|
|
|
Gymnova - Þrepamót FSÍ
í áhaldafimleikum 2007
helgina 3. - 4. febrúar haldið í Versölum
í Kópavogi
|
|
30/01/07
HÞ
|
Fyrir
hádegi á laugardegi 3.febrúar:
Keppni stúlkna í 5. þrepi 9 ára,
11 ára og 12 ára og eldri.
Keppni pilta í 5.þrepi 9 og 10 ára, 11
ára og eldri;
Keppni pilta í 4.þrepi 9 og 10 ára, 11
ára og eldri
Mæting 8:00
Almenn upphitun kl. 8:15
Þjálfarafundur kl. 8:20
Upphitun á áhöldum 8:35 - 9:40 (13 mín.
á áhaldi)
Innmars 9:50
Keppni lýkur 12:20
Verðlaunaafhending 12:35
Mótslok 13:00
Eftir hádegi á laugardegi 3.febrúar:
Keppni stúlkna í 4. þrepi 11 ára
og yngri, 12 ára, og 13 ára og eldri;
Keppni pilta í 1. þrepi
Keppni pilta í 2. þrepi
Keppni pilta í 3.þrepi 11 og 12 ára og
13 og 14 ára.
Mæting 12:45
Almenn upphitun kl. 13:00
Þjálfarafundur kl. 13:10
Upphitun á áhöldum 13:20 - 14:15 (11 mín.
á áhaldi)
Innmars 14:30
Keppni lýkur 16:20
Verðlaunaafhending 16:30
Mótslok 17:00
|
Fyrir
hádegi á sunnudegi 4.febrúar:
Keppni stúlkna í 5. þrepi 10 og 3. þrep
12 ára og yngri, og 13 ára og eldri.
Mæting 9:00
Almenn upphitun kl. 9:15
Þjálfarafundur kl. 9:20
Upphitun á áhöldum 9:45 - 10:45 (13 mín.
á áhaldi)
Innmars 11:00
Keppni lýkur 13:00
Verðlaunaafhending 13:10
Mótslok 13:30
Eftir hádegi á sunnudegi 4.febrúar:
Keppni stúlkna í 1. og 2. þrepi.
Mæting 13:30
Almenn upphitun kl. 13:45
Þjálfarafundur kl. 13:50
Upphitun á áhöldum 14:15 - 15:20 (16 mín.
á áhaldi)
Innmars 15:30
Keppni lýkur 16:50
Verðlaunaafhending 17:00
Mótslok 17:30
|
Íslenskar
stúlkur keppa í Danmörku
- 24 stúlkur úr P2 í Gerplu -
|
|
27/01/07
JF
|
Nú
um helgina taka um 24 stúlkur úr P2 í
Gerplu þátt í Danska meistaramótinu
fyrir unglina. Mótið fer fram í Karlslunde
(rétt utan við Kaupmannahöfn). Á mótinu
munu um 40 stúlknalið taka þátt ásamt
17 pilta og 6 blönduðum liðum. Stúlkunum
í P2 hefur verið skipt upp í tvö lið.
Annað keppir á laugardeginum 27 en hitt á
sunnudeginum. Mótið er mjög gott æfingamót
fyrir Íslenska keppendur til að taka þátt
á mjög fjölmennum mótum þar
sem okkar yngri keppendur mæta þeim keppendum
sem munu líklega keppa á móti þeim
þegar komið verður í eldri flokka. Rétt
eins og nú þá verður allt lagt undir
og því er gott að vera með keppendurnar
vel undirbúna.
Úrslit á mótinu má sjá
á: http://dgf.dk/spru/resultat.asp
Einnig: http://kifgymnastik.dk/
|
Beijing
2008
- Olympíuleikar -
|
|
27/01/07
JTS
|
Það
eru ófá handtök sem taka þarf þegar
ein stærsta borg heims, Beijing, hyggst halda Ólympíuleika.
