstökum greinum. Stjarnan E tryggði sér
hæstu einkunn samanlagt sem mun koma liðinu til góða
í úrslitakeppni á morgun (laugardaginn
22. mars) þar sem samanlagður stigafjöldi í
undanúrslitum og í úrslitum telur til Íslandsmeistaratitils
í hópfimleikum. Meira |
|
| Spá
um úrslit á Íslandsmóti í hópfimleikum |
|
|
Sett hefur verið saman spá um úrslit á
Íslandsmóti í hópfimleikum sem fer
fram um næstu helgi. Meira |
| Spá
um úrslit í áhaldafimleikum karla á
Íslandsmóti |
|
|
Sett hefur verið saman spá um úrslit á
Íslandsmóti karla í áhaldafimleikum
sem fer fram um næstu helgi. Samhliða því
hefur verið settur saman fyrsti styrkleikalisti www.fimleikar.is
sem verður uppfærður reglulega. Meira |
| Spá
um úrslit í áhaldafimleikum kvenna á
Íslandsmóti |
|
|
Sett hefur verið saman spá um úrslit á
Íslandsmóti kvenna í áhaldafimleikum
sem fer fram um næstu helgi. Samhliða því
hefur verið settur saman fyrsti styrkleikalisti www.fimleikar.is
sem verður uppfærður reglulega. Meira |
| Myndir
frá Heimsbikarmótinu í París |
|
|
Um síðustu helgi keppti Rúnar Alexandersson
á Heimsbikarmóti í París. Meðal
keppenda var flest af besta fimleikafólki í heimi.
Þessar myndir voru teknar á mótinu. Njótið
vel og við kunnum Heimi og Rúnari bestu þakkir
fyrir þessar myndir. Myndir
af mótinu hér. |
| Íslandsmót
í áhalda- og hópfimleikum 2003 |
|
| Um
næstu helgi (21. - 23. mars) mun fara fram Íslandsmót
í áhalda- og hópfimleikum í Laugardalshöll.
Um síðustu helgi fór fram Íslandsmót
í þrepum og þá var troðfullt af
áhorfendum og mikil stemming á mótinu.
Áhorfendur á Íslandsmótunum um næstu
helgi verða að öllum líkindum enn fleiri
enda sannkölluð fimleikaveisla sem boðið verður
upp á. Skipulag stúlkur
áhaldafimleikar, áhaldafimleikarkk
& hópfimleikar.
Auglýsing.
| Íslandsmót
í hópfimleikum |
Íslandsmót
í áhaldafimleikum |
Undankeppni
Föstudag kl. 19.15. - 20.50
Íslandsmeistarar á hverju áhaldi. Efstu
3 í úrslit.
Úrslit
Laugardag kl. 11.50 - 13.00
Íslandsmeistari í hópfimleikum.
|
Fjölþraut
Laugardag kl. 16.00 - 18.20
Íslandsmeistarar í fjölþraut kk
& kvk.
Úrslit á áhöldum
Sunnudag kl. 14.00 - 16.40
Íslandsmeistar á einstökum áhöldum. |
|
| Heimsókn
í Ármann og Gerplu |
|
|
Ég tók nokkrar myndir samhliða smá
spjalli við fimleikafólkið !
Myndir
hér. |
| Gerpa
Íslandsmeistari í öllum þrepum, 18 af
22 verðlaunum |
|
|
Íslandsmót í þrepum íslenska
fimleikastigans fór fram sunnudaginn 16.3 að viðstöddu
troðfullu húsi áhorfenda. Keppendur úr
Gerplu sigruðu í öllum keppnisflokkum á
mótinu og má því segja að Gerpla
hafi tryggt sér Íslandsmeistaratitil í
þrepum íslenska fimleikastigans.Meira |
| Rúnar
byrjar vel í heimsbikarmótaröðinni |
|
|
Fyrsta mótið í heimsbikarmótaröðinni
fer fram í París nú um helgina með
um 130 keppendur frá 37 þjóðum. Þar
á meðal eru 12 verðlaunahafar frá heimsmeistaramótinu
2002. Rúnar Alexandersson keppti á bogahesti,
tvíslá og hringjum á mótinu. Á
bogahesti fékk hann 8,7 stig en hann missti jafnvægið
í hringsveiflum á einum boga. Fyrir æfingar
á hringjum og tvíslá fékk hann 8,9
stig. Meira |
| Spá
um Íslandsmeistara í þrepum |
|
|
Framundan eru Íslandsmót í þrepum
íslenska fimleikastigans, Íslandsmót í
frjálsum æfingum í áhaldafimleikum
og Íslandsmót í hópfimleikum. Erfitt
getur verið að spá til um hverjir séu
sigurstranglegastir og í fimleikum getur allt gerst á
síðustu stundu þar sem oft munar aðeins
hársbreidd á efstu keppendum. Engu að síður
getur verið gaman að setja fram spá um hverjir
sigra. Í fyrsta sinn á Íslandi verður
nú birt opinberlega spá um úrslit framangreindra
Íslandsmóta. Fyrsta spáin er Íslandsmót
í þrepum. Meira |
| Íslandsmót
í þrepum íslenska fimleikastigans 2003 |
[12/3/03] |
|
Íslandsmót í þrepum verður haldið
sunnudaginn 16. mars í Bjarkarhúsinu, Haukarauni
1, Hafnarfirði. Keppendur á mótinu eru einstaklingar
sem náð hafa hæstu einkunnum á mótum
í íslenska fimleikastiganum í vetur, bæði
hjá stúlkum og drengjum. Búast má
við harðri keppni í öllum þrepum.
