Þorramót

 

25/2/06
*

Föstudaginn 17. febrúar fór fram Þorramót F.S.Í í nýja Gerpluhúsinu að Versölum. Keppt var í frjálsum æfingum bæði í karla- og kvennaflokkum. Mótið gekk vel fyrir sig en þetta var fyrsta mótið hérlendis þar sem keppt var eftir nýjum reglum alþjóða fimleikasambandsins. Dómurunum gekk vel að aðlaga sig að breyttu kerfi og var ánægjulegt að sjá jafnháar einkunnir á mótinu og raun bar vitni. Gefnar voru tvær einkunnir yfir 14 í kvennaflokki en nokkrir voru yfir 15 í karlaflokki. Bjarki Ásgeirsson sigraði í karlaflokki, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir sigraði í unglingaflokki kvenna og Sif Pálsdóttir sigraði í meistaraflokki kvenna. Úrslit mótsins má sjá hér.

Áhorfendum gekk hins vegar ekki alveg jafnvel með nýju reglurnar og dómurunum og munum við því hér birta smá samantekt á uppbyggingu einkunna eftir nýju reglunum.
Einkunnirnar eru nú í raun saman settar úr tveimur einkunnum, framkvæmdareinkunn og erfiðleika- og samsetningareinkunn.
Framkvæmdareinkunnin reiknast frá 10,0 og því byrja allir keppendur nú í 10. Frá þessari einkunn er svo tekinn frádráttur fyrir föll, bognar fætur o.s.frv.

Erfiðleika- og samsetningareinkunnin byrjar í 0 á slá, tvíslá og á gólfi (hjá stúlkum). Síðan bætist við 0,5 fyrir hverja sérkröfu sem er uppfyllt (t.d. snúningur á einum fæti á slá) sem eru alls 5. Með því að uppfylla allar sérkröfurnar má því fá alls 2,5 stig. Ofan á það bætis ennfremur gildi fyrir erfiðleika æfingarinnar sem reiknast út frá 10 erfiðustu mómentum æfinganna. Fyrir móment sem hefur erfiðleikagildi A fæst 0,1, gildi B gefur 0,2 o.s.frv.
Á stökki fer erfiðleika- og samsetningareinkunnin eftir því hvaða stökk er gert. Lægsta mögulega gildi er 2,4 en hæsta mögulega gildi er 7,1.
Heildareinkunnin er svo summa framkvæmdareinkunnar, og erfiðleika- og samsetningareinkunnar. Þannig mætti fá fyrir fullkomið stökk sem hefur erfiðleikagildi 7,1 einkunnina 17,1.

He


Myndbönd

 

23/2/06

Flott myndband. Sjá hér. Einnig hér.


Íslandsmót í almennum fimleikum 2006 og Meistaramót í almennum fimleikum 2006

 

22/2/06

Nú á laugardag 25. febrúar fer fram Íslandsmót í almennum fimleikum í Íþróttahúsinu Ásgarði í Garðabæ. Keppt er í 2. – 6. þrep stúlkna og 1. – 4. þrepi pilta.
Keppendur á mótinu eru um 220 frá 11 félögum og þar af eru 40 strákar og hafa þeir aldrei verið fleiri á þessu móti.
Keppnin hefst á laugardag kl. 9.30 og keppa þá stúlkur í 2. þrepi en síðari hluti mótsins hefst kl. 14.45 og þar keppa 3. – 6. þrep stúlkna og 1. – 4. þrep pilta.
Á sunnudag er síðan Meistaramót í almennum fimleikum og þar keppa 10 efstu einstaklingar í hverju þrepi almenna fimleikastigans.


Alþjóðlegt dómaranámskeið karla áhaldafimleikum

 

22/2/06

Nú þessa daga þ.e. 23. – 26. febrúar fer fram Alþjóðlegt dómaranámskeið karla á vegum FSÍ og tækninefndar karla. Leiðbeinandi er Tom Tingold frá Noregi en hann á sæti í tækninefnd karla hjá UEG Fimleikasambandi Evrópu. Það eru 15 sem taka þátt í námskeiðinu sem lýkur með prófi á sunnudag. Björn M. Tómasson og Guðmundur Þór Brynjólfsson verða Tom til aðstoðar en þeir sóttu dómaranámskeið í Leipzig í Þýskalandi í desember.


Áhaldafimleikar 9-15 ára – Staða félaganna
Úttekt á Gymnova þrepamótinu sl. helgi

Guðjón Guðmundsson

15/2/06
*

Hið árlega Gymnova þrepamót gefur fólki í fimleikahreyfingunni, og öðru áhugafólki um fimleika, gagnlega vísbendingu um það starf sem fram fer hjá félögunum í landinu við þjálfun áhaldafimleika. Tölfræðilegur samanburður af móti sem þessu gefur t.a.m. forráðamönnum félaganna ákveðna sýn á stöðu síns félags gagnvart öðrum félögum t.d. hvað varðar gæði þjálfunar og aðstöðu. Það ber þó að taka samantektir sem þessar með ákveðnum fyrirvara þar sem ýmsir þættir geta brenglað niðurstöður. Í þessu sambandi má nefna að mismunandi áherslur geta verið milli félaga hvað varðar markmið í starfseminni og einnig mismunandi lágmarkskröfur fyrir keppendur á mót.

Gymnova þrepamótið fór fram liðna helgi. Í mótinu tóku þátt 239 keppendur á aldrinum 9 til 15 ára. Eins og verið hefur í gegnum árin voru stúlkur í meirihluta eða rúmlega 2/3 af heildarfjöldanum. Strákarnir hafa þó sjaldan eða aldrei verið fleiri. Gaman er að sjá fjölda félaga en þátttakendur komu frá 10 félögum þar af 3 af landsbyggðinni.
Í töflunni hér að neðan má sjá upplýsingar um fjölda keppenda raðað eftir félagi, kyni, fjölda verðlaunapeninga og loks vinningshlutfalli sem er samanburður á hámarks fjölda stiga sem hvert félag gat hlotið á mótinu og þeim stigafjölda sem það náði (útskýrt betur aftast).
Sjá meira hér.


Sexföld verðlaun á þrepamóti í fimleikum

14/2/06


Sveinbjörg, Sandra, Karen Anna, Camilla, Kristjana Valdís, Halla Björk, Díana, Kristrún, Hrönn og Ísabella Ýr.

Tvær stúlkur frá Fimleikadeild Aftureldingar hrepptu samtals sex verðlaun á þrepamóti í almennum fimleikum í byrjun febrúar. Telma Þrastardóttir hreppti gullið fyrir æfingar á dýnu, silfur í samanlögðum stigum og bronsið fyrir stökk. Með sigrinum tryggði hún sér sæti á Meistaramóti í almennum fimleikum sem haldið verður 26 febrúar. Telma Þrastardóttir varð því önnur stigahæst af 215 keppendum. Telma Rut Waltersdóttir sem keppti í flokki 13 ára hreppti einnig silfur fyrir stökk, silfur fyrir samanlagt og brons fyrir æfingar á dýnu.

Telma og Telma voru að vonum ánægðar með verðlaunapeningana sína eftir mótið.

Alls tóku 17 fimleikastelpur frá Aftureldingu þátt í mótinu og stóðu allar stelpurnar sig með prýði.


Námskeið 1B

Tilkynning frá fræðslunefnd

14/2/06
Um næstkomandi helgin (18. – 19. febrúar 2006) mun fara fram námskeið í hluta 1B. Dagskrá er sem hér segir:
Laugardagur snið kennari salur
09:00 09:40 grunnþættir þjálfunar bókl Guðmundur ÍSÍ
09:40 10:20 grunnþættir þjálfunar bókl Guðmundur ÍSÍ
10:20 10:40 hlé
10:40 11:20 líkamsbeyting og mótttaka bókl Guðmundur ÍSÍ
11:20 12:20 áhaldahringir bókl Guðmundur ÍSÍ
12:20 13:00 hádegi
13:00 14:00 hádegi
14:00 14:40 tónlist hreyfing bókl sesselja Björk
14:40 15:20 tónlist hreyfing verkl sesselja Björk
15:30 16:00 tónlist hreyfing verkl hildur ketils Björk
16:00 17:00 tónlist hreyfing verkl hildur ketils Björk
sunnudagur snið kennari salur
09:00 09:40 líkamsbeyting verkl hlín Gerpla
09:40 10:20 mótttaka verkl vippen jimmy Gerpla
10:20 11:00 mótttaka verkl vippen jimmy Gerpla
11:00 12:00 mótttaka verkl vippen jimmy Gerpla
12:00 13:00 hádegi
13:00 13:40 Sýningar bókl hlín Gerpla
13:40 14:20 Sýningar bókl hlín Gerpla
14:20 14:40 hlé
14:40 15:20 samskipti bókl hlín Gerpla
15:20 16:00 samskipti bókl hlín Gerpla

Þátttakendur eru minntir á að fullrar þáttöku er krafist í öllum hlutum námskeiðsins til að ljúka námskeiðinu. Vinsamlegast mætið tímanlega með skriffæri og möppur af 1A þeir sem hafa fengið þær.
Í verklegum tímum er nauðsynlegt að vera í íþróttafötum og taka þátt í því sem fer þar fram.
Fræðslunefnd FSÍ


Gymnova þrepamót FSÍ
12/2/06
*

Gymnova Þrepamót FSÍ fór fram um helgina. Þar mátti sjá fjölmarga iðkendur gera sínar bestu æfingar fyrir framan dómara, aðra keppendur og forelda sem fjölmenntu á mótið. Eins og sjá má á meðfylgjandi úrslitum er dreifing verðlauna nokkuð góð og er það góður vitnisburður um öflugt starf í fimleikafélögum um allt land. 
2. Þrep stúlkur 11-13 ára
2. Þrep stúlkur 14 ára og eldri
3. Þrep stúlkur 11-13 ára

3. Þrep stúlkur 14 ára og eldri
4. Þrep stúlkur 10 ára
4. Þrep stúlkur 11 ára
4. Þrep stúlkur 12 ára

4. Þrep stúlkur 13 ára og eldri
5. Þrep stúlkur 9 ára

5. Þrep stúlkur 10 ára
5. Þrep stúlkur 11 ára
5. Þrep stúlkur 12 ára og eldri

Bikarmót í Hópfimleikum 2006
12/2/06
*

Bikarmót FSÍ í Hópfimleikum 2006 fór fram nú um helgina. Þar voru saman komin öll sterkustu hópfimleikalið landsins. Bikarmeistarar 2006 er hópur P-1 úr Íþróttafélaginu Gerplu í Kópavogi með 24,4 stig. Í öðru sæti varð Grótta á Seltjarnarnesi með 22,2 stig og í þriðja sæti varð Fylkir í Reykjavík með 21,55 stig. Árangur Fylkis er eftirtektarverður enda besti árangur félagsins á hópfimleikamóti til þessa. Að sögn Jóhannesar Níels Sigurðssonar, þjálfara Fylkis, kom þessi árangur þeim öllum skemmtilega á óvart en eftir að einn af fremstu keppendum í hópnum meiddist í upphitun var ákveðið að allt skyldi lagt í sölurnar enda enn meiri pressa á hópinn að standa sig eftir miklar æfingar á undanförnum misserum sem nú hafa skilað hópnum þriðja sæti á bikarmóti. Auk Jóhannesar eru þjálfarar hópsins Þorbjörg Gísladóttir og Rebekka Guðrún Rúnarsdóttir sem einnig voru mjög ánægðar með árangurinn.


Bikarmeistarar í Hópfimleikum 2006, P1 úr Gerplu ásamt þjálfurum sínum þeim Kim Per Hauberg Fischer, Dorthe Camilla Jensen og Birni Björnssyni.


Glæsilegar ljósmyndir
- Guðjón Einar Guðmundsson -

12/2/06
*

Sigríður Jónsdóttir, varaforseti ÍSÍ, sagði eftir vígslusýningu Íþróttamiðstöðvarinnar að Versölum í Kópavogi að horfa á fimleika fengi áhorfandan til að hugsa hver væru mörk íþróttar og listgreinar. Guðjón Einar Guðmundsson hefur með þessum myndum líklega náð að festa á mynd það sem Sigríður Jónsdóttir átti við. Myndirnar þrjár af vígslusýningunni sýna listgreinina fimleika með eftirminnanlegum hætti. Guðjón Einar hefur náð góðum tökum á ljósmyndun fimleikaæfinga. Á heimasíðu hans má sjá flottar myndir sem vert er að skoða nánar. Sjá hér.

Fríða Rún Einarsdóttir í glæsilegu opnunaratriði á vígslusýningu Íþróttamiðstövarinnar að Versölum í janúar 2006.

Á fimleikasýingum spilar lýsing stórt hlutverk og getur allt eins verið flott að fylgjast með skugganum eins og fimleikamanninum sjálfum.


Dýri Kristjánsson í opnunarsýningu Gerplu í janúar 2006.

 

Ásdís Guðmundsdóttir á trampolíni í Hópfimleikum í febrúar 2006.


Dómaranámskeið

 

2/2/06

Þessa dagana er mikið um að vera hjá FSÍ þar sem fram fara dómaranámskeið í áhaldafimleikum karla og kvenna vegna nýrra alþjóðlegra dómarareglna sem kynntar hafa verið af FIG. Agneta Göthberg fimleikadómari frá Svíþjóð fyrrverandi varaformaður tækninefndar kvenna hjá Alþjóða fimleikasambandinu (FIG) stendur fyrir alþjóðlegu dómaranámskeið dagana 2., 3., 4. og 5. febrúar um nýjar reglur sem dæmt verður eftir áhaldafimleikum kvenna. Henni til aðstoðar er Berglind Pétursdóttir. Í þessari viku stendur Tækninefnd karla fyrir undirbúningsnámskeiði í nýju alþjóðlegu dómarareglunum. Tom Tingvold frá Noregi mun svo koma hingað til langs og standa fyrir alþjóðlegu dómaranámskeiði 23. - 26. febrúar n.k. en þar mun Guðmundur Þór Brynjólfsson og Björn Magnús Tómasson aðstoða við framkvæmd námskeiðsins.


Byrjendamót Selfoss í hópfimleikum 4. mars

 

1/2/06

Fimleikadeild Selfoss ætlar að halda byrjendamót í hópfimleikum laugardaginn 4.mars en það er sama dag og félagið heldur Unglingamót FSÍ í hópfimleikum. Áætlað er að upphitun hefjist klukkan 9:00 um morguninn og keppni hefjist klukkan 10:00 Áætlað er að mótslok verði um klukkan 11:30 en það fer eftir fjölda liða. Keppt verður eftir byrjendareglum með þeirri breytingu að liðin mega gera eina umferð á hesti og eina á trampólíni. Yfirslag gildir þá jafnmikið og strekkt heljarstökk á trampólíni. Mótið verður aldursskipt ef næg þátttaka verður. Skráning nafnalista þarf að berast fyrir miðvikudaginn 22.febrúar á netfangið olgu@simnet.is. Stökklista skal koma með á mótsstað í 3 eintökum. Ef liðum vantar eyðublöð og/eða reglur er hægt að senda póst á olgu@simnet.is. Mótagjald eru krónur 12.000 á lið og skal þátttökulið tilkynna einn dómara. Keppt er á fiberglass stökkgólfi. Vonumst til að sjá sem flesta.
Fimleikadeild Umf.Selfoss

 



Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.