|
|
|
Annað:
Undankeppni Gusts
fyrir landsmót |
|
[30/05/2004] |
| |

Taktar frá Miðdal
|
Stóðhesturinn Dalablesi |
Nú er sumarið byrjað
og þá má sjá ýmsar íþróttagreinar
sem keppni fer aðallega fram á sumrin. Fjölmargir
sem komið hafa nærri fimleikum stunda hestamennsku.
Má þar nefna Davíð Ingason, fyrrum
margfaldan Íslandsmeistara í fimleikum, Guðjón
Guðmundsson, hann gerði fyrstur á Íslandi
tvöfallt heljarstökk í gólfæfingu,
Gísli Örn Garðarsson, leikari og leikstjóri
Rómeu og Júlíu. Einnig má nefna
að Margrét Bjarnadóttir og Elsa Jónsdóttir
sem báðar hafa verið formenn Gerplu hafa stundað
hestamennsku í mörg ár en Elsa hefur ásamt
eiginmanni sínum Finnboga Aðalsteinssyni verið
í hrossarækt í áraraðir.
|
Félagsstörf:
Vorsýning
Fjölnis |
|
[30/05/2004] |
| |
Fimleikadeild
Fjölnis hélt Vorsýningu sunnudaginn 23. maí
síðastliðinn. Þema sýningarinnar
var frumskógurinn og tóku allir iðkendur þátt
í sýningunni. Allir voru í búningum
og fengum við Stefán Sturluson leikara til þess
að vera sögumann. Þjálfarar fimleikadeildarinnar
tóku svo létt sprell á loftdýnunni
við mikinn fögnuð yngri kynslóðarinnar.
Sýningin gekk mjög vel og voru foreldrar almennt
mjög ánægðir með hana. Eftir sýninguna
var svo kaffihlaðborð og var það vel þegið
eftir erfiða ferð í fimleikafrumskóginn.
Iðkendur í deildinni eru um 200. |
 |
| |

Ómar lætur fara vel um sig!
|
|
Félagsstörf:
Vorsýning
Gróttu |
|
[27/05/2004] |
| |
Hátt
í þrjúhundruð iðkendur komu fram
á vorsýningu Gróttu og var mikil og góð
stemming í salnum. Jórunn Þóra, formaður
fimleikadeildarinnar, afhenti Hörpu, Heru og Sif styrk
vegna landsliðsþátttöku frá styrktaraðila
deildarinnar, Landsbankanum. |
 |
| |

Að sýningu lokinni var öllum boðið upp
á grillaðar pylsur.
|
|
Áhaldafimleikar
kvenna :
Myndir af Evrópumóti í
áhaldafimleikum |
[25/05/2004]
|
Vladimir Antonov hefur staðið
sig mjög vel sem þjálfari hérlendis
og m.a. þjálfað tvær stúlkur
sem unnið hafa á Íslandsmóti, þær
Elvu Rut og Kristjönu Sæunni.
|
Hin
víðfræga Korkina |
Karitas,
Margrét Hulda og Sandra Árnadóttir |
F.v.
Kristjana Sæunn, Margrét Hulda, Harpa Snædís
og Karitas. |
|
FSÍ:
Toppþjálfaranámskeið
í hópfimleikum |
[25/05/2004]
|
Toppþjálfaranámskeið
í hópfimleikum eða almennum keppnisfimleikum
(Námskeið 2C) fer fram um helgina 11. – 13.
júní 2004 (frá föstudegi til sunnudags)
og fer námskeiðið fram á Reykjavíkursvæðinu.
Námskeiðið er ætlað þjálfurum
með reynslu í þjálfun fimleika. Þeir
þjálfarar sem farið hafa í gegnum
þjálfarakerfi FSÍ og ÍSÍ
ganga fyrir á námskeiðið. Fyrstir koma
fyrstir fá.
Þátttökukröfur eru að hafa lokið
stigi 1 almenna og hluta FSÍ eða A og B stigi í
gamla kerfinu og að hafa lokið stigi 2A. Íþróttakennarar,
sjúkraþjálfarar og fimleikaþjálfarar
með langa reynslu í kennslu framhaldshópa
geta sótt um undanþágu til að sækja
námskeiðið.
