Gerpla og Grótta Bikarmeistarar í frjálsum æfingum
[28/02/2004] JF
Íþróttafélagið Gerpla varð bikarmeistari í fjálsum æfingum karla og Grótta í frjálsum æfingum kvenna á Bikarmóti FSÍ sem fór fram í dag, laugardag. Úrslit karla hér og úrslit kvenna hér.
Samhliða Bikarmótinu fór fram Þorramót FSÍ og var keppt í eldri og yngir flokk karla og kvenna. Í eldri flokka karla sigraði Rúnar Alexandersson úr Gerplu með 50,17 stig og í yngri flokk sigraði Bjarki Ásgeirsson úr Ármanni með 40,62 stig. Í eldri flokk kvenna sigraði Inga Rós Gunnarsdóttir úr Gerplu með 32,195 stig og í yngri flokk sigraði Kristjana Sæunn Ólafsdóttir úr Gerplu með 30,975 stig.
Mótið byrjaði kl. 14:00 og lauk keppni rétt fyrir kl. 18:00. Vonandi verður skipulag næsta móts þannig að keppni gangi hratt og vel fyrir sig en taki ekki hátt í fjóra klst.
Umfjöllun um Bikarmót FSÍ í fyrra hér.
Umfjöllun um Þorramóti FSÍ í fyrra hér.
Myndir hér

Rúnar Alexandersson úr Gerplu í æfingum á tvíslá.
585 myndir hér

Berglindi Pétursdóttur boðið að dæma á ÓL
[25/02/2004] JF
Tækninefnd kvenna í áhaldafimleikum hjá Alþjóða fimleikasambandinu (FIG) hefur boðið Berglindi Pétursdóttur að dæma á Ólympíuleikunum í Grikklandi. Þetta er í fyrsta skiptið sem íslenskur dómari í fimleikum fær boð frá FIG um að dæma á Ólympíuleikum og einnig í fyrsta skiptið sem Ísland á fulltrúa í dómarasæti í fimleikum kvenna á Ólympíuleikum. Að auki hefur FIG boðið Berglindi að vera yfirdómari á gólfi á Evrópumótinu í áhaldafimleikum kvenna sem fram fer í Hollandi í lok apríl. Þetta er mjög mikill heiður fyrir Berglindi og ótvíræð viðurkenning á hennar dómarastörfum. Staðfestir þetta að hún er komin í hóp fremstu fimleikadómara í heiminum í dag. Óskum við á www.fimleikar.is henni innilega til hamingju með þennan mikla heiður.
Meira


Tækninefnd kvenna afhenti Berglindi blóm í tilefni af þessum ánægjulegu fréttum.
Berglindi hefur nú verið sýndur mikill heiður af FIG og er það staðfesting á því að hún er dómari á heimsmælikvarða.

Stjarnan bikarmeistarar í hópfimeikum
[25/02/2004] JF
Stjarnan sigraði á Bikarmóti FSÍ í hópfimleikum sem fram fór í dag. Gerpla P1 varð í öðru sæti og Grótta í þriðja sæti. Úrslitin komi í sjálfum sér ekki á óvart.
meira
Myndir hér


Keppendur frá Gerplu sigursælastir á þrepamóti FSÍ

Myndir hér

Úrslit á þrepamóti FSÍ. Íþróttafélagið Gerpla á afgerandi flesta keppendur á verðlaunapalli á mótinu, samtals 27, en næst koma keppendur úr Ármanni með 11 verðlaun.
Er hér aðeins um að ræða verðlaun í samanlögðu í hverjum keppnishóp. Einnig voru veitt verðlaun á hverju áháldi (1., 2. og 3. sæti á gólfi, stökki, tvíslá og slá í stúlknaflokki og á gólfi, bogahesti, hringjum, stökki, tvíslá og svifrá) en samtals eru það nokkur hundruð verðlaun.
Um helgina 15. og 16. febrúar fór fram þrepamót í íslenska fimleikastiganum en þar tóku þátt um 250 keppendur.
Úrslit eru hér.
Þegar úrslit mótsins eru skoðuð nánar kemur í ljós að keppendur úr Íþróttafélaginu Gerplu voru langsamlega sigursælastir en þeir náðu rétt innan við helming allra verðlauna í samanlögðu.
Gerpla sigraði í 5 keppnisflokkum pilta og deildi sigri með Ármanni í einum flokki og sigraði í 6 keppnisflokkum stúlkna af samtals 18 flokkum í pilta og stúlkankeppni.

Unnur Ósk Rúnarsdóttir úr Gerplu keppti í 1. þrepi og hlaut 7,95 stig fyrir æfingar á slá.
Um 600 myndir hér
Umfjöllun um sama mót í fyrra.

Íslandsmót í almennum fimleikum

Myndir hér
[8/02/2004

Um helgina fór fram Íslandsmót og Meistaramót í almennum fimleikum. Mótin voru fjölmenn en meðfylgandi myndir eru frá fyrrihluta Íslandsmótsins. Úrslit hér:
2. þrep, 3. þrep, 4. og 5. þrep, (viðbót). Meistaramót

Innanfélagsmót Gerplu

myndir hér
[8/02/2004

Meðfylgjandi 692 myndir voru teknar á innanfélagsmóti Gerplu sem fram fór í dag.

