|
|
|
|
Vorsýning Gerplu fer fram þann 1. júní
kl. 13:30 í Laugardalshöllinni. Allir iðkendur
félagsins koma fram á sýningunni en þeir
eru rúmlega 600. Það er því von
á troðfulltri Laugardalshöll og allir hvattir
til að mæta tímanlega. Verð aðgöngumiða
er kr. 500 fyrir 13 ára og eldri.
|
| Fimleikasprell
í Ármannshúsinu á laugardaginn kl.
13:00 |
|
|
Í ágúst á þessu ári eru
Íslendingar að senda landslið í fimleikum
í fyrsta sinn. Áður hafa einstaklingar keppt
á HM en aldrei lið. Þó er sá hængur
á að keppendur þurfa að standa straum af
verulegum hluta kostnaðar. Til þess að afla fjár
til ferðarinnar verður m.a. haldið fimleikasprell
í Ármannshúsinu að Sóltúni
16, kl. 13 á laugardag. Börnum sex ára og eldri
er boðið að koma þar og vera undir stjórn
fimleikaþjálfara og landsliðsmanna í leikjum
og tækjum, pylsur verða í boði og fleira
skemmtilegt. Foreldrar verða útundan í þetta
sinn en kr. 1000 kostar fyrir hvert barn.
|
| Einkunnir
af mótum vetrarins |
|
|
Meðfylgjandi skjal sýnir einkunnir keppenda á
mótum sem fram fóru í vetur. Hægt er
að velja einstaka keppendur og sjá allar einkunnir
viðkomandi aðila á öllum mótum vetrarins.
Ég hvet alla sem hafa staðið fyrir innanfélagsmótum
í vetur að senda einkunnir á fimleikar@fimleikar.is
til að unnt verði að safna saman upplýsingum
á einn stað.
|
SKJAL |
| Fjölgun
félaga í Fimleikasjóð Íslands |
|
|
Undanfarnar vikur hefur verið nokkur fjölgun félaga
í Fimleikasjóðs Íslands. Nú eru
virkir félagar að nálgast 40 talsins. Er það
mikil lyftistöng fyrir fimleikafólk í landinu.
Afreksfólk í fimleikum hefur farið í
nokkrar keppnisferðir í vetur, t.d. heimsmeistara-
og Norðurlandamót. Stefnan er nú tekin á
Ólympíuleika æskunnar og Heimsmeistaramót
sem fram fer í ágúst. Stefnt er að því
að senda út lið í keppni pilta og þrjár
stúlkur á HM. Þeir sem stefna á þessi
mót eru að vinna í ýmsum fjáröflunum
enda um mjög fjárfrekar keppnir að ræða.
Það er vonandi að fimleikaáhugafólk
nýti þann möguleika sem er fyrir hendi að
gerast félagar í Fimleikasjóð Íslands
en hann hefur það markmið að styrkja fimleikafólk
sem sækir um styrki í samræmi við reglur
sjóðsins.
Sjá félagatal hér.
Gerast félagi. Heimasíða
sjóðsins er hér að ofan til vinstri.
|
| Vorsýning
fimleikadeildar Stjörnunnar |
|
|
Vorsýning fimleikadeildar Stjörnunnar var haldin nú
um helgina. Þar mátti sjá mikið af ungum
og efnilegum fimleikastjörnum eins og meðfylgjandi myndir
bera með sér. Glögglega mátti sjá
að starfið í deildinni hefur verið blómlegt
í vetur. Vonandi tekst að fjölga strákum
í deildinni og mætti því segja að
fimleikadeildin eigi inni mikla vaxtamöguleika á því
sviði.
|
|
| Vorsýning
fimleikadeildar Gróttu n.k. fimmtudag |
|
|
Vorsýning fimleikadeildar Gróttu verður haldin
í íþróttahúsi Seltjarnarness
næstkomandi fimmtudag 22. maí og hest sýningin
kl. 18.00. Allir iðkendur deildarinnar munu taka þátt
og í lok sýningarinnar verður krýndur
íþróttamaður íþróttafélagsins
Gróttu fyrir árið 2002. Allir eru að sjálfsögðu
velkomnir.