Það er merkilegt að vera staddur hér
og fylgjast með þeim breytingum sem eiga sér
stað í borginni dag frá degi og þeirri
vinnu sem íþróttamenn standa í
til að vera tilbúnir fyrir stærstu leika
sögunnar. Hér í Beijing snýst allt
um Ólympíuleikana og hafa borgaryfirvöld
bannað verktökum að hefja nýjar stórframkvæmdir
eftir árið 2006. Allar þær stórframkvæmdir
sem að farið hefur verið í þurfa
að vera kláraðar áður en leikarnir
eru settir 08.08.2008 klukkan átta mínútur
yfir átta. Ekkert er sparað til svo að borgin
verði vel í stakk búinn til að taka
á móti þeim fjölda gesta sem koma
í tengslum við leikana.
Meira hér
|
Gymnova
Þrepamót
- kvöldvaka -
|
21/01/07
JF
|
Haldin
verður kvöldvaka fyrir keppendur á Gymnova
Þrepamótinu í áhaldafimleikum sem
fram fer 3. - 4. febrúar 2007 að Íþróttamiðstöðinni
að Versölum. Kvöldvakan mun fara fram eftir
mótið. Allir þátttakendur á
mótinu eru velkomnir. Sýnd verða myndbönd
af mótinu á risaskjá, skemmtileg tónlist,
skemmtiatriði frá iðkendum og veitingar (pizzur,
gos, snakk, popp o.fl). Auk þess sem veittar verða
gjafir í nokkrum flokkum frá keppninni sjálfri
(s.s. flestu stiginn á einstöku áhaldi,
flottasta hárgreiðslan, prúðasta félagið,
o.fl.).
Sem sagt: uppskrift að góðri skemmtun.
Iðkendur allra félaga eru að hittast á
fyrsta FSÍ móti ársins og því
sjálfsagt mikil spenna fyrir mótinu. Því
má búast við góðri stemmingu
á kvöldvökunni. Kvöldvökur sem
þessar þekkjast úr alþjóðlegum
mótum (banket) þar sem keppendur hittast að
móti loknu og eiga saman góðar stundir.
Það er enginn ástæða til þess
að okkar framtíðar fulltrúar á
alþjóðlegum mótum þurfi að
bíða eftir því að taka þátt
á alþjóðlegu fimleikamóti til
þess að fá að upplifa þá
stemmingu sem myndast á svona kvöldvökum.
Við skulum byrja strax.
Nánari tímasetning auglýst síðar.
Aðgangseyrir er kr. 1.000.
FORSKRÁNING MIKILVÆG: Keppendur,
þjálfarar og dómarar af mótinu
sem hafa áhuga á að mæta á
kvöldvökuna þurfa að senda tölvupóst
á gerpla@gerpla.is
(eða þjálfarar viðkomandi iðkenda).
Nánari upplýsingar veittar í netfang:
gerpla@gerpla.is
|
| Fimleikadeild
Hamars heldur Hópfimleikamót eftir landsreglum.
Mótið fer fram í íþróttahúsinu
í Hveragerði laugardaginn 24. febrúar. Mótið
er hugsað sem undirbúningur fyrir yngri keppendur
sem eru að hefja keppni eftir landsreglum. Skráningarfrestur
er til 14. febrúar. Mikilvægt er að skila inn
1 dómara fyrir hvert lið, eða 2 dómarar
fyrir 2 lið eða fleiri. Mótagjald er 1200kr fyrir
keppanda. Stökklistum í 4 eintökum skal skila
á mótstað ásamt mótagjöldum
og tónlist. Tónlistin fyrir dýnu, tramp
og gólf skal vera á sér disk merktum liðinu.
Upplýsingar og skráning hjá Söndru
í síma 865-4448 eða fimleikar@hamarsport.is
Fyrir þá sem koma langt að bjóðum
við upp á gistingu gegn vægu gjaldi. Einnig
býðst keppendum að skella sér í
sund í sundlauginni Laugarskarði eftir mótið
þeim að kostnaðarlausu.
