Ólympíuhátíð æskunnar

26/07

Fríða Rún Einarsdóttir keppti í fjölþrautarúrslitum á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í dag þar sem hún hafnaði í 18. sæti af 24 keppendum í mjög harðri og spennandi keppni. Fríða hlaut 52,1 stig fyrir æfingar sínar. Hún var eini keppandinn í úrslitum frá Norðurlöndunum. Í fyrsta sæti varð Valentyna Holenkova UKR með 57,05 stig, í öðru sæti varð Stefania Cerasela Patrascu ROM með 56,5 stig og í þriðja sæti varð Andreea Roxana Acatrinei ROM með 55,05 stig. Sjá úrslit hér.
Mikil stemming var í keppnishöllinni þar sem íslensku þátttakendurnir fjölmenntu til þess að hvetja Fríðu áfram. Athyglin var mikil á þann riðil sem Fríða keppti í því hún var í sama riðli og stúlkurnar sem röðuðu sér í efstu sætin. Þetta hefur því örugglega verið mikil upplifun bæði fyrir Fríðu Rún sem og íslensku áhorfendurnar sem skemmtu sér mjög vel. Við sendum okkar bestu kveðjur til allra okkar fulltrúa á þessari glæsilegur íþróttahátíð.


Ólympíuhátíð æskunnar

25/07

Fríða Rún Einarsdóttir, Sigrún Dís Tryggvadóttir og Thelma Rut Hermannsdóttir tóku þátt á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í gær og stóðu sig mjög vel. Höfnuðu þær í 16. sæti af 31. þátttökuþjóð í liðakeppni. Sigruðu þær öll hin Norðurlöndin og endurtóku því leikinn frá því á Norðurlandamótinu sem fram fór í Svíþjóð í apríl sl. Fríða Rún Einarsdóttir komst í úrslit í fjölþraut þar sem 24 efstu keppendur munu keppa í einstaklingskeppni sem mun fara fram á morgun, fimmtudag. Óskum við öllum stúlkunum til hamingju með góðan árangur.



Ólympíuhátíð æskunnar
- Fríða Rún fánaberi Íslands á Ólympíuhátíð æskunnar -

22/07

Í gær, laugardaginn 21. júlí, hélt fjölmennur hópur af stað frá Íslandi til að taka þátt í 9. Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar, en leikarnir fara fram í Belgrad í Serbíu dagana 21. til 28. júlí.
Íslenski hópurinn samanstendur af 58 aðilum sem koma frá 6 íþróttagreinum. Að þessu sinni tekur Ísland þátt í frjálsíþróttum, sundi, fimleikum, tennis, borðtennis og handknattleik stúlkna. Þrír dómarar eru með í för ásamt fararstjórn.
Hátíðin:
Ólympíuhátíðin í Belgrad er sú 9. síðan þessari keppni var komið á og eflaust sú stærsta frá upphafi. Í Lignano fyrir tveimur árum síðan voru alls rúmlega 3.000 skráningar frá 48 þjóðum og í ár eru þjóðirnar 49 og keppendur 2245 auk fararstjóra, þjálfara, dómara og fylgdarmanna sem eru 1062, eða alls 3311. Keppt verður í 11 íþróttagreinum sem eru jafnmargar íþróttagreinar og á síðustu leikum.
Fyrsta hátíðin var haldin í Brussel 1991 og hét þá Ólympíudagar æskunnar. ÍSÍ hefur jafnan reynt að senda fríðan hóp ungs fólks til leikanna og í Brussel voru þátttakendur 27 úr fjórum íþróttagreinum. Að þessu sinni eru þátttakendur 37 úr sex íþróttagreinum.
Heiti hátíðarinnar er Ólympíuhátið og er ”Fair Play” eða háttvísi eitt af megin einkunnarorðum hátíðarinnar. Mikið er lagt upp úr því að þetta sé skemmtun, og þátttakendur kynnist ungu fólki frá öðrum löndum Evrópu. Ekki er lagt upp með að áherslan sé sú sama og á Ólympíuleikum þeirra fullorðnu eða á heimsmeistarakeppnum.
Gisting:
Allir keppendur, þjálfar og fararstjórn gista í Ólympíuþorpinu (University Centre New Belgrade. Þorpið samanstendur af 4 byggingum með 4.406 rúmum og mötuneyti staðarins getur framreitt 15.000 máltíðir á dag. Dómarar gista á Park Hótel í miðborg Belgrad, nálægt keppnisstöðum.
Sunnudagurinn 22. júlí
Kl. 8:00 um morguninn fór fram fánahylling í Ólympíuþorpinu þar sem fáni Alþjóða Ólympíunefndarinnar og Evrópusambands Ólympíunefnda var dreginn að húni. Íslensku þátttakendurnir skoðuðu keppnisstaði og fyrstu æfingar voru í öllum íþróttagreinum. Tæknifundir í flestum íþróttagreinum fóru fram og dregið var í sumum keppnisgreinum og frekari niðurröðun keppnisgreina var kláruð.
Um kvöldið fór fram setningarhátíð leikanna í Belgrad Arena sem er 20.000 manna íþróttahöll sem mun m.a. hýsa Eurovision á næsta ári. Fánaberi Íslands á setningarhátíðinni var Fríða Rún Einarsdóttir, fimleikakona, úr Gerplu.


Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar

17/07

Fríða Rún Einarsdóttir, Sigrún Dís Tryggvadóttir og Thelma Rut Hermannsdóttir munu taka þátt á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar sem fram fer í Belgrad, Serbíu dagana 21. til 28. júlí. Um er að ræða umfangsmikla ferð á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Að þessu sinni fara 58 einstaklinga til Belgrad, en þar af eru 38 keppendur í 7 af þeim 11 keppnisgreinum sem keppt er í á leikunum. Aðeins einu sinni áður hefur íslenski hópurinn verið fjölmennari og það var árið 2003 þegar 63 einstaklingar fóru til Parísar. Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ hefur sagt að "um smækkaða mynd Ólympíuleikanna sé að ræða, en viðburðurinn er engu að síður gríðarlega umfangsmikill með þúsundir keppenda frá flestum ríkjum Evrópu."



http://www.beograd2007.org

Ólympíuhátíðin í Belgrad er sú 9. síðan þessari keppni var komið á og eflaust sú stærsta frá upphafi. Í Lignano fyrir tveimur árum síðan voru alls rúmlega 3.000 skráningar frá 48 þjóðum og í ár verða þjóðirnar 49 og keppendur svipað margir, ef ekki fleiri. Keppt verður í 11 íþróttagreinum sem eru jafnmargar íþróttagreinar og á síðustu leikum. Fyrsta hátíðin var haldin í Brussel 1991 og hét þá Ólympíudagar æskunnar. ÍSÍ hefur jafnan reynt að senda fríðan hóp ungs fólks til leikanna og í Brussel voru þátttakendur 27 úr fjórum íþróttagreinum. Heiti hátíðarinnar er Ólympíuhátíð og er ”Fair Play” eða háttvísi eitt af megin einkunnarorðum hátíðarinnar. Mikið er lagt upp úr því að þetta sé skemmtun, og þátttakendur kynnist ungu fólki frá öðrum löndum Evrópu. Ekki er lagt upp með að áherslan sé sú sama og á Ólympíuleikum fullorðinna eða á heimsmeistarakeppnum.
Setningarathöfnin fer fram sunnudaginn 22. júlí í Belgrade Arena sem er “risa” íþróttahöll sem tekur 20.000 manns í sæti. Lokahátíðin fer fram á sama stað föstudaginn 28. júlí. Hátíðin verður sniðin með þarfir ungs fólks í huga og markmiðið er að þátttakendur frá hinum ýmsu þjóðum Evrópu kynnist.
Keppni í fimleikum fer fram 24. júlí milli 10:00 - 12:00 og úrslit 26. júlí milli 15:00 - 16:50 og 27. júlí milli 14:30 og 17:05. Stúlkurnar Fríða Rún, Sigrún Dís og Thelma Rut munu keppa í holli sem er skipuð þessum þjóðum: POL-ESP, ISR-SVK, ISL-SLO, ALB-ARM.
Sýnt verður frá leikunum á Eurosport. Samantekt frá opnunarhátíð að kvöldi þann 22. júlí, undanúrslit og úrslit í körfuknattleik pilta og blaki stúlkna og úrslitaleikurinn í handknattleik stúlkna. Þá verður bein útsending frá lokahátíð og smantektarþættir 23. til 27. júlí.
Óskum við öllum keppendum hátíðarinnar góðs gengis og þá sérstaklega þeim Fríðu Rún, Sigrúnu Dís og Thelmu Rut. Gangi ykkur vel og góða skemmtun.


