Heimsókn í fimleika-akademíu Kína

Jón Trausti Sæmundsson
23/05

Það var ekki slæmt að fá að líta á aðstæður þar sem að Heimsmeistarar Karla og Kvenna æfa daglega undir leiðsögn færustu þjálfara heims. Meðþjálfari minn Ms Dong Fangxiao (Berry) bauð mér í heimsókn á æfingasvæðið sem er staðsett í suður hluta Beijing ekki langt frá The Temple of Heaven. Berry sem varð í 3 sæti á Ólympíuleikunum í Sidney 2000 sýndi mér aðstæður á æfingasvæðinu þar sem frjálsíþrótta-, dýfinga-, borðtennis-, blak- og badminton lið Kína eru á fullu að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana 2008. Þegar við gengum um svæðið þá þótti mér merkilegt hve ströng gæsla var og fékk að vita að nýkrýndur heimsmethafi í 200 metra grindahlaupi Mr Liu Xiang væri á svæðinu og mætti ekki vera truflaður við æfingar sínar.
Eftir að hafa skoðað svæðið fórum við í fimleikahöllina þar sem þjálfari kvenna landsliðsins Mr Wang Qun Ce tók á móti okkur. Aðstaðan í höllinni er mjög góð þar sem að nokkur áhöld af hverri gerð eru sett upp á mismunandi hátt eftir því hvaða æfingar verið er að þjálfa. Krakkarnir sem fá að þann heiður að þjálfa hér eru valdir frá öllum héruðum Kína og boðið að búa og stunda nám á íþróttasvæðinu allt árið um kring undir leiðsögn færustu þjálfara heims. Líkt og á Íslandi þá er ekki mikill aukatími fyrir þá sem að vilja ná árangri enda er æft þrisvar á dag sex daga vikunnar og nám stundað á milli æfinga. Að þessu sinni voru eingöngu stúlkur á æfingu þar sem að karla landsliðið var í afslöppun eftir langt og árangursríkt keppnistímabil.
Eftir að hafa fylgst með æfingu stúlknanna þá bauð Mr Wang okkur að og kíkja á æfingu hjá dýfinga liðinu. Það var einkar skemmtilegt að fara með honum í dýfingahöllina þar sem að meðal þeirra 20 nemanda sem voru á svæðinu voru 6 ólympíumeistarar frá Aþenu að stinga sér á sama tíma í 10 metra djúpa laugina. Mr Wang sagði mér að stór hluti þeirra sem að voru að stinga sér í laugina hafi fengið grunn sinn úr fimleikunum og að hann hafi sjálfur alið upp nokkra þeirra.
Eftir skemmtilegan dag þá hélt ég heim á leið sáttur við að hafa fengið að fylgjast með því hvernig framtíðar meistarar heimsins haga æfingum sínum. Ég er staðráðin í því að koma aftur og líta á æfingu hjá karla landsliðinu næst þegar ég hef tíma.


Myndbönd

www.cn8.tv
22/05
Dýnustökk. Afstökk Slá. Chelsea Memmel viðtal.
     

Fjórar Vorsýningar hjá Gerplu

22/05

Íþróttafélagið Gerpla hélt fjórar glæsilegar Vorsýningar dagana 18. og 19. maí fyrir troðfullu húsi á hverri sýningu. Er þetta í fyrsta skiptið sem skipta þurfti Vorsýningu félagsins upp í fjóra hluta til þess að allir iðkendur félagsins gætu komið fram en þeir eru nú orðnir 1.375 í reglubundnum æfingum undir lok vetrarstarfsins. Hver sýning var rétt rúmlega klukkustund þar sem blandað var saman yngri og eldri iðkendum auk þess sem atriði hjá hverjum hóp var mismunandi. Þegar upp var staðið fengu áhorfendur fjölbreytta skemmtun á hverri sýningu. Fjöldi sjálfboðaliða komu að undirbúningi og framkvæmd sýninganna og er þeim færðar bestu þakkir frá félaginu fyrir þeirra framlag. Að venju voru veittar viðurkenningar á sýningunum. Þeir sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni voru:
Nánar hér.


Meðfylgjandi mynd var tekin af iðkendum sem komu fram á einni af fjórum sýningum félagsins.

