Fimleikadeild Umf. Selfoss styrkir Fimleikasjóð Íslands

[30/01/2004]

Fimleikasjóður Íslands hefur fengið góðan liðstyrk frá Fimleikadeild Umf. Selfoss en stjórn deildarinna ákvað nýlega að ganga til liðs við sjóðinn og styrkja hann árlega með myndarlegum hætti. Er þetta mjög ánægjuleg viðbót við þann fjölda félagsmanna sem styrkja sjóðinn með reglubundnum hætti. Eftir því hefur verið tekið að Fimleikadeild Umf. Selfoss hefur vaxið mjög á undanförnum árum og er því ánægjulegt að sjá að stjórnendur deildarinnar vilja leggja sitt að mörkum við að styrkja uppbyggingarstarf og afreksfólk innan fimleikahreyfingarinnar en það er markmið sjóðsins.


Tilkynning til þjálfara í almennum fimleikum

[28/01/2004]

Varðandi Íslandsmót í almennum fimleikum 2. – 5. þrep. Á fundi sínum í gær 27. janúar tók Mótanefnd í almennum fimleikum eftirfarandi ákvörðun vegna mótsins 7. febrúar n.k.:
1. Notuð verður venjuleg stökkbraut en ekki fiberbraut.
2. Veitt verður undanþágu fyrir þau félög sem óska eftir að nota stökkhest í stað stökkborðs.
Annað þrep mótsins sem er lang fjölmennast verður í tveimur hlutum þannig að sömu dómarar geti dæmt alla keppendur þannig að ekki verði ósamræmi í dómum vegna Meistaramótsins og er þetta eina leiðin til þess.
Á fundinum í gær var ekki hægt að ljúka við skipulagningu mótsins þar sem en vantaði gögn frá nokkrum félögum. Ennþá vantar dómarar frá nokkrum félögum og skapar það mikla vinnu fyrir nefndina.
Ástæða er til þess að ítreka nauðsyn þess að félögin virðin tilkynningafresti og skili gögnum á tilsettum tíma. Tilkynning hér.


Mótaröð hjá Dýra Kristjánsyni í USA

[27/01/2004]

Dýri Kristjánsson í Gerplu hefur haft mikið að gera að undanförnu en keppnistímabilið hjá Háskólaliðinu í Minnesoda er þó rétt að byrja. Keppir Dýri nú um hverja helgi. Eftir að hann fór aftur út eftir jólafrí þá hefur hann keppt á þremur mótum og um næstu tvær helgar mun hann taka þátt í tveimur mótum. Hann mun því taka þátt í fimm mótum á jafnmörgum vikum.

Fyrsta mótið sem hann tók þátt í á þessu ári var í Chicago þann 10. janúar þar sem Háskólinn í Minnesoda keppti við 5 önnur lið. Mótið gekk ágætlega fyrir liðið hans Dýra og gerði hann mjög góðar æfingar á tvíslánni (8,3) og golfi (8,2) þar sem hann t.d. "pinnaði" tvöfallt heljarstökk en mistókst aðeins á svifránni (7,5) þar sem hann greip ekki Kovax æfinguna.[Meira]


Fimleikaþing

[26/01/2004]

Næstkomandi laugardag fer fram aðalfundur FSÍ, Fimleikaþing, í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Á Fimleikaþingi er kosið í stjórn og nefndir FSÍ fyrir næstkomandi kjörtímabil sem er tvö ár, 2004 - 2006. Öll aðildarfélög og héraðssambönd eiga fulltrúa á aðalfundi FSÍ en á honum er mörkuð stefna fyrir næstkomandi tímabil. Ársreikningar FSÍ fyrir síðastliðin tvö ár verða kynntir og á fundinum gefst þingfulltrúum tækifæri til þess að taka þátt í nefndarstarfi. [Meira]

Vel sótt þjálfaranámskeið

Mynir hér
[25/01/2004]

Nú um helgina fór fram þjálfaranámskeið 2A á vegum fræðslunefndar Fimleikasambands Íslands. Þetta var í fyrsta sinn sem námskeiðið var haldið og tókst það mjög vel. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt en meirihluti námskeiðsins fór fram inn í sal og þá voru meðfylgjandi myndir teknar.
Mynir hér


Fimleikar fyrir alla .... eða hvað?