Verð 12.000,- Athygli er vakin á því
að með umsókn á námskeið
þarf að koma fram hvernig greitt verður á
námskeiðið.
Farið verður í alla meginþætti
almennra keppnisfimleika. Gólf, dýnu og trampólínstökk.
Meirihluti námskeiðsins er verklegur í sal
og er ætlast til að allir þátttakendur
taki þátt í þeim hlutum að fullu.
Áherlsa verður lögð á að æfa
handbrögð í móttöku og að
greina tækni og þekkja helstu mögulegar villur
í einfaldari jafnt sem flóknari fimleikastökka.
Kennarar á námskeiðinu eru danskir sem hafa
mikla reynlsu og þekkingu á hópfimleikum.Skráningu
skal vera lokið fyrir föstudaginn 29. maí
og skulu umsækjendur skila skráningarblaði
á skrifstofu FSÍ í pósti, með
Faxi eða tölvupósti.
Fræðslunefnd FSÍ.
|
Félagsstörf:
Vorsýning hjá Björk |
[24/05/2004]
|
Félagsstörf:
Vorsýning Gróttu |
[24/05/2004] |
Meðfylgjandi myndir voru teknar á
árlegri Vorsýningu hjá Björk.
Sjá myndir
hér.
|
 |
|
Vorsýningar standa
nú yfir og má sjá hér til hægri
að strákarnir eru hressir í Gróttu. Sjá
myndir hér. |
 |
Félagsstörf:
Rúnar Alexandersson heimsækir
leikskóla í Kópavogi |
[22/05/2004]
|
Rúnar
Alexandersson úr Gerplu tók sér hlé
frá æfingum fyrir Olympíuleikana nú
í ágúst til þess að heimsækja
börn á leikskólum í Kópavogi
og kynna fyrir þeim sögu Olympíuleikanna
og sýna þeim nokkrar vel valdar fimleikaæfingar.
Rúnar er nú að fara að keppa í
þriðja skiptið á Olympíuleikunum
en þess má geta að enginn annar fimleikamaður
frá Norðurlöndunum keppir Olympíuleikunum
í sumar. Una María Óskarsdóttir,
formaður Íþrótta- og tómstundaráðs
Kópavogs, tók þátt í þessu
skemmtilega verkefni og hjálpaði hún Rúnari
að lyfta börnunum í heljarstökk. Hún
var mjög ánægð með þetta verkefni
og telur mikilvægt að börnin fái að
kynnast afreksfólki Kópavogsbæjar með
jafn beinum hætti og Rúnar gerði að þessu
sinni ásamt félögum sínum úr
Gerplu.
Farið var í leikskólana Rjúpnahæð
við Rjúpnasali, Fífusalir við Salaveg,
Arnarsmára, Dal við Funalind og Smárahvammur
við Lækjarsmára. Allir leikskólarnir
liggja nærri nýju íþróttahúsi
sem Íþróttafélagið Gerpla mun
flytja í á næstu misserum. Jón
Finnbogason, varaformaður Gerplu, fór ásamt
Rúnari með þeim Dýra
Kristjánssyni, Ingu
Rós Gunnarsdóttur og Kristjönu
Sæunni Ólafsdóttur í heimsókn
í leikskólana enda dugar ekker minna en hópur
fremsta fimleikafólks á Íslandi þegar
um 500 börn eru heimsótt og þeim sýndar
ýmsar fimleikaæfingar.
Myndir af heimsókninni
hér.
|

Una María Óskarsdóttir og Rúnar
Alexandersson hjálpa ungri stúlku að gera
heljarstökk. Myndin er tekin í leikskólanum
Rjúpnahæð við Rjúpnasali í
Kópavogi en það er fjölmennasti leikskólinn
á landinu með um 120 nemendur. Leikskólarnir
Rjúpnahæð og Fífusalir eru nýjustu
leikskólar Kópavogsbæjar og er mjög
góð íþróttaaðstaða
í leikskólunum þar sem rimlar, kaðlar,
dýnur o.fl. eru af bestu gerð.
|

Thelma Aðalsteinsdóttir
fær "gull" Olympiumerki frá Rúnari
Alexanderssyni en öll börnin á leikskólunum
fimm fengu viðurkenningu frá ÍSÍ
enda stóðu þau sig mjög vel.
