|
|
|
Hið
árlega Jólasveinamótið mun fara fram
30. desember n.k. Mæting er kl. 19:30 og keppni hefst kl.
20:00 (stundvíslega !). Aðgangseyrir er aðeins
kr. 1.500. Mótið fer fram í húsnæði
Gerplu í Kópavogi. Mótið fer nú
fram í 24. skiptið og það fyrir luktum dyrum
rétt eins og verið hefur síðan 1982. Stjórnendateymi
mótsins hafa sent frá sér fréttatilkynningu
sem segir að mótið verði glæsilegra en
nokkru sinni fyrr. Þeir sem vilja fá nánari
útlistun á því hvað fellst í
því eru hvattir til þess að hafa samband
við talsmann stjórnendateymis sem er Ómar Örn
Ólafsson og veitir hann allar frekari upplýsingar
í síma 669-9387 og í netfangið: omaro@vodafone.is
|
Sif
í hópi 10 efstu í vali á Íþróttamanni
ársins 2006
|
|
23/12/06
JF |
Sif
Pálsdóttir, fimleikakona úr Gróttu,
hefur verið útnefnd sem ein af tíu efstu í
kjöri um Íþróttamann ársins en
frá því var greint í Morgunblaðinu
í dag. Ástæða er til að óska
Sif innilega til hamingju með þennan mikla heiður.
Sif varð Norðurlandameistari í áhaldafimleikum
á árinu (sjá hér).
Íþróttamaður ársins 2006 verður
útnefndur í hópi á Grand Hótel
Reykjavík fimmtudaginn 28. desember. Þetta verður
í 51. sinn sem Samtök íþróttafréttamanna,
standa að kjörinu frá stofnun þeirra árið
1956. Nýr verðlaunagripur verður nú afhentur
í fyrsta sinn, en styttan sem fylgt hefur kjörinu
frá upphafi var afhent í síðasta sinn
í fyrra og hefur nú verið látin Þjóðminjasafninu
í té til varðveislu. Atkvæði í
kjöri Samtaka íþróttafréttamanna
hafa verið talin og liggur ljóst fyrir hvaða tíu
íþróttamenn urðu í efstu sætum
í kjörinu. |
 |
Fulltrú frá Fimleikasambandi Íslands hefur
verið í hópi 10 efstu sem hér segir:
2004 Rúnar Alexandersson, 3. sæti. 2002 Rúnar
Alexandersson, 7. sæti. 2000 Rúnar Alexandersson,
8. sæti. 1999 Rúnar Alexandersson, 6. sæti.
1998 Rúnar Alexandersson, 7. sæti. 1998 Elva Rut
Jónsdóttir, 10. sæti. 1994 Magnús Scheving,
1. sæti. 1988 Fjóla Ólafsdóttir, 4.
sæti. 1983 Kristín Gísladóttir, 9.
sæti. 1979 Sigurður T. Sigurðsson, 9. sæti.
Nöfn þeirra 10 Íþróttamanna sem
efstir urðu að þessu sinni eru í stafrófsröð
sem hér segir: Auðunn Jónsson (kraftlyftingamaður
úr Krafti), Ásthildur Helgadóttir (knattspyrnukona
hjá Malmö FF), Birgir Leifur Hafþórsson
(kyldugur úr GKG), Eiður Smári Guðjohnsen
(knattspyrnumaður hjá Barcelona), Guðjón
Valur Sigurðsson (handknattleiksmaður hjá Gummersbach),
Margre´t Lára Viðarsdóttir (knattspyrnukona
hjá Duisburg), Ólafur Stefánsson (handknattleiksmaður
hjá Ciudad Real), Ragna Ingólfsdóttir (badmintonkona
úr TBR), Sif Pálsdóttir (fimleikakona úr
Gróttu) og Örn Arnarson (sundmaður úr SH).
