Heimsókn í Gerplu
28/2/05


Þátttakendur á NM frá Danmörku

 

28/2/05
Um helgina var valið hvaða keppendur frá Danmörku keppa á Norðurlandamóti í hópfimleikum sem fram fer á Íslandi innan nokkurra vikna. Liðin eru sem hér segir:
Kvennaflokki: Rødovre og Bolbro. Karlaflokki: Hulby Slagelse (European Champions 2004) og Silkeborg. Blandað: Rødovre (European Champions 2004) og Randers.

Flott myndband

 

26/2/05

Greinilega eru fimleikarnir góður undirbúningur fyrir ólíklegustu íþróttir en meðfylgjandi myndband er af breakdans-keppni eða sýningu. Ljóst er að dansarinn hefur bæði grunn úr fimleikum og ágætis líkamsbyggingu.
Myndbandið er fengið af heimasíðunni: Hugi.is Háhraði

Smellið á myndina og þá birtist myndbandið.


Páskamót Bjarkanna

 

26/2/05

Mánudaginn 21. mars verður haldið Páskamót Bjarkanna í hópfimleikum. Keppt verður í byrjenda og yngriflokkum og stuðst við byrjendareglur og yngriflokkareglur FSÍ. Þetta er frábært tækifæri fyrir lið til að æfa sig að keppa og koma fram þar sem lítið er um mót á þessum tíma.
Veitt verða verðlaun fyrir 1. 2. og 3. sæti í hvorum flokki fyrir sig ef þátttaka er næg, annars einungis fyrir 1. sæti. Keppt verður á fiberglass braut og 12 x 12 dansgólfi. Stökkborð og hestur eru til staðar.
Mótagjald er 1.000 kr. á keppanda og greiðist á mótsstað eða inn á reikning 1101-26-9384 kt: 060581-4019. Undanþága er veitt fyrir fleiri en 12 keppendur og sendist inn með þátttökutilkynningu. Stökklistar og dansblöð skilist fjölfaldaðir þegar mætt er á mótið. Hvert félag sendir 2 dómara á lið og 3 á 2 lið.
Hægt er að bjóða upp á ódýra gistingu fyrir lið utan af landi. Þátttökutilkynningar berist fyrir 4.mars - helgaol@hi.is Frekari upplýsingar í síma: Helga Svana: s: 868-5344 Hildur: s: 849-0977


Flottar myndir af hópfimleikum
26/2/05


Ánægður hópur frá Selfossi.


Hressar stelpur úr Gerplu.

Þorramót FSÍ
25/2/05


Sif Pálsdóttir

Nú í kvöld fór fram Þorramót FSÍ þar sem keppt var í frjálsum æfingum í eldri og yngri flokk karla og kvenna. Eins og við var að búast þá var hörð keppni í kvennaflokki en í eldri flokk sigraði Sif Pálsdóttir úr Gróttu með 32,475 stig en í yngri flokki sigraði Kristjana Sæunn Ólafsdóttir Gerplu með 32,150. Skemmst er að minnast þess að Kristjana Sæunn sigraði á Íslandsmóti í áhaldafimleikum í fyrra og rauf þar með sigurgöngu Sifjar til margra ára. Af keppni kvöldsins að dæma þá er ljóst að ekkert verður gefið eftir á Íslandsmótinu eftir nokkrar vikur og spennandi að sjá hver úrslitin verða þá.

Kristjana Sæunn Ólafsdóttir.
Í karla flokki sigraði Anton Heiðar Þórólfsson í eldri flokk með 43,046 og í yngri flokki sigraði Bjarki Ásgeirsson með 40,313, báðir úr Ármanni. Í piltaflokkinn vantaði nokkuð af sterkum keppendum svo sem Jónas Valgeirsson, Dýra Kristjánsson, Viktor Kristmannson og Rúnar Alexandersson.

UMSK heiðrar fimleikafólk
25/2/05

Á ársþingi UMSK fékk fimleikafólk mikið af viðurkenningum. Ber þar hæst að Rúnar Alexandersson úr Gerplu fékk Afreiksbikar UMSK en skemmst er að minnast framúrskarandi árangurs hans á Ólympíuleikunum sl. sumar. Þá fékk meistarahópur Stjörnunnar í Garðabæ fimleikabikar UMSK en sigur bæði á Íslands- og Bikarmóti auk 4. sætis á Evrópumóti er til marks um góðan árangur. Þá má nefna að Jón Finnbogason varaformaður Gerplu fékk starfsmerki UMSK. Anna Möller framkvæmdastjóri FSÍ fékk Silfurmerki UMSK en hún hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir samtökin á undanförnum áratugum.
Bæði Jón Finnbogason og Anna Möller eru í Landsmótsnefnd fyrir Landsmót UMFÍ í Kópavogi 2007.


