| Fimleikadeild
Fylkis vill bjóða til móts í hópfimleikum
sunnudaginn 20. janúar. Nánari tímasetning
verður send út þegar nær dregur. Mótið
verður haldið í Fylkishöllinni. Keppt
verður eftir byrjendareglum í hópfimleikum.
(þe. 1 mínútu dans, 2 umf. á dýnu
og 2.umf á trampólíni) Hægt er að
óska eftir að fá reglurnar sendar á tölvupósti.
Í hverju liði eru 6-12 keppendur en hægt er að
mæta með fleiri en eitt lið. Undanþága
er veitt fyrir fleiri en 12 keppendur í liði og fleiri
en 6 keppendur í umferð á áhaldi ( 6
fyrstu keppendurnir telja til stiga liðsins) Þjálfarar
mæta með stökklista og dansblöð tilbúin
á mótsstað. Hvert lið kemur með einn
dómara. Ef lið getur ekki útvegað dómara
munu mótshaldarar sjá um það en viðkomandi
félag sér um kostnað sem því fylgir,
3000 krónur. Veitt verða verðlaun fyrir 1. 2. og
3. sæti . Mótinu verður aldurskipt ef þátttaka
verður mikil. Mótagjald
er 1.500.- kr á keppanda og greiðist á mótsstað
eða inn á reikning 113-26-10817 kt: 571083-0359. Þátttökutilkynningar
+ nöfn dómara berist fyrir mánudaginn 7. janúar
á netfang audurola@internet.is Upplýsingar eru í
síma 698-1436 (Þorbjörg)
Kveðja
Fimleikadeild Fylkis |