HUGLEIÐINGAR
[23/01/2004]

Gjarnan er sagt að fimleikar séu fyrir alla. Til þess að svara því hvort að fimleikafélögin í landinu séu að bjóða upp á fimleika fyrir alla þá er nauðsynlegt að skilgreina orðið fimleikar. Auk þess getur verið gott að nálgast félögin út frá þeirra sameiginlega vettvangi, Fimleikasambandi Íslands (FSÍ).

aðeins við hátíðleg tækifæri!

Áður en lengra er haldið er rétt að spyrja hvort að hér sé kannski verið að velta fyrir sér einhverju sem allir vita fyrir fram hver niðurstaðan er eða er hér aðeins um að ræða þægilegt orðatiltæki sem á að nota við hátíðleg tækifæri? Sjáum til!
[Meira]


Fimleikadeild Hamars heldur mót í almenna fimleikastiganum

[21/01/2004]

Fimleikadeild Hamars – Hveragerði mun halda mót í Almenna Fimleikastiganum laugardaginn 14. febrúar. Mótið er fyrir iðkendur sem fæddir eru 95 og 94. (Undantekning er gerð ef eldri iðkendur hafa ekki keppt á Íslandsmóti áður – og eru á byrjendastigi – þá má skrá þá á mótið). Keppt verður í 1. þrepi og 1. þrepi B. Drög að dagskrá má sjá hér fyrir neðan.
Mótið er hugsað sem æfing fyrir Íslandsmótið í haust og verða engin verðlaun veitt heldur fá allir keppendur viðurkenningu. Þjálfarar geta þó fengið sendar einkunnir keppenda á tölvupósti eftir mótið ef þeir óska þess.
Eftir mótið verður pizzaveisla fyrir keppendur og þjálfara og væri gaman ef einhver félög kæmu með skemmtiatriði. [Meira]


Samæfing hjá piltum úr Ármanni og Gerplu

Mynir hér
[18/01/2004] JF

Nú í vetur hafa strákarnir úr Ármanni og Gerplu æft reglulega saman. Fjölmargar góðar ástæður eru fyrir því en félagsleg samstaða er einna mikilvægust. Auk þess er gott fyrir þá að æfa á mismunandi áhöldum því sjaldnast keppa þeir á sömu áhöldum og þeir æfa alltaf á. Meðfylgjandi myndir voru teknar á síðustu samæfingunni áður en mótin skella á í febrúar og mars en þær bera þessi merki að ljósmyndarinn var aðeins að prufa sig áfram ...
Eins og sjá má á síðustu myndunum þá bregða strákarnir á leik í lok æfingar. Ólafur Gunnarsson var undir mikilli pressu þar sem að ef hann myndi ekki leyfa Jónasi og Gunnari að henda sér í tvöfallt heljarstökk þá yrði fjallað um það á www.fimleikar.is ! Auðvitað skellti strákurinn sér í stökkið af stakri snilld !!! (Sjá myndir nr. IMG_4222.jpg til IMG_4225.jpg


Gunnar Sigurðsson í Ármanni að gera tvöfallt heljar með heilli skrúfu í afstökk á svifrá.


Íslandsmót – og Meistaramót í almennum fimleikum
7. – 8. febrúar á Seltjarnarnesi

[12/01/2004]

Íslandsmót í almennum fimleikum 2. –5. þrep stúlkna og 1. – 5. þrep pilta verður haldið í Íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi í umsjón Fimleikadeildar Gróttu, laugardaginn 7. febrúar n.k. Meistaramót í almennum fimleikum verður síðan haldið á sama stað sunnudaginn 8. febrúar. Þátttökutilkynningum þarf að skila á skrifstofu FSÍ f. 24. janúar n.k. Fylgiskjöl, þátttökutilkynning, náð þrepum skjal A og B.