Þeir sem hafa ekki aðgang af landsreglunum fá
þær sendar sé þess óskað.
Með von um góða þátttöku og
skemmtilegt mót.
Sandra Sigurðardóttir
Yfirþjálfari fimleikadeildar Hamars.
|
Gunnar
Einarsson sæmdur Gullmerki ÍSÍ
|
18/01/07
JF
|
|
Gunnar Einarsson, formaður FSÍ 2002 til 2006,
var sæmdur Gullmerki ÍSÍ á íþróttahátíð
Garðabæjar um nýliðna helgi.
Voru það þeir Ólafur Rafnsson forseti
ÍSÍ og Stefán Konráðsson framkvæmdastjóri
ÍSÍ, sem veittu Gunnari Einarssyni bæjarstjóra
Garðabæjar Gullmerki ÍSÍ fyrir frábær
störf í þágu íþróttahreyfingarinnar.
Gunnar varð fimmtugur síðastliðið sumar
og hefur átt langan og farsælan feril sem forystumaður,
þjálfari og afreksíþróttamaður.
Hann hefur einnig komið að íþróttamálum
í sinni víðustu mynd sem íþróttafulltrúi
Garðabæjar, forstöðumaður fræðslu-
og menningarsviðs Garðabæjar og nú sem
bæjarstjóri Garðabæjar.
Óskum við Gunnari til hamingju með þann
heiður sem honum hefur verið sýndur.
|
Kristrún
Ósk Hlynsdóttir fimleikakona Vestmannaeyja
|
18/01/07
JF
|
|
Kristrún Ósk Hlynsdóttir var kosin fimleikamaður
ársins í Vestmannaeyjum en kjör Íþróttamanns
Vestmannaeyja fór fram um síðustu helgi.
Kristrún Ósk Hlynsdóttir var einnig valin
Íþróttamaður æskunnar í
Vestmannaeyjum.
Kristrún hefur unnið til margra verðlauna á
ýmsum fimleikamótum. Hún hefur m.a. verið
þrisvar sinnum Íslandsmeistari í almennum
fimleikum og síðast í febrúar 2006
í 3.þrepi. Hefur hún stundað fimleika
í 10 ár.
Óskum við henni til hamingju með þennan
heiður. |

Kristrún Ósk Hlynsdóttir fimleikakona Vestmannaeyja |
| Frá
Listdansskóla Íslands
|
|
16/01/07 |
Listdansskóli
Íslands býður upp á opna tíma
í Módern og Djass. Tímarnir byrja þriðjudaginn
23. janúar í húsnæði Listdansskólans,
Engjateigi 1.
Þriðj. – kl. 20:00-21:30 – Steinunn
Ketilsdóttir
Fimmt. – kl. 20:00-21:30 – Steinunn Ketilsdóttir
Föst. – kl. 19:00-20:30 – Eva Rós
Guðmundsdóttir
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Ketilsdóttir
(email: steinunn_k@hotmail.com)
|
| Formaður
THF sér um dómaranámskeið í
Noregi
- Auður Inga Þorsteinsdóttir á fjölmennu
námskeiði um helgina - |
|
15/01/07 |
Fimleikasamband
Noregs stóð fyrir þjálfara og dómararáðstefnu
í hópfimleikum sem fram fór í
Íþróttaháskólanum í
Oslo nú um liðna helgi. Ráðstefnan var
vel sótt en alls voru 82 þátttakendur
á dómaranámskeiðinu. Auður Inga
Þorsteinsdóttir, formaður THF, sá
um undirbúning og framkvæmd námskeiðsins
sem fór vel fram.
Ánægjulegt er að fulltrúa í
nefnd á vegum FSÍ er treyst fyrir því
að miðla þekkingu um jafn mikilvæg málefni
og dómgælsa er til nágrannaþjóða
okkar.
