Fimleikamyndin Stick it
- sérstök sýning fyrir fimleikafólk -

21/7/2006

Í tilefni af sýningu myndarinnar Stick it hefur Smárabíó og fimleikar.is ákveðið að safna saman fimleikaáhugafólki á sérstaka sýningu á þessa skemmtilegu mynd þar sem fimleikar eru í aðalhlutverki.

Næstkomandi þriðjudag (25. júlí) kl. 20:00 verður sýningin í Smárabíói. Bíómiðinn er aðeins á 600 kr. fyrir iðkendur fimleikafélaga (fullt verð 800) og er því veittur 25% afsláttur á þessa sýningu.

Sérstakur gestalisti: Auk þess munu 15 gestir fá boðsmiða fyrir tvo með því að senda tölvupóst á fimleikar@fimleikar.is og tilgreina fullt nafn og kennitölu. Fyrstu 15 sem senda póst fá miða. Ekki komast fleiri á gestalista en mikill fjöldi tölvupósta bárust okkur og er því víst að áhuginn er töluverður. Það verður því örugglega mikið fjör á sýningunni.

Fimleikaáhugafólk er hvatt til þess að fjölmenna á þessa sýningu.


Fimleikasjóður

20/7/2006

Þeir sem fengu úthlutað styrk úr Fimleikasjóð Íslands í apríl og hafa ekki fengið styrkinn greiddan eru beðnir um að senda upplýsingar um ráðstöfunarreikning ásamt kt. umsækjanda í email: fimleikar@fimleikar.is (Skilyrði fyrir útgreiðslu styrks er að viðkomandi viðburður hafi farið fram og að styrkþegi hafi tekið þátt í honum).


FSÍ

AM
11/7/2006

Vegna sumarleyfis er skrifstofa FSÍ lokuð fram til 8. ágúst næstkomandi.
Tölvupóstur Fimleikasambands Íslands er fsi@isisport.is


Eurogym fimleikahátíðin

AM
8/7/2006


Á myndinni má sjá hluta af hópnum sem fer á Eurogym en þessar stúlkur stóðu fyrir sérstakri sýningu í Íþróttahúsi Gerplu að Versölum og koma þær úr Fjölni og Gerplu.

Nú um helgina heldur 120 manna hópur áleiðis á Eurogym fimleikahátíðina. Hátíðin sem haldin er í Ghent í Belgíu á vegum UEG Fimleikasambands Evrópu. stendur frá 8. - 14. júlí. Hópurinn kemur frá 6 félögum þ.e. FIMA á Akranesi, Fjölni í Reykjavík, Gerplu í Kópavogi, Hetti á Egilsstöðum, Rán í Vestmannaeyjum og Selfossi. Krakkarnir eru á aldrinum 12 - 18 ára. Hóparnir sýna tvisvar sinnum hver en auk þess er mikill fjöldi allskonar námskeiða "Workshop" í boði. Einnig eru námskeið og kynningar fyrir þjálfara og aðra sem í ferðinni eru. Fararstjóri í ferðinni er Jóhanna M. Einarsdóttir en einnig mun Birna Björnsdóttir sækja fund í almennu nefnd UEG sem haldinn er á sama tíma.
Sett hefur verið sérstök "blogg" síða vegna ferðarinnar og er slóðin: http://blog.central.is/eurogym2006/index.php


Hlín Bjarnadóttir lýku 2. stigs námskeiði hjá FIG
- Dúxar með hæstu einkunn -

JF
8/7/2006

Á myndinni má sjá þátttakendur á námskeiðinu ásamt þjálfurum og iðkendum sem komu fram á námskeiðinu.

Hlín Bjarnadóttir, fimleikaþjálfari í Gerplu, er nýkominn heim af 2. stigs námskeiði á vegum FIG sem fram fór í Þrándheimi í Noregi. Þátttakendur vor frá Noregi, Íslandi og Finnlandi. Námskeiðinu var stjórnað af Hardy Fink en hann er framkvæmdastjóri fræðslumála hjá FIG. Einnig komu fram á námskeiðinu þau Brian McVey, Corina Morosan, Flavio Bessi, Keith Russell og Chris Evans. Að sögn Hlínar er hér um að ræða leiðbeinendur með mjög yfirgripsmikla þekkingu á fimleikum og íþróttafræðum. Alls hafa nú 346 þjálfarar frá 60 löndum lokið námskeiðum í 1., 2. og 3. stigi á vegum FIG. Að loknu hverju námskeiði þreyta þátttakendur verk- og bóklegt próf en það er ánægjulegt að Hlín hlaut hæstu einkunn allra eða 95 stig af 100. Óskum við Hlín innilega til hamingju með þennan áfanga og glæsilega niðurstöðu úr prófunum.


Æft saman fimleika í um 50 ár

JF
8/7/2006

Í tengslum við þjálfaranámskeið FIG í Þrándheimi þá vakti sérstaka athygli þegar Hardy Fink og Keith Russell var boðið á æfingu hjá fimleikahóp hjá félaginu Trondheims Turnforening. Meðalaldur iðkenda í hópnum er 75,4 ár og elsti iðkandinn er 94 ára. Hópurinn æfir fimleika tvisvar í viku og fá sér svo kaffi og með því í lok hverrar æfingar. Það er ljóst að svona áhugasamir fimleikamenn setja virkilega þýðingu á hugtakið "fimleikar fyrir alla" og "fimleikar fyrir lífstíð". Fimleikafélagið var stofnað 1858 og þessi fimleikahópur byrjaði 1958. Það er ánægjulegt að á 125 ára afmælisári FIG að það séu til fimleikafélög sem eru í þann mund að verða 150 ára gömul.


Strákarnir í upphitun.

 

 

 



Allar myndir © www.fimleikar.is
Öll almenn notkun á efni sem birtist á www.fimleikar.is er heimil án sérstaks samþykkis. Sjá hér.

Fimleikar ehf.