|
|
|
Íslenskar
fimleikastúlkur standa sig vel á móti
í Noregi
|
JF |
25/5/2006 |
Helgina
20. og 21.maí var haldið svokallað Rola turnfest
í bænum Asker skammt suður af Oslo í
Noregi. Þetta er árvisst mót þar
sem stúlkur upp að 14 ára aldri keppa í
áhalda fimleikum. Í þetta sinn voru 167
keppendur frá 22 félögum í Noregi.
Meðal keppenda voru tvær íslenskar stúlkur,
þær Aníta Ósk Einarsdóttir
og Jóhanna Rakel Jónasdóttir. Aníta
Ósk býr í Asker en Jóhanna Rakel
býr í Moskvu. Jóhanna keppti fyrir félag
vinkonu sinnar Asker en í Noregi er leyfilegt fyrir
utanaðkomandi upp að 12 ára aldri að keppa
fyrir Norskt félag.
Mótið var aðallega liðakeppni en einnig
voru veitt verðlaun fyrir hæstu einstaka einkunn
á mótinu. Skemmst er frá því
að segja að báðar íslensku stúlkurnar voru
í Asker liðum sem hrepptu 1.sætið í
sínum aldursflokki. Anita Ósk í aldursflokki
1993-1994 og Jóhanna Rakel í aldursflokki 1995-1996.
Auk þess fékk Jóhanna Rakel verðlaun
fyrir hæstu einkunn á gólfi 14.50. Ekki
voru veitt verðlaun fyrir keppni á einstökum
áhöldum né í fjölþrautarkeppni
en engu að síður er athyglisvert að Jóhanna
Rakel hlaut flest stig í fjölþraut 54.50
og Anita Ósk 3. flest stigin eða 53.60. Er hér
um að ræða mjög góðan árangur
Íslenskra stúlkna og verður spennandi að
fylgjast með þessum stúlkum í framtíðinni.
Einkunnir
í liðakeppni hér.
Niðurstöður einstaklinga hér og hér. |
Jóhanna
Rakel Jónasdóttir hlaut flest stig allra keppenda
í fimleikamóti í Noregi þar sem
22 félög tóku þátt. |
Aðalfundur
Íþróttafélagsins Gerplu
|
JF |
25/5/2006 |
* |
Íþróttafélagið
Gerpla hélt aðalfund félagsins 17. maí
sl. Gert var grein fyrir helstu þáttum í
starfssemi félagsins á liðnu ári
ásamt hefbundnum aðalfundarstörfum. Kosin
var ný stjórn en hana skipa Jón Finnbogason,
Jónas Jónmundsson, Guðmundur Halldórsson,
Jochum M. Ulriksson, Karen Bjarnhéðinsdóttir
og Ólafur Kristjánsson en Jón Finnbogason
var kjörinn formaður félagsins. Kosin var
ný stjórn fimleikadeildar en hana skipa Ásta
Ísberg, Arna Þorsteinsdóttir, Ása
Inga Þorsteinsdóttir og Dýri Kristjánsson
en Ásta Ísberg var kjörinn formaður
deildarinnar. Kristján Erlendsson lét af störfum
sem formaður félagsins en hann hefur gengt því
embætti undanfarin 11 ár en þar áður
hafði hann setið í stjórn félagsins
í 3 ár. Var Kristjáni þakkað
fyrir góð störf í þágu
félagsins ásamt því að Elísabetu
Baldvins, eiginkonu Kristjáns, var einnig þakkað
góð störf í þágu félagsins
á undanförnum árum en hún hefur
leikið lykilhlutverki við skipulagningu ýmiskonar
verkefna á vegum félagsins s.s. fjáraflanna
o.fl.
Á fundinum var stofnaður Framtíðarsjóður
Íþróttafélagsins Gerplu en stofnframlag
hans var söluandvirði húsnæðis félagsins
að Skemmuvegi 6 í Kópavogi.