Þjálfaranámskeið 2A

[12/01/2004]

Helgina 24. – 25. janúar verður haldið þjálfaranámskeið 2A á vegum fræðslunefndar Fimleikasambands Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem námskeiðið er haldið og vonast er til að sem flestir hafi kost á að koma á námskeiðið. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt. Meirihluti námskeiðsins er verklegt í sal. Inntökuskilyrði á námskeiðið er að þátttakendur hafi náð 18 ár aldri. Þarf að hafa lokið fyrsta þjálfarastigi (almennum hluta og sérgreinahluta í fimleikum). Sex mánaða starfsreynsla frá því að þjálfarastigi 1 var lokið. Staðfest af viðkomandi íþróttafélagi. Eða A og B stig í gamla kerfinu. Skyndihjálparnámskeið.
Kennarar á námskeiðinu eru allir reyndir fimleikaþjálfarar með áralanga reynlsu í þjálfun og kennslu. Þátttakendur eru minntir á að full þátttaka í öllum hlutum námskeiðsins er skilyrði til að ljúka námskeiðinu. Skráningu þarf að vera lokið fyrir 17. jan og er miðað við lágmarksþátttöku 15 til að námskeiðinu geti orðið. Námskeiðsgjald kr 10.000,-


Inga Rós Gunnarsdóttir íþróttakona Kópavogs

[11/01/2004]

Inga Rós Gunnarsdóttir, úr Gerplu, var valin íþróttakona Kópavogs við hátíðlega athöfn nú í dag (sunnudag). Inga Rós hefur verið í hópi fremstu fimleikastúlkna landsins um nokkurra ára bil. Nú fyrir skemmstu hafnaði hún í öðru sæti á opnu móti í Svíþjóð, Malarcup, stóð sig mjög vel með landsliðinu á HM í fimleikum í ágúst sl. og hafnaði í 6. sæti á Norður-Evrópumóti í nóvember sl. Hún er góð fyrirmynd fimleikafólks og óskum við henni innilega til hamingju með þann heiður sem val á íþróttakonu Kópavogs er.
Við sama tækifæri fengu Róbert Kristmannsson, Sara Sif Sveinsdóttir og Rúnar Alexandersson einnig viðurkenningu og óskum við þeim jafnframt til hamingju.


Inga Rós Gunnarsdóttir

Styrkir ÍSÍ hækka um 15% en FSÍ fær 11% minna en í fyrra

[10/01/2004]

ÍSÍ hefur tilkynnt um 71milljón króna styrkveitingu til sérsambanda ÍSÍ en við sama tilefni í fyrra var úthlutað um 62milljónum (sjá tilkynningu hér). Hlutur FSÍ var að þessu sinni kr. 3.080.000,- en í fyrra fékk FSÍ kr. 3.455.000,- Styrkir til FSÍ lækka því um 11% á sama tíma og styrkir til sérsambanda hækka um tæp 15%. Árangur okkar fremsta fimleikafólks hefur sennilega aldrei verið betri en á síðasta ári. Sama má segja um umfang starfsemi félaga innan vébanda FSÍ sem hefur vaxið mjög á síðustu árum. Nægir að vísa til umfjöllunar á þessari heimasíðu um sigra síðasta árs. Styrkveitingar ÍSÍ valda því sárum vonbrigðum og vekja upp spurningar um hvenær íþróttahreyfingin viðurkennir það starf sem fer fram innan FSÍ. Bilið á milli styrkja til FSÍ og annarra sérsambanda heldur því stöðugt áfram að breikka. Halda má því fram að bilið sé að breikka um 26% á milli ára. Áframhaldandi þróun í þessa veru er óþolandi.
Meira hér


Nýtt ár - nýtt spjall !

[03/01/2004]

Við viljum óska netverjum gleðilegs árs með þökkum fyrir heimsóknir á s.l. ári. Nýja árið byrjar glæsilega, búið er að setja upp nýtt glæsilegt spjall kerfi. Notendur spjallsins þurfa að skrá sig inn til að geta verið með í umræðunni, hver og einn er með sér prófíl sem hægt er að skoða, senda persónulegar upplýsingar til notenda og ýmislegt fleirra. vefstjóri

Spjallið



Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.