Fimleikar hjá RÚV

27/01/08

Ungir fimleikamenn voru til umfjöllunar í íþróttafréttum RÚV í kvöld en þar var sagt frá innanfélagsmóti Íþróttafélagsins Gerplu í Kópavogi. Tóku fréttamenn viðtal við unga keppendur og sýndu nokkuð af myndum. Ánægjulegt er að sjá þegar íþróttafréttir fjalla einnig um ungu kynslóðna. Er það mikil hvatning fyrir ungt íþróttafólk um allt land.
Sjá hér umfjöllun RÚV, smella hér.


Vestmannaeyjar
- fín síða -

27/01/08

Fimleikafélagið Rán Vestmannaeyjum heldur úti ágætri heimasíðu.

Sjá hér:

http://www.123.is/svanajoh/default.aspx?page=home


Innanfélagsmót hjá Gerplu

27/01/08

Hér má sjá úrslit á innanfélagsmóti Gerplu sem fram fór fyrir helgi. Sjá úrslit stúlkna hér.

Fimleikaþing frestað til 10. febrúar

25/01/08

Þingi Fimleikasambands Íslands sem halda átti á Selfossi á morgun hefur verið frestað vegna ófærðar og ótryggrar veðurspár. Stefnt er að því að halda það 10.febrúar en verður nánar auglýst síðar.
Dagskrá, sjá hér.


Fimleikar hjá RÚV

19/01/08

Hópfimleikar, umfjöllun um Reykjavík International, sjá hér.
Skólahreysti, sjá hér.


Skólahreysti

18/01/08
JF

Næstkomandi þriðjudag, 22. janúar, verður sýnt frá XX Skólahreysti á Skjáeinum kl. 20:00. Hvetjum við ykkur til þess að kíkja á þessa sýningu en þar má líklega sjá nokkur kunnugleg andlit úr fimleikafélögunum. Sjá nánar: http://www.skolahreysti.is

Myndband

15/01/08
JF

Myndband frá Silkeborg sem voru í æfingabúðum í fyrstu viku janúar inn í Gerplu í Kópavogi.
Smá myndband hér: http://www.youtube.com/watch?v=C-rMa1-GbNE


Reykjavík International 2008
Alþjóðlegt íþróttamót

15/01/08

Í ár munu fjölmörg íþróttafélög undir forystu Íþróttabandalags Reykjavíkur og með stuðningi Reykjavíkurborgar standa að alþjóðlegu íþróttamóti. Síðustu ár hafa sundfélagið Ægir og frjálsíþróttadeild ÍR staðið að alþjóðlegu mótahaldi í janúar og hefur það mótahald vaxið og dafnað vel. Svo vel hefur gengið að ákveðið hefur verið að ganga skrefi lengra og fá fleiri íþróttafélög til þess að halda mót á sama tíma. Samtals verður keppt í 9 íþróttgreinum og því verður landsmönnum öllum boðið upp á fjölbreytta íþróttaveislu þar sem yfir 2000 keppendur munu taka þátt. Stefnt er að því að innan 5 ára verði allt mótahaldið með alþjóðlegum hætti þar sem íþróttamenn geta unnið sig inn á stórmót eins og Ólympíuleika og heimsmeistaramót.
Íþróttabandalag Reykjavíkur mun aðstoða við skipulag mótsins en þess má geta að ÍBR sá um framkvæmd á Alþjóðaleikum Ungmenna 2007(ICG 2007) og er einnig framkvæmdaaðili að Reykjavíkurmaraþoni Glitnis. Hvoru tveggja íþróttaviðburðir sem drógu þúsundir útlendinga til landsins og vöktu mikla athygli.
Það verður mikið um dýrðir í Laugardalnum á meðan þessi íþróttaveisla fer fram og standa vonir til að fjölskyldur fjölmenni í dalinn til þess að taka þátt í skemmtuninni.
MUNIÐ – Áhorfendur eru velkomnir á opnunar- og lokahátíð og á allar keppnisgreinar.



