Evrópumót í áhaldafimleikum 

 

30/5/05


Keppendur eru í fremri röð frá vinstri: Hera Jóhannesdóttir, Sif Pálsdóttir, Margrét Hulda Karlsdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir, Gunnar Sigurðsson, Viktor Kristmannsson, Jónas Valgeirsson og Róbert Kristmannsson. Aftari röð: Ásdís B. Pétursdóttir, Axel Bragason og Guðmundur Þór Brynjólfsson.

Keppendur á Evrópumót í áhaldafimleikum lögðu af stað nú á sunnudaginn til Kaupmannahafnar þar sem þau munu gista í eina nótt í DGI byen og halda síðan áfram til Búdapest á mánudagsmorgun. Þegar til Búdapest kemur bíður þeirra um 3 tíma ferð til Debrecen. Keppendur munu þar ná æfingu þar seinni partinn á mánudag.
Á þriðjudag er síðan "Podium" æfing hjá stelpunu en á miðvikudag hjá strákunum. Keppnin hefst síðan á fimmtudag. Stærstur hluti hópsins kemur svo heim seint á mánudagskvöld 6. júní. En Ármenningarnir verða áfram í Ungverjalandi í æfingbúðum. Dómarar: Berglind Pétursdóttir, Hlín Bjarnadóttir, Björn M. Tómasson og Heimir J. Gunnarsson.
Á myndina vantar Rúnar Alexandersson sem einnig mun keppa á mótinu.
Einnig munu Ármenningar á leið í æfingabúðir ætla sér að horfa á mótið.

Frekari féttir af mótinu verða birtar hér á síðunni þegar þær liggja fyrir.


Fjölmennasta Vestamannaeyjamót frá upphafi 
- strákar taka þátt í fyrsta skiptið frá 1990 -

 

26/5/05


Fimleikar njót nú mikilla vinsælda í Vestamannaeyjum og hafa keppendur aldrei verið fleiri hjá deildinni.

Vestmannaeyjameistaramóti í fimleikum fór fram í byrjun maí og var það stærsta Vestmannaeyjamót sem haldið hefur verið frá stofnun félagsins en auk þess þá hefur aldrei áður verið svona jöfn og spennandi keppni.Á mótinu keppt 89 krakkar á aldrinum 6 - 17 ára þátt í mótinu, 41 í áhalda fimleikum 6, 5, 4 og 3 þrepi. Í almennum fimleikum tóku 48 iðkendur þátt en þar af 12 strákar sem kepptu í 1. þrepi almenna stigans.

Birgitta Ósk Valdimarsdóttir (t.v.) og Sunneva Lind Ármannsdóttir (t.h.)

Strákar hafa ekki keppt á Vestmannaeyjamóti síðan um 1990 og er ánægjulegt að sjá þessa þróun. Fimleikar eru á mikilli uppleið í Eyjum og verður gaman að fylgjast með þessum krökkum á næstu árum. Veitt voru verðlaun í hverju þrepi fyrir sig. Einnig var veit viðurkenning fyrir besta árangur á árinu og efnilegasti einstaklingurinn. Viðurkenningu fyrir besta árangurinn fékk Birgitta Ósk Valdimarsdóttir, en Sunneva Lind Ármannsdóttir var valin efnilegust.


Fimleikar á ströndinni ! 
- ekki reyna þetta sjálf ! -
23/5/05

Meðfylgjandi myndband sýnir fimleikamann gera ótrúlegar æfingar á stöndinni innan um mikinn fjölda áhorfenda. Ekki er ráðlegt að reyna þessar æfingar eftir nema við fullkomnar aðstæður í fimleikahúsi. Að gera tvöfallt heljarstökk með heilli skrúfu á út á grasi þykir frekar ótrúlegt.