Árskýrslu stjórnar og fundargerð
aðalfundar er að finna á heimasíðu
félagsins www.gerpla.is
Vorsýning félagsins fer fram í Versölum
n.k. laugardag kl. 11:00 og 14:30. |
Úrslit
á Evrópumótinu í Grikklandi sjá hér.
|
Góður
árangur á Evrópumeistaramótinu
-
Jón Finnbogason heldur áfram skrifum beint
frá Grikklandi
|
GG |
6/5/2006 |
* |
|
Íslensku
keppendurnir á Evrópumótinu í áhaldafimleikum
hafa nú lokið keppni. Fimleikasamband Íslands
sendi 11 keppendur á mótið og er óhætt
að segja að þau hafi öll staðið sig
mjög vel. Í karlaflokki kepptu fjórir keppendur
og var árangur þeirra góður. Rúnar
Alexandersson og Róbert Kristmannsson kepptu í
eldri flokk. Róbert keppti á öllum áhöldum
og hafnaði í 30. sæti í fjölþraut
með 76,6, stig sem er hans besti árangur til þess
á stórmóti. |
| Óhætt
er að segja að Róbert hafi staðið fyrir
sínu og framkvæmdi allar sínar æfingar
án þess að detta. Róbert átti
þó slæman dag á bogahesti og var nokkuð
frá sínu besta .... meira
hér! |
Evrópumeistaramótið
í fimleikum í Volos á Grikklandi
-
Jón Finnbogason skrifar frá keppnisstað
|
GG |
4/5/2006 |
* |
Íslenska
kvennalandsliðið í fimleikum hefur nú
lokið keppni á Evrópumótinu í
áhaldafimleikum og er óhætt að segja
að árangur þeirra hafi verið góður.
Sif Pálsdóttir hafnaði í 18. sæti
í fjölþraut og fylgdi þar eftir glæsilegum
árangri sínum á Norðurlandamóti
þar sem hún sigraði í fjölþraut.
Framganga keppenda í stúlknaflokki vakti einnig
töluverða athygli hér á Grikklandi
og var haft á orði að greinilega væri
mikil þróun í fimleikum á Íslandi. |
 |
| Fram
kom í fjölmiðlum, sem fjalla mikið um Evrópumótið,
að raun sé sigur fólginn í því
að jafn lítil þjóð og Ísland
skuli mæta til leiks með tvö stúlknalið
(yngi og eldri). Finnum við fyrir því hér
að vaskleg framganga stúlknanna varpar kastljósinu
á keppendur okkar í karlaflokki. Meira
hér! |
Ítalir
stálu senunni - Rússar með yfirburði
í unglingaflokki
- Liðakeppnin á Evrópumeistaramóti
kvenna í Grikklandi
|
GG |
2/5/2006 |
* |
Ítalir
eru nýjasta stórþjóðin í
fimleikum kvenna. Þær urðu um helgina Evrópumeistarar
í liðakeppni á EM sem haldið var í
Volos í Grikklandi. Svo óvænt urðu
úrslitin tafir urðu á verðlaunaafhendingu
þar sem mótshaldarar voru ekki með þjóðsöng
Ítalíu við hendina. Vanessa Ferrari (stóð
svo sannarlega undir nafni) tryggði Ítalíu
sigurinn með glæsilegum gólfæfingum
í lok keppninnar. Ferrari þessi varð jafnframt
með hæstu fjölþrautareinkun einstaklinga
í keppninni. |

Evrópumeistarar
Ítala fagna
|
Í öðru sæti, aðeins 0,100 stigum
á eftir Ítölum, urðu Rúmenar.
Rússar, sem voru efstir eftir forkeppnina, fengu síðan
silfrið.
Í
unglingakeppninni urðu Rússar Evrópumeistarar.
Þetta var fjórði EM titill Rússa í
röð. Í öðru sæti urðu Rúmenar
og Þjóðverjar í því þriðja.
Sjá
fréttir af gengi íslensku stúlknanna
hér að neðan. Fleiri fréttir af EM hér. |
|
|
|