Félagsmál:
Fimleikaráð Akureyrar fær 67milljónir í styrk frá Akureyrarbæ
[19/07/2004]

Fimleikaráð Akureyrar fær úthlutað 67 milljónum í styrk frá Akureyrarbæ en þessi veglega styrkveiting er hluti af um 177 milljóna framlagi bæjarins til uppbyggingar á starfssemi íþróttafélaga í bænum á tímabilinu 2005 - 2008. Ástæða er til að fagna því hversu myndarlegan hluta af heildarupphæðinni rennur til Fimleikaráðs Akureyrar (FRA). Til stendur að verja styrknum til þess að bæta æfingaaðstöðu í Íþróttahúsi Glerárskóla þar sem FRA hefur aðstöðu. Uppi eru hugmyndir um að stækka húsið en nýta áfram búningsaðstöðu. Við undirbúning þessa máls hefur verið litið til þess sem gert var í hjá Fimleikadeildinni í Keflavík en Gerpla og Björk gripu einnig til sambærilegrar lausna með byggingu viðbygginga með gryfju fyrir um áratug síðan. Hjá FRA standa vonir til þess að jafnvel verði hægt að gera viðbygginguna nokkuð stóra. meira


Erlent:
Ólympiufarinn Ronny Ziesmer lamast í slysi
[19/07/2004]

Olympiufarinn Ronny Ziesmer frá þýskalandi varð fyrir alvarlegu slysi á æfingu á mánudaginn fyrir viku síðan. Læknar telja að slysið sé svo alvarlegt að hann muni verða lamaður en hann hálsprotnaði við að framkvæma tvöfallt heljarstökk í gólfæfingum. Dr. Stephan Becker á sjúkrahúsinu í Berlín telur að lömunin muni áfram verða óbreytt. Johannes Hablik annar fimleikamaður frá Þýskalandi hefur verið lamaður frá því 2002 eftir svipað slys. Rainer Brechtken forseti Þýska fimleikasambandsins sagði að í fimleikum væru tiltölulega fá slys samanborið við aðrar íþróttir en þegar þau eiga sér stað eru þau alvarlegri. Frá þessu hefur verið greint á fjölda vefsíðan á netinu, m.a. www.USAtoday.com, sjá fleiri fréttir hér


Ronny Ziesmer

FSÍ:
48 frá Íslandi fara á fimleikahátíðina Eurogym í Finnlandi
[8/07/2004]

Föstudaginn 9. júlí mun 48 manna hópur frá Björk í Hafnarfirði, Rán í Vestmannaeyjum og Selfossi fara á Eurogym fimleikahátíðina í Jyväskyla í Finnlandi. Hátíðin er aðallega ætluð krökkum á aldrinum 12 - 18 ára og er markmið hátíðarinnar að fimleikafólk hittist, kynnist hvort öðru og hafi gaman af íþrótt sinni án þess að keppni sé aðalmarkmið hátíðarinnar. Hóparnir frá íslensku félögunum munu verða með nokkrar sýningar en á hátíðinni verður einnig er í boði ýmis námskeið. Stúlkurnar í Rán í Vestmannaeyjum hafa opnað heimasíðu vegnar ferðarinnar og verður gaman að fylgjast með því sem þar verður sett inn: http://gydjurnar-ran.blogspot.com/
Slóðin inn á hátíðina er: http://www.eurogym2004.com


Fimleikasýningar:
National Danish Performance Team í Smáranum
[7/07/2004]

Sjá heimasíðu hópsins hér www.dgi.dk/ndpt


Félagsstörf:
Fimleikadeild Keflavíkur á Landsmót UMFÍ
[4/07/2004]

Fimleikadeild Keflavíkur mun taka þátt á Landsmótinu með hóp stúlkna á aldrinum 15 – 26 ára. Stúlkurnar í Fimleikadeild Keflavíkur hafa ekki átt lið í vetur en nú er búið að mynda öflugan hóp og stefnt er að því að taka þátt á Landsmótinu enda eins og María Óladóttir yfirþjálfari segir þá er "endalaust gaman á Landsmóti svo við hlökkum allar rosa mikið til".



Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.

Fimleikar ehf.