Vonandi fjölmenna krakkar úr öllum félögum
á áhorfendapalla til að hvetja keppendur.
Mótið hefst kl. 14:00. Skipulag stúlkur
& piltar
dómarar
Auglýsing
|
| Ólympíuakademían
óskar eftir þátttakendum á námskeið |
|
|
Íþrótta- og Ólympíusamband
Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum,
konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks
(20 til 35 ára) á vegum alþjóða
Ólympíuakademíunnar í Ólympíu
í Grikklandi dagana 30. júlí til 13. ágúst
n.k. Flugferðir og uppihald eru þátttakendum
að kostnaðarlausu. Meira |
| Byrjendatrompmót
hjá Fylki |
[11/3/03] |
| Fylkir
býður ykkur að taka þátt í
skemmtilegu byrjendatrompmóti, sem haldið verður
5.apríl 2003 í Fylkishöll. Mæting keppenda
verður kl. 10:00. Þátttökurétt
hafa þau lið sem ekki hafa keppt á hópfimleikamótum
FSÍ. Keppt er eftir byrjendareglum í hópfimleikum.
Þátttökutilkynning skal berast fyrir miðvikudaginn
26.mars til undirritaðrar(email A
& B). Mótagjald
er 1200.- krónur á keppenda og greiðist það
til mótstjóra áður en keppni hefst.
Athugið að hvert félag þarf að senda
inn einn dómara á lið. Nánari upplýsingar
um mótið kemur síðar og einnig hjá
undirritaðri í síma 821-1707.
Fh. Fimleikadeildar Fylkis
Íris Hrund Pétursdóttir.
|
| Rúnar
fær gull og brons á stjörnumóti í
Kaupmannahöfn |
|
| Rúnar
Alexandersson keppti nú um helgina á boðsmóti
í Kaupmannahöfn þar sem aðeins fimleikamenn
og konur í fremstu röð var boðið til
þátttöku. Í verðlaun voru m.a.
peningavinningar. Skemmst er frá því að
segja að Rúnar bar sigur úr bítum á
bogahesti með 8,6 stig en jafn honum í fyrsta sæti
varð Mickael Hjort frá Svíþjóð
einnig með 8,6 stig. Í hringjum fékk Rúnar
8,8 stig og hafnaði í þriðja sæti. |
|
| Unglingamót
í hópfimleikum: Grótta og Gerpla í
fyrsta sæti |
|
| Unglingamót
FSÍ í hópfimleikum fór fram á
Selfossi á laugardaginn (8/3/03). Keppt var í
tveimur aldursflokkum í þrettán hópum
sem skiptust þannig að í yngri flokknum kepptu
þrír hópar og eldri flokknum kepptu tíu
hópar samtals frá tíu félögum.