|
Eftirvæntingin var mikil og það
þurfti að hafa góða stjórn á
röðinni því börnin voru mjög
spennt fyrir því að fá að spreyta
sig á fimleikaæfingunum. |
Rúnar Alexandersson
from the gymnastic club Gerpla took a short break from the
preparation for the Olympic games to visit children in the
kindergarten schools in Kópavogur, the municipal were
Gerpla is located, and introduce to them the history of the
Olympic games and show them some gymnastic movements. Rúnar
is now going to take part in the Olympic games for the third
time in a row and is now the only gymnastic men from the Nordic
regions that take part in the games. Una María Óskarsdóttir,
chairman of the sports council in Kópavogur, took part
in this project and helped Rúnar to assist the children
to do backwards somersault. She was very satisfied with this
project and in her opinion it is very important that the children
in Kópavogur get the opportunity to get to know the
best sportsmen and women in Kópavogur as the did now
by meeting Rúnar and his friends from Gerpla.
The kindergarten schools that was visited were Rjúpnahæð,
Fífusalir, Arnarsmári, Dalur and Smárahvammur.
All the schools are situated very close to the new gymnastic
house which Gerpla will soon start to use. Jón Finnbogason,
vice chairman of the board of Gerpla, went to the schools
with Rúnar, along with Dýra Kristjánssyni,
Ingu Rós Gunnarsdóttur og Kristjönu Sæunni
Ólafsdóttur, but five of them are among the
strongest gymnastics group in Iceland, and there which is
very good when you visit 500 children and show them gymnastic
movements. Pictures
from the visit is here.
|
Félagsstörf:
Vorsýning Gerplu |
[22/05/2004]
|

Einbeitingin er mikil enda mamma og pabbi að
horfa á og ekkert má fara úrskeiðis.
Mikill fjöldi ungra og efnilegra iðkenda í
félaginu sýndu ýmiskonar æfingar
á sýningunni og alveg ljóst að framtíðin
er björt í fimleikum á Íslandi.
|
|
|
Áhaldafimleikar
kvenna :
Kristjana Sæunn fékk silfur
á stökki á mjög sterku móti í
Rússlandi |
[18/05/2004]
|
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
úr Íþróttafélaginu Gerplu
fékk silfur í úrsltium á stökki
á mjög sterku móti, 2004
Dityatin Cup, sem fram fór um síðustu
helgi á móti í Rússlandi. Er þetta
í fyrsta skiptið, svo vitað er, að stúlka
frá Íslandi nær verðlaunapening á
fimleikamóti í frjálsum æfingum
sem fram fer í Rússlandi. Keppendur voru 87
frá 9 þjóðum og eins og sjá
má á þeim einkunnum sem gefnar voru þá
var um mjög sterkt mót að ræða.
Kristjana Sæunn fékk samtals 32 stig sem er hennar
besti árangur hingað til.
Inga Rós Gunnarsdóttir einnig úr Íþróttafélaginu
Gerplu keppti jafnframt á mótinu en var ekki
búinn að ná sér að fullu eftir
meiðsli sem hún hlaut við undirbúning
fyrir EM og keppti því ekki í gólfæfingum.
Nánar
um mótið hér
Kristjana Sæunn
Ólafsdóttir from the Gymnastic club
Gerpla got silver medal on vault on very strong
competition, 2004 Dityatin Cup, which took place
last weekend in former USSR. This is the first time,
as is best known, that Icelandic girl gets a metal
in artistic gymnastic competition in the former
USSR. In the competition there was 87 gymnasts from
9 nations that participated and as you can see on
the scores this was very strong competition. Kristjana
Sæunn got total 32 points and that is her
best score so far.