Eins og við þekkjum þá eiga hópfimleikar
rætur að rekja til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar.
Það er því ánægjulegt
að við séum komin í þá
stöðu núna kenna frændum okkar leikreglurnar.
|
| Frétt
frá FSÍ
- Hrund Þorgeirsdóttir hefur störf hjá
FSÍ - |
|
15/01/07 |
Hrund
Þorgeirsdóttir hefur verið ráðin
í starf framkvæmdastjóra hjá Fimleikasambandi
Íslands. Hrund þekkir vel til fimleika og hefur
víða komið við. Hún hefur þjálfað
bæði í Gerplu og Ármanni, átt
sæti í tækninefndum FSÍ. Þá
hefur Hrund komið að skipulagi móta bæði
innlendra og erlendra. Hrund gegndi formennsku í fimleikastjórn
Íþróttafélagsins Gerplu 2001 til
2003.
Óskum við Hrund góðs gengis í
nýju starfi og þökkum Önnu Möller
innilega fyrir vel unnin störf í þágu
fimleikahreyfingarinnar í rúman áratug.
|
| Afrekssjóður
ÍSÍ styrkir FSÍ
|
|
15/01/07
JF |
Afrekssjóður
ÍSÍ Ólympíufjölskyldu og
sjóður ungra og framúrskarandi efnilegra
íþróttamanna hefur tilkynnt um úthlutun
styrkja 2006. Heildarstyrkur FSÍ er metin á
kr. 3.928.000 en á síðasta ári fékk
styrkur til Fimleikahreyfingarinnar metinn á kr. 3.660.000.-
(þar af 8 frífarseðlar en hver farseðill
er metin á 35.000) en árið 2004 fékk
FSÍ samtals 3.370.000.-
Rúnar Alexandersson fær áfram A styrk
og er það þriðja árið sem hann
er í þeim flokk íþróttamanna
sem fá mestan stuðning frá ÍSÍ.
Viktor Kristmannsson fær C-styrk.
Þá fá þau Margrét Hulda Karlsdóttir,
Fríða Rún Einarsdóttir, Kristjana
Sæunn Ólafsdóttir, Ólafur Garðar
Gunnarsson, Ingvar Ágúst Jochumsson og Bjarki
Ásgeirsson styrkveitingu frá ungum og efnilegum.
Styrkþegar eru úr Íþróttafélginu
Gerplu en Bjarki Ásgeirsson er úr Ármanni.
Skjöl vegna úthlutunar hér
og hér.
Úthlutun 2006 hér.
Úthlutun 2005 hér.
Úthlutun 2004 hér.
|
Áhaldafimleikar
kvenna
- Kynning á keppnisþrepum Íslenska fimleikastigans
-
|
|
15/01/07
HB |
Laugardaginn
20. janúar nk.mun tækninefnd kvenna í
áhaldafimleikum halda kynningarfund á endurnýjaðri
dómarabók Íslenska fimleikastigans.
Fundurinn verður haldin í sal ÍSÍ,
í Laugardal, á 2. hæð kl.14:00 –
16:30.
Dagskráin:
- dómarabókin kynnt
- kynning á uppbyggingu og gildum í hverju keppnisþrepi
fimleikastigans
- sýnt myndband af skylduæfingum fimleikastigans
- æfingar í neðri þrepum dæmdar
á tvíslá
Líkt og áður hefur komið fram þá
hefur nýr fimleikastigi í áhaldafimleikum
verið í vinnslu frá vorönn 2006. Opin
fundur var haldin þann 8. júní, þann
30.8 var sent út lokaæfingaval í hverjur
þrepi og þann 24.9 sl. var innihald fimleikastigans
kynnt og var þá mjög góð mæting
frá nær öllum félögum.
Endurnýjuð dómarabók liggur nú
fyrir sem tekur mið af uppbyggingu fimleikastigans og
alþjóðlegum dómarareglum FIG, endurútgáfa
í janúar 2007.