Hópfimleikahópar Gróttu munu keppa innbyrðis
á vorsýningunni en þá lýkur
innanfélagsmóti Gróttu sem fer fram í
fjórum hlutum. Að þessu loknu býður
aðalstjórn félagsins öllum upp á
grillaðar pylsur. Meðfylgjandi myndir voru teknar eftir
innanfélagsmót áhaldahópa.
|
|
| Vorsýning
fimleikadeildar Ármanns |
|
|
Fimleikadeild Ármanns lauk vetrarstarfi með vorsýningu
sem fram fór í kvöld. Foreldrar og aðrir
ættingjar iðkenda fjölmenntu á sýninguna
og ekki vantar gleðina og einbeitingu hjá krökkunum
eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
Myndir hér.
|
|
| Glæsileg
tilþrif á 35 ára afmælissýningu
FSÍ |
|
|
Fimleikasamband Íslands hélt upp á 35 ára
afmæli sitt með glæsilegri fimleikasýningu
í Laugardalshöll auk þess að gefa út
tímaritið Fimleikalíf sem áður hefur
komið út við álíka tímamót
í sögu sambandsins. Sýningin var bæði
fjölmenn og glæsileg en fjölmennur hópur
fimleikafólks á öllum aldri tók þátt
í sýningunni sem var vel sótt af áhorfendum.
Óskum við á www.fimleikar.is öllu fimleikafólki
til hamingju með afmælið og þeim sem að
sýningunni stóðu þökkum við fyrir
góða skemmtun.
Nokkuð af myndum voru teknar á
sýningunni og má sjá nokkrar þeirra
hér. |

Rúnar
Alexandersson sýndi glæsilegar æfingar á
35 ára afmælissýningu FSÍ.
|
| Vorsýning
Fimleikadeildar Ármanns næsta mánudag |
|
|
Vorsýning Fimleikadeildar Ármanns verður haldin
í Laugardalshöllinni mánudaginn 19. maí
nk. frá 17:30 – 19:00. Flestir hópar deildarinnar
sýna stutt atriði, veitt verða dugnaðarverðlaun
og Ármannsmeistarar krýndir. Sýningin er
öllum opin og aðgangur er ókeypis.
|
Strákarnir
í Ármann á góðri stundu með
uppskeru vetrarins. |
| Fimleikasamband
Íslands verður 35
ára
|
|
|
Fimleikasamband Íslands verður 35 ára þann
17. maí n.k. Af því tilefni verður Afmælissýning
í Laugardalshöll, sunnudaginn 18. maí kl. 16.00.
Sýningin verður fjölbreytt og skemmtileg þar
sem allur aldur fimleikafólks mun sýna allt frá
byrjenum til "Heldra fólks", þar á
meðal fremsta fimleikafólk landsins í áhaldfimleikum,
hópfimleikum og þolfimi.
Komið og sjáið skemmtilega sýningu - Aðgangseyrir
er kr. 800.- fyrir fullorðna og kr. 300. - fyrir 6 - 16 ára.
|
| Myndir
af Norðurlandamóti unglinga |
|
|
Þessar myndir og fleiri voru teknar á Norðurlandamóti
unglinga sem fram fór fyrir stuttu. Við þökkum
kærlega fyrir að fá tækifæri til
að leyfa okkur sem vorum heima að kynnast því
hvernig ferðina var. Takk fyrir. Fleiri
myndir hér. |
|
Þessar myndir og fleiri voru teknar á móti
sem Dýri Kristjánsson úr Gerplu keppti á
nú fyrir stuttu. Það er ljóst af þessum
myndum að dæma að hann erí topp formi. Það
verður því gaman að sjá hann á
vorsýningu Gerplu sem fer fram í byrjun júní.
Fleiri myndir hér. |
|
Laugardaginn 17. maí nk. lýkur vetrarstarfi Fimleikadeildar
Ungmennafélags Selfoss með Minningamótinu sem
haldið verður í Íþróttahúsinu,
Sólvöllum 2 á Selfossi. Mótið, sem
er innanfélagsmót, er haldið í minningu
Magnúsar A. Garðarssonar sem þjálfaði
með deildinni en lést fyrir aldur fram í bílslysi
árið 1990 Allir iðkendur deildarinnar taka þátt
í mótinu. Mótið er tvískipt. Yngstu
iðkendur deildarinnar koma fram kl. 10 fyrir hádegi.
Dagskráin eftir hádegi hefst með innmars kl.