Inga Rós Gunnarsdóttir also from the
Gymnastic club Gerpla participated as well in the
competition but she hadn’t fully recovered
from her injury which she got while she was preparing
for the EU competition and there for she didn’t
compete on floor exercise. More
about the competition here
|
|
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
(t.v) hafnaði í öðru sæti í
úrslitum á stökki. Nadezhda Chikhiryova (miðja)
sigraði og Anna Povolya var í þriðja sæti. |
Félagsstörf:
Vorsýningar hjá Björk
og Gerplu |
[18/05/2004]
|
Seinni helmingur vorsýninga hjá
Fimleikafélaginu Björk fara fram 19.maí
kl: 17:30 og 19:30 að Íþróttahúsi
félagsins í Hafnarfirði. Aðgangseyrir
er kr. 500 fyrir 14 ára og eldri. Nánar www.fbjork.is
Vorsýningar Íþróttafélagsins
Gerplu fara fram þann 20. maí í íþróttahúsi
Breiðabliks í Kópavogi. Sýningarnar
hefjast klukkan 12:00 og 14:30. Aðgangseyrir er kr. 500
en ókeypis fyrir börn. Nánar www.gerpla.is
|
Félagsstörf:
Vetrarstarfi Fimleikadeildar Umf. Selfoss
2003- 2004 er lokið |
[18/05/2004]
|
Sunnudaginn 17. maí sl. lauk vetrarstarfi
Fimleikadeildar Ungmennafélags Selfoss. Fyrir hádegi
brugðu yngstu iðkendurnir á leik ásamt
foreldrum undir stjórn þjálfara. Í
hádeginu var slegið upp pylsuveislu með tilheyrandi
við íþróttahúsið og allir
iðkendur fengu verðlaunapening.
Eftir hádegi var hið árlega Minningamót
í íþróttahúsinu, en mótið
er haldið í minningu Magnúsar A. Garðarssonar.
Í mótslok fengu allir iðkendur verðlaunapening
auk þess sem sérstakar viðurkenningar voru
veittar. Félagi árins var valin Þórfríður
S. Haraldsdóttir úr T1. Kristín Magnúsdóttir
úr T2 var valin efnilegasti unglingurinn. Árangur
hennar á landsvísu var glæsilegur. Hún
lauk 4. þrepi almenna fimleikastigans aðeins 12
ára gömul og sigraði þá sér
mun eldri stúlkur.
meira
|
Hér að ofan má sjá þá
sem fengu sérstaka viðurkenningar á mótinu.
Frá vinstri Þórfríður Soffía
Haraldsdóttir, félagi ársins, Dröfn
Hilmarsdóttir og Bergþóra Kristín
Ingvarsdóttir, framför og ástundun, Kristín
Magnúsdóttir, Efnilegasti unglingurinn. |
Félagsstörf:
Ingi Sigurðsson var mikill frumkvöðull
í fimleikum Íslandi |
[18/05/2004]
|
Ingi Sigurðsson frá Seyðisfirði,
fæddur 28.ágúst 1934. Hann byrjaði
að æfa fimleika á Seyðisfirði 1946
hjá Birni Jónssyni, en Björn hafði
dvalið í Þýskalandi, kynnst áhaldafimleikum
þar og þýtt tvær fimleikabækur
úr þýsku. Fastur liður í hátíðahöldum
17. júní á Seyðisfirði var að
drengjaflokkur Björns sýndi áhaldafimleika.
Einnig voru farnar sýningarferðir um norður-
og austurland, sýnt á landsmótum UMFÍ
og við ýmis tækifæri.
Ingi æfði með Ármenningum frá
1956. Hann fór til Moskvu á heimsmót
æskunnar 1957 og kynnti sér fimleika. Þá
fór hann á fimleikanámskeið í
Horten við Oslófjörð 1958, sýningarferð
með Ármenningum til Færeyja 1962 og sýndi
með þeim innanlands um árabil.
Hann tók við þjálfun karlaflokks Ármanns
árið 1964 og efndi til keppni innan fimleikadeildarinnar
á páskum 1965. Það var fyrsta fimleikakeppni
hér á landi í 27 ár. Þá
þjálfaði hann fimleikamenn KR 1974-1980.
Ingi hefur æft síðan með öldungaflokki
Ármanns.
Ingi hefur alltaf fylgst vel með fimleikum á Íslandi
og einnig sótt mót erlendis, svo sem Norðurlandamót
karla í Stokkhólmi 1989 og Evrópumót
karla í Slóveníu 2004 ásamt Davíð,
syni sínum.
Ingi er af þeirri kynslóð sem tileinkaði
sér hinn sanna íþrótta- og ungmennafélagsanda.
