|
|
|
| Glæsileg
vorsýning hjá Fimleikadeild Aftureldingar
|
|
25/6/05 |

Ánægðar
stúlkur úr Aftureldingu.
|
Vorsýning
Fimleikadeildar Aftureldingar fór fram 29. maí
sl. Við það tækifæri var deildinni
veitt viðurkenning fyrir að vera Fyrirmyndardeild
ÍSÍ. Óskum við á fimleikar.is
þeim innilega til hamingju með þann árangur. |
Anna Margrét,
framkvæmdastjóri deildarinnar, tekur við
viðurkenningu um fyrirmyndarfélag. |
| Rúnar,
Viktor og Sif stóðu upp úri
Árangur
íslensku keppandanna á EM einstaklinga í
Ungverjalandi 2.-5. jún.sl. |
|
8/6/05 |
Gott
er að meta stöðu íslenskra fimleika
í alþjóðlegum samanburði með
því að skoða úrslit á
Evrópumótinu sem fram fór í
Debrecen í Ungverjalandi í byrjun júní
en þangað sendum við fjóra keppendur
til leiks í kvennaflokki og fimm í karlaflokki.
Fyrir Íslands hönd tóku þátt
í karlaflokki: Viktor Kristmannsson, Róbert
Kristmannson og Rúnar Alexandersson, allir úr
Gerplu, og Jónas Valgeirsson og Gunnar Sigurðsson
úr Ármanni. Í kvennaflokki voru: Sif
Pálsdóttir og Hera Jóhannesdóttir
úr Gróttu og Inga Rós Gunnarsdóttir
og Margrét Hulda Karlsdóttir úr Gerplu.
|
| |
Vorsýning
Gróttu fór fram 24. maí sl. og var
yfirskrift sýningarinnar blóm og pöddur
eins og sjá má á skemmtilegum myndum
af sýningunni. Að lokinni sýningu var
öllum boðið upp á kaffi, svala og kex.
Um kvöldið 24. maí fór svo fram aðalfundur
fimleikadeildar Gróttu og urðu engar breytingar
á stjórn deildarinnar og því
Jórunn Þóra Sigurðardóttir
endurkjörinn formaður deildarinnar.
|
| |
Vorsýning
Gerplu fór fram laugardaginn 28. maí sl. og
var hún tvískipt að þessu sinni.
Fram komu um 700 iðkendur félagsins og sýndu
hvað þau hafa verið að æfa í
vetur.
Á sýningunni voru veittar viðurkenningar
eins og venja er á vorsýningu félagsins.
Afreksbikar
Gerplu hlaut Rúnar Alexandersson. Hvatningarbikar
Gerplu hlutu Jakob og Mette vegna P-1. Félagsmálabikar
Gerplu, Garpur, halut Guðmundur Þór Brynjólfsson.
Félagsmálaskjöldur Gerplu hlaut Hrund
Þorgeirsdóttir. Sparisjóðsbikarinn
hlaut Kristjana Sæunn Ólafsdóttir. Heiðurspening
í borða hlutu Unnur, Harpa, Viktor, Róbert,
Inga Rós, Vladimir, Nikolay og Hlín.
|
| Evrópumót
í áhaldafimleikum
|
|
|
4/6/05 |
Okkar keppendur hafa lokið keppni á Evrópumótinu
í áhaldafimleikum. Almennt stóðu
íslensku keppendurnir sig mjög vel á
mótinu.
Viktor Kristmannsson hlaut 48,523 stig (36 sæti).
Róbert Kristmannsson hlaut 44,337 stig (55 sæti).
Gunnar Sigurðsson hlaut 40,425 stig (60 sæti).
Jónas Valgeirsson hlaut 34,949 stig en hann keppti
á 5 áhöldum. Rúnar Alexandersson
hlaut 9,225 stig en hann keppti á bogahesti.
Sif Pálsdóttir hlaut 31,674 stig (51 sæti).
Inga Rós Gunnarsdóttir hlaut 30,287 stig (59
sæti). Hera Jóhannesdóttir hlaut 29,686
stig (55 sæti). Margrét Hulda Karlsdóttir
hlaut 28,899 stig (66 sæti).
Heimasíða mótsins er: http://www.debrecengym2005.hu
Aðrar síður með efni frá mótinu
má finna http://gymworld.de/
og http://www.vrtnieuws.net.
|
|
|
|
|