Gymnova þrepamót FSÍ
Framtíðin er björt í fimleikum á íslandi

30/1/05

Nú um helgina fór fram Gymnova Þrepamót FSÍ en það er eitt fjölmennasta fimleikamót ársins en að þessu sinni voru þátttekendur um 230 talsins á aldrinum 8 til 16 ára og var þeim skipt upp í 19 keppnishópa. Mótið gekk vel fyrir sig og er greinilegt að mikill fjöldi ungra og efnilegra iðkenda stunda nú fimleika um allt land og mátti sjá á tilburðum þeirra á mótinu að framtíðin er björt í fimleikum á íslandi. Fimleikadeild Gróttu annaðist framkvæmd mótsins og voru Þóra Sigurðardóttir og Margrét Pétursdóttir mótsstjórar auk þess sem Berglind Pétursdóttir og fjöldi annarra sjálfboðaliða kom að framkvæmd þessa umfangsmikla móts. Hver keppandi hjá stúlkum keppnir á 4 áhöldum og 6 hjá strákum og því má gera ráð fyrir að keppni hafi farið fram í yfir eitt þúsund æfingum um helgina (m.v. 30% strákar og 70% stúlkur).

Harpa Guðrún Hreinsdóttir úr Stjörnunni hlaut 34,3 stig í 5. þrepi og hafnaði í 3. sæti en á myndinni hér að ofan er hún með bróður sínum Stefáni Hauki en hún er greinilega mjög stolt af bróður sínum sem fær að taka þátt í að fagna með systur sinni. Harpa er í Hofstaðaskóla í Garðabæ og æfir fimleika 4 sinnum í viku hjá Hrafnhildi Gunnarsdóttur en hún var valin fimleikakona ársins 2002. Vinkona Hörpu Guðrúnar, hún Eydís Lilja Eysteinsdóttir er viss um að Harpa komist í landsliðið í fimleikum því hún sé rosalega dugleg að æfa sig. Dugnaður Hörpu á æfingum hefur greinilega skilað henni góðum árangri nú og verður spennandi að sjá hvort að hún muni komast í landsliðið í framtíðinni.

 

Norma Dögg Róbersdóttir úr Björk fékk 33.8 stig í 5. þrepi og hafnaði í 5. sæti en hún fékk gull fyrir æfingar á gólfi þar sem hún fékk 9,0 í einkunn auk þess að fá silfur í æfingum á slá með 8,8 í einkunn. Norma Dögg hefur æft fimleika síðan hún var 3ja ára en hún er viss um að Björk sé besta félagið í dag. Þjálfari hennar er Dmitry Berzovsky frá Rússlandi síðastliðin 3 ár auk þess sem að ein allra fremsta fimleikakona landsins, Elva Rut Jónsdóttir, er þjáfarinn hennar. Elva Rut varð margfalldur Íslandsmeistari í áhaldafimleikum og vann til fjölda verðlauna í keppnum erlendis. Það er því öruggt að Norma Dögg er með góðan þjálfara hjá Fimleikafélaginu Björk í Hafnarfirði.
 
Ásdís Birna Jónasdóttir (til vinstri) og Birgitta Rún Guðmundsdóttir úr Gerplu voru báðar ánægðar með sinn árangur á mótinu. Ásdís varð í öðru sæti í samanlagt í 5. þrepi og fékk verðlaun fyrir æfinar á tvíslá og stökki. Birgitta Rún fékk verðlaun fyrir æfingar á tvíslá. Þær eiga báðar systkini í fimeikum en það eru þau Magnús Jónasson sem keppir í frjálsum æfingum karla og Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir en hún varð í 2. sæti í 3. þrepi stúlkna í flokki 11 - 12 ára með 34,63 stig. Stúlkurnar æfa 4 sinnum í viku hjá Svetlönu.

Myndir hér.

Úrslit mótsins hér í exelskjölum. Hér má sjá eitt skjal með öllum útslitunum.

4. þrep st. 10 - 11 ára
4. þrep st. 12 ára
4. þrep st. 13 ára og eldri
4. þrep pilta 9 - 10 ára
4. þrep pitla 11 - 13 ára
3. þrep st. 13 ára og eldri
3. þrep st. 11 - 12
3. þrep st. 11 - 12 ára
2. þrep stúlkur
2. þrep pilta eldri
2. þrep pilta yngri
1. þrep stúlkur

Sjá einnig um mótið á www.armenningar.is/fimleikar


 

Þrepamót FSÍ

29/1/05


Strákarnir úr Ármann bíða eftir að fá að gera gólfæfingar.