Sjá
einnig umfjöllun um Inga hér
|
Félagsstörf:
Gott rekstrarár að baki og Margréti
þakkað góð störf fyrir Gróttu |
[13/05/2004]
|
Aðalfundur fimleikadeildar Gróttu
fór fram í kvöld. Á liðnu ári
hélt áfram sú þróun sem
átt hefur sér stað undanfarin ár
að umfang deildarinnar hefur vaxið. Rekstrarlega var
afkoman góð eða um 1,2millj. í rekstrarhagnað
af deildinni. Að sögn Halldórs Árnasonar,
gjaldkera deildarinnar, þá er því
að þakka fjölmörgum breytum sem geta snúist
í aðrar áttir á næsta rekstrarári.
Jórunn Þóra Sigurðardóttir
var kosin formaður á fundinum og tekur við
af Margréti Pétursdóttir sem verið
hefur formaður undanfarin ár. Jón Finnbogason
var fulltrúi FSÍ á aðalfundinum og
þakkaði hann Margréti fyrir hennar störf
í þágu fimleikahreyfingarinnar og óskaði
nýjum formanni góðs gengis í nýju
starfi.
The annual general
meeting of Grótta was held to night. Last
year was no different from previous years that the
growth level kept on increasing. The operation was
very good with 1,2million in operation profit. Halldór
Árnason, the cashier, says that many small
changes in the operation can quickly change and
turn profit in to loss.
Jórunn Þóra Sigurðardóttir
will be the next chairman and takes the seat from
Margrét Pétursdóttir who has
been chairman for many years. Jón Finnbogason
was the representative of the Gymnastic federation
of Iceland and he thanked Margrét for her
work for the Gymnastic community and wished new
chairman good luck.
|
|
Guðrún B. Vilhjálmsdóttir
(t.v) þakkar Margréti Pétursdóttur,
fráfarandi formanni fimleikadeildar Gróttu, fyrir
hennar frábæru störf í þágu
fimleikadeildarinnar. |
Félagsstörf:
Berglindi þakkað fyrir heiðarleika
og fagmennsku í dómgæslu |
[13/05/2004]
|
Fimleikasambandi Íslands hefur borist
þakkarskeyti frá Evrópska fimleikasambandinu
(UEG) þar sem Berglindi Pétursdóttur er
þakkað sérstaklega fyrir hennar vinnu sem A1
dómari á Evrópumótinu í áhaldafimleikum
sem fram fór í Hollandi fyrir nokkrum vikum. Henni
er þakkað fyrir að hafa unnið með heiðarleika
og fagmennsku að leiðarljósi og varð bæði
Evrópska fimleikasambandinu og FSÍ til sóma.
Það er mjög ánægjulegt að hennar
störf skulu fá þessa eftirtekt og viðurkenningu
af hálfu UEG og óskum við á www.fimleikar.is
henni innilega til hamingju með þessa viðurkenningu.
UEG thanks Berglind for integrity
and professionalism as a judge.
Gymnastic federation of Iceland (FSÍ) has received
a letter from the European union of Gymnastics were
Berglind Pétursdóttir is congratulated
for here excellent work as A1 judge at the 2004 European
Women’s Artistic Gymnastics Championships. In
the letter says that she “worked with integrity
and professionalism and was a credit to the UEG”
and the FSÍ.
It is very good that here job as an judge get this
attention and acknowledgement on behalf of the UEG
and we on www.fimleikar.is congratulate her with this
recognition.
|
|
Félagsstörf:
Iðkendur hjá Björk um 1200
og afkoma góð eða 3,4millj. í hagnað |
[10/05/2004]
|
Aðalfundur var haldinn 5. maí og
var vel mætt á fundinn. Kynntar voru lagabreytingar
og skipurit félagsins og er nú félagið
með 4 deildir: Fimleikar - Taekwondo - Klifur - Íþróttaskóla.
Kosin var aðalstjórn og hana skipa: Aðalstjórn:
Ólafur Haukur Magnússon, formaður, Steinunn
Guðnadóttir, Ásta Friðriksdóttir,
Jón Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir.
Varastjórn: Eydís Sigvaldadóttir, Sævar
Bjarnason og Sigurður G. Hilmarsson. Heildarfjöldi
iðkenda fyrir árið 2003 er í kringum 1100-1200,
þar af eru fimleikarnir með um 700. Afkoma félagsins
var góð Tekjur samtals voru um kr. 66,4millj. og
gjöld samtals kr. 63millj. þannig að rekstrarhagnaður
var kr. 3,4millj. heildartekjur fimleikadeildar voru rúmar
15 millj. Fjöldi þjálfara í félaginu
voru um 40.