ÍSÍ styrkir afreksstarf

14/01/08
JF

Styrkveitingar ÍSÍ að þessu sinni nema samtals um 60 milljónum króna en úthlutað er kr. 42 m.kr. úr Afrekssjóði og 10.050 þús. úr sjóði ungra og efnilegra íþróttamanna. Úr sjóði Ólympíufjölskyldu ÍSÍ, er að þessu sinni úthlutað kr. 7.840 þús. Auk þess er A-landslið karla í handknattleik á styrk frá Ólympíusamhjálpinni fram að næstu Ólympíuleikum. Getur greiðsla ársins numið allt að rúmum 1.450 þús. Afrekssjóður hefur enn fjármagn til aflögu á árinu og verður það fjármagn nýtt í samræmi við árangur og verkefni sérsambandanna. Þrátt fyrir góðan styrk að þessu sinni er enn langt í land að styrkir ÍSÍ standi undir afreksstarfi sérsambandanna.
Styrkir til Fimleikahreyfingarinnar eru sem hér segir:
Fimleikasamband Íslands vegna landsliðsverkefnis kr. 1.000.000.
Fimleikasamband Íslands: Flugmiðastyrkur, 4 miðar kr. 160.000.
Rúnar Alexandersson / C-styrkur kr. 480.000. Viktor Kristmannsson / Eingreiðsla kr. 300.000. Róbert Kristmannsson / Eingreiðsla kr. 300.000. Fríða Rún Einarsdóttir kr. 200.000. Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir kr. 75.000. Harpa Dögg Steinþórsdóttir kr. 75.000. Sigrún Dís Tryggvadóttir kr. 75.000. Thelma Rut Hermannsdóttir kr. 75.000. Þórdís Helga Kjartansdóttir kr. 75.000. Rúnar Alexandersson fellur af A-styrk þar sem hann náði ekki að tryggja sér þátttökurétt á leikana í Peking. Allt er þetta gott og vel og ávallt er ánægjulegt þegar bæði FSÍ sem og iðkendur innan hreyfingarinnar njóta styrkja frá opinberum aðilum sem og einkaaðilum.

Styrkir ÍSÍ lækka og lækka
miðað við verðlag

14/01/08
JF

Eru stykir að lækka og lækka?
Það er svolítið skrítið að þriðja árið í röð úthlutar ÍSÍ um 60 milljónum. Upphæðin hækkar ekki nú þrátt fyrir að um er að ræða upphaf á Ólympíuári. Í desember 2005 var úthlutað um 60millj. en þá var vísitala neysluverðs 248,9 stig. Í janúar 2007 var úthlutað um 63millj. en þá var vísitala neysluverðs 266,9 stig. Í janúar 2008 var úthlutað um 60millj. en þá er vísitala neysluverðs 282,6 stig. Jú það er þannig að vísitala neysluverðs mælir kostnað við að lifa á Íslandi. Þannig er það bara. Ef tekið er mið af þeirri staðreynd þá hefði úthlutun í janúar 2007 þurft að vera 64,3millj. til þess að jafngilda þeim 60millj. sem voru úthlutað í desember 2005. Úthlutun í janúar 2008 þurfti að vera 68,1millj. til þess að jafngilda þeim 60millj. sem úthlutað voru í desember 2005. Þannig er úthlutun nú í upphafi Ólympíárs rúmlega 8millj. lægri upphæð en úthlutað var mitt á milli Ólympíuleika. Því má segja að styrkir ÍSÍ til afreksstarfs í upphafi árs lækki og lækki sé tekið mið af þróun verðlags á sama tímabili. Er það döpurleg staðreynd ef rétt er. ÍSÍ ætti að fylgjast betur með þróun verðlags og láta styrkveitingar sínar taka mið af þeim raunveruleika sem íþróttafólkið býr við. Án þess þá endar styrkur ÍSÍ á því að hreinlega að skipta engu máli því hann rýrnar það fljótt í verði ef áfram fer sem horfir.