Nánar um reglur varðandi kjörið sjá
hér: www.sportpress.is
Sýnt verður frá viðburðinum kl. 20:00
þann 28. desember á RÚV og Sýn. Klukkan
19:25 mun Sýn byrja að rifja upp íþróttaárið
2006 í beinni útsendingu. |
|
Frétt meðal annars byggð á upplýsingum
úr Morgunblaðinu 23. desember 2006. |
Fimleikasamband
Íslands auglýsir starf framkvæmdastjóra
sambandsins laust til umsóknar.
.
Starfið felur m.a. í sér almennan rekstur skrifstofu
og samskipti við nefndir sambandsins, fimleikafélögin
og ÍSÍ.
Starfið
er mjög fjölbreytt og gengur mikið út á
mannleg samskipti. Nauðsynlegt er að umsækjandi
hafi reynslu á almennum skrifstofustörfum og markaðsmálum.
Reynsla eða þekking af störfum íþróttahreyfingarinnar
er æskileg.
Upplýsingar
gefur Anna R. Möller í síma 514 4060 eða
í tölvupósti fsi@isisport.is.
Umsóknafrestur
er til 10. janúar.
|
Opin
fundur um Íslenska fimleikastigan
|
|
12/12/06
GÞB |
| Tækninnefnd
karla minnir á opinn fund sem fram fer um hin nýju
þrep íslenska fimleikastigans laugardaginn 16. desember.
Vonandi geta fulltrúar úr öllum félögum
komið og kynnt sér uppbyggingu og innihald stigans.
Fundurinn verður í nýja Ármannsheimilinu
í Laugardal og hefst stundvíslega klukkan 13:00.
kveðja
Tækninefnd karla í áhaldafimleikum |
Barnaíþróttir
á villigötum
|
Grein
birt í Morgunblaðinu þann 10/12/2006 |
Meira |
13/12/06
HS |
Undanfarið
hefur verið mikil umræða í hinum ýmsu
fjölmiðlum um uppeldi barna, starfsemi leikskóla
og um afreksmannastefnu í barnaíþróttum.
Þar hefur líka verið fjallað um minni hreyfingu
barna og aukin hreyfivandmál hjá börnum og
þau félagslegu, andlegu og líkamlegu vandamál
sem slík börn eiga oft við að glíma.
Í þessari grein mun ég fjalla um barnaíþróttir
og þau markmið sem ættu að vera þar
í brennidepli.
Látum ekki barnaíþróttirnar verða
að afreksmannaþjálfun. Við þurfum
að gæta þess að íslensk börn
fái að leika sér og því ástæðulaust
að hefja keppnisíþróttir fyrr en börn
eru orðin 10-11 ára. Barnaíþróttir
eru á villigötum á Íslandi í
dag.
Meira
|
JÓLASÝNING
FIMLEIKAFÉLAGSINS RÁNAR VERÐUR HALDIN Í
ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐINNI
SUNNUDAGINN 17.DESEMBER KL:16.00 AÐGANGSEYRIR ER 500.- FYRIR
12 ÁRA OG ELDRI EINNIG MUN FÉLAGIÐ VERÐA
MEÐ LAKKRÍS TIL SÖLU Ágóði
af sölu lakkrísins rennur í áhaldakaup.
ALLIR VELKOMNIR
Fimleikafélagið Rán
|
Berglind
dæmir á Heimsbikarmóti í Braselíu
|
|
12/12/06
AM |
Berglind
Pétursdóttir alþjóðlegur dómari
á fimleikum, var valinn af FIG Alþjóðafimleikasambandinu
til þess að dæma í lokakeppni Heimsbikarmótanna
sem haldin er í Sau Paulo í Braselíu núna
13. – 18. desember. FSÍ óskar Berglind góðs
gengis á mótinu.