Þrepamót FSÍ fer fram nú um helgina í laugardalshöll. Í dag fór fyrrihluti mótsins fram. Meðfylgjandi myndir voru teknar af keppendum ýmis í æfingum eða í bið á milli æfinga. Njótið vel.

Fleiri myndir hér.


 

Tanja Björg valinn íþróttamaður æskunnar
í Vestmannaeyjum

26/1/05

Íþróttamaður æskunnar í Vestmannaeyjum var fimleikakonan Tanja Björg Sigurjónsdóttir en hún er á 17. ári. Þetta er í annað skiptið sem slíkt val fer fram en íþróttamaður æskunnar er valin úr hópi þeirra barna og unglinga 18. ára og yngri sem þykja hafa náð frábærum árangri.

Tanja Björg hefur stundað fimleika frá 6 ára aldri af miklum dugnaði og áhuga en einnig hefur hún sýnt fram á mikla hæfileika í öðrum íþróttagreinum og m.a. verið kölluð á landsliðsæfingar í fótbolta U16. Hún er sú fyrirmynd sem við leytum eftir í hópi unglinga sem stunda íþróttir, reglusöm og sinnir einnig námi af sama dugnaði og allt annað sem hún tekur sér fyrir.

Við á fimleikar.is óskum Tönju Björg til hamingjum með tilnefninguna.


Tanja Björg Sigurjónsdóttir


 

Rúnar valinn Íþróttamaður Kópavogs

26/1/05
Myndir hér


Rúnar Alexandersson og Elísabet Sif Haraldsdóttir voru valin íþróttamaður og kona Kópavogs 2004

Á íþróttahátíð Kópavogs 2004 var tilkynnt um að Rúnar Alexandersson hefði verið valinn Íþróttamaður Kópavogs. Elísabet Sif Haraldsdóttir dansari var valinn íþróttakona Kópavogs við sama tilefni. Rúnar og Elísabet voru valin út hópi 40 íþróttamanna sem fengu viðurkenningu ÍTK eftir tilnefningar frá íþróttafélögunum í bænum.





Gunnar Einarsson formaður FSÍ ávarpaði hátíðina og óskaði Rúnari til hamingju með tilnefninguna. Lagði Gunnar áherslu stöðu fimleikanna í dag þar sem áhuginn hefur sennilega aldrei verið meiri en nú og möguleikar fimleikanna miklir. Á myndinni hér til hægri má sjá Gunnar afhenda Rúnari viðurkenningu frá FSÍ.

Íþróttafélaginu Gerplu var veitt viðurkenning á hátíðinni fyrir góðan árangur á árinu. Af einstökum iðkendum þá fengu þau Ingvar Ágúst Jochumsson, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir, Inga Rós Gunnarsdóttir og Rúnar Alexandersson viðurkenningu frá bænum og Kristján Erlendsson tók við viðurkenningu fyrri hönd Íþróttafélagsins Gerplu.


 

Garpamót Gerplu og GK

24/1/05
Myndir hér


Þorgeir Ívarsson

Um síðustu helgi fór fram Garpamót Gerplu og GK en þar voru rétt innan við 100 iðkendur skráðir til leiks og fór mótin vel fram. Því var tvískipt í stúlkna og piltakeppni. Keppt var í 4 aldurshópum pilta og þremur hjá stúlkum. Aðalstyrktaraðili mótsins var Fim ehf. sem er m.a. umboðsaðili fyrir GK fimleikavörur. Öllum iðkendum voru veitt gullverðlaun fyrir frábæra frammistöðu auk þess sem ástæða þótti til að veita þjálfurum stúlknanna einnig gullverðlaun. Garpamót Gerplu er boðsmót þar sem áhersla er lögð á að iðkendur geti tekið þátt á sínu fyrstu mótum í þægilegum félagsskap og undirbúið sig fyrir stærri verkefni framtíðarinnar. Á mótinu voru teknar mikið af myndum eins og sjá má hér. Úrslit stúlkur hér og piltar hér.