Um helgina 5. - 8. júlí n.k. mun fara fram stærsti íþróttaviðburður ársins sem verður Landsmót UMFÍ. Áætla má að allt að 100.000 manns leggi leið sína í Kópavoginn þessa helgi og taki þátt í viðburðum á vegum hátíðarinnar annað hvort sem áhorfendur eða sem þátttakendur. Að sjálfssögðu verður keppt í fimleikum á þessari risavöxnu íþróttahátíð. Keppni mun fara fram í hópfimleikum, föstudaginn 6. júlí að Versölum í Kópavogi. Um er að ræða opna keppni í landsreglum með tveimur undantekningum, þ.e. engir aldursflokkar og liðin taka þátt á öllum áhöldum. Nánari upplýsingar og skráning á http://landsmot.kopavogur.is


Íslandsmót í hópfimleikum
- -

17/05


Grótta óskar eftir að ráða yfirþjálfara
- þjálfaramenntun og reynsla skilyrði -

15/05

Fimleikadeild Gróttu óskar eftir að ráð í stöðu yfirþjálfara til starfa á næsta keppnistímabil. Þjálfari þarf helst að geta hafið störf 1. ágúst n.k. Starfið felur í sér yfirumsjón með þjálfun innan deildarinnar. Umsóknir og upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist til Þóru Sigurðardóttur á netfangið emo@simnet.is eða í síma 862-1045 . Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.


Tove Paule nýr formaður Norska Íþróttasambandsins NIF

DSÓ
15/05

Um helgina var kosin nýr formaður Norska Íþróttasambandsins á þingi sambandsins i gær. Tove Paule vann með 96 atkvæðum gegn 65 atkvæðum sem Roald Bergsaker fékk. Hún er þar með fyrsta konan til að gegna þessu valdamikla og eftirsóknarverða embætti. Kosningabaráttan var mjög hörð og spennandi og vakti mikla athygli í fjölmiðlum.
Tove hefur verið alþjóðlegur dómari til fjölmargra ára og starfað mikið fyrir norska fimleikasambandið. Síðustu ár hefur hún setið í stjórn Íþróttasambandsins. Hún er nýhætt dómgæslu í fimleikum en fimleikahreyfingin að sjálfsögðu ánægð með úrslitin.
Sjá nánar á www.idrett.no


Aðalfundur Íþróttafélagsins Gerplu

13/05

Íþróttafélagið Gerpla hélt aðalfund félagsins 10. maí sl. Gert var grein fyrir helstu þáttum í starfssemi félagsins á liðnu ári ásamt hefbundnum aðalfundarstörfum. Allir stjórnarmenn gáfu kost á áframhaldandi setu í aðalstjórn félagsins auk þess sem fjölgað var um einn stjórnarmann. Nánar hér.


Saga fimleika

12/05

Sigurður Hrafn Pétursson fimleikamaður hefur sett saman mjög áhugaverða ritgerð um sögu fimleika. Nánar hér.

Saga

Enska orðið ‘gymnastics’ er komið af gríska orðinu ‘gymnazein’ sem þýðir að “æfa nakinn, eða án klæða”. Og það var einmitt raunin. Þannig var æft og keppt á Ólympíuleikum í Grikklandi til forna allt fram að 393 eftir Krist. Á þeim leikum var keppt í frumstæðri útgáfu af fimleikum eða einungis stökki og gólf seríum. Gólf æfingar svo sem handahlaup, heljarstökk og framflikk, héldust fram um aldir. Á miðöldum sáu dansarar, ferðafólk, líkamslistamenn og hirðfífl um þá skemmtun.
Nánar hér.


Netverslun

12/05

Höfum tekið á móti mikið af nýjum vörum. Flottir bolir frá GK sem tilheyra sumarlínunni.
Erum einnig með náttföt, toppa, ólar, buxur, skó o.fl. o.fl.



Tilkynning frá Danska fimleikasambandinu (DGF)

12/05

Sjá tilkynningu hér (á ensku) og hér (á dönsku)


Myndbönd af keppendunum á EM

11/05


Margrét Hulda Karlsdóttir


Róbert Kristmannsson

Viktor Kristmannsson

Dragulescu

Hambuechen

Rúnar Alexandersson

Fimleikasjóður Íslands styrkir FSÍ um 280.000,-

08/05

Fimleikasjóður Íslands hefur greitt Fimleikasambandi Íslands kr. 280.000,- í styrk vegna Evrópumóts í áhaldafimleikum. Styrkurinn er ætlað að greiða kostnað vegna tveggja þjálfara á mótið. Sjóðurinn hefur styrkt FSÍ um kr. 380.000 á árinu 2007.
Fimleikasjóð Íslands er ætlað að vera bakhjarl við afreksstefnu í fimleikum á Íslandi.  Frá stofnun hefur sjóðurinn greitt út styrki að fjárhæð kr. 1.420.000 sem fimleikafólk hefur notið góðs af.
Nánar um sjóðinn hér.
Fyrir hönd Fimleikasjóðs Íslands
Jón Finnbogason


