|
|
|
Evrópumót
í Grikklandi - MYNIDR
|
|
|
JF |
10/6/2006 |
|
Evrópumót
í áhaldafimleikum fór fram um mánaðamótin
apríl / maí sl. Áttum við nokkra
keppendur á mótinu og stóðu þeir
sig vel eins og gert hefur verið grein fyrir. Auk keppendanna
fóru dómarar, þjálfara og farastjórar
einnig á mótið. Kom það í
minn hlut að gegna hlutverki farastjóra hjá
piltunum. Við það tækifæri voru
meðfylgjandi myndir teknar. Evrópumótið
var sannkölluð fimleikaveisla og mikil upplifun að
fá tækifæri til þess að sjá
okkar keppendur á stórmóti sem þessu
og taka myndir af bestu fimleikamönnum Evrópu.
Vil ég þakka fyrir mig og vona að þið
njótið meðfylgjandi mynda.
Kveðja, Jón Finnbogason
|
|
Vorsýning
Íþróttafélagsins Gerplu fór
fram nú undir lok maí. Fram fóru tvær
sýningar fyrir troðfullu húsi félagsins
að Versölum í Kópavogi. Fram komu allir
hópar félagsins og sýndu foreldrum og
öðrum gestum brot af starfssemi félagsins.
Voru ýmsar viðurkenningar veittar á sýningunni. Kristján
Erlendsson og Elísabet Baldvins voru heiðruð
með Gullmerki Gerplu og gerð að heiðursfélögum
Íþróttafélagsins Gerplu.
|
|
|
Kristján
hefur verið formaður félagsins á undanförnum
11 árum en þar áður hafði hann
setið í stjórn félagsins í
3 ár. Samhliða störfum Kristjáns vann
Elísabet ötullega að málefnum félagsins
í Frístund. Hefur hún leikið lykilhlutverk
við skipulagningu ýmiskonar verkefna á vegum
félagsins s.s. fjáraflanna o.fl. Samstarf þeirra
hjóna hefur verið mikið á vettvangi
Gerplu ásamt því að synir þeirra
Dýri, Erlendur og Hlynur hafa allir verið áberandi
í fimleikaiðkun með félaginu. Gullmerki
félagsins hefur aðeins verið veitt í
6 skipti á 35 árum. Meira
hér.
|
Alþjóða
Ólympíusamhjálpin styrkir Rúnar
|
AM |
3/6/2006 |
Rúnar
Alexandersson undirritaði í vikunni samning við
ÍSÍ í tilefni af styrk sem Alþjóða
Ólympíuhreyfingin veitir 5 íslenskum
íþróttamönnum til að auðvelda
þeim að ná því takmarki að
komast á Ólympíuleikana 2008 í
Peking. Styrkupphæðin
nemur $ 1.000.- á mánuði eða um 72.000.-
ikr m.v. gengi í dag. Til
viðbótar við styrkinn er hægt að
sækja um viðbótarstyrk til Ólympíusamhjálparinnar
til þess að standa straum af æfingabúðum
og jafnvel mótum til þess að stykja Rúnar
og hina íþróttamennina til að ná
settu marki. Hingað
til hafa styrkir Ólympíusamhjálparinnar
dregist frá styrkjum Afrekssjóðs en nú
er gert ráð fyrir að svo verði ekki heldur
komi styrkurinn til viðbótar, þetta hefur
þó ekki verið formlega samþykkt af
ÍSÍ ennþá en forseti ÍSÍ,
Ólafur Rafnsson, taldi mjög líklegt að
svo yrði. |

Íþróttamennirnir sem um ræðir
eru: Rúnar
Alexandersson – fimleikar, Ásdís
Hjálmsdóttir – frjálsíþróttir, Björn
Þorleifsson – taekwondo, Jakob
Jóhann Sveinsson - sund og Ragna
Ingólfsdóttir – badminton. |
Fundur
um endurnýjun fimleikastigans
|
HB |
3/6/2006 |
Fimmtudaginn
8. júní nk. heldur tækninefnd kvenna í
áhaldafimleikum fund um þróun og endurnýjun
á Íslenska fimleikastiganum sem fyrirhugað
er að hefja keppni í í febrúar 2007.
Fundurinn verður haldin í sal ÍSÍ
á 3. hæð kl. 20:00. Síðustu tvo
áratugi, með 4-5 ára millibili, hefur Íslenski
fimleikastiginn tekið minni og stærri breytingum
út frá þróun áhaldafimleika
á alþjóðlegum vettvangi og slíkt
er einnig fyrirhugað nú m.a.með tilliti til
nýrra dómarareglna FIG sem og stöðu
íslenskra áhaldafimleika. Að mörgu
þarf að huga s.s.: Hvar á skalli upphafseinkunna
á liggja 10.00, 12.00 eða 14.00 ? Hve mörg
keppnisþrep ? Hvaða fimleikaæfingar eru æskilegar
í hverju keppnisþrepi ? Hvort og hve mörg
þrep á tvíslá skulu vera á
ein- eða tvírá ? Svo að eitthvað
sé nefnt ! Tækninefnd
FSÍ hvetur þjálfara og áhugafólk
um þróun í áhaldafimleikum kvenna
hérlendis til að mæta og taka þátt
í umræðum um gerð Íslenska fimleikastigans
á komandi tímabili. Þeir
sem ekki komast á fundinn en vilja koma ákveðnum
atriðum á framfæri er velkomið að
senda tölvupóst til Hlín Bjarnadóttur
(hlinbjarna@hotmail.com) |
Fréttir
frá Fimleikafélagi Akureyrar
|
JF |
3/6/2006 |
Í
mars var kjörin ný stjórn hjá Fimleikafélagi
Akureyrar, þó nokkur endurnýjun varð
á stjórninni. Tveir karlmenn eru nú í
stjórn Félagsins. Stjórnun skipa þau;
Valgerður Anna Vilhelmsdóttir, formaður (í
leyti), Þórhildur Þórhallsdóttir,
formaður / ritari, Friðbjörn B. Möller,
Svanhildur Bragadóttir, Katrín Melstað Jónsdóttir,
Andri Teitsson og Berglind Tulinius. Haldin
voru tvö mót á vorönn annarsvegar
Akureyrarfjör og komu þá lið frá
Reykjavík til að keppa. Svo var haldið Akureyrarmót
og var mikið um dýrðir í kringum það. Nýtt
Íþróttahúsnæði er í
burðarliðnum fyrir félagið sem verður
um 2700 m2 en mun fimleikafélagið hafa yfir að
ráða ca. 1350 m2 með sal, búnings og
félagsaðstöðu. Vorsýning
var haldin með glæsibrag 20. maí sl. og mættu
þar tæplega 800 gestir til að fylgjast með
krökkunum. Ný
heimsíða var tekin formlega í notkun á
sýningunni, slóðin er www.fimak.is |
| Nokkur
fjöldi aðila hefur nú þegar undirbúið
ferð á HM í Århus í
haust. Anna Möller hjá FSÍ hefur verið
í sambandi við aðilana sem sjá um gistingu
o.fl. Þeir sem enn hafa ekki gengið frá gistingu
o.fl. ættu að gera það hið fyrsta og
er velkomið að hafa samband við FSÍ í
email: fsi@isisport.is |
|
|
|