Jóna Þórey Pétursdóttir



 

ÍSÍ úthlutar nú 6,5% af styrkjum til FSÍ í stað 4,3% í fyrra
fjárhæð styrkja lækka þó annað árið í röð

21/1/05
JF

Stjórn ÍSÍ hefur samþykkt úthlutun úr Afrekssjóði ÍSÍ og Sjóði ungra og efnilegra íþróttamanna fyrir samtals 47 milljónir en þar af nema styrkir til iðkenda fimleika nú 3.070 þúsund. Er þetta annað árið í röð sem styrktir til fimleikafólks lækka. Árið 2003 námu styrkir til iðkenda fimleika samtals 3.455 þúsund en árið 2004 námu styrkirnir 3.080 þúsund. Heildarstyrkir úr afrekssjóði dragast nú saman úr 71 milljón í 47 milljónir sem er öfug þróun við það sem gerðist á milli áranna 2003 til 2004 en þá hækkuður þeir úr 62 milljónum í 71 milljón eins og að framan greinir. Þrátt fyrir lækkun þá hækkar þó hlutfall til fimleikafólks úr 4,3% af öllum styrkjum í 6,5% sem er þó jákvæð þróun enda er óhætt að segja að síðasta ár hafi fimleikafólk staðið sig sérstaklega vel og á ýmsa mælikvarða betur en á árunum þar á undan.
Þeir sem hlutu styrki að þessu sinni eru: Rúnar Alexandersson 1.920þ, Viktor Kristmannsson 300þ, Harpa Snædís Hauksdóttir 200þ., Sif Pálsdóttir 200þ., Hera Jóhannesdóttir 100þ., Kristjana Sæunn Ólafsdóttir 200þ., Róbert Kristmannsson 100þ. og Bjarki Ásgeirsson 50þ.
Sjá nánar úthlutun hér og umfjöllun ÍSÍ hér. Umfjöllun um úthlutun síðasta árs hér.


 

Þrepamót Fimleikasambandsins verður haldið helgina 29. og 30. janúar.

21/1/05

Þrepamót Fimleikasambandsins verður haldið 29. og 30. janúar n.k. Fimleikadeild Gróttu sér um mótið sem verður haldið í Laugardalshöll. Mótið hefst kl. 10.00 á laugardaginn 29. janúar og áætlað er að því ljúki kl. 18.00. Á sunnudeginum hefst mótið kl. 9.30 og áætlað er að því ljúki kl. 16.00. Á laugardeginum keppa stúlkurnar í 1., 2., 3., og 4. þrepi en dregngir í öllum þrepum þ.e. 1., 2., 3., og 4. þrepi en á sunnudeginum keppa stúlkur í 5. þrepi íslenska fimleikastigans.

Keppendur verða um 260. Hjá stúlkunum eru 5 þrep í íslenska fimleikastiganum en hjá drengjunum eru þrepin 4. Erfiðustu æfingarnar eru í 1. þrepunum en þeir sem ná tiltekinni heildareinkunn þar fá rétt til að keppa í frjálsri gráðu. Í nokkrum þrepum er keppendum skipt í aldursflokka.
Frekari upplýsingar má fá á síðunni fimleikar.is og hjá Ásdísi í síma 896-5960.
Umfjöllu frá því í fyrra má sjá hér.
Tækninefnd kvenna hefur nú sent frá sér skipulag stúlknahluta mótsins, sjá hér.

 

Góð þátttaka á þjálfaranámskeiðum FSÍ

20/1/05

Helgina 15. – 16. jánúar sl. hélt fræðslunefnd FSÍ tvö þjálfaranámskeið í Reykjavík, sérgreinahluta 1B og 2A. Námskeiðin eru hluti af þjálfaramenntunarkerfi ÍSÍ og sérsambandanna. Þátttaka var mjög góð um 40 manns tóku þátt að þessu sinni.
Fræðslunefnd FSÍ hefur því haldið sjö þjálfaranámskeið frá hausti 2004, í Reykjavík og á Akureyri, sem telst mjög gott innan íþróttahreyfingarinnar og þátttaka ávallt mjög góð. Oft hafa myndast biðlistar á námskeiðin en fræðslunefnd hefur kappkostað að koma öllum á námskeiðin.
Vill fræðslunefnd þakkar þátttakendum, kennurum og aðildarfélögum fyrir skemmtilegt samstarf. Nú er unnið að fá fyrirlesara á námskeið 2B sem er toppþjálfaranámskeið í áhaldafimleikum. Stefnt er að því að námskeiðið verði haldið á haustdögum 2005.
Fræðslunefnd FSÍ