Síðustu tvo áratugi, með 4-5 ára
millibili, hefur Íslenski fimleikastiginn tekið
minni og stærri breytingum út frá þróun
áhaldafimleika á aljóðlegum vettvangi
og slíkt er einnig fyrirhugað nú m.a.með
tilliti til nýrra dómarareglna FIG sem og stöðu
íslenskra áhaldafimleika.
Tækninefnd FSÍ hvetur þjálfara og
dómara í áhaldafimleikum kvenna til að
mæta og kynna sér fimleikastigann en keppt verður
í á Þrepamóti, Bikarmóti
og Íslandsmóti í þrepum hjá
FSÍ vor 2007.
Eftir keppnistímabilið mun TKV efna á ný
til opins fundar til að meta stöðu fimleikastigans
svo hægt sé að gera frekari breytingar ef
þurfa þykir.
Enn og aftur vill TKV þakka þeim þjálfurum
og dómurum sem hafa komið með gott innlegg
í endurgerð fimleikastigans að þessu
sinni.
|
Flokkur
ársins í Kópavogi
- 3 af 6 í A styrk frá ÍTK úr
Gerplu -
|
|
9/1/07
JF |
Á
Íþróttahátíð Kópavogs
sem fram fór í Salnum 30. desember 2006 var
iðkendum úr Gerplu veittar viðurkenningar fyrir
góðan árangur.
Flokkur Ársins 2006
P-1 var kjörinn flokkur Ársins vegna silfuverðlauna
á Evrópumeistaramóti í Tékklandi
í nóvember ásamt því að
vera bæði Íslands- og bikarmeistarar á
árinu.
|
 |
Stúlkurnar
sem skipuðu P-1 á Evrópumótinu voru
þær: Auður Ólafsdóttir, Ásdís
Dagmar Þorsteinsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir,
Gury Andersson, Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir,
Inam Rakel Yasin, Íris Mist Magnúsdóttir,
Íris Svavarsdóttir, Jóhanna Gunnarsdóttir,
Kolbrún Sveinsdóttir, Magdalena Rós Guðnadóttir,
Rut Valgeirsdóttir, Sara Rut Ágústsdóttir,
Soffía Bergsdóttir, Sólveig Jónsdóttir,
Svava Björg Örlygsdóttir og Þórunn
Arnardóttir.
Afreksstyrkir ÍTK 2007. Gerpla með 3 af
6 í A styrk.
Að þessu sinni voru 38 íþróttamenn
sem fengu afreksstyrk. Sex fengu A-styrk að upphæð
250 þúsund, Ellefu B-styrk að upphæð
125 þúsund og tuttugu og einn C-styrk að
upphæð 25 þúsund. A-styrkshafar fengu
afhenta styrki sína á hátíðinni.
Af iðkendum Gerplu þá hlutu:
|

Margrét Hulda Karlsdóttir
|
A
styrk Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Rúnar
Alexandersson og Viktor Kristmannsson.
B styrk Fríða Rún Einarsdóttir, Margrét
H. Karlsdóttir og Róbert Kristmannsson.
C styrk Ingvar Jochumson og Inga Rós Gunnarsdóttir.
Viðurkenningar
Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan árangur
í eldri (17 ára og eldri) og yngri aldursflokk.
Frá Gerplu voru það að þessu sinni
Viktor Kristmannsson og Margrét H. Karlsdóttir
í eldri flokk og Kristjana Sæunn Ólafsdóttir
og Ólafi Garðarsson í yngri flokk. |

Viktor Kristmannsson |
Hópur
á vegum FSÍ á Gymnaströdu
- til áhugafólks um fimleika -
|
|
4/1/07
BB |
Fimleikasamband
Íslands hefur ákveðið að setja saman
hóp af áhugasömu fólki til að
taka þátt í Norrænu sýningunni
sem haldin verður á Gymneaströdu í
Dornbrim í Austurríki 7 - 14. júlí
2007.