The annual general
meeting of Björk was held the 5th of may and
this time many of the clubs members attend the meeting.
New legislation for the club was put forward and the
organization of the club is now built up with 4 divisions
which are now; gymnastics, Taekwondo, climbing and
sport school. Members of the board are; Ólafur
Haukur Magnússon, chairman, Steinunn Guðnadóttir,
Ásta Friðriksdóttir, Jón
Sigurðsson og Sigríður Guðmundsdóttir.
And in support board are: Eydís Sigvaldadóttir,
Sævar Bjarnason og Sigurður G. Hilmarsson.
The total number of practitioner in the club on the
year 2003 is a round 1100-1200, there of the gymnastic
division has around 700 practitioners. The results
were good. Total revenues were 66,4million ISK and
operating expenses were 63million ISK and net income
3,4 million ISK. Total income for the gymnastic division
were 15million ISK. Total number of coaches is around
40.
|
|
Félagsstörf:
Vorsýning hjá Ármanni |
[10/05/2004]
|
Það er vorsýning hjá
okkur á miðvikudaginn 12. maí n.k. í
Laugardalshöll, kl. 18:00 - 19:30. Allir fimleikaáhorfendur
eru hvattir til þess að mæta en sýningin
í fyrra var bæði fjölbreytt og skemmtileg.
Myndir teknar á vorsýningunni í fyrra,
sjá
hér.
|
 |
Félagsstörf:
Aðalfundur hjá Gróttu á
fimmtudaginn, 13. maí |
|
[10/05/2004]
|
Aðalfundur fimleikadeildar Gróttu
fer fram í hátíðarsal félagsins
við Suðurströnd á Seltjarnarnesi fimmtudaginn
13.maí og hefst kl. 19.30. Á dagskránni
eru venjuleg aðalfundarstörf . Allir áhugasamir
eru hjartanlega velkomnir.
|
Dans:
Dansleikhúsið 2ja ára,
frumfutt 4 ný dansverk í Borgarleikhúsi |
[6/05/2004]
|
Dansleikhúsið er nú orðið
tveggja ára en fyrsta frumsýning þess var
haldin á Alþjóðlega dansdeginum í
Borgarleikhúsinu 29.apríl 2002. Það
hóf göngu sína sem þróunarverkefni
Jassballettskóla Báru en hefur nú gengið
til liðs við SL – Félag sjálfstæðu
leikhúsanna. Fjölmargir ungir atvinnudansarar eru
nú komnir fram á sjónarsviðið og
ný tækifæri eru að skapast hér
heima á Íslandi í dansinum. Við eigum
þá heitu ósk að þessi framþróun
haldi áfram.
Hinn 18.maí næstkomandi verða frumflutt 4 ný
dansverk á vegum Dansleikhússins og er efnisval
sýningarinnar mjög fjölbreytt. Verkin eru leikræn
og munu sjálfsagt kitla hinar ýmsu taugar áhorfandans
þar sem von er á mikilli dramatík en léttleikinn
verður einnig á sínum stað. Ekki er einungis
um frumsköpun að ræða í listdansinum
því að einnig verða frumflutt tvö
íslensk tónverk sem sérstaklega eru samin
fyrir tvö af dansverkum sýningarinnar.
Ferskleiki og sköpun einkenna dansheiminn um þessar
mundir – komdu og upplifðu með okkur. Sýningar
verða dagana 18.maí og 25.maí næstkomandi.
Miðasala er í Borgarleikhúsinu frá
29.apríl og á síðu Borgarleikhússins
www.borgarleikhus.is
Almennt miðaverð er 2100 kr. “Fimm eða fleiri”
hóptilboð, miðaverð 1500 kr.
|
 |
Annað:
Dóra Sif eignast glæsilegan
fimleikaprins |
[6/05/2004]
|
Dóra Sif Óskarsdóttir
fyrrum landsliðskona í áhaldafimleikum var
að eignast sitt fyrsta barn þann 25. apríl
sl. Það var stór og stæðilegur strákur,
3,2kg og 51 cm. Við óskum henni og fjölskyldu
hennar innilega til hamingju með þennan merka áfanga.
