Félagsstörf:
Landsmót UMFÍ
[28/06/2004]

Landsmót UMFÍ hefst eftir nokkra daga. Stefnir í metþátttöku og að gestir verði samtals allt að 18.000 að þessu sinni. Nánari upplýsingar um mótið á heimasíðu UMFÍ hér
http://www.umfi.is


Félagsstörf:
Ármannsdagurinn haldinn 12. júní
[24/06/2004]


Sett voru upp sýningarspjöld þar sem saga félagsins var rakin en Ármann er eitt allra elsta íþróttafélag landsins. Fimleikadeildin hefur til margra ára verið ein öflugasta deild félagsins.

Ármannsdagurinn var haldinn laugardaginn 12. júní og stóðu allar 10 deildir Ármanns að viðburðum dagsins. Þetta eru fimleikadeild, sunddeild, skíðadeild, júdódeild, taekwondoe, frjálsíþróttadeild, glímudeild, körfubolti, handbolti og almenningsdeild.
Félagið var stofnað 15. desember 1888 og er því orðið 115 ára gamalt. Yfirlit yfir íþróttamenn ársins hjá Ármanni hér og frétt hér.

Heimasíða Ármanns hér


Þessar efnilegu fimleikastúlkur stilltu sér upp fyrir myndatöku enda víst að myndin birtist á fimleikar.is

Áhaldafimleikar:
Sumarnámskeið hjá Gróttu
[24/06/2004]


Þátttakendur á sumar námskeiðinu hjá Gróttu

Síðastliðin föstudag lauk fyrri hluta sumarnámskeiðs Gróttu.Þátttakendur voru úr framhaldshópum áhaldafimleika og einnig tóku sex stúlkur úr Stjörnunni þátt í námskeiðinu. Stúlkurnar unnu mjög vel og hægt var að sjá framfarir, þó ekki væri þetta langur tími.
Vonandi er þetta einhver vísir á að félögin vinni meira saman í framtíðinni.

Gleðin var mikil hjá þessum ungu og efnilegu stúlkum.

Áhaldafimleikar:
Myndir frá EM
[23/06/2004]


Landslið stúlkna ásamt hinni heimsfrægu fimleikastúlku Korkinu.

Það er alltaf gaman að skoða myndir sem tekar eru í ferðalögum á vegum fimleikafólks. Endilega sendið myndir úr ferðum sumarsins á fimleikar@fimleikar.is og leyfið okkur hinum að fylgjast með.

Inga Rós átti afmæli á EM og auðvitað geymdu stúlkurnar í landsliðunu ekki að halda upp á afmælið hennar á hótelherberginu.

Félagsstörf:
Gullverðlaunahafi á ÓL í Seol ´88 kennir á sumarnámskeiði í Björk
[19/06/2004]

Óhætt er að segja að iðkendur á sumarnámskeiði hjá Fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði fái skemmtilega heimsókn. Það er hvorki meira né minna en gullverðlaunahafinn Vladimir Novikov frá Olympíuleikunum í Seol 1988 sem mun ásamt konu sinni, Joanne Novikov, taka þátt í sumarnámskeiðinu 21. - 24. júní n.k. Við á fimleikar.is óskum Björk innilega til hamingju með þennan mikla heiður.
Vladimir er gullverðlaunahafi í fimleikum á Ólympíuleikunum 1988 í Seol, Sovétmeistari, einnig hefur hann orðið 2 sinnum heimsmeistari árin 1987 og 1989 og einnig 2 sinnum heimsmeistari sem atvinnumaður árin 1991 og 1994.Hann er einn af þjálfurum bandaríska landsliðsins í bæði karla- og kvennaflokki frá 1995 og er það enn.
Vladimar byrjaði í fimleikum 6 ára gamall og bjó í Moskvu með sovéska landsliðinu. Hann flúði til Bandaríkjanna 1991 þar sem hann nú býr og er eigandi Planet Gymnasticks í Mobile Alabama.Hann fékk þann heiður að hlaupa með Ólympíueldinn fyrir Salt Lake City Ólympíuleikana 2002. Kona hans er frá Skotlandi og heitir Joanne og var þar á meðal annars í landsliði Skotlands. (frétt um Vladimir á www.fbjork.is)


Hópfimleikar:
UMF Selfoss stefnir á Landsmótið sem hefst 8. júlí
[19/06/2004]

