|
|
|
Landslið Íslands í
áhaldafimleikum unnu til gullverðlauna í
liðakeppni kvenna og karla. Karlaliðið skipuðu:
Bjarki Ásgeirsson, Dýri Kristjánsson,
Ingvar Ágúst Jochumsson, Rúnar Alexandersson
og Viktor Kristmannsson. Kvennaliðið skipuðu:
Fríða Rún Einarsdóttir, Kristjana
Sæunn Ólafsdóttir, Sigrún Dís
Tryggvadóttir og Thelma Rut Hermannsdóttir.
Margrét Hulda Karlsdóttir var einnig í
liðinu en fór úr lið á fingri
á síðasta æfingadegi og gat því
miður ekki keppt með liðinu.
Fríða Rún og Viktor sigruðu
í fjölþraut og Kristjana Sæunn
varð í 3.sæti.
Í úrslitum á einstökum áhöldum
fékk Viktor fern verðlaun; hann sigraði
á gólfi, varð annar á bogahesti,
tvíslá og hringjum og lenti í 3.
sæti á svifrá. Rúnar sigraði
tvíslá og varð annar í hringjum
og Dýri hlaut silfurverðlaun á svifrá.
Fríða Rún sigraði á gólfi
og varð önnur á tvíslá og
slá og Kristjana Sæunn hlaut tvenn bronsverðlaun;
á tvíslá og gólfi.
Íslenskt fimleikafólk mun því
snúa aftur til Íslands hlaðið verðlaunapeningum
eftir frækin afrek í Mónakó.
Áður hefur verið unnið til verðlauna
á smáþjóðaleikum í
fimleikum en óhætt er að segja að
ekki hafi verið búist við að Íslendingarnir
myndu tæma verðlaunaborðið ef svo má
að orði komast. Fimleikafólkið okkar
hefur sýnt og sannað eina ferðina enn að
hér er að ferðinni stórglæsilegt
afreksfólk sem er landi sínu til sóma.
Nánar um útslitin hér: http://www.monaco2007.mc/
|
Hlín og Gummi eignast
son
|
|
24/06 |
Hlín Bjarnadóttir og Guðmundur
Þór Brynjólfsson eignuðust þann
18. júní hraustan og pattaralegan dreng.
Hann var 16,5 merkur og 51 cm. Þau Hlín og
Gummi hafa verið mjög áberandi í
starfi innan fimleikahreyfingarinnar á undanförnum
áratugum og er því óhætt
að segja að drengurinn mun verða var við
umræður um fimleika á sínu heimili.
Það er aldrei að vita nema drengurinn muni
reyna fyrir sér í fimleikum í framtíðinni.
Við viljum þó fyrir hönd fimleikafólks
óska þeim Hlín og Gumma innilega til
hamingju.
|
Frímúrarar
fjárfesta
- sama hugmyndafræði hjá
Fimleikasjóð Íslands -
|
|
24/06 |
Meðal stærstu eigendahópa
í kauphöllinni í Stokkhólmi
eru sænskir frímúrarar. Þeir
hafa stofnað fjölda fjárfestaingarsjóða
og rennur allur hagnaður af fjárfestingunum
til góðgerðarmála samkvæmt
frétt sænska viðskiptablaðsins Dagens
Industri. Heildarverðmæti þess fjár
sem sjóðirnir hafa úr að spila er
um 884 milljónir sænskra króna, jafngildi
um 8,4 milljarða íslenskra króna. Þar
af er um helmingur fjárfestinganna í sænskum
hlutabréfum.
Stærstu eignirnar í safninu eru hlutir í
nokkrum af öflgustu fyrirtækjum Svíþjóðar
og ber þar helst að nefna H&M, Volvo og
Nordea sem allt eru vel þekkt fyrirtæki. Vermæti
eignasafnsins hefur hækkað um 20%
það sem af er ári (þegar frétt
var birt í mbl) og segist fulltrúi frímúrara
í Svíþjóð ánægður
með þróunina, svo lengi sem ávöxtunin
standi undir skuldbindingum frímúrara sé
ekki hægt að kvarta.
Það má segja að til þessa hafi
verið litið þegar Fimleikasjóður
Íslands var stofnaður árið 1999.
Sjóðurinn hefur fjárfest í hlutabréfum
einstakra félaga, hlutabréfa- og skuldabréfasjóðum.
Hvað hlutabréf varðar, sem skráð
eru í Kauphöll Íslands, þá
hefur sjóðurinn í mörg ár
verið hluthafi Kaupþingi banka hf. og hluthafi
í Exista hf. frá skráningu á
markað en þau eru ein stærstu félög
landsins á sínu sviði. Frá áramótum
hefur verðmæti hlutabréfa í Exista
hf. hækkað um 49,78% og Kaupþings
banka hf. um 33,5%. Þrátt
fyrir að stærð Fimleikasjóðs
Íslands megi sín lítils m.v. sambærilega
sjóði í Svíþjóð
þá hefur ávöxtun sjóðsins
gengið mjög vel. Hugmyndafærðin er
sú sama og hjá frímúrurum
í Svíþjóð og því
ekki ólíklegt að sjóðurinn
verði enn öflugra afl í framtíðinni
hvað varðar styrkveitingar til fimleikahreyfingarinnar.
|
Dagana 3. til 10. júní
munu Smáþjóðaleikar fara fram
í Mónakó. Tæplega 200 manns
fara frá Íslandi, þarf af 20 manna
hópur frá FSÍ. Keppendur í
fimleikum eru: Margrét Hulda Karlsdóttir,
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Fríða
Rún Einarsdóttir, Thelma Rut Hermannsdóttir,
Sigrún Dís Tryggvadóttir, Bjarki
Ásgeirsson, Dýri Kristjánsson, Ingvar
Ágúst Jochumsson, Rúnar Alexandersson
og Viktor Kristmannsson. Dómarar verða þau
Berglind Pétursdóttir, Harpa Óskarsdóttir,
Heimir Jón Gunnarsson og Björn M. Tómasson.
Þjálfarar verða þau: Mykola Vovk,
Svetlana Makaritseva og VladimirAntonov. Fararstjóri
er Hrund Þorgeirsdóttir. Nánari upplýsingar
má finna á heimasíðunni: http://www.monaco2007.mc/
Sjá einnig grein Stefáns Konráðssonar
á www.isi.is
|
|
|
|