Dóra Sif kemur úr mikilli fimleikafjölskyldu.
Hún og systir hennar Áslaug Óskarsdóttir
æfðu fimleika með góðum árangri
en móðir þeirra, Lovísa Einarsdóttir,
var ávallt skammt undan í íþróttinni
því hún setti sitt mark á fimleikahreyfinguna
sem formaður FSÍ. Lovísa hafði frumkvæði
af upphafi hins árlega kvennahlaups sem nú fer
fram árlega um allt land. Dóra Sif er sjúkraþjálfari
og kennir m.a. fimleika í Noregi.
|
Verður sonur Dóru Sifjar Íslandsmeistari
í fimleikum árið 2022! |
Dóra Sif Óskarsdóttir
former member of the national team in artistic gymnast has just
give birth to here first child on the 25th of April. It was
big and beautiful boy, 3,4 kg and 51 cm. We congratulate her
and her family.
Dóra Sif is from a gymnastic family. She and here sister,
Áslaug Óskarsdóttir, practiced gymnastic
whit good results, but there mother, Lovísa Einarsdóttir,
was always nearby in the sport and she set here mark on the
gymnastic community as the chairman of the Gymnastic Association
of Iceland. Lovísa started the female run which take
place every year all over the country. Dóra Sif is physiotherapist
and is currently teaching gymnastics in Norway.
|
Dans:
Dans Work-Shop með Miguel Gutierrez,
9. - 13. ágúst 2004 |
|
[6/05/2004]
|
Þann 9. - 13. ágúst 2004
mun fara fram Dans Work-Shop í Kramhúsinu, Skólavörðustíg
12, Reykjavík. Kennari á námskeiðinu
verður Miguel Gutierrez danshöfundur og dansari frá
New York. Hann er einnig listrænn stjórnandi dansflokksins
Miguel Gutierrez and the Powerful People.
Miguel Gutierrez hefur kennt á Open Look Festival í
Sánkti Pétursborg, American Dance Festival, í
Tel Aviv Dance Center í Ísrael, á Champaign-Urbana
við Háskólann í Illinois og á
TSEH Summer Intensive í Moskvu og Seoul. Í New
York kennir hann reglulega í Dance Space Center og hjá
Movement Research. Hann er einnig aðstoðarkennari í
Hunter College of the City University of New York.
Árið 2002 hlaut hann Bessie viðurkenningu (New
York Dance and Performance Award) fyrir vinnu sína með
John Jasperse dansflokknum. Ásamt því að
hafa unnið med John Jasperse þá hefur Miguel
Gutierrez unnið með listamönnum a borð við
Sarah Michelson, Joe Goode Performance Group, Mark Morris, Ann
Livingston Young, Jennifer Lacey, Jennifer Monson, Knee Jerk
Dance Project, Ricky Darnell/High Risk Group, Erin Cornell and
Jess Curtis. meira
Miguel Gutierrez is
a dance artist based in Brooklyn and artistic director
of Miguel Gutierrez and the Powerful People. He has
completed three projects with his company, dAMNATION
rOAD, I succumb and enter the seen. I succumb toured
to Saint Petersburg, Russia and Jacob’s Pillow
Inside/Out Series. He has been presented at The Kitchen,
P.S. 122, Danspace Project at Saint Mark’s Church,
and alongside the band Le Tigre. He regularly performs
an improvisation-based duo entitled Sabotage with
composer/musician Jaime Fennelly.
more
|
|
Áhaldafimleikar
kvenna:
Sif Pálsdóttir á EM |
|
[6/05/2004]
|

Sif Pálsdóttir
|
Þessar
glæsilegu myndir voru teknar af Sif Pálsdóttur
úr Gróttu á EM fyrir viku síðan
en hún er fjórfaldur Íslands-meistari í
áhaldafimleikum.
