|
|
|
| ÁHEITA-HANDGANGA
niður laugaveginn! |
|
|
HM-landslið karla í morgunþætti
Stöðvar 2 í fyrramálið!
Nokkrir strákar í HM-landslið karla ásamt
Axel Bragasyni, öðrum af tveimur landsliðsþjálfurum,
verða í morgunþættinum Ísland í
bítið á Stöð 2 í fyrramálið.
Þar munu þeir kynna ÁHEITA-HANDGÖNGU niður
laugaveginn sem fram fer þann 5. júlí nk.
Auk þess munu þeir kynna verkefnið sem framundan
er þ.e. HM í fimleikum sem haldið verður
í Kaliforníu í Bandaríkjunum í
ágúst. Viðtalið við strákana
er áætlað að hefjist kl. 7:20.
Fjáröflun
fyrir HM í fimleikum er í fullum gangi og hefur
gengið mjög vel. Eins og áður hefur verið
greint frá hér á fimleikar.is er Ísland
í fyrsta skipti með í liðakeppninni á
HM. Þeir sem vilja styðja við bakið á
strákunum og heita á þá í handgöngunni
geta hringt í Guðjón
Guðmundsson, sem á sæti í Tækninefnd
karla, s/899-2694 eða sent honum tölvupóst hér.
|
| Hún
á afmæli í dag ! Eitt ár síðan
heimasíðan var opnuð |
|
|
Heimasíðan www.fimleikar.is á afmæli í
dag! 17. júní í fyrra var síðan
fyrst opnuð í mjög frumlegri mynd. Jafnvel þó
að nú sé langt í land með að
síðan fullnægji þörfum fimleikaáhugafólks
hefur mikið breyst á einu ári. Þökkum
fyrir þann áhuga sem síðan hefur fengið
og fyrirhöfn allra að senda fréttir og tilkynningar
á fimleikar@fimleikar.is |
| Kristín
Gígja Gísladóttir
keppir á HM |
|
|
Besta fimleikafólk íslands mun keppa á Heimsmeistaramóti
í áhaldafimleikum sem fram fer í Anaheim
í Kaliforníu 16. - 24. ágúst n.k.
Tilkynnt var um landsliðið
nú í byrjun júní. Í landsliði
kvenna er m.a. Kristín Gígja Gísladóttir
en hún hefur búið undanfarin ár í
Kaliforníu ásamt fjölskyldu sinni og hefur
því ekki keppt á mótum á vegum
FSÍ. Fyrir lesendur www.fimleikar.is er því
sjálfsagt gaman að fá að vita aðeins
meira um þennan glæsilega fulltrúa íslands
á HM nú í sumar.
Kristín
Gígja er 15 ára gömul og býr í
San Jose í Kaliforníu ásamt foreldrum sínum,
Margréti Kristjánsdóttur og Gísla
Hermannssyni, og systur sinni Guðmundu Hrund Gísladóttur
(25 ára). Margrét móðir Kristínar
er íþróttakennari og þjálfaði
á sínum tíma fimleika í Gerplu en
er nú þjálfari í fimleikaskólanum
sem Kristín Gígja æfir í en hann heitir
Almaden
Valley Gymnastics Club og hefur skólinn verið starfræktur
í 30 ár. Meira
|

