- Auður dæmir í Noregi -
Góður undirbúningur fyrir Norðurlandamót í hópfimleikum 2008

25/2

Nú um helgina, 24. - 25. febrúar, fer fram í Bergen í Noregi deildarkeppni í hópfimleikum en það eru þrjár deildarkeppnir á ári þar sem keppt er í 3 deildum á hverju móti. Athyglisvert er að á mótinu er Auður Inga Þorsteinsdóttir, formaður tækninefndar í hópfimleikum, yfirdómari á dýnu. Mótið er mjög fjölmennt og það mjög ánægjulegt að að óskað sé eftir liðsinni frá Íslandi þegar kemur að dómgæslu á fimleikamóti í Noregi.
Greinilegt er að framkvæmdaraðilar mótsins eru undirbúa sig fyrir framkvæmd Norðurlandsmótsins í hópfimleikum 2008. Skipulagningin er mjög góð. Um tveim vikum fyrir mótið var gefin út 30 blaðsíðna upplýsingabæklingur með hefðbundnum upplýsingum, ásamt óvanalegri upplýsingum s.s. varðandi hvað verður í hádegismat, hvar neyðarútgangar í íþróttahúsinu eru, yfirlitsmynd af íþróttahúsinu, strætótímar o.fl. Svona góður undirbúnignur er ánægjulegur í því ljósi að mótshaldari mun einnig halda Norðurlandamót 2008. Það má því segja að mótið sé eins konar generalprufa.
Á mótinu er keppt eftir svipuðum reglum og í landsreglum þ.e. aðeins keppt á einstökum áhöldum. Lið geta verið í 1 deild á gólfi en í 2 deild á dýnu osv frv. 10 bestu liðin eru í 1 deild, 10 næstu í 2 og rest í 3 deild. Tvö lið fara á milli deilda á milli móta. Á mótinu taka alls 113 hópar þátt.


Íslandsmót í þrepum íslenska fimleikastigans

 

Íslandsmótið í þrepum verður haldið, í umsjón Bjarkanna, laugardaginn 24. mars í Bjarkarhúsinu. Skráning fer fram í gegnum FELIX og þarf að berast tveimur vikum fyrir mót eða fyrir 10.mars. Nauðsynlegt er að tilgreina nöfn dómara í þar til gerða möppu. Mótagjald, 1600kr á keppenda, greiðist inn á reikning FSÍ við skráningu: 0313 26 3700 kt. 540169 2849.
Tækninefnd kvenna
Skv. kröfum móta, sendir FSI/TKV og TK tilynningu út eftir Bikarmót hverjir hafa náð inn á Íslandsmót í þrepum og miðast það við stig í fjölþraut, ekki á einstökum áhöldum. 10 hæstu af Þrepa- eða Bikarmóti í samanlögðu í 5. 4. og 3. þrepi og 5 hæstu í 2. og 1. þrepi hafa unnið sér inn keppnisrétt.
Keppt er til úrslita í fjölþraut þ.e. Íslandsmeistarar í hverju þrepi í fjölþrautinni krýndir og veitt verðalun fyrir 1, 2, og 3. sæti.
Áðurnefndur listi verður sendur út um leið og hann berst frá tækninefndum.
Tækninefnd karla
Um úrslitakeppni er að ræða þ.e. Íslandsmeistari í hverju keppnisþrepi Fimleikastigans er krýndur. Fjöldatakmörkun er á mótið og gilda hæstu fjölþrautarstig á Þrepamóti eða Bikarmóti. Ef keppandi er inni í hópnum eftir Þrepamót en tilheyrir ekki keppnisliði á Bikarmóti þá hefur hann rétt á að keppa sem gestur á Bikarmóti.
5. þrep 8 efstu
4. þrep 8 efstu
3. þrep 8 efstu
2. þrep 8 efstu
1. þrep 8 efstu
Fimleikakveðja Hrund Þorgeirsdóttir.


