|
|
|
Skylduæfingar pilta |
|
| 31/1/06
5/3/05
|
Tækninefnd
Karla hjá FSÍ hefur tekið saman myndband
um skylduæfingar Íslenska fimleikastigans. Er
hér um að ræða 16 mínótna
myndband sem sýnir æfingar á hverju áhaldi
fyrir sig í öllum þrepum. Skjalið er
um 211mb. Niðurhal getur því tekið nokkra
stund.
Telja verður að hér sé stigið mjög
jákvætt skref og ætti að vera til að
auka þekkingu á þeim æfingum sem
keppt er eftir á flestum mótum FSÍ. Gott
framtak hjá Tækninefnd karla.
|
Íslenski fimleikastiginn
hjá piltum |
|
31/1/06
9/3/05
|
Í
skylduæfingum pilta er keppt í Íslenska
fimleikastiganum. Skiptist hann í 5., 4., 3., 2. og 1.
þrep. Hér má sjá þær
reglur sem gilda um keppni í stiganum eins og þær
eru nú.
Almennar reglur hér.
5. þrep hér.
4. þrep hér.
3. þrep hér.
2. þrep hér og 1. þrep hér.
|
Þing
FSÍ fór fram að Versölum í Kópavogi
laugardaginn 28. janúar og var þingið vel
sótt. Kristján Erlendsson var kjörinn formaður
FSÍ og mun hann fara fyrir nýrri stjórn
sambandsins en hana skipa: Jóhanna María Einarsdóttir,
Guðjón Guðmundsson, Valgeir Jónasson,
Helgi Garðarsson og í varastjórn Ásgeir
Daníelsson og Birna Björnsdóttir. Fráfarandi
stjórn og formanni voru þökkuð störf
undanfarinna ára.
|
Hópfimleikar
- Val á Norðurlanda og Evrópumót - |
|
25/1/06 |
Tækninefnd
í hópfimeikum hefur sent frá sér
yfirlýsingu þar sem tekið er fram að
bréf sem nefndin sendi út þann 21. 9.2005
muni standa fyrir lið sem eru að reyna að ná
sér í þátttökurétt
á Norðurlandamót juniora (sjá
bréf 21.9.2005 bréf hér). Lið
sem eru að stefna að Evrópumóti hafa
þó einnig Vormót sem teljandi mót.
Þar af leiðandi munu frá og með þessum
degi þann 24. janúar 2006 Haustmót, Bikarmót,
Íslandsmót og Vormót vera þau mót
sem hægt er að að nota sem teljandi mót
fyrir Evrópumót. Þrjú af fjórum
mótum telja samkvæmt yfirlýsingu Tækninefndar
í hópfimleikum, sjá yfirlýsingu hér.
Þann 21.9.2005 sendi Tækninefnd í hópfimleikum
einnig út
þetta skjal hér sem virðist því
vera fellt úr gildi með bréfi nefndarinnar
frá því 25. janúar 2006 og þar
með að Stjörnutromp sem átti að gilda
sem úrtökumót fyrir Evrópumótið
gerir það því ekki.
|
Ánægðar stúlkur úr Mosfellsbæ
- Björkum þakkað fyrir skemmtilegt mót
- |
|
22/1/06 |
|
Yngsta
keppnislið Aftureldingar M-10 fór ásamt þjálfara
sínum Söru Heimisdóttur á sitt annað
hópfimleikamót sem haldið var í Björkunum.
Keppt var eftir byrjendareglunum og hrepptu þær
1. sætið í dansi. |
 |
Þetta
er ungt og efnilegt lið sem við eigum eflaust eftir
að sjá meira af í framtíðinni.
Við óskum þeim til hamingju með sinn
fyrsta sigur og þökkum Björkunum fyrir skemmtilegt
mót.
|
Boðsmót
- Fimleikadeild Gróttu býður til móts
þann 11. mars - |
|
22/1/06 |
Fimleikadeild
Gróttu býður ykkur að taka þátt
í móti í áhaldafimleikum kvenna
laugardaginn 11. mars 2006 í Íþróttahúsi
Gróttu á Seltjarnarnesi. Keppt verður í
5 og 6. þrepi íslenska fimleikastigans. Í
6. þrepi er einungis keppt í liðakeppni og
eru 6 í hverju liði. Hvert félag má
senda eins mörg lið og það vill og merkja
þau sem lið A, B, C o.s.frv. Hvert lið sendir
einn dómara með, en ef sama félagið
sendir fleiri en eitt lið þá þarf tvo-þrjá
dómara eftir fjölda. Ef lið sendir ekki dómara
verður það að greiða 2000 krónur
í dómarakostnað á lið. Vegleg
verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu liðin.
Reglur 6. þreps eru þær sömu og í
viðauka íslenska fimleikastigans.
Í
5. þrepi er einstaklingskeppni. Þátttökurétt
í 5. þrep hafa þeir, sem ekki hafa náð
26 stigum í 5. þrepi á FSÍ mótum.