|
 |
Jólasýning
Fimleikadeildar Gróttu
- íslensku jólasveinarnir og fjölskyldan
þeirra -
|
|
12/12/06
SJ |
| |
Jólasýning
Fimleikadeildar Gróttu á Seltjarnarnesi fór
fram þann 2. desember undir yfirskriftinni íslensku
jólasveinarnir og fjölskylda þeirra. Eins og
meðfylgjandi myndir sýna þá var mikið
lagt í sýninguna með tilheyrandi lýsingu,
búningum og fleira. Fór sýningin fram í
fimleikasalnum þar sem stólum var raðað í
hvert fótmál. Vel kann að vera að innan
nokkurra missera mun fimleikadeild Gróttu halda sína
sýningu í nýjum og glæsilegum fimleikasal. |

Spenntar stúlkur bíða eftir því að
sýna sitt atriði. |
Jólasýning
Fimleikadeildar Umf. Selfoss
|
|
12/12/06
BH |
| Jólasýning
Fimleikadeildar Umf. Selfoss fór fram um liðna helgi
og er óhætt að segja að vel hafi tekist til.
Troðfullt var á tveimur sýningum og var mikil
og góð stemming í húsinu. Þjálfarar,
iðkendur og aðrir velunnar deilarinnar stóðu
saman að undirbúningi sýningarinnar og voru
þau að vonum ánægð að sýningu
lokinni. Meðfylgjandi myndir sýna ágætlega
jólastemminguna. |
 |
| Bergþóra
Kristín Ingvarsdóttir 17 ára. Fædd
árið 1989. Hún var krýnd fimleikamaður
deildarinnar fyrir árið 2006. Á árinu
varð hún Íslandsmeistari í 6.þrepi
sem eru frjálsar æfingar í almennum fimleikum.
Hún á fast sæti í liði Selfoss
í hópfimleikum og hefur verið burðarstólpi
í liðinu ár eftir ár. Hún á
því stóran þátt í velgengni
liðsins s.l. keppnistímabil og kemur sterk inn á
nýju keppnistímabili. Bergþóra þykir
mikil íþróttakona og góð fyrirmynd
annarra í fimleikadeildinni. |
 |
Fimleikar
yngstu iðkenda FA 9. des
|
|
10/12/06
FA |
| Þann
9. des var lokadagur hjá 4 – 5 ára hópum
Fimleikafélags Akureyrar sem Ármann hefur þjálfað
í vetur, sett var upp sýning í Glerárskóla
fyrir foreldra og aðstandendur barnanna.Vegna þess hve
mörg börn eru í þessum hópum varð
að skipta sýningunni upp í 4 hluta, 250 manns
mættu samtals til að horfa á börnin leika
listir sýnar.
Jólasveinn mætti á svæði og lék
listir sýnar með krökkunum, hann mætti mæta
oftar til að verða jafn góður og krakkarni
í fimleikum. Kannski það væri ráð
að Grýla, Leppalúði og Jólasveinarnir
mættu í fimleika til að bæta heilsuna.
Skoðið myndirnar á myndasíðu félagsins.Að
lokum gaf jólasveinninn krökkunum gjafir, FA þakkar
Sparisjóði Norðlendinga og Nettó fyrir gjafirnar.
|
Evrópumót
í hópfimleikum
- myndband -
|
Aðsent
myndband |
5/12/06
MC |
Workshop
í hópfimleikum fyrir 16 ára og eldri
29-30 desember 2006.
|
|
5/12/06
JF |
1.
Markmið
Tækninefnd í hópfimleikum hefur sem eitt af
markmiðum sínum að bjóða upp á
“workshop fyrir iðkendur og þjálfara í
senior og fullorðinsflokki amk einu sinni á ári.
Þar eiga iðkendur og þjálfarar að geta
komið saman til æfinga og fengið leiðbeiningar
og hugmyndir um útfærslur á æfingum
og uppbyggingu þeirra.
2. Hvar og hvenær
Hvenær: föstudaginn 29 desember og laugardaginn 30
desember. Staður: íþróttahús Gerplu,
Versölum 3 Kópavogi
3. Hverjir geta verið með ?
Allir iðkendur sem eru 16 ára og eldri mega taka þátt.
Það er ekki krafist neinna hæfni/getuskilyrða
til þess að taka þátt.