Í yngri flokk sigraði Gerpla P3 með 21,75 stig
og í öðru sæti varð Selfoss T4 með
20,9 stig og í þriðja sæti hafnaði
Grótta yngri með 20,5 stig. Í eldri hópnum,
sem er mið aldurshópur samkvæmt almennri skiptingu,
sigraði Grótta mið með 23,3 stig og skammt
á eftir kom Gerpla P2 með 23,2 stig og í þriðja
sæti hafnaði Stjarnan með 22,65 stig. |
| 150
myndir af Haustmóti FSÍ. Er mynd af þér
? |
|
| Á
Haustmótinu sem fór fram fyrir nokkru tók
ég töluvert af myndum. Úr því
að ég er búinn að læra að setja
mikið af myndum á netið með einni skipun
þá skelli ég þeim öllum hér
á netið. Ef þið finnið mynd af ykkur
þá megið þið eiga hana :-) Ég
mun taka mynirnar út eftir nkkrar vikur. Myndirnar eru
hér. |
| Er
búið að ná HM lágmörkum ? ! |
|
| Í
fréttum hefur komið fram að á nýafstöðu
Bikarmóti FSÍ hafi landslið karla í
fimleikum uppfyllt lágmörk til þátttöku
á HM í USA. Vekur þessi fréttaflutningur
óneitanlega athygli því aldrei áður
í sögu FSÍ hefur verið sent karlalandslið
til þátttöku á HM. Því
má segja að um stórfrétt sé
að ræða. Meira
Athugasemd vegna greinarinnar.
Meira
|
| Dýri
nær góðum árangri, m.a. 8,55 á
tvíslá |
|
| Dýri
Kristjánsson Gerplu keppti fyrir Minnesota Háskóla viđ Oklahoma
Háskóla á laugardaginn (1.3) og gekk mótið mjög
vel að hans sögn. Dýri keppti á ţremur áhöldum. Fyrir
ćfingar á bogahest fékk hann 7,55 stig samanborið við
8,2 stig á síðasta móti (15.2). Á
tvíslá fékk hann 8,55 stig samanborið við 8,05 stig
á síðasta móti og er þetta
besti árangur Dýra á tvíslá
hingað til og var hann dæmdur út frá
upphafseinkunninni 9,0. A Bikarmóti FSÍ um síðustu
helgi fékk Rúnar 9,2 stig á tvíslá
en næstu menn á eftir honum voru Viktor og Jónas
en þeir fengu 7,15 stig. Þess má geta að
Rúnar keppti til úrslita á HM sl. á
tvíslá og því er samanburður
við hann erfiður. Á svifrá fékk Dýri
svo 8,05 sem er sama einkunn og á síðasta
móti.
Til samanburðar við nýafstaðið Bikarmót
FSÍ í frjálsum æfingum karla, en
dæmt var eftir sömu reglum og á mótinu
sem Dýri var að keppa á, þá
fékk lið Gerplu 169,75 stig samtals og sigraði
lið Ármanns sem fékk 165,6 stig. Lið
Minnesota Háskóla sem Dýri keppir með
fékk 213,95 stig á mótinu. Þrátt
fyrir það tapaði liðið fyrir Oklahoma
Háskóla sem fékk 220,075 stig.
Framundan eru mót um hverja helgi hjá Minnesota
Háskólaliðinu. Næsta sunnudag verður
keppt við Háskólan í Ohio á
heimavelli, síðan verður keppt við Háskólana
í Chicago, Nebraska, Ohio og að lokum í
Philadelphiu. Það er því ljóst
að Dýra gefst stórkostlegt tækifæri
til þess stunda nám og æfingar við
fimleika með miklum ævintýrum. Við óskum
honum öll góðs gengis.
Hér má sjá heimasíđu Dýra og nánari upplýsingar um mótiđ.
|
| Bikarmót
í áhaldafimleikum |
|
| Bikarmót
FSÍ fór fram um nú um helgina (1. - 2.
mars) og kepptu 35 lið á mótinu í
9 flokkum. Í piltaflokki sigraði Gerpla í
þremur flokkum og Ármann í einum. Í
stúlkna flokki sigraði Gerpla í fjórum
flokkum og Grótta í einum. Keppt var í
öllum þrepum og greinilegt að mikill fjöldi
af ungu og efnilegu fimleikafólki er að stunda
íþróttina og sést það
best á 5 liðum í 4. þrepi pilta og
15 liðum í 4. og 5. þrepi stúlkna.
Meira |
| Það
ætti ekki að fara framhjá neinum að síðan
hefur tekið á sig nýja mynd. Tæknileg
atriði eru nokkur sem huga þarf að, og getur það
verið að eitthvað birtist ekki allveg rétt,
svona rétt á meðan verið er að uppfæra
síðuna. Allar ábendingar og comment eru vel
þegin og skal senda þær til vefstjóra. |
| Danskur
trampolínstökvari slasast alvarlega |
|
Allar
myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á
síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.
|
|
|