 

Rúnar segir frá Ólympíuleikunum

19/1/05

Rúnar Alexandersson og Guðmundur Þór Brynjólfsson munu fjalla um þátttöku Rúnars á Ólympíuleikunum í Aþenu á síðasta ári. Þar mun Rúnar sýna ýmsar myndir og farið verður yfir aðdragandan að keppni hans á Ólympíuleikunum. Allir eru velkomnir til þess að mæta og fylgjast með frásögn frá þessum stærsta íþróttaviðburði sem haldinn hefur verið og sjá með eigin augum hvað gerðist bak við tjöldin á Ólympíuleikunum og spyrja Rúnar og Guðmund út í þessa upplifun sem þátttaka á Ólympíuleikum er. Iðkendur, foreldrar og aðrir sem áhuga hafa á fimleikum eru því velkomnir.
Fundurinn byrjar kl. 19:30 á föstudaginn 21. janúar og stendur til um 20:15 og fer hann fram í íþróttahúsi Gerplu að Skemmuvegi 6, Kópavogi. Aðgangur ókeypis.


 

Auður Inga í tækninefnd í hópfimleikum í Noregi

19/1/05

Auður Inga Þorsteinsdóttir hefur verið valin í tækninefndina í hópfimleikum í Noregi. Er þetta mikill heiður fyrir hana og einnig gaman fyrir okkur hér heima á Íslandi að fylgjast með okkar fólki erlendis. Auður Inga hefur verið virk í starfi sínum tengdum fimleikum á undanförnum árum og ekki síst sem dómari í hópfimleikum en einnig sem þjálfari. Við óskum henni til hamingju með ný verkefni í Noregi.


 

Til þjálfara í hópfimleikum

18/1/05
Bréf

Íslandsmót í hópfimleikum verður haldið í Laugardalshöll, föstudaginn 18. og laugardaginn 19. mars n.k. sömu helgi og Íslandsmót í áhaldafimleikum eins og verið hefur undanfarin ár.
Lið verður að hafa náð 21 stigi á FSÍ mótum keppnistímabilsins eða á Stjörnutrompi til að tryggja sér þátttökurétt í undanúrslitum á Íslandsmótinu í hópfimleikum 2005. Þau þrjú lið sem hafa hæstu samanlögðu stigin í undanúrslitum komast í úrslit daginn eftir og taka þau með sér stigin frá undanúrslitunum.
Með fyrsta liði hvers félags þarf að senda 2 dómara. Einn dómari bætist við á hvert lið eftir það. Þessar reglur taka þegar gildi. Þannig að ef félag sendir 2 lið á mót þarf að senda 3 dómara, ef félag sendir 3 lið þá þarf að senda 4 dómara o.s.frv..
Nú fer að styttast í mót vetrarins og minnir THF þjálfara á að virða nýjar reglur sem nefndin sendi út fyrir áramótin um skil á stökklistum og einnig á nauðsyn þess að þátttökutilkynningum sé skilað inn, ásamt nöfnum dómara tveimur vikum fyrir mót.
Frá Tækninefnd í hópfimleikum


 

Tiltektardagur í Gerplu

18/1/05
Myndir

Um síðustu helgi tóku iðkendur og þjálfarar sig til í Gerplu héltu skemmtilegan tiltektar dag með pitzzupartý í lokinn. Veggir voru málaðir, dýnur þrifnar, gryfjan tæmd, speglar fægðir og markt, markt fleira. Allir höfðu mjög gaman af enda má segja að margir af iðkendunum dvelja lengur inn í salnum heldur en vakandi inn í herbergjunum heima hjá sér.


 

Formannafundur FSÍ

18/1/05
Myndir

Um síðustu helgi fór fram árlegur formannafundur FSÍ. Á fundinn mættu fulltrúar aðildarfélaga og farið var yfir ýmis mál sem snertir félögin og FSÍ. Þá komu fulltrúar tækninefnda karla, kvenna og hópfimleika og svöruðu spurningum. Gerð var grein fyrir félagakerfinu Felix, fjallað var um fjölmiðlamál innan sambandsins, kynning frá fræðslunefnd auk þess að sérstök kynning var á fyrirmyndarfélagi ÍSÍ. Fundurinn var fjölmennur og nokkrar umræður voru um ýmis mál.
Á fundinum var samþykkt að stofna sérstakan fjölmiðlahóp kynningarhóp sem á að efla kynningu á keppnum á vegum FSÍ og á fimleikum almennt. Í hópnum er Jón Finnbogason, varaformaður Gerplu, Ásgeir Daníelsson í stjórn fimleikadeildar Ármanns, Guðrún Vilhjálmsdóttir í stjórn fimleikadeildar Gróttu, Oddur V. Þórarinsson, formaður fimleikadeildar Fjölnis.