Þorramót

 

Úrslit af Bikarmótinu í hópfimleikum sem fram fór í 16. febrúar má sjá hér:
Hópur 1 kvk senior
Hópur 1 senior piltar
Hópur 2, 3, 4 junior stúlkur
Hópur 2 junior piltar


Bikarmót í hópfimleikum

 

Úrslit af Bikarmótinu í hópfimleikum sem fram fór í Seljaskóla laugardaginn 17. febrúar má sjá hér:
Landsreglur
TeamGym
Mótið var tvískipt, í fyrri hlutanum var keppt í TeamGym . Þar voru 5 lið sem kepptu í TeamGym kvenna en 2 lið í TeamGym mix. Í þessum hluta voru veitt verðlaun fyrir samanlagðan árangur. Bikarmeistarar í TeamGym kvenna var lið Gerplu, hópur P2 en Bikarmeistarar í TeamGym mix lið Ármanns /Gróttu.
Í seinni hlutanum var keppt eftir landsreglum. Í landsreglum geta liðin keppt í einu, tveimur eða þremur áhöldum. Verðlaun voru veitt fyrir einstök áhöld, ekki samanlagðan árangur. Alls voru 8 lið sem tóku þátt í þessum hluta. Bikarmeistarar á gólfi var lið Selfoss (3), bikarmeistarar á dýnu var lið Ármanns og bikarmeistarar á trampolíni var einnig lið Ármanns.
Mótshaldari var Fimleikadeild Fylkis.


Unglingamót í hópfimleikum

MYNDBÖND
11/02/07

Hér má sjá úrslitin á unglingamótinu í hópfimleikum sem haldið var í íþróttahúsinu Ásgarði Garðabæ sunnudaginn 11. febrúar 2007. Sjá hér.


Myndband af Gymnova-þrepamót, 3. hluti

10/02/07

 


Fimleikaþjálfari - FIMA

07/02/07

Fimleikafélag Akraness – FIMA – leitar eftir þjálfara sem getur hafið störf sem fyrst eða frá næsta hausti. Aðallega verið að sækjast eftir þjálfara á dýnu og trampolín fyrir elstu hópana sem eru stelpur á aldrinum 12-16 ára í hópfimleikum og almennum fimleikum. Félagið er nokkuð vel búið af áhöldum, s.s. loftdýna, Fiber braut, nýr hestur, dansdýnur,..... Kemur til greina að þjálfari komi 1x–3x í viku, allt eftir samkomulagi.
Vel greitt (þjálfun, akstur 30 – 40 min og göng).
Áhugasamir hafi samband við Önnu Lár.yfirþjálfara gsm. 864-9865 eða anna@grundaskoli.is


Gymnova Þrepamót

Myndir hér 04/02/07
JF

Gymnova Þrepamótið hefur nú farið fram og er óhætt að segja að mótið hafi gengið ágætlega fyrir sig þrátt fyrir lítilsháttar seinkun.
Af mörgu er að taka enda stóðu allir iðkendur sig mjög vel á mótinu. Mikill fjöldi þátttakenda endurspeglar grósku í hreyfingunni og góð dreifing verðlauna sýnir að víða fer fram mjög metnaðarfullt starf.
Þrepamótið í ár var fyrir margra hluta sakir sérstakt þar sem fjölmargir hlutir áttu sína frumraun á mótinu. Keppt var í fyrsta skiptið eftir nýjum fimleikastiga (skylduæfingum). Mótið var skemmtilegt og greinilegt að sú ákvörðun að fela hverju félagi að semja sínar eigin æfingar sem innihalda ákveðin erfiðleikagildi gaf mótinu allt annan og skemmtilegri blæ heldur en skylduæfingamót hingað til. Í fyrsta skiptið var dæmt eftir nýjum dómarareglum eftir umfangsmikil námskeið á vegum FSÍ við endurmenntun dómara.