Ísland hefur tekið þátt í þeirri
sýningu 6 sinnum eða frá því
1983.
Hópar sem nú þegar hafa skráð
sig eru frá Akureyri, Keflavík og Stjörnunni
Garðabæ, alls 63.
Við höfum fregnir af því að úti
í félögunum sé fimleikafólk
sem hefði áhuga á að fara með og
viljum við bjóða þeim þáttöku.
Æskilegur aldur er 16 ára og eldri með góðan
fimleikagrunn. Verð fyrir þáttökugjöld
, gistingu í skólum með morgunog hádegismat
,flug og utanyfirgalla ca. 90 - 100 þús.
Þessi hópur myndi að sjálfsögðu
taka þátt í Norrænu sýningunni,
sem verður sýnd einu sinni þarna úti,
aðal stjórnendur sýningarinnar koma frá
Danmörk, en Koreograf fyrir sýningu Íslands
er Steinunn Ketilsdóttirdanshöfundur. Haldin verður
ein samæfing með hinum Norðurlöndunum úti
í Austurríki. Generalprufa verður sama daginn
og sýningin er.
Kannski er hægt að setja saman smá prógram
og taka þátt í tveim dagssýningum.
Þeir sem ekki hafa farið á Gymnaströdu
vita kannski ekki að þessi fimleikahátíð
er sú stærsta sem haldin er í heiminum
og eru þátttakendur um 25 þúsund
manns, þarna eru sýningar allann daginn í
mörgum fimleikahöllum, þá eru námskeið
og fyrirlestrar fyrir þjálfara og á kvöldin
er boðið upp á stórglæsilegar
sýningar og má nefna sýningu frá
Japan/ Brasilíu og fl.
Þetta er mikið og gott tækifæri fyrir
stjórnendur og þjálfara fimleikadeilda,að
koma og fylgjast með þessari miklu fimleikahátíð
.
Þar sem tíminn er að renna frá okkur
biðjum við alla sem einhvern áhuga hafa á
málinu að hafa samband NÚNA við undiritaða
um nánari upplýsingar.
Birna Björnsdóttir sími 8917545 netfang
bbjorns@islandia.is
|
|
Dómaranámskeið í áhaldafimleikum
kvenna verða haldin í Íþróttamiðstöðinni
í Laugardal núna helgina 5. - 7. janúar
og aftur helgina 12. - 14 janúar. Fyrri helgina eru nýjir
dómarar á námskeiði og hafa síðan
viku til að læra fyrir prófið sem verður
sunnudaginn 14. janúar og seinna námskeiðið
er ætlað þeim sem áður hafa haft
dómararéttindi en þeir taka prófið
strax að loknu námskeiðinu. Alls eru rúmlega
70 skráðir á bæði námskeiðin
sem er mjög góð þátttaka. |
Bergþóra
Kristín kjörin Íþróttakona
Árborgar
|
|
2/1/07
|
|
Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir fimleikakona
frá Umf. Selfoss var kjörin fyrsta Íþróttakona
Árborgar í 28. desember. Bergþóra
er íslandsmeistari í 6. þrepi í almennum
fimleikum og einn af máttarstólpum meistarahóps
fimleikadeildar Umf. Selfss.
Bergþóra Kristín og Linda Ósk Þorvaldsdóttir
fimleikakona hlutu einnig veglegan styrk frá íþrótta-
og tómstundanefnd til að stunda íþrótt
sýna en Linda Ósk tekur nú þátt
í sýningarliði GIV´s Elitehold í
Danmörku auk þess að æfa og keppa með
Selfoss.
Þá hlaut fimleikadeild Umf. Selfoss hvatningarverðlaun
ÍTÁ fyrir metnaðarfullt og gott starf 2006,
auk peningastyrks vegna starfsins á árinu. |

Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir fimleikakona
frá Umf. Selfoss |
Allar
myndir © www.fimleikar.is
Heimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni
að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.
|
|
|