Reglur 5. þreps eru samkvæmt íslenska fimleikastiganum
nema á stökki þá er leyfilegt að
nota kistu í stað stökkhests. Hvert félag
verður að senda einn dómara með hverjum
6 keppendum.
Þátttökutilkynningar skulu berast í
síðast lagi 1. mars (miðvikudagur) á
netfangið: abp@simnet.is. Þátttökugjald
er 1000 krónur á keppanda og greiðist fyrir
mót inná reikning: 512-26-200631-500192-2599
Nánari
upplýsingar um mótið gefur Ásdís
í síma 896-5960 eða abp@simnet.is.
|
Hátíðarsýning
- Glæsileg fimleikasýning - |
|
22/1/06 |
|
Íþróttamiðstöðin
að Versölum hefur nú formlega verið opnuð
með glæsilegri opnunarhátíð Íþróttafélagsins
Gerplu sem fram fór 20. og 21. janúar. Fram komu
á sýningunum breiður hópur iðkenda
úr Gerplu sem sýndu ýmiskonar fimleikaatriði,
s.s. dýnustökk, trampoline, æfingar í
hringjum, bogahesti eða slá svo dæmi séu
tekin. Gestir sýningarinnar höfðu margir á
orði að sýningin hafi verið ein sú
glæsilegasta sem fimleikafólk hafi sett upp hérlendis. |
Íþróttafélagið
Gerpla hefur því formlega opnað aðstöðu
félagsins að Versölum og fékk afhent
því til staðfestingar skjöld frá
Íþrótta- og Ólympíuakademíunni
sem Ellert B. Schram afhenti Kristjáni Erlendssyni
formanni Gerplu.
Við þetta tækifæri var Gunnar Birgisson,
bæjarstjóri, gerður að heiðursfélaga
Gerplu vegna mikils stuðnings sem Kópavogsbær
hefur sýnt félaginu á undanförnum
misserum. Sú frábæra aðstaða sem
félagið býr nú við hefur ma.
leitt til mikillar fjölgunar í félaginu
sem og að öll iðkun íþróttarinnar
hefur tekið stórstígum framförum. NÁNAR
HÉR.
|
Iðkendur og þjálfarar
sem stóðu að sýningunni ásamt gestum
frá Hullby í Danmörku. |
Íslandsmótið í 1. þrepi almennra
fimleika
- Haldið á Akranesi Laugardaginn 4. febrúar
2005 - |
Frá
Fimleikafélagi Akraness FIMA |
22/1/06 |
Íslandsmótið
verður haldið í Íþróttahúsinu
við Vesturgötu (sama hús og Vortrompmótið
var 2004 og Ísl.mótið í 1.þrepi
haustið 2002). Boðið verður uppá gistingu
fyrir þá sem þess þurfa í
Brekkubæjarskóla sem er alveg við íþróttahúsið.
Kostnaður vegna gistingar er 300.- kr nóttin fyrir
stelpu en ef gist er 2 nætur þá er það
500.-kr (þjálfarar og fararstjórar borga
ekki). Koma þarf með dýnu/vindsæng
og sæng/svefnpoka með sér. Ekki verður
boðið uppá á neinn mat en öll aðstaða
er fyrir hendi, kælir, samlokugrill, örbylgjuofn
og fl. Í göngufæri frá skólanum
eru tvö veitingahús sem selja pizzur, hamborgara
og ýmsa létta rétti (Hrói Höttur
og Galító). Sundlaugin er opin til kl. 20.30
á föstudeginum og til kl. 18 á laugardeginum.
Smá veitingasala verður í íþróttahúsinu
á meðan á mótinu stendur s.s. heitir
og kaldir drykkir, pizzusneiðar, vöfflur og nammi.
Aðgangseyrir verður 300.-kr fyrir 16 ára og
eldri.Varðandi
gistingu vinsamlegast hafið samband við Guðnýju
í síma 431-3299 eða gsm 846-5546. En
ef þið þurfið einhverjar upplýsingar
varðandi mótið hafið þá samband
við Önnu Lár. yfirþjálfara 864-9865
eða annalaraisl.is Vonumst
svo til að sjá sem flesta á mótinu.
|
Hátíðarsýning
- Glæsileg fimleikasýning - |
|
15/1/06 |
Opnunar-
og afmælissýning Íþróttafélagsins
Gerplu mun fara fram 20. og 21. janúar þar sem
boðið verður upp á stórglæsileg
sýningaratriði en auk iðkenda frá Gerplu
munu Norðurlanda og Evrópumeistarar karla í
hópfimleikum sýna dans, trampolín og
dýnustökk. Mun sýningin vera endurtekin
í þrjú skipti: Föstudaginn
20. janúar kl. 18:00, Laugardaginn 21. janúar
kl. 12:00 og kl. 15:00.