Kristín
Gígja Gísladóttir keppir á HM sem fer
fram í Anaheim í Kaliforníu 16. - 24. ágúst
n.k. |
| Gymnastrada
í Lissabon - laus sæti - skella sér með
! |
|
|
Eins og flestir vita verður Gymnastrada haldin í Lissabon
dagana 18 - 28 júlí næstkomandi. Nú
er að fara frá Íslandi stærsti hópur
sem tekið hefur þátt í Gymnaeströdu
til þessa eða í allt 165 manns. Flogið verður
í beinu flugi til Lissabon föstudaginn 18. júlí
og komið til baka snemma á mánudagsmorgun 28.
júlí. Það eru laus sæti í
flugvélinni sem ætlunin er að selja á
góðu verði.
Gymnaestrada
er stærsta sýning fimleika sem haldin er í
heiminum og taka þátt um 26 þúsund fimleikamenn
á öllum aldri. Fjölbreyttar sýningar eru
allann daginn í mörgum sýningahöllum.
Á kvöldin eru haldnar sér sýningar frá
Brasilíu, Japan, Þýskalandi, Sviss og fleiri
löndum. Glæsilegasta sýningin er Fig Gala, en
í henni koma fram valdir hópar alls staðar að
úr heiminum, þar á meðal flokkur frá
Stjörnunni í Garðabæ. Norræna kvöldið
er fjölbreytt sýning með þátttöku
allra Norðurlandanna. Þá standa ýmis námskeið
og fyrirlestrar til boða.
Við viljum hvetja þá sem hefðu áhuga
á að fara með í þessa ferð að
hafa samband, blanda saman góðri skemmtun, frábærum
sýningum , ásamt góða veðrinu , það
er margt að skoða í Lissabon og sýningasvæðið
" EXPO" er frábært og vel staðsett.
Hafið samband við Önnu Möller á skrifstofu
FSÍ 514-4060 eða netfang: fsi@isisport.is
eða Birnu í síma 891-7545. Fimleikasambandið
getur haft milligöngu um hótel ef óskað
er.
|
| Námskeið
fyrir fimleikaþjálfara, "choreography" |
|
| Dagana
14. - 16. ágúst nk. verður haldið námskeið
fyrir fimleikaþjálfara í samningu og uppbyggingu
dansa, "choreographiu". Einnig verður farið
í aðra þætti eins og rétta líkamsstöðu,
grunnatriði í dansi, pirouetta, hopp, teygjur og upphitunartækni.
Kennari á námskeiðinu verður Steinunn
Ketilsdóttir sem stundar dansnám við Hunter
College í NY.
Námskeiðið
verður haldið í Íþróttamiðstöðinni
Björk í Hafnarfirði.
Fimmtudag
14. ágúst - kl: 18:00 - 21:00
Föstudag 15. ágúst - kl: 18:00 - 21:00
Laugardag 16. ágúst - kl: 13:00 - 16:00
Verð:
kr. 9000- (greiðist á fyrsta degi námskeiðs).
Innifalið í verði eru námskeiðsgögn
og heitur pottur og gufa. Nánari
upplýsingar og skráning hjá Steinunni:
sími: 565 - 6441 / 849-0977.
e-mail: steinunn_k@hotmail.com
|
| Æfingar
fyrir Gymnaeströdu |
|
| 10.
júní í Fylkishöll kl. 19.30 - 21.30
11. júní í Fylkishöll kl. 19.30 - 21.30
18. júní í Íþrótthúsi
Gróttu kl. 19.30 - 21.30
2. júlí í Íþróttahúsinu
Austurbergi kl. 19.30 - 21.30
9. júlí í Laugardalshöll 19.30 - 22.00
10. júlí Lokaæfing (sýning) í
Laugardalshöll
Farið
verður út föstudaginn 18. júlí kl.
21.55 og komið til baka á mánudagsmorgun 28.
júlí kl. 07.05. Til greina kemur að flýta
brottförinni 18. júlí og þá um
leið heimkomunni 27/28. Það mun skýrast fljótlega. |
| Leikir
í bland við fimleikakennslu |
|
|
Oft er gaman að blanda saman fimleikakennslu og leikjum. Inn
á heimasíðunni http://www.leikjabankinn.is
má finna mikið af leikjum. Góða skemmtun. |
| Myndir
af Vorsýningu Gerplu |
|
| 
Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
í lausu lofti
|
Með
því að smella hér
má sjá fleiri myndir af Vorsýningu Gerplu sem
fór fram 1. júní sl. |

Dýri Kristjánsson
gerði tvöfallt heljarstökk yfir svifránna og
greip aftur. Æfing sem aldrei áður hefur verið
gerð á móti eða sýningu á Íslandi. |
| Okkar
keppendur á HM í áhaldafimleikum |
|
| Nú
í kvöld var kynnt val á landsliði Íslands
sem keppa mun á heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum
sem fram fer í Anaheim í Kaliforníu 16. -
24. ágúst n.k. Að þessu sinni verður
sent bæði karla- og kvennalið til keppni ásamt
þjálfurum og dómurum alls 18 manns. Farið
verður 9. ágúst og komið heim þann
25. ágúst.
Keppendur verða í kvennaliði Inga Rós Gunnarsdóttir,
Gerplu, Kristín Gígja Gísladóttir,
æfir í USA, Sif Pálsdóttir, Gróttu
og Tanja Björk Jónsdóttir, Björk.
Keppendur verða í karlaliði Anton Heiðar Þórólfsson,
Ármanni, Dýri Kristjánsson, Gerplu, Grétar
K. Sigþórsson, Ármanni, Jónas Valgeirsson,
Ármanni, Rúnar Alexandersson, Gerplu, Gunnar Sigurðsson,
Ármanni. Meira
|

Jónas
Valgeirsson að horfa á svifránna og velta því
fyrir sér hvort hann ætti að grípa aftur
! |
| Vorsýning
Gerplu fór fram í troðfullri Laugardalshöll
nú í dag. Allir iðkendur félagsins komu
fram á sýningunni sem var hin glæsilegasta
og mátti greinilega sjá að áhorfendur
sem fylltu öll sæti hallarinnar kunnu vel að meta
það sem fyrir augu bar. Eins og sjá má
af meðfylgjandi myndum komu fram á sýningunni
iðkendur sem voru að taka þátt í sinni
fyrstu sýningu og allt upp í þrautþjálfað
keppnisfólk. Fleiri myndir munu verða settar á
netið á næstu dögum. Myndir hér.
|

Rúnar
Alexandersson í glæsilegum æfingum á vorsýningu
Gerplu. |
| Meðfylgjandi
eru myndir sem voru teknar á vorsýningu fimleikadeildar
Gróttu sem haldin var fimmtudaginn 22. mars s.l. Í
lok sýningarinnar fór fram kjör íþróttamanns
Gróttu fyrir árið 2002. Tilnefningarnar komu
frá deildum félagsins og er gaman að segja frá
því að það var fimleikakonan Sif Pálsdóttir
hlaut titilinn og óskum við henni hjartanlega til hamingju
með þennan árangur. Einnig voru veittar viðurkenningar
fyrir íþróttafólk sem hefur keppt með
landsliðum sinnar íþróttar. Í lokin
bauð aðalstjórn félagsins öllum upp
á veitingar. Myndir hér.
|

Sif Pálsdóttir
íþróttamaður Gróttu 2002. |
|
|
|