Valdimar L. Friðriksson formaður UMSK afhendir Guðmundi Þór Brynjólfssyni Afreksbikar UMSK fyrir hönd Rúnars Alexanderssonar.


Hópur Stjörnunnar í hópfimleikum fær afhentan Fimleikabikar UMSK.


Jón Finnbogason fær afhent starfsmerki UMSK.

Anna Möller fær afhent Silfurmerki UMSK.

Íslandsmót í almennum fimleikum
25/2/05

Eins og sagt var frá fyrr í mánuðinum þá fór fram Íslandsmót í almennum fimleikum í Vestmannaeyjum í byrjun febrúar. Mótið heppnaðist mjög vel og hér má sjá nokkrar myndir. Sjá hér.

Linda Ósk Þorvaldsdóttir frá Selfossi varð Íslandsmeistari í 5. þrepi á mótinu. Á meðfylgjandi myndbandi má sjá æfingar hennar á mótinu. Flott úrfærsla hjá Lindu Ósk. Sjá myndband hér.


Byrjendamót Þórs, Þorlákshöfn í hópfimleikum
25/2/05

Verður haldið í íþróttamiðstöð Þorlákshafnar, sunnudaginn 3. apríl 2005. Þátttökugjald er 10.000 kr á lið + einn dómari (eða 2.000 kr). Keppt verður í dansi, á loftgólfi eða stökkgólfi og í trampólínstökki. Síðasti skráningadagur er 19. mars. Stökklistum þarf að skila fyrir 26. mars. Nánari upplýsingar og skráning hjá Evu Harðardóttur sími 846-7299 eða evahar@hi.is
Stjórn Fimleikadeildar Þórs


Hreyfiland
- spennandi heimur -
22/2/05

Einstök og skemmtileg leikfimi fyrir börn frá fósturskeiði til sex ára aldurs, með þátttöku móður/foreldra til þriggja ára aldurs fara fram í Hreyfilandi. Óhætt er að segja að sú aðstaða sem upp er komin hjá þeim er mjög áhugaverð.
Dansnámskeið fyrir þig ...
Í hreyfilandi er einnig boðið upp á skemmtileg dansnámskeið. Ef þú ert ein af þeim sem hefur alltaf langað til að dansa og hefur það í þér eða varst í jazzballett og langar að halda áfram. Þá er þetta námskeiðið fyrir þig!!
Sjá nánar hér.


Fimleikahátíð á Kanarí
20. - 25. nóvember 2005

 

22/2/05

"Golden Age" fimleikahátíð verður haldin á Kanarí dagana 20 - 25 nóvember 2005. Hátíðin er sú fyrsta sem haldin er og eins og nafnið ber með sér ( Gullnu árin) er hátíðin fyrir 50 ára og eldri.
Almenna nefnd Fimleikasambands Evrópu hefur sett þessa hátíð af stað af mörgum ástæðum. Almennir Fimleikar er svið nefndarinnar, og hjá mörgum þjóðum óplægður akur.
Evrópubúar á nýrri öld eru hressari og hafa gaman af að koma saman, sýna menningu síns lands, kynna sér menningu annara þjóða, taka þátt í vinnuhópum, sýningum og fyrirlestrum sem eru sérhæfir fyrir þennan aldur. Fimleikasamband Íslands býður þeim sem hafa áhuga á að kynna sér málið að hafa samband við skrifstofu FSÍ / eða Birnu sem gefur allar upplýsingar S: 5571545 fyrir 15.mars 2005.


Innanfélagmót hjá Björk
22/2/05


Náð þrepum FSÍ

 

22/2/05

Listi yfir þá sem hafa náð þrepum FSÍ.


Olís-Gullinbrúarmótið
22/2/05

Sunnudaginn 23. janúar hélt Fimleikadeild Fjölnis Olís-Gullinbrúarmótið en það var fyrsta millifélagamót sem deildin heldur. Var Fylki boðið til keppni en keppt var í 5.- og 6.þrepi Íslenska fimleikastigans. Dagurinn heppnaðist vel í alla staði og stóðu sig allir með prýði.
Í 5-Þrepi voru 24 keppendur sem voru í 5 liðum. Þrjú lið frá Fjölni (14 keppendur) og tvö frá Fylki(10 keppendur).
Í 6-Þrepi vour 44 keppendur sem voru í 8liðum. Það voru 6 lið frá Fjölni (32 keppendur) og 2 frá Fylki (12 keppendur).