Glæsilegt sjónvarpsmót
- Sjónvarpsmót RÚV og FSÍ -
22/5/05

Sjónvarpsmót RÚV og FSÍ fór fram nú um helgina í beinni útsendingu í sjónvarpi. Óhætt er að segja að mótið hafi verið glæsilegt og fulltrúar okkar allra á mótinu stóðu sig með eindæmum vel. Þeir sem á horfðu í sjónvarpi voru mjög ánægðir með mótið og tóku sérstaklega eftir þeirri miklu breidd sem einkennir nú fimleikastarfið í dag. Nú erum við með mikinn fjölda af mjög frambærilegu fimleikafólki. Ekki er hægt annað en að óska þátttakendum öllum innilega til hamingju með góðan árangur.

Rokk og Ról í Björkunum  
Vorsýning hjá Fimleikafélaginu Björk

 

19/5/05

Dagana 24. 25. og 26. maí verða haldnar vorsýningar fimleikadeildarinnar. Tvær sýningar verða haldnar hvern dag, kl: 17:30 og 19:30. Það verður mikið rokkað og rólað og heyrast lög frá kóningunum sjálfum Elvis, til Eíríks Haukssonar og allt til Rage against the Machine! Miðaverð er 500 kr. fyrir 13 ára og eldri. Sýningarnar eru í Íþróttamiðstöðinni Björk. Hver sýning er um klukkutími. Góða skemmtun.


Fræðslukvöld - Ökklameiðsli !

 

17/5/05

Mánudagskvöldið 23. maí n.k. frá kl 17:30 til 22:00 heldur Micahel T. Gross, PT, PhD Professor við "Program in Human Movement Science, Division of Physical Therapy" við Háskólann í Norður Karólínu fræðsluerindi á vegum ÍSÍ.
Michael verður staddur hérlendis vegna námskeiðs á vegum fræðslunefndar Félags íslenskra sjúkraþjálfara og þessi fyrirlestur er hugsaður fyrir þjálfara og sem og aðra áhugasama.
Heiti fyrirlestrarsins er "Common ankle injuries- recognition, treatment, and prevention" og fjallar hann um hvernig ökklameiðsli eiga sér stað, hvaða áhættuþætti ber að varast, hvernig hægt sé að draga úr áhættum og hvernig ber að þjálfa upp meiðsli.
Það er mikill fengur að fá jafn virtan kennara til landsins og þetta erindi á erindi til fljölmarga íþróttagreina.
Fyrirlesturinn fer fram í íþróttamiðstöðinni í Laugardagl, fundarsal E. Aðgangseyrir kr. 2.500,- sem greiðist á staðnum. Boðið verður upp á súpu og brauð í matarhléi.
Skráningar sendist á netfangið: namskeid@isisport.is í síðasta lagi sunnudaginn 22. maí n.k.


Kristjana Sæunn í 3. sæti í gólfæfingum
- 8. sæti í fjölþraut og önnur inn í úrslit í gólfæfingum-

 

14/5/05


Kristjana Sæunn Ólafsdóttir

Heimasíða mótsins hér.

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu í Kópavogi og Íslandsmeistari í fimleikum kvenna til tveggja ára varð í 3. sæti í gólfæfingum og í 8. sæti í fjölþrautarúrslitum á mjög sterku fimleikamóti sem fer fram á hverju ári í Rússlandi, 2005 Dityatin Cup. Í fjölþrautarúrslitum, sem fram fór í gær, hlaut hún 32,425 stig sem er með því hæsta sem hún hefur fengið hingað til og átti þar einkunn hennar í gólfæfingum stóran þátt því hún hlaut 8,745 stig í fjölþraut sem skiluðu henni númer tvö inn í úrslit á gólfi. Í úrslitum á gólfi, sem fór fram í dag, hafnaði hún svo í 3. sæti með 8,213 stig næst á eftir tveimur stúlkum frá Rússlandi en stúlkurnar frá Rússlandi sigruðu á öllum áhöldum sem og í fjölþraut.
Vladimir Antonov þjálfari Sæunnar var mjög ánægður með árangur hennar enda um að ræða eitt sterkasta mót sem hún hefur keppt á hingað til.