Líf að loknum ferli

06/05

Á morgun (þriðjudag) kl. 18:00 stendur ÍSÍ fyrir fundi, í samvinnu við Samtök íslenskra ólympíufara – SÍÓ, þar sem fjallað verður um líf að loknum ferli. Fyrirlesari er Frankie Fredericks, eitt stærsta nafn í spretthlaupum í frjálsíþróttaheiminum. Frankie er meðlimur nr. 103 í Alþjóða Ólympíunefndinni en þangað var hann kosinn árið 2004. Það er afar mikilvægt fyrir ÍSÍ og SÍÓ að hafa fengið Frankie til að ræða þetta mikilvæga mál og það er jafnt áríðandi að forystumenn íþróttahreyfingarinnar sjái sér fært að vera viðstaddir á milli kl. 18:00 og 19:00.


Vormót í hópfimleikum

05/05

Úrslit á Vormóti FSÍ í hópfimleikum. Sjá hér Landsreglur Barnaflokkur. Sjá hér Landsreglur táningar. Sjá hér Team Gym. Sjá hér Landsreglur Unglingar.


Evrópumót í áhaldafimleikum í Amsterdam

MYNDBÖND
05/05


Úrslit kvenna á stökki.


Úrslit á bogahesti

Úrslit tvíslá


Úrslit í hringjum.


Úrslit karla á stökki

Úrslit slá


Úrslit í gólfæfingum.


Úrslit karla á tvíslá

Úrslit svifrá

Evrópumót í áhaldafimleikum í Amsterdam

01/05


Viktor Kristmannsson í æfingum í gólfi.

Um liðna helgi fór fram Evrópumót í áhaldafimleikum. Þar áttum við fjóra fulltrúa, þrjá karla og eina konu. Að þessu sinni var aðeins keppt um Evrópumeistaratitil einstaklinga og á einstökum áhöldum. Keppnin var mjög hörð og skemmtileg. Þátttakendur frá Íslandi stóðu sig mjög vel á mótinu. Gerðu þau æfingar sínar af miklu öryggi og hlutu ágætis einkunnir fyrir.

Margrét Hulda í æfingum á slá.


Róbert Kristmannsson á stökki.


Rúnar Alexandersson og Guðmundur Þór Brynjólfsson leggja á ráðin eftir vel heppnaðar æfingar Rúnars á bogahesti.

 


Samvinna.
Guðmundur Þór hjálpar hér Róberti í byrjun svifráæfingarinnar en það var hans síðast áhald á mótinu.

 

Gólf Bogi Hringir Stökk Tvíslá Svifrá Samt. Sæti
Viktor 13,175 13,1 12,525 14,645 12,5 12,925 78,9 47
Róbert 13,15 11,65 12,62 14,95 11,7 12,175 76,25 56
Rúnar   14,425 13,45   14,175   42,05 -
  Stökk Tvíslá Slá gólf     Samt. Sæti
Margrét 11,65 11,525 13,35 11,775     48,3 53

Forseti ÍSÍ skrifar um fimleikar

01/05

Ólafur E. Rafnsson, forseti ÍSÍ, skrifar reglulega inn á vef ÍSÍ. Nýlega birti hann grein um fimleika.
"Fimleikar eru sú íþróttagrein innan vébanda íþróttahreyfingarinnar – e.t.v. ásamt dansíþróttinni – sem hvað næst kemst samlíkingu við listir. Bilið á milli ballets og fimleika er oft sláandi lítið, og tignarleikinn sannarlega mikill. Fimleikar eru ein útbreiddasta íþrótt í heimi, og telst til afar sterkra ólympískra greina. Hefur alþjóðleg keppni í fimleikum í senn reynst afar hörð og vinsæl meðal áhorfenda. ..."

Sjá hér.




Allar myndir © www.fimleikar.is
Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is er heimil án sérstaks samþykkis. Sjá hér.

Fimleikar ehf.