 

Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir fimleikamaður Selfoss

14/1/05

Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir, 15 ára, er fimleikamaður Fimleikadeildar Umf.Selfoss árið 2004. Bergþóra Kristín er metnaðarfull fimleikakona, sem stendur sig vel, hún er einn af máttarstólpunum í meistarahópi fimleikadeildarinnar og er góð fyrirmynd annarra í greininni á Selfossi. Hún var einnig tilnefnd til Íþróttamanns Árborgar 2004 og hafnaði þar í 3. sæti af 13 þátttakendum sem er glæsilegur árangur. Aðeins örfáum stigum munaði á þremur efstu sætunum að þessu sinni. Það er því greinilegt að tekið er eftir fimleikafólki á Selfossi og þeirra árangur og starf metið.


 

Þjálfarar óskast til Stjörnunnar

14/1/05

Fimleikadeild Stjörnunnar óskar eftir þjálfurum. Vegna mikillar fjölgunar iðkenda og forfalla þjálfara óskar fimleikadeild Stjörnunnar eftir þjálfurum til starfa nú þegar. Áhugasamir vinsamlega hafið samband við Elsu Halldórsdóttur í síma 862-3932.


 

Garpamót Gerplu og GK piltar og stúlkur

6/1/05

Piltakeppni: Sunnudaginn 23. janúar Mæting kl 12:00 mót hefst kl 13:00 verður haldið Garpamót Gerplu og GK í húsnæði Gerplu við Skemmuveg 6.Nánara tímaplan síðar. Þátttakendur eru piltar fæddir 1997 og fyrr og verður einungis keppt í 4. þrepi íslenska fimleikastigans. Einungis piltar sem ekki hafa keppt á mótum FSÍ er heimil þátttaka.
Stúlknakeppni: Laugardaginn 22. janúar verður haldið Garpamót Gerplu og GK í húsnæði Gerplu við Skemmuveg 6. Mæting kl 14:00 mót hefst kl 15:00.Nánara tímaplan sent síðar. Þátttakendur eru stúlkur fæddir 1998 og fyrr og verður einungis keppt í 6. þrepi íslenska fimleikastigans.
Þátttökugjald er kr 1000 og þurfa öll lið sem senda keppendur einnig að senda dómara með liðinu. Verðlaun eru í boði Fim ehf sem selur GK vörur á Íslandi
Vinsamlegast tilkynnið fjölda þátttakenda, nöfn þeirra og nafn dómara fyrir 7. janúar á netfangið if.gerpla@simnet.is. Tímasetningar auglýstar þegar fjöldi þátttakenda er kunnur.


Íslandsmót í hópfimleikum þann 18. og 19. mars

6/1/05

Tækninefnd í hópfimleikum hefur ákveðið að Íslandsmót í hópfimleikum fari fram föstudaginn 18. og laugardaginn 19. mars í Laugardalshöll í tengslum við Íslandsmót í áhaldafimleikum eins og gert hefur verið síðustu tvö ár.
Norðurlandamót í áhaldafimleikum og Norðurlandamót í hópfimleikum eru haldin sömu helgina eða 9. – 10. apríl annað í Finnlandi og hitt á Íslandi. Af þessum sökum er besta helgin fyrir bæði Íslandsmótin helgina 18 – 20. mars.


Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir þau gömlu
1/1/05

Fimleikaáhugafólki er þakkað samstarfið á liðnu ári sem var bæði ánægjulegt og viðburðarríkt. Vonandi verður árið 2005 ykkur öllum farsælt. Þakka fyrir allar upplýsingarnar sem sendar hafa verið á fimleikar@fimleikar.is til birtingar á síðunni. Árið 2005 verður fjórða almanaksárið sem upplýsingum um fimleika er safnað saman á www.fimleikar.is Með ykkar hjálp verða árin fleiri sem síðunni veður haldið úti og innihald síðunnar áhugaverðara fyrir ykkur öll. Takk fyrir samstarfið á liðnum árum.

Jón Finnbogason



Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.