Þrátt
fyrir að sýningarnar verði endurteknar þrisvar
er því miður allt útlit fyrir að
færri munu komast að en vilja. Nú þegar
hafa um rúmlega 500 miðar verið afhentir og
má því segja að nú þegar
sé uppselt á eina sýningu þar sem
aðeins 600 miðar eru á hverja sýningu.
Iðkendur félagsins geta nálgast miða
á mánudag og þriðjudag milli kl. 17
- 20 í íþróttahús félagsins
að Versölum en einnig verður opið fyrir miðasölu
á miðvikudag og fimmtudag á sama tíma.
Miðaverð er kr. 1.000 en frítt er fyrir 12
ára og yngri.
|
Óskum
eftir að ráða fimleikaþjálfara |
|
14/1/06 |
Fimleikadeild
Aftureldingar óskar eftir að ráða reynda
og metnaðarfulla fimleikaþjálfara bæði
fyrir stráka og stelpur. Einnig óskar deildin
eftir fimleikaþjálfara eða starfsmanni með
íþróttamenntun til að taka að
sér þjálfun á leikskólabörnum.
Áhugasamir
hafi samband við Önnu Margréti, framkvæmdastjóra
deildarinnar, í s. 566 6280 eða tölvupóst
á annamargret@simnet.is
|
|
Frá
fræðslunefnd FSÍ
- varðandi sérgreinahluta 1B - |
|
10/1/06 |
Af óviðráðanlegum
orsökum er þjálfaranámskeiði
1B sem halda átti um næstu helgi 14. –
15. janúar frestað vegna forfalla kennara. Þegar
hefur verið send tilkynning til þeirra félaga
sem höfðu skráð þátttakendur
á námskeiðið.
Námskeiðið 1B verður nú haldið
þann 18. – 19. febrúar nk. Helstu efnistök
námskeiðsins eru líkamsbeiting og móttaka,
áhaldahringir, sýningar, tónlist og hreyfing.
Þeir sem þegar höfðu skráð
sig eru beðnir um að staðfesta þátttöku
í febrúar á skrifstofu FSÍ.
|
Góð
ávöxtun hjá Fimleikasjóð Íslands
- 18% árið 2004 og 33% árið 2005 - |
|
6/1/06 |
Ávöxtun
á eignum Fimleikasjóðs Íslands á
undanförnum tveimur árum hefur skilað 57%
hækkun sem skiptist þannig að allt árið
2004 var ávöxtun sjóðsins 18% og allt
árið 2005 var ávöxtun sjóðsins
33%. Eru þetta ánægjuleg tíðindi
fyrir fimleikafólk því það nýtur
góðs af sjóðnum en heildareignir hans
eru í dag rúmlega 700 þúsund. Sjóðurinn
hefur í dag styrkt fimleikahreyfinguna fyrir um 500
þúsund. Innan skamms verður auglýst
eftir umsóknum í sjóðinn.
Auðvelt er að gerast aðilar að sjóðnum.
Nánari upplýsingar í fimleikar@fimleikar.is og á www.fimleikar.is/sjodur
|
Gengisþróun
2004 og 2005 |
Gerpamót Gerplu
- Boðsmót - |
|
6/1/06 |
Íþróttafélagið
Gerpla mun halda boðsmót helgina 1. og 2. apríl
n.k. þar sem keppt verður í íslenska
fimleikastiganum bæði hjá piltum og stúlkum.
Piltar keppa í aldursflokkum samkvæmt þátttökufjölda
í 1. - 4. þrepi. Í 4. þrepi er keppt
í flokki þeirra sem hafa keppt á FSÍ
mótum og þeirra sem ekki hafa keppt á
slíku móti. Aldurstakmark er 8 ára á
árinu og eldri iðkendur. Keppni stúlkna
í 3 - 6. þrepi samkvæmt þátttökufjölda
og sama aldurstakmark og hjá piltum.
|
Ítrekun
frá Fræðslunefnd
- Sérgreinahluti 1B - 14. - 15. janúar 2006 - |
|
3/1/06 |
Námskeiðið
er ætlað þeim sem hafa lokið stigi 1A
í sérgreinahlutanum. Áhersla lögð
á grunnþætti í þjálfræði,
áhaldahringi, undirbúning fimleikasýninga,
tónlist og hreyfingu og móttöku í
einfaldari fimleikaæfingum.
Námskeiðið verður haldið í Reykjavík
og er 20 klukkustundir bæði verklegt og bóklegt,
námskeiðsgjald er 10.000 krónur.
Áætlaður fjöldi þátttakenda
er 15 manns.
Enn eru nokkur sæti laus á námskeiðið
og er skráningarfrestur til mánudagsins 9. janúar.
Þau leiðu mistök urðu að vitlaus dagsetning
var gefin upp á námskeiðið en það
verður 14. - 15. janúar ekki 7. - 8. janúar.
Námskeið 2A fellur því miður niður
að þessu sinni vegna lítillar þátttöku.
Kær kveðja
Fræðslunefnd
|
Allar
myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á
síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.
|
|
|