13:30. 7 hópar keppa í hópfimleikum eftir
byrjenda- og FSÍ-reglum, en yngstu hóparnir 2 sýna
frammi fyrir dómurum. Þá verða einnig
veittar viðurkenningar fyrir árangur og ástundun
í vetur. Mótið er öllum opið og aðgangur
ókeypis. |
|
| Vorsýning
hjá Björkunum næsta fimmtudag |
|
|
Vorsýning hjá Björkunum fer fram næsta
fimmtudag 15.maí í Bjarkarhúsinu. Það
eru tvær sýningar sú fyrri er kl. 18:30 og
seinni kl. 20:00. Það kostar 500 kr. inn og er hægt
að nálgast miða í afgreiðslu.
Þetta verður hörku sýning en þeir
sem muna eftir jólasýningu hjá Björk
vita að þar var troðfullt út að dyrum
á báðum sýningunum. Þeir sem vilja
tryggja sér góð sæti ættu því
að vera snemma á ferðinni að þessu sinni.
Myndir af jólasýningunni er
hér. |
Myndir af jólasýningu
í Björk í desember 2002 |
| Yfir
20 þúsund heimsóknir á rétt
um 4 mánuðum |
|
|
Frá því settur var upp fullkominn teljari
á www.fimleikar.is
þann 21. desember sl. þá hefur síðan
fengið yfir 20.000 heimsóknir. Aðstandendur síðunnar
eru þakklátir fyrir viðtökurnar. Á
sama tíma hvetjum við alla sem hafa eitthvað fram
að færa svo sem fréttir, úrslit móta,
fimleikamyndir, væntanleg mót, jólasýningar,
vorsýningar, aðalfundir, ferðasögur eða
hvað sem er að senda efni á fimleikar@fimleikar.is
til birtinar á síðunni. Einnig er hægt
að óska eftir birtingu ýmiskonar auglýsinga
s.s. eftir þjálfurum, áhöldum eða
hverju sem er. Sjá teljara hér.
Síðan var opnuð 17. júní 2002. Hér
til hliðar má sjá þróun heimsókna
frá opnun heimasíðunnar. Það er ljóst
að fimleikaáhugafólk vill greinilega finna allar
fréttir um fimleika á einum stað ! |
Þróun
heimsókna á www.fimleikar.is frá júní
2002 og fram í lok mars 2003.
Hvert stig stendur fyrir allt að 500 uppflettingar innan síðunnar.
Sjá teljara hér. |
| Afmælissýning
FSÍ sunnudaginn 18. maí. |
|
|
Fimleikasamband Íslands verður 35 ára, 17. maí
n.k. af því tilefni verður glæsileg fimleikasýning
haldin í Laugardalshöll sunnudaginn 18. maí
kl. 16.00. Boðið verður upp á fjölbreytta
sýningu þar sem m.a. margt af okkar besta fólki
bæði í áhaldafimleikum og hópfimleikum
kemur fram. Einnig munu efnilegir yngri fimleikamenn sýna
listir sínar.
|
| Ungum
fimleikamann boðið í æfingabúðir
UEG |
|
| Ungum
fimleikamann boðið í æfingabúðir
UEG í Tirrenia á Ítalíu. Boð hefur
komið frá UEG Fimleikasamband Evrópu til FSÍ
um að senda ungan fimleikamann á aldrinum 13. - 16
ára auk þjálfara í æfingarbúðir
UEG sem haldnar verða í Tirrenia á Ítalíu
26. júlí - 5. ágúst. Tækninefnd
karla hefur ákveðið að bjóða Bjarka
Ásgeirssyni 13 ára í Ármanni að
fara og þjálfari verður Björn M. Tómasson
í Ármanni.
|
Bjarki Ásgeirsson
Ármanni er boðið í æfingabúðir
á Ítalíu.