Æfingabúðir hjá Gróttu og Gerplu

14/01/08

Gerrit Beltman, Landsliðsþjálfari Belgíu kom í heimsókn til Gerplu og Gróttu í lok Desember og stóð fyrir æfingabúðum þar sem iðkendur félaganna tóku þátt í. Berglind Pétursdóttir átti veg og vanda af skipulagningu þessa verkefnis en er þetta í fjórða sinn sem Gerrit kemur til Íslands. Mikil stemming var í æfingabúðunum og voru iðkendur sem og þjálfarar og aðrir aðstandendur ánægðir með komu hans. Auk almennrar kennslu í sal fór einnig fram fundur fyrir foreldra o.fl. þar sem farið var yfir helstu þætti sem hafa þarf í huga við uppbyggingu á afreksstúlkum í fimelikum. Vel var mætt á fyrirlesturinn.

Iðkendur í Gerplu hljóta allar æðstu viðurkenningar ÍTK árið 2007

14/01/08


Viktor Kristmannsson og Fríða Rún Einarsdóttir, fimleikafólk úr Gerplu voru kjörin fimleikakarl og fimleikakona Kópavogs 2007.


Viktor ásamt kærustu sinni, Jónu Kristínu Friðriksdóttur.

Fríða Rún ásamt fjölskyldu sinni. Fv. Einar Kári Kristófersson, faðir Fríðu Rúnar, Fríða Rún, Viktor Karl Einarsson og Kolbrún Karlsdóttir, móðir Fríðu.

Viktor Kristmannsson fimleikamaður úr Gerplu og Fríða Rún Einarsdóttir fimleikakona úr Gerplu voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2007 á Íþróttahátíð Kópavogs sem fram fór í salnum 6. janúar sl.
Viktor stóð sig mjög vel á liðnu tímabili. Hér heima varð hann Íslandsmeistari og Bikarmeistari með félagi sínu Gerplu. Á alþjóðlegum vettvangi sigraði Viktor í fjölþraut á Smáþjóðaleikunum og varð í 3. sæti í gólfæfingum á Norðurevrópumeistaramótinu í fimleikum. Auk þess tók hann þátt í tveimur af stærstu fimleikamótum ársins á heimsvísu.
Fríða Rún er efnilegasta fimleikakona Norðurlanda. Hún náði þeim einstaka árangri á árinu að sigra í öllum greinum á Norðurlandamóti unglinga sem fram fór í Danmörku á liðnu ári auk þess að verða Norulandameistari í liðakeppni. Jafnframt sigraði Fríða Rún í fjölþraut á Smáþjóðaleikjunum, komst í fjölþrautarúrslit á Ólympíuleikum æskunnar og næaði góðum árangri á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi þar sem hún hafnaði í 90 sæti.


Flokkur ársins 2007. P-1 meistaraflokkshópur Gerplu í hópfimleikum var kjörinn Flokkur ársins, en flokkurinn varð Norðurlandameistari á árinu. Með stúlkunum á myndinni er Alexander Arnarson og Sigrún Jónsdóttir í Íþrótta og tómstundaráði Kópavogs.


Norðurlandameistarar í liðakeppni í áhaldafimleikum unglinga. Stúlkur f.v.: Thelma Rut Hermansdóttir, Fríða Rún Einarsdóttir, Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir og Sigrún Dís Tryggvadóttir (fjarverandi á mynd) hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur á alþjóðlegu móti. Með stúlkunum á myndinni er Tjörvi Dýrfjörð í Íþrótta- og tómstundaráði Kópavogs og Gunnar Guðmundsson íþróttafulltrúi Kópavogs.



Allar myndir © www.fimleikar.is
Heimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.