Kristjana Sæunn Ólafsdóttur ásamt móður sinni, Kristínu Davíðsdóttur, þegar þær lögðu af stað á Dityatin Cup en þar hefur Kristjana Sæunn nú einn einu sinni sýnt að hún er í fremstu röð fimleikastúlkna í dag.

Þátttakendur voru nú um 60 frá fjölda þjóða. Á mótinu keppa meðal annars allar bestu stúlkur Rússlands þar sem þær eru að keppast um þátttökurétt á Ólympíuleikum æskunnar. Eins og sjá má á einkunnum keppenda og myndum af mótinu á heimasíðu þess þá er hér augljóslega um mjög sterkt mót að ræða (heimasíða hér). Þess má geta að í fjölþrautarkeppni hafnaði stúlka frá finnlandi í 22. sæti en hún keppti á Ólympíuleikunum í fyrra.
Er þetta annað árið í röð sem Kristjana Sæunn keppir á Dityatin Cup (sjá umfjöllun í fyrra hér). Á heimasíðu mótsins má sjá stórglæsilegar myndir sem ljósmyndarinn Edwin Kopper hefur tekið en hann fylgir landsliði Rússlands á öll mót.



"eg@fimleikar.is"

 

8/5/05
Fimleikasjóður Íslands býður nú sínum styrktaraðilum upp á netfang með endingunni @fimleikar.is
Í dag eru félagar í Fimleikasjóð Íslands að nálgast 50 talsins og fer fjölgandi. Þeir sem nú þegar eru styrktaraðilar eða gerast styrktaraðilar stjóðsins geta sótt um netfang að þeirra eigin vali, t.d. sigrun@fimleikar.is
Þeir sem hafa áhuga geta fengið nánari upplýsingar: fimleikar@fimleikar.is

"Gullnáma íþróttafélaga" segir Mogginn
- Jón Finnbogason fjallar um íþróttaumfjöllun -

Grein birt í Morgunblaðinu þann 5. maí 2005

6/5/05

Í Morgunblaðinu er fjallað um gullnámu íþróttafélaganna. Hafa allar íþróttagreinar sömu möguleika til að nýta þessa gullnámu?

Morgunblaðið fjallaði um það fyrir nokkru að keppnin á Íslandsmótinu í handknattleik ráðist af möguleikum RÚV til að sýna frá leikjunum. Skiptar skoðanir eru um málið, en Júlíus Jónasson þjálfari ÍR-inga og afreksmaður í handknattleik er beinskeittur í viðtali við Morgunblaðið og ver ákvörðun HSÍ um að fara að óskum RÚV varðandi leiktíma og leikdaga. Hann telur að þannig verði umfjöllunin meiri og glæsilegri. Hann nefnir einnig að mikilvægt sé fyrir handknattleiksliðin að fá beinar sjónvarpsútsendingar því félögin eru þá betur í stakk búin að semja við samstarfsaðila sína, enda sé mikilvægt að geta bent á þá staðreynd að félagið hafi verið mikið í sjónvarpinu. Þannig hækki markaðsvirði félagsins.

Nánar


Jón Finnbogason
"... undirritaður mun beita sér fyrir því að fimleikamótum verði fundinn tími sem best hentar RÚV."

Alþjóðlegt boðsmót
- Áhaldafimleikar karla og kvenna -

 

5/5/05

Fimleikafélagið Blanc-Mesnil í Frakklandi stendur fyrir alþjóðlegu fimleikamóti í áhaldafimleikum karla og kvenna í 15. skiptið en mótið fer fram dagana 4. og 5. nóvember 2005. Meðfylgjandi eru nánari upplýsingar um mótið.