Fimleikadeild UMF Selfoss mun keppa á Landsmót Ungmennafélags Íslands sem fram fer í byrjun júlí. Mikið er um að vera hjá fimleikadeildinni í sumar og má þar nefna að hópurinn T1 fer í æfinga- og sýningarferð til Finnlands í júlí og hópurinn T2 mun keppa á Landsmótinu. Olga Bjarnadóttir, yfirþjálfari hjá félaginu, telur að þessir viðburðir skipti miklu máli fyrir starf deildarinnar og þá sérstaklega Landsmótið. Með því að taka þar þátt þá er keppnistímabili vetrarins lengt um rúma tvo mánuði auk þess sem að um er að ræða frábæra skemmtun í félagsskap 2000 íþróttamanna. Ekki er hægt að biðja um betri viðburð fyrir iðkendur félagsins til að taka þátt í.
Landsmótið sem haldið verður á Sauðárkróki er hið 24. í röðinni og fer fram dagana 8. til 11. júlí nk. Landsmót UMFÍ er fjölmennasta íþróttamót sem haldið er á Íslandi. Fyrsta mótið var haldið árið 1909, en síðan 1940 hefur það verið haldið 3ja hvert ár. Á þessu móti er keppt í flestum greinum íþrótta sem stundaðar eru hér á landi auk ýmissa starfsíþrótta eins og dráttarvélarakstri, starfshlaupi, línubeitingu auk annarra greina.
Fjöldi keppenda er um 2000 og þeir sem koma og fylgjast með eru frá 12 til 20 þúsund, en hefur mest farið uppí 25.000 manns árið 1965. Það sem gerir mót þetta að stórviðburði á Íslandi er hinn mikli fjöldi keppenda og áhorfenda auk mikillar fjölbreytni í keppnisgreinum.
Unglingalandsmót UMFÍ verður einnig haldið á Sauðárkróki. Það fer fram um verslunarmannahelgina, hefst föstudaginn 30. júlí og stendur til sunnudagsins 1. ágúst. (frétt um Landsmót www.bondi.is)


Hópfimleikar:
Frumkvöðlar í hópfimleikum
[17/06/2004]


Efri röð frá vinstri: Helga Bára Bartels Jónsdóttir, Elín Hrönn Jónasdóttir, Sunna Guðný Pálmadóttir og Arna Þórey Þorsteinsdóttir. Neðri röð frá vinstri: Heiða Steinunn, Auðir Inga Þorsteinsdóttir, Hildur Pála Gunnarsdóttir, Linda Björk Logadóttir og Guðný Guðlaugsdóttir.

Á skömmum tíma hafa hópfimleikar náð miklum vinsældum á Íslandi. Nú er svo komið að fjölsóttustu mótin í fimleikum í dag eru í hópfimleikum enda mikið fjör og gaman á mótunum.
En það eru ekki nema rúm tíu ár síðan keppni í hópfimleikum byrjaði. Þá var P1 hópur úr Gerplu mjög sigursæll en fékk þó harða keppni frá stúlkum úr Björk sem einnig náðu að sigra Íslandsmeistaratitil á fyrstu árum hópfimleika á Íslandi.

Á myndinni hér að ofan má sjá stúlkurnar úr P1 úr Gerplu fagna einum af mörgum Íslandsmeistaratitlum sínum en myndina var tekin fyrir rúmum tíu árum síðan. Margar af stúlkunum kenna nú fimleika í Gerplu og í Noregi. Þjálfari stúlknanna var Hrund Þorgeirsdóttir

Félagsstörf:
Fimleikasjóður Íslands úthlutar kr. 140.000,-
[12/06/2004]

Að þessu sinni er úthlutað styrkjum til 15 einstaklinga í áhaldafimleikum og Íslands og bikarmeistara í hópfimleikum. Allar umsóknir voru samþykktar.
Vonandi verður hægt að styrkja fremsta fimleikafólk landsins með myndarlegri hætti í framtíðinni en gert er að þessu sinni.
Samtals hefur Fimleikasjóður Íslands úthlutað styrkjum að fjárhæð kr. 460.000,- Ástæða er til að þakka þeim sem greitt hafa til Fimleikasjóðs Íslands undanfarin ár og er ljóst að okkar fimleikafólk kann ykkur bestu þakkir, sjá hér félagatal og yfirlit yfir styrkþeka.

Til að gerast styrktaraðili sjóðsins sendið email á fimleikar@fimleikar.is


Gunnar Sigurðsson úr Ármanni er einn af styrkþegum að þessu sinni en hann hefur staðið sig vel í vetur. Hann keppti á HM í ágúst í fyrra, Norðurlandamóti og Evrópumóti nú í vor.

Björk
Grótta
Grótta
Grótta
Gerpla
Gerpla
Gerpla
Gerpla

kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
Rúnar Alexandersson
Viktor Kristmannson
Dýri Kristjánsson
Jónas Valgeirsson
Gunnar Sigurðsson
Bjarki Ásgeirsson
Teitur Páll Reynisson
Gyða Kristmannsdóttir v/ meistarflokks í hópfiml.
Gerpla
Gerpla
Gerpla
Ármann
Ármann
Ármann
Ármann

Stjarnan
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 7000
kr. 35000

Félagsstörf:
Fimleikasjóður Íslands mun úthluta a.m.k. kr. 100.000,-
[4/06/2004]

Óskað er eftir umsóknum um styrki úr Fimleikasjóði Íslands. Að þessu sinni er stefnt að því að úthluta hið minnsta kr. 100.000,- Að þessu sinni verða styrkir veittir í málaflokkinn styrkir til fremsta fimleikafólks landsins í samræmi við reglur sjóðsins. Úthlutun mun fara fram 18. júní og skal skila umsóknum í síðasta lagi þann 11. júní. Senda skal stuttar og hnitmiðaðar umsóknir í netfangið fimleikar@fimleikar.is
Fyrir hönd Fimleikasjóðs Íslands
Jón Finnbogason




Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.

Fimleikar ehf.