Helga Laufey Hafsteinsdóttir, Gróttu, stóð sig vel á Gymnova þrepamótinu. Fyrir æfingar sínar á gólfæfingum á myndbandinu hér t.v. hafnaði hún í 2. sæti í 4. þrepi fæddar 1996 - 1997. Hún varð í 2. sæti á stökki, sigraði á tvíslá og jafnvægisslá en þessi frammistaða færði henni gullverðlaun í samanlögðu með 56,582 stig. (myndband).

Í fyrsta skiptið hægt að fá hærri en 10,0 fyrir skylduæfingar. Fjölmargir dómarar voru að stiga sín fyrstu skref sem dómarar á FSÍ mótum.
Þar sem svo fjölmargir hlutir voru að eiga sér stað í fyrsta skiptið var ákveðið að efna til þess í fyrsta skiptið að bjóða öllum iðkendum frá öllum félögum á sérstaka kvöldvöku eftir mótið. Var hún vel sótt og góð áminning um hversu mikilvægt það er að efla enn frekar tengsl milli iðkenda allra félaga. Kvöldvakan var skipulögð og framkvæmd af eldri iðkendum sem mynduðu m.a. dómnefnd sem fékk það hlutverk útdeila þremur bikurum. Dómnefndin valdi:
x) Keppendur frá Ármanni sem fengu bikar fyrir að hvetja best sína keppendur.
x) Keppendur frá Gerplu sem fengu bikar fyrir að vera prúðasti hópurinn.
x) Þá fékk Birgitta Rún Guðmundsdóttir bikar fyrir flottustu hárgreiðsluna.
Það sem skiptir þó mestu máli eftir allt saman er að 280 iðkendur mættu á mótið og áttu góðar stundir. Hátt í eitt hundrað sjálfboðaliðar komu að framkvæmd mótsins og er það góð áminning um að án þeirra væri þetta allt ekki mögulegt.


Svana Ottósdóttir, Gerplu, varð í 3. sæti í samanlögðu með 56,5 stig í 5. þrepi 1996 en fyrir æfingar sínar á tvíslá fékk hún 14,8 stig og hafanði í 2. sæti. (myndband)


Erna Karen Egilsdóttir, FIMAK, stóð sig vel á mótinu en hún hafnaði í 7. sæti í 5. þrepi 1998. (myndband)

Stefán Atli Sigtryggson, Gróttu, hafnaði í 2. sæti á stökki í 3. þretpi 1994 og eldri með þessu stökki. (myndband)

Gymnova Þrepamót - úrslit, sunnudagur

04/02/07

Gymnova Þrepamót - úrslit, laugardagur

03/02/07


Kvöldvaka kl. 18:00 - 20:00

03/02/07

Haldin verður kvöldvaka fyrir keppendur á Gymnova Þrepamótinu í áhaldafimleikum kl. 18:00 - 20:00 á sunnudaginn 4. febrúar að Versölum í Kópavogi.
Allir þátttakendur á mótinu ásamt öðrum krökkum sem æfa fimleika hjá félögum sem keppa á mótinu eru velkomnir.
Sýnd verða myndbönd af mótinu á risaskjá, skemmtileg tónlist, skemmtiatriði frá iðkendum og veitingar (pizzur, gos, snakk, popp o.fl). Bikarar verða veittir í nokkrum flokkum frá keppninni sjálfri (hvatning o.fl.).
Aðgangseyrir er kr. 1.000.


Aukin þjónusta

01/02/07

Vörumerkin GK, Venturelli, Moreau, US Glove, ReiSport og PiriSport eru fimleikafólki á Íslandi að góðu kunn enda fimleikavörur á heimsmælikvarða. Til þess að mæta þörfum fimleikahreyfingarinnar um aukið aðgengi að þessum hágæða vörum verða þær hér eftir kynntar með ítarlegum hætti á heimasíðunni www.fimleikar.is Auk þess verður unnt að skoða mikið úrval af vörum frá þessum framleiðendum í sérstakri verslun sem sérhæfir sig í hágæðavörum fyrir fimleikafólk.


 



Allar myndir © www.fimleikar.is
Heimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.