4. Þjálfarar
Tækninefnd hefur fengið eftirfarandi þjálfara
til þess að koma að þjálfununni: Johannes
Juulsgaard, Flemming Skaalum, Mikkel Jørgensen.
Þeir Flemming og Johannes voru þjálfarar á
ráðstefnunni sem haldin í haust. Allir þrír
eru Danir og koma frá liðinu frá Hulby/Slagelse
sem hafa undanfarin ár verið fremstir í hópfimleikum
í karlaflokki. Þeir eru bæði iðkendur
og þjálfarar og hafa verið þjálfarar
í allri skandinavíu á fjölda workshop
og ráðstefna.
5. Kostnaður og innihald
Verð fyrir workshopið er 3.500.- fyrir iðkanda. Ekki
er greitt sérstaklega fyrir þjálfara liðanna.
Innifalið í því eru æfingar og léttar
veitingar eða snarl á “kósí-föstudagskvöldi”.
6. Skráning
Skráningarform (hér að neðan) þarf
að skilast útfyllt í síðasta lagi
10. desember. Athugið aðeins eru pláss fyrir 75
iðkendur og því er það þeir sem
skrá sig fyrstir sem fá plássin. Skjal
hér.
|
Jólasýning
Fimleikadeildar Umf. Selfoss
- Þegar Trölli stal jólunum -
|
|
3/12/06
BH |
| Árleg
Jólasýning Fimleikadeildar Umf. Selfoss verður
nk. laugardag 9. desember í íþróttahúsinu
við Vallaskóla. Að þessu sinni verða
tvær sýningar, sú fyrri kl. 10:30-11:30 og
sú síðari 12:30-13:30. Sýningin verður
með nýju sniði þetta árið og er
þema sýningarinnar “Þegar Trölli
stal jólunum”. Allir iðkendur deildarinnar tæplega
300 börn taka þátt í sýningunni.
Að lokinni fyrri sýningunni verður Fimleikamaður
ársins heiðraður.
Í tenglum við jólasýninguna verður
kaffihúsastemming í andyri Sólvallaskóla.
Þar munu foreldraráð iðkenda sem stefna að
æfingarferð til Danmerkur næsta sumar vera með
kaffisölu og einnig verður seld súpa og brauð
á hagstæðu verði. Þá verður
til sölu ýmis smávarningur, s.s. kerti, jólakort
ofl.
Fimleikadeildin vonar að sem flestir leggi leið sína
í Sólvallaskóla á laugardaginn og
taki þátt í sannkölluðu jólaævintýri.
Húsið opnar kl. 10:00, aðgangur að sýningunni
er ókeypis.
|
Jólasprell hjá Fimleikafélagi Akureyrar
|
|
3/12/06
FA |
Í
dag sunnudaginn 3. desember var árlegt jólasprell/jólasýning
FA haldin í Íþróttahöllinni á
Akureyri. Vanalega hefur sýning þessi farið fram
í íþróttamiðstöð Glerárskóla,
en vegna fjölda iðkenda þá var sú
ákvörðun tekin að flytja sýninguna
í Höllina, og það var greinilegt að
ekki var vanþörf á. Húsfyllir var í
höllinni að fylgjast með iðkendum FA sýna
hin ótrúlegustu atriði. Tæplega 300 iðkendur
á aldrinum 5 til 20 ára sýndu listir sýnar
við mikinn fögnuð viðstaddra. Þjá
lfarar og iðkendur FA fá sérstakt hrós
fyrir að hafa komið þessari sýningu saman
á rétt rúmri viku, geri aðrir betur.
Takk fyrir,
Stjórn og þjálfarar
|
| Fimleikafélagið
Rán leitar eftir þjálfara fyrir áhaldafimleika
og hópfimleika. Áhugasamir hafi samband við
Svönu yfirþjálfara, svanajoh@simnet.is GSM:694-3617
eða Önnu Huldu yfirþjálfar, ahi@simnet.is
GSM: 899-7776.
|
|
|
|