Vinamót Fylkis
4/5/05

Fylkir hélt sunnudaginn 1. maí Vinamót í þrepum íslenska fimleikastigans. Auk Fylkis taka þátt í þessu móti Fjölnir og Rán. Mótið heppnaðist mjög vel og voru um 130 stúlkur á aldrinum 7 til 13 ára mættar til leiks.

Mótið er einstaklingskeppni og dreifðust verðlaunin mjög vel milli félaganna. Þetta var í fyrsta sinn sem Fjölnir stendur fyrir svona vinmót en að sögn Þorbjargar Gísladóttur yfirþjálfar Fylkis þá er nú
stefnt að því að gera þetta að árlegum viðburði.


Glæsilegur hópur hér fleiri myndir af mótinu má sjá hér.


Hópfimleikar
Æfingabúðir í Slagelse í Danmörku
4/5/05

FSÍ var að berast boð um þátttöku í æfingabúðum í hópfimleikum í Slagelse í Danmörku í ágúst n.k. 10. – 14. ágúst.
FSÍ stendur til boða að senda 2 þátttökulið. Hægt er að óska sérstaklega eftir undanþágu fyrir fleiri en ekki víst að það takist, fer örugglega eftir aðsókn. Tíminn er mjög naumur en tilkynna þarf áhuga, hvaða þjálfari muni stjórnar og fjölda í liði ásamt vali á gisitiaðstöðu fyrir 10.5.
Þátttökugjald er ef gist er í 2. manna herbergjum Dkr. 3.000 sem er u.þ.b. 33.700 eða í skólastofu Dkr. 28.000.- auk flugfars.
Þau félög sem hafa áhuga þurfa að senda upplýsingar í allra síðasta lagi mánudaginn 9. maí á netfangið fsi@isisport.is


Byrjendamót Fylkis í hópfimleikum
2/5/05

Fimleikadeild Fylkis hélt byrjendamót föstudaginn 29.apríl síðastliðinn en á mótinu kepptu 8 lið frá 5 félögum. Í fyrsta sæti varð Keflavík með 24,6 stig, í öðru sæti varð Fjölnir T-1 með 23,2 stig og í því þriðja varð Grótta með 22,9 stig.



Fjölgun í hópfimleikum

 

2/5/05

Eins og lesendur fimleikar.is hafa tekið eftir þá hafa mikið af ýmiskonar boðsmótum farið fram að untanförnu og hafa hópfimleikar verið áberandi. Er það eðlileg þróun af þeirri almennu fjölgun iðkenda í hópfimleikum sem virðist vera í öllum fimleikafélögum. Seint verður of oft sagt að hópfimleikar eru grein innan fimleika sem er á mikilli uppleið og býður í senn upp á krefjandi og skemmtilegt keppnisform ásamt því að æfingarfyrirkomulagið byggir upp liðsheild og góðan félagsanda hjá iðkendum. Nú á tímum mikils brottfalls úr íþróttum er ávallt gaman að sjá íþróttagreinar sem eru greinilega að snúa þeirri þróun við. Hópfimleikar koma þar sterkir til leiks.


Vormót í hópfimleikum
-
síðasta FSÍ mót keppnistímabilsins -
30/4/05

Í dag var Vormót í hópfimleikum haldið á Selfossi. Var mótið einnig síðasta hópfimleikamót vorsins. Mjög mikil þátttaka var í mótinu eða alls 17 lið sem tóku þátt. En um morguninn var haldið byrjendamót í hópfimleikum þar sem kepptu 18 lið. Þannig að alls tóku 35 lið þátt í báðum mótum.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
Yngri lið:
1. Ármann með 19.98
2. Björk I2 með 19.10
3. Fylkir með 18.87
Mið lið:
1. Björk með 22.32
2. Grótta 22.12
3. Fylkir 21.53
Aðeins keppt 1 eldra lið það var lið Selfoss.



Allar myndir © www.fimleikar.is
Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is er heimil án sérstaks samþykkis. Sjá hér.

Fimleikar ehf.