Dýri Kristjánsson úr Gerplu sem nú
æfir fimleika í USA fékk myndirnar sendar
frá vinkonu sinni en hún eins og svo margir aðrir
hafa fylgst með okkar fólki eftir að hafa veitt
landinu fyrst athygli þegar nafn Rúnars Alexanderssonar
frá Íslandi er stöðugt að bera fyrir
sjónir þeirra. |
Sif Pálsdóttir |
These beautiful pictures were
taken of Sif Pálsdóttir from Grotta on the EU
competition one week ago, but she is four times Icelandic champion
in artistic Gymnast. Dýri Kristjánsson from Gerpla,
who is currently practicing gymnastic in US, got these pictures
from a friend which has started to notice our Icelandic gymnasts
after she have seen Runar Alexandersson on all the international
competitions.
|
Áhaldafimleikar
kvenna:
Nadia verst árásum um óeðlilega
dómgæslu á ÓL 1976 |
|
[4/05/2004]
|
Nadia Comaneci verst ásökunum um
að hún hafi ekki átt skilið að fá
10 fyrir skylduæfingar sínar á tvíslá
á Olympíuleikinum í Montreal 1976. Dick
Pound fyrrum varaforseti Alþjóðlegu Olympíu
nefndinni segir í óútkominni bók
að lönd sem tengdust Sovéttríkjunum hafi
fengið “aðeins hærri en venjulegar”
einkunnir, í von um að þóknast íþróttamönnum
frá þeim löndum.
Frá
þessu var greint í á Cetate world gymnastics,
sjá hér.
Nadia Comaneci protests
accusations regarding that she did not reserved to
get perfect 10 for here compulsory routine on the
uneven bars on the 1976 Olympic Games in Montreal.
Dick Pound, former IOC vice president, said in his
forthcoming book, that Soviet bloc judges had awarded
"slightly higher than normal" hoping to
benefit Soviet athletes.
This news is from Cetate world gymnastics.
|
|
Félagsstörf:
Aðalfundur hjá Gerplu og Björk |
|
[4/05/2004]
|
Miðvikudaginn 5. maí fara fram aðalfundir
hjá tveimur af fjölmennustu fimleikafélögum
landsins en það eru Fimleikafélagið Björk
í Hafnarfirði og Íþróttafélagið
Gerpla í Kópavogi. Það verður gaman
að fylgjast með því hvort að það
verði einhverjar breytingar í stjórn þessara
félaga. Er þá vert að þakka þeim
fyrir sem unnið hafa fórnfúst sjálfboðaliðastarf
á liðnu ári og bjóða nýtt
fólk velkomið til starfa.
Aðalfundur Fimleikafélagsins
Björk verður haldinn í Íþróttamiðstöðinni
Björk (veislusal) Haukahrauni 1, kl. 20:00. Á dagskrá
eru venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar um stjórn
og skipulag félagsins. Afhending viðurkenninga. Aðalfundur
Íþróttafélagsins
Gerplu verður haldinn að í húsnæði
félagsins að Skemmuvegi 6 og hefst fundurinn kl.
20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
The annual general
meeting of the two biggest gymnastics clubs, Björk
in Hafnarfjordur and Gerpla in Kopavogur, will be
held on the Wednesday the 5. of May. Sometimes there
are mate some changes on the board the clubs on the
annual general meetings. It’s right to thank
the board members who leave for there invaluable voluntary
work and welcome new board members.
The annual general meeting of Björk
will take place in the residence of Björk at
Haukahrauni 1, in Hafnarfjordur, at will start 20:00.
The agenda for the meeting is in line with other general
meetings. The annual general meeting of Gerpla
will also start at 20:00 in Skemmuvegur 6, Kópavogur,
and the agenda is also normal for annual meetings.
|
|
| Áhaldafimleikar
kvenna:
Evrópumótinu lokið |
|
[2/05/2004]
|
Alina
Kozich frá Ukrainu sigraði í fjölþraut
á Evrópumótinu í áhaldafimleikum.
Hún sigraði óvænt og þegar ljóst
var að gullið var hennar þá steymdu tárin
niður hjá þessum nýbakaða Evrópumeistara.
Nánari umfjöllun um mótið á heimasíðu
mótsins: http://www.ecgymnastics2004.nl/
Úrslit
mótsins má sjá hér.
Alina Kozich (UKR)
was in the first place on the 25th European Championship
witch ended to day. Here victory came with a surprise
and when it was clear that she won the gold medal
the tears just poured out on this new European Champion.
Detailed information from the competition is available
on the home page http://www.ecgymnastics2004.nl/
The
competitions results are here.
|
|
|
|
|
|