WORLD GYMNEASTRADA 2007

Hrund Þorgeirsdóttir
14/07

Föstudaginn 6. júlí flaug 66 manna hópur frá Fimleikasambandi Íslands út til að taka þátt í stærstu fimleikahátíð sem haldin er í heiminum: World Gymneastrada. Að þessu sinni er Gymnastrada haldin í Dornbirn í Austurríki. Þetta er í 13. sinn sem hátíðin er haldin og sú sjöunda sem Fimleikasamband Íslands tekur þátt í.
Íslenski hópurinn flaug til Frankfurt með Icelandair og ferðaðist þaðan í rútu til Austurríkis. Gist er í skólum á svæðinu og haldnar eru sýningar í sýningarhöllum og úti á torgum bæjanna. Í nokkra daga snýst mannlífið allt um fimleika, sýningar og æfingar hvar sem pláss er. Á kvöldin eru glæsilegar Gala-sýningar hinna fjölmennu þjóða. Inni á sýningarsvæðinu gefst löndunum tækifæri á að vera með sýningarbása til að kynna land og þjóð. Styrktaraðilar íslenska básins eru að þessu sinni Sportís og Icelandair.
Fimleikasambandið hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á að gefa sem flestum tækifæri á að taka þátt í slíkum fimleikahátíðum. Þessi hátíð er hugsuð fyrir eldri iðkendur og eru íslensku sýnendurnir á aldrinum 14 – 46 ára. Fimleikar fyrir alla!
Sjá nánar hér.


Landsliðsæfing hjá Hollenska landsliðinu

15/07


Yuri van Gelder, Heimsmeistari og Evrópumeistari í hringjum árið 2005 ásamt Jóni Finnbogasyni og Hans Teklenburg, sérfræðingi hjá Janssen-Fritsen.

Nú eru um sex vikur í HM í Stuttgard og allur undirbúningur í fullum gangi. Það var því mikið um að vera á æfingu hjá Hollenska Landsliðinu í vikunni þegar litið var inn á æfingu hjá þeim. Piltarnir Jeffrey Wammes, Yuri van Gelder og Carlo van Minden æfðu undir stjórn Bram von Bokhoven landsliðsþjálfara í nýjum sal í Eindoven. Æfingaaðstaðan er eins og best verður á kosið enda hefur víða í Vestur-Evrópu á undanförnum árum verið lögð rík áhersla á að allur aðbúnaður og umgjörð fimleikafólks sé sá besti sem völ er á. Hefur það skilað sér í stórbættum árangri keppenda frá Evrópu á alþjóðlegum mótum.

Jeffrey Wammes, þriðja sæti í gólfæfingum á Evrópumótinu 2007 ásamt Jóni Finnbogasyni og Bram van Bokhoven, landsliðsþjálfara Hollands.

Landsmót UMFÍ

08/07

Landsmót UMFÍ í Kópavogi lauk í dag 8. júlí en að sögn Björns B. Jónssonar formanns UMFÍ er um að ræða fjölmennasta landsmót sem haldið hefur verið en alls voru á 6. þúsund skráningar í ýmiskonar íþróttakeppnir, starfsíþróttir og sýningar. Hér til hliðar má sjá tölustafina 100 myndaða af fimleikahóp sem fram kom á opnunarhátíð mótsins en UMFÍ er jafnframt 100 ára á þessu ári og var því vel til fundið að sýna það með þessum táknræna hætti eins og gert var.


 



Allar myndir © www.fimleikar.is
Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is er heimil án sérstaks samþykkis. Sjá hér.

Fimleikar ehf.