Ársþing Fimleikasambands Íslands

[4/02/2004]

Ársþing Fimleikasambands Íslands var h

aldið s.l. laugardag 31. janúar í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Velta FSÍ jókst á stjórnartímabilinu úr kr. 15millj. árið 2001 í kr. 40millj. árið 2003. Stærsti þátturinn í þessari stórauknu veltu eru stórverkefn árins 2003, Gymnaestrada alþjóðlega fimleikahátíðn sem haldin var í Lissabon s.l. sumar en þar tóku 170 mann þátt og þátttaka á Heimsmeistaramótinu í áhaldafimleikum sem haldið var í Anaheim í USA í ágúst sl. en þangað voru í fyrsta sinn send lið bæði í karla- og kvennaflokki. Þá hefur Útbreiðslustyrkur og Lottógreiðslur frá ÍSÍ stóraukist á tímabilinu en þing FSÍ er haldið á tveggja ár fresti.
Þingið var fjölmennt og umræður voru málefnalegar. Stjórn sambandsins var endurkjörinn en formaður FSÍ er Gunnar Einarsson.


Gunnar Einarsson, formaður FSÍ, ávarpar gesti á aðalfundi FSÍ um síðustu helgi og Anna Möller framkvæmdastjóri FSÍ.

Stjörnutromp

[1/02/2004] JF
Myndir hér hér hér Úrslit hér

Mikil spenna ríkir alltaf í loftinu þegar keppendur mæta til leiks á hið árlega Stjörnutromp-mót en mótið er ávallt fyrsta mót ársins og gefur því tóninn um hvað búast má við á aðalmótum vetrarins, Íslands- og Bikarmóti FSÍ.
Að þessu sinni tóku 18 lið þátt í mótinu sem fór fram í þremur hlutum. Mótið var skemmtilegt og skipulagning þess góð. Ljóst er að stöðugur vöxtur er í fjölda iðkenda hópfimleika og einnig eru æfingar hópanna stöðugt að verða erfiðari og betur útfærðar. Eru dæmi um að iðkendur sem geta gert tvöfallt heljarstökk í dýnustökki komast ekki í keppnishóp hjá bestu hópunum. Er það gott dæmi um hversu hörð keppnin er að verða í þessari grein.
Í byrjendahóp tóku 6 lið þátt og sigraði Gerpla P5 með 23,6 stig og í öðru sæti varð Ármann og Gerpla P4 í þriðja sæti.
Í yngri hóp tóku 5 lið þátt og sigraði Gerpla P2 með 22,75 stig og í öðru sæti varð Selfoss T2 og Keflavík í þriðja sæti.
Í mið hóp tóku 3 lið þátt og sigraði Björk M með 21,6 stig og í öðru sæti varð Gerpla M og Selfoss T1 í þriðja sæti.
Í eldri hóp tóku 4 lið þátt og sigraði Stjarnan E með 23,75 stig og í öðru sæti varð Gerpla E og Grótta E í þriðja sæti.

Myndir hér (um 500 stk) hér (um 80 stk (seinni hluti)) hér (568 stk (seinni hluti)). Úrslit hér.


Eldri hópur Stjörnunnar sýndi mikla yfirburði á hinu árlega Stjörnutrompmóti sem haldið var í dag (1.2.2004) þrátt fyrir aðeins 0,55 stiga sigur á liði Gerplu sem stóð sig mjög vel. Ljóst er að mikið þarf til að koma til þess hópur Stjönunnar sigri ekki á n.k.Bikar- og Íslandsmóti.


Eldri hópur Gróttu á gólfi.




Allar myndir © www.fimleikar.is
Óheimilt er að afrita myndir eða annað efni á síðunni að hluta til eða í heild án leyfis.
Fimleikar ehf.




 


Smáauglýsing
Fimleikafélög geta fengið að birta smáauglýsingar ef þeim vantar tiltekin áhöld, þjálfara eða hvað sem er.


Hera Jóhannesdóttir í Gróttu segir okkur frá Ólympíuhátið Evrópuæskunnar hér.

Frá iðkendum
Sumarbúðir á Ítalíu

Bjarki Ásgeirsson úr Ármanni fór í sumarbúðir á Ítalíu í sumar og segir okkur frá því hér.

Leikir

Leikir:
http://trampoline.lapoo.nl/
http://www.batman.is/ut/25756

Gymnaestrada, dagbók

4) Í dag eru búnar að vera 2 mjög velheppnaðar sýningar sem voru fyrir fullum sölum og fengum við góðar viðtökur. Norræna kvöldið í gær var ... nánar
3) Í dag er stór dagur Norræna kvöldið er í kvöld og eru æfingar fyrir það í allan dag. ..... nánar
2) Opnunarhátíðin á sunnudag var skemmtileg sérstaklega á meðan beðið var eftir því að fara inn á völlinn. ... nánar

1) Þá er fyrsti alvörudagurinn næstum að kvöldi kominn. Fyrstu alvöru æfingarnar voru í dag í höllunum. ......
nánar
Meira (síðast uppfærð 24/7)