(fremstur fyrir miðju á myndinni) |
| NM
unglinga 2003 - umfjöllun |
|
| Nú
um helgina var haldið í Osló norðurlandamót
unglinga í áhaldafimleikum. Frá Íslandi
voru send fullskipuð lið í bæði karla
og kvennaflokki. Í liðakeppni á móti
sem þessu skipa fimm einstaklingar liðið, fjórir
eru valdir af þjálfaranum til að keppa á
hverri grein og þrjár besti einkunnir liðsins
telja til stiga. Fyrir Íslands hönd í piltaflokki
kepptu Gunnar Sigurðsson og Jónas Valgeirsson á
öllum áhöldunum en Anton Þórólfsson
var meiddur og gat því ekki keppt á sinni
bestu grein bogahestinum en keppti í hinum greinunum fimm
og á flestum með auðveldari æfingar en hann
gerir þegar að hann er heill. Daði Pálsson
keppti á stökki og Teitur Páll Reynisson keppti
á öllum áhöldunum nema stökki. Meira
|
 |
| Jónas
með brons á tvíslá á NM unglinga |
|
| Nú
er lokið keppni á Norðurlandamóti unglinga
í áhaldafimleikum sem fram fór í Osló
í Noregi. Í úrslitum á einstökum
áhöldum þá náði Jónas
Valgeirsson úr Ármanni 3. sæti á
tvíslá með 7.50. Gunnar
Sigurðsson einnig úr Ármanni varð í
5. sæti á gólfi. Þá keppti Harpa
Snædís Hauksdóttir Gróttu í
úrslitum á þremur áhöldum. Í
stökki hafnaði hún í 6. sæti með
7.7, í 4. sæti á tvíslá með
6.850 og í 4. sæti á slá með 7.475.-
|
| Í
framhaldi af Norðurlandamóti unglinga þá
er ágætt að staldra aðeins við og velta
fyrir sér núverandi stöðu. Er fimleikafólkið
að standa sig vel en skipulagið í kringum starfið
í molum og fjárhagslegur stuðningur við
okkar besta fólk til skammar. Þetta eru aðrar
hugleiðingar... |
| Ísland
í 4. og 5. sæti á NM unglinga, Harpa og Jónas
efst |
|
| Keppni
í fjölþraut á Norðurlandamóti
unglinga í áhaldafimleikum fór fram í
dag. Íslenska stúlknaliðið varð í
4. sæti og piltaliðið varð í 5. sæti.
Harpa Snædís Hauksdóttir
varð efst íslensku stúlknanna og hafnaði
í 5. sæti með 30.3 stig. Jónas
Valgeirsson varð efstur af íslensku piltunum og
hafnaði í 7. sæti með 41.35 stig.
Meira
|
Piltar
1. Danmörk 131.8
2. Noregur 129.6
3. Finnland 128.4
4. Svíþjóð 124.8
5. Ísland 117.4 |
Stúlkur
1. Finnland 93.55
2. Noregur 92.44
3. Svíþjóð 87.725
4. Ísland 84.55
5. Danmörk 80.6 |
|
| Harpa
Snædís Hauksdóttir, Gróttu, keppir
á NM |
|
| Harpa
Snædís Hauksdóttir, Gróttu, fer á
morgun til Noregs þar sem hún mun keppa á
Norðurlandamóti unglinga sem fram fer Osló.
Er þetta hennar annað mót í vetur sem
hún keppir á erlendis en í haust keppti hún
á Norður Evrópumóti. Einnig fór
Harpa ásamt Sif
Pálsdóttur í æfingabúðir
um áramótin
til Hollands með þjálfaranum Gerrit
Beltman.
Harpa er fædd 1989. Foreldrar hennar eru Guðrún
B. Vilhjálmsdóttir og Haukur Geirmundsson. Meira
|
Harpa Snædís
Hauksdóttir, Gróttu. |
| Fjóla
Þrastardóttir, Björk, keppir á Norðulandamóti |
|
| Fjóla
Þrastardóttir, Björk, keppir um næstu
helgi á Norðurlandamóti unglinga sem fram fer
Osló í Noregi.
Fjóla hefur stundað fimleika nánast alla æfi
en hún byrjaði um 4 ára í Björk.
Fjóla er fædd 1989 og er í 8. bekk og stefnir
á nám í Verslunarskóla Íslands
að loknu grunnskólanámi. Foreldrar hennar eru
Gunnhildur Gígja Þórisdóttir og Þröstur
Bjarnason. Ekki kemur á óvart að Fjóla
hafi stundað fimleika nánast alla æfi þegar
tekið er mið af því að fimleikar hafa
verið áhugamál fjölskyldunnar í
fjölmörg ár.
Meira
|
Fjóla
Þrastardóttir, Björk. |
|
|
|