Fjör í Fylkishöllinni
- flottur fimleikadans frá þjálfurum deildarinnar -
22/2/05

Góugleð Fylkis fór fram um síðustu helgi en það er hátíð kvenna í Fylki. Rúmlega 200 konur skemmtu sér vel. Ingibjörg Sólrún var ræðumaður kvöldsins og stóð hún sig frábærlega vel. Fjölmörg skemmtiatriði voru um kvöldið og má þar nefna danssýningu fimleikakennara, tískusýningu meistaraflokks kvenna, sjóðheitur riverdans og persónulegi trúbadorinn.
Sjá nánar hér www.fylkir.com


Flottur hópur fimleikaþjálfara hjá Fylki en stelpurnar voru með glæsilegt dansatriði á hátíðinni.


Unglingamót í hópfimleikum
- fjölmennt mót og björt framtíðin -
20/2/05

Unglingamót í hópfimleikum fór fram nú um helgina og voru þátttakendur að þessu sinni fleiri en nokkru sinni fyrr á unglingamót eða 18 keppnishópar. Keppt var í yngri og mið aldursflokk og sigruðu hópar frá Íþróttafélaginu Gerplu í báðum aldursflokkum.
Að sögn Hlínar Benediktsdóttur, í tækninefnd í hópfimleikum, var mótið í senn spennandi og skemmtilegt. Að hennar sögn þá gefur þetta mót góða vísbendingu um þá miklu fjölgun sem átt hefur sér stað í hópfimleikum á undanförnum árum. Það er því ánægjulegt að sjá 11 hópa keppa í miðaldursflokki þar sem stúlkurnar eru á þeim aldri að brottfall úr íþróttinni er sem mest. Keppnin er einnig að verða harðari sem mun örugglega þýða að á næstu árum verða nokkur lið sem munu gera tilkall til Íslandsmeistaratitilsins. Framtíðin er því björt að mati Hlínar.


Þáttakendur voru fleiri á unglinamótinu en áður hefur þekkst.


Mót FSÍ til vors

 

20/2/05

25. febrúar – Þorramót í áhaldafimleikum
Á Þorramóti er keppt í frjálsum æfingum karla og kvenna þ.e. í meistarflokkum. Keppt er í fjölþraut þ.e. fyrir samanlagðan árangur á 4 áhöldum í kvennaflokki og 6 í karlaflokki. Mótið fer fram í Íþróttamiðstöðinn Björk.


Stjörnutromp

 

13/2/05

Stjörnutromp í hópfimleikum fór fram sunnudaginn 13. febrúar í íþróttahúsi Ásgarðs í Garðabæ. Á mótinu kepptu 21 lið frá 8 fimleikafélögum en mótið fór fram í tveimur hlutum. Í fyrrihluta var keppt í flokki byrjenda og yngri hópa. Í fyrsta sæti í flokki byrjenda sigraði hópur Björk I2 með 22,16 stig. Í flokki yngri hópa sigraði Grótta T2 með 18,35 stig. Í seinnihluta mótsins var keppt í miðflokki og eldri. Í miðflokki sigraði Björk 1 H með 21,55 stig. Í Eldri flokki sigraði hópur Stjörnunnar T1 með 22,9 stig en undanfarin ár hefur hópurinn verið mjög sigursæll. T1 hópur Stjörnunnar kom fram að nokkru leyti breyttur frá því í fyrra þar sem sjá mátti að vantaði nokkra sterka keppendur sem hafa sett svip sinn á hópinn á undanförnum mótum. Það verður spennandi að sjá hvort að T1 hópurinn nái að halda sigurgöngu sinni áfram nú í vetur líkt og í fyrra.


Innanfélagsmót Gerplu
12/2/05

Innanfélagsmót Íþróttafélagsins Gerplu hefur nú farið fram. Í stúlknaflokki var keppt í 5., 4., 3., 2. og 1. þrepi auk frjálsra æfinga. Í piltaflokki var keppt í 1. þrepi og frálsum æfingum. Útlit er fyrir að nú hafi farið fram síðasta innanfélagsmót í húsnæði félagsins að Skemmuvegi 6 þar sem gert er ráð fyrir að félagið flytji starfssemi sína í nýtt og glæsilegt húsnæði í Salahverfi í Kópavogi næsta haust en íþróttasalurinn þar er sá stærsti á landinu þar sem hann er um 2400 fermetrar að stærð. Úrslit á mótinu: stúlkur og piltar


Gerplumeistarar í hverjum flokk fyrir sig: neðri röð frá vinstri: Rakel Tómasdóttir, Linda Björk Árnadóttir, Sara Glóð Jónsdóttir, Thelma Rut Hermannsdóttir. Efri röð frá vinstri Róbert Kristmannsson, Harpa Dögg Steinsdórsdóttir, Kristjana Sæunn Ólafsdóttir og Hlynur Kristjánsson.


Glæsilegt fimleikamót í Vestmannaeyjum
12/2/05

Helgina 5. – 6. febrúar hélt Fimleikafélagið Rán Vestmannaeyjum Íslandsmót FSÍ í almennum fimleikum og Meistaramót í almennum fimleikum. Alls kepptu 225 börn og unglingar á mótinu alls staðar af landinu. Mótið er einstaklingskeppni, keppt er á trampólíni, stökki yfir hest, dýnustökki og í gólfæfingum (dansi). Á laugardeginum var Íslandsmót þar sem keppt er í þrepum eftir aldri en á sunnudeginum var Meistaramót FSÍ þar sem 10 efstu í hverju þrepi á Íslandsmóti keppa óháð aldri.
Sunnlensk félög, Fimleikadeild Umf. Selfoss, Hamars, Þórs og Umf. Laugdæla og Fimleikafélagið Rán Vestmannaeyjum, áttu marga keppendur á mótinu og gaman er að sjá hina miklu grósku sem eru í fimleikum á Suðurlandi en dyggur hópur stuðningsmanna fylgdi öllum liðunum. Frá Umf. Selfoss fóru um 30 keppendur, 6 þjálfara og 40 stuðningsmenn sem stóð saman af foreldrum og systkynum. Á laugardagskvöldinu var svo kvöldvaka fyrir þátttakendur sem heppnaðist mjög vel. Mótshaldarar eiga hrós skilið fyrir gott skipulag og skemmtilega upplifun fyrir þátttakendur og aðra gesti.


Ragnar Ingi og Hermann Ágúst ánægðir eftir góðan árangur á mótinu. Fleiri myndir hér.
Úrslit á mótinu hér.
1. þrep piltar allur aldur
2. og 3. þrep pilta
2. þrep úrslit
3. þrep allur aldur
4. þrep allur aldur
5. þrep úrslit
Meistaramót 05 alm útreikningur


 

Fimleikadeild Stjörnunnar
óskar eftir þjálfurum

8/2/05

Fimleikadeild Stjörnunar óskar eftir góðum þjálfara í áhaldafimleikum til að taka yfir hóp F2 frá og með 1. mars næstkomandi. Um er að ræða 16 stelpur 8 ára og eldri, sem eru í 2., 4. og 5. þrepi.
Vegna forfalla og miklar fjölgunar iðkenda vantar einnig aðstoðarþjálfara sem fyrst. Áhugasamir vinsamlega sendið tölvupóst á fimleikar@gardabaer.is eða hafið samband við Þóru í gsm. 698 –7721.
Staða yfirþjálfara.
Fimleikadeild Stjörnunnar óskar eftir að ráða yfirþjálfara til starfa fyrir næsta vetur. Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu af þjálfun og uppbyggingu æfinga. Yfirþjálfari mun m.a. hafa yfirumsjón með þjálfun allra hópa og eftirlit með þjálfun annarra þjálfara, aðstoða þjálfara við undirbúning æfinga, gerð æfingarplana og markmiðssetningu.
Áhugasamir vinsamlega sendið tölvupóst á fimleikar@gardabaer.is eða hafið samband við Þóru í gsm. 698 –7721.


 

Byrjendamót í hópfimleikum

8/2/05

Byrjendamót Þórs, Þorlákshöfn í hópfimelikum Verður haldið í íþróttamiðstöð Þorlákshafnar laugardaginn 5. mars 2005. Þátttökugjald er 10.000 kr á lið + einn dómari (eða 2000 kr) Keppt verður í dansi, á loftgólfi eða stökkgólfi og í trampólínstökki. Síðasti skráningadagur er 19.febrúar. Stökklistum þarf að skila fyrir 26. mars. Nánari upplýsingar og skráning hjá Evu Harðardóttur sími 8467299 eða evahar@hi.is
Stjórn Fimleikadeildar Þórs
---
Tilkynning frá FSÍ: Vinsamlega athugið að byrjendamót það sem Þór í Þorlákshöfn hafði kynnt verður frestað um óákveðinn tíma vegna Bikarmóts FSÍ í hópfimleikum.


 

Byrjendamót í hópfimleikum

8/2/05

Laugardginn 26. febrúar heldur Fimleikadeild Hamars “MINI” Trompmót. Mótið verður tvískipt. Í fyrri hluta keppa þeir sem eru algerir byrjendur og geta t.d. mest heljarstökk á trampólíni og arabastökk á dýnu. Ekki eru veitt verðlaun í fyrri hluta, aðeins viðurkenningar. Ekki er keppt í dansi í fyrri hluta, aðeins dýnu og trampólíni. Í seinni hluta keppa þeir sem eru aðeins lengra komnir og er þá dansinn tekinn inn í stigafjöldann. Sjá nánar hér.


 

Fimleikahátíð á Spáni

8/2/05

fimleikar.is hafa fengið áhugaverða fréttatilkynningu um fimleikahátíð á Spáni. Sjá hér að neðan:

The General Gymnastics Association (AGG) wants to inform you about the new Catalonia Gymnastics Festival 2005 in the city of Blanes, the Costa Brava, one of the most beautiful places around the Mediterranean Sea, in Catalonia, Spain, from the 25th of June to the 1st of July of 2005. A Festival to share the best time with the other participant gymnasts and also with the kindness of Blanes people. You’ll have the opportunity to taste the Mediterranean and Catalan food, considered one of the best diets in the world. Blanes is also a great place for night and day entertainments and You’ll also have the opportunity to perform at the beautiful sea walk, just next to the fantastic beach!!. All participating teams will have plenty of time to organize day-long visits to the Olympic city of Barcelona, the popular theme park of Port Aventura, some water parks near the city, the Blanes or Costa Brava's beaches or other interesting places around Blanes and Catalonia. We send you a files for information and inscription if you finally decide to take part in our International Gymnastic Festival: Details – Catalonia Gym Fest 05 .doc: Details information about the prices, inscription, hotels, etc. For more information, details, suggestion or whatever you want to know, please contact with us at catgymfest@ctv.es And visit the Web Page for news and information about blanes, the country of Catalonia, the hotels, etc. At http://www.catgymfest05.org We hope to see you on summer performing in the Catalonia Gym Fest ’05.
The President of AGG,
Manel Pérez Coronas.


 

Sænska fimleikasambandið hefur valið
keppendur á norðurlandamótið í hópfimleikum

7/2/05

Um helgina fór fram mót í Svíþjóð í hópfimleikum sem notað verður til að velja keppendur frá Svíþjóð á Norðurlandamót í hópfimleikum sem fram fer á íslandi nú á vormánuðum. Í karlaflokki sigruðu KFUM Stockholm (25,75) og í örðu sæti varð Brommagymnasterna (25,5). Í kvennaflokki sigraði Stockholm Top Gymnastics (25,45) og í öðru sæti varð GK Motus Salto (24,75). Þessi lið munu taka þátt fyrir hönd Svíþjóðar. Sjá nánar: www.kampinge.com. Gaman er að sjá ótrúlega flottar æfingar hjá karlaflokknum (KFUM og BrommaHerr hér að neðan). Við þetta tækifæri er rétt að hvetja sérstaklega alla pilta sem æfa fimleika á íslandi að taka frá helgina 9. og 10. apríl og mæta á norðurlandamótið og sjá með eigin augum frændur okkar frá hinum norðurlöndunum framkvæma þessar glæsilegu æfingar.
Æfingar á Video: Sjá BrommaDam.wmv 8.85 mb.
Æfingar á Video: Sjá BrommaHerr.wmv 9.41 mb.
Æfingar á Video: Sjá MotusMix.wmv 8.00 mb.
Æfingar á Video: Sjá KFUM.wmv 8.39 mb.
Æfingar á Video: Sjá Vasteras.wmv 8.44 mb.
Æfingar á Video: Sjá STG.wmv 10.6 mb.
Æfingar á Video: Sjá MotusDam.wmv 9.27 mb.
Æfingar á Video: Sjá Kampinge.wmv 8.63 mb.
Fleiri myndbönd á síðunni www.punktus.nu/akro


 

Garpamót Gerplu og